Tíminn - 22.12.1982, Blaðsíða 1
Deilur um verdbotaútreikninga vegna raðhúsa í Garöabæ — bls. 4-5
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ
Miðvikudagur 22. desember 1982
292. tölublað - 66. árgangur
Láglaunabæturnar einn allsherjar skrípaleikur, segir Þórdur Ólafsson, formaður
Verkalýdsfélagsins í Þorlákshöfn:
„HÆSD SKATTGREIÐANDINN
FÉKK NÆR HÆSTU BÆTURNAR”
— „ á meðan fjöldi af fólki sem bráðvantar þetta núna fær lítid og jafnvel ekkert,T
■ „Hér er mikið rætt um láglaunabæt-
urnar, en fólk nánast gerir grín að þessu.
Þetta er einn alsherjar skrípaleikur,“
sagði Þórður Ólafsson, form. Verkalýðs-
félagsins í Þorlákshöfn, spurður um
viðbrögð manna þar við láglaunabótun-
um.
„Það er ótrúlegasta fólk sem er að fá
þetta - oft því sjálfu til stórrar furðu.
T.d. fékk hæsti skattgreiðandinn hér í
einu nágrannasveitarfélaganna nærri
því þær hæstu láglaunabætur sem unnt
er að fá. I annan stað er töluverður fjöldi
af fólki sem bráðvantar þetta núna, en
fær lítið og jafnvel ekkerrt. Auk þess er
ég sannfærður um að skattsvikarar fá
þessar bætur í stórum stíl. Þetta cr því
sannárlega ekki gert fyrir láglaunafólk-
ið“, sagði Þórður.
Sjálfur sat Þórður í samráðsnefndinni
sem fjallaði um útdeilingu bótanna.
Gerðir þú ekki athugascmd þar Þóröur?
„Ég mótmælti þessu harkalega, var
kannski of orðljótur til að þeir tækju
inark á mér. Á síðasta fundinum niður
í fjármálaráðuneyti lagði ég til að þessi
upphæð yrði t'rekar látin renna til
Krabbameinsfélagsins en að útdeila
henni á þennan hátl, til að koma í veg
íyrir þessa skömm. Allir hefðu geta sætt
sig viö gott málefni.
Að mínu áliti cr þetta ríkisstjórninni
til stórskammar og raunar furðulegt að
þetta skuli geta siglt svona í gegn um
Alþingi. Mér cr því orðið til efs að þcssir
blessaðir þingmenn og aðrir sem um
þetta fjalla hafi nóg vit og þekkingu á
hvað þeir voru að gera. Þeir settu líka
lögin í ágúst en fóru síðan ekkert að
vinna í þessu fyrr en komið var langt
fram í nóvember. Með því var málið sett
í svo mikinn hnút að menn sem höfðu
þekkingu á málum höfðu ekki tima til
að bjarga neinu.
■ Þessi frambyggði jeppi sem er í eigu björgunarsveitarmanns í Vík fauk um koll í óveðrinu er verið var að nota hann við b jörgunarstörfín.Mestamildi var að ekki skyldu
verða slys á mönnum, því bílstjórinn féll ót úr bílnum og annar björgunarsveitarmaður úr Víkverja varð með annan fótinn undir bílnum. Er talið að jöklastígvél sem hann
var í hafi bjargað fætinum Tímamynd Símon Gunnarsson, Vík
Gífurlegt tjón undir Eyjafjöllum af völdum óveðursins:
„LfKAST AD HVIRFILBYL-
UR HEFÐI FARIÐ YFIR”
— segir Vigfús Andrésson, bóndi f Berjanesi
SKJALA-
FALSARI
B0DART1L
ÖLTEITIS
HJÁSTÖR-
TEMPLARA!
■ Beiðni um rannsókn á all sérstæðu
skjalafalsmáli barst nýlega inn á borð
hjá rannsóknarlögreglunni í Keflavík.
Starfsmaður í Skipasmíðastöð Njarð-
víkur, Valur Guðmundsson, biður um
að gengið verði úr skugga um það,
hver, í hans nafni, með falskri undir-
skrift, hengdi upp á veggi í skipasmíða-
stöðinni fundarboð, þar sem skorað er
á starfsfúlk, að mæta á heimili móður
Vals og því boðið upp á áfengi.
„Án þess að ég viiji greina frá því
nánar tcl ég mig hafa ástæðu til að ætla
að ákveðnir aðilar hafi sett fundarboð-
ið upp mér til háðungar,11 sagði Vaiur
Guðmundsson, starfsmaðurinn sem
kærir. t samtali við Tímann.
„í fundarboðinu var tekið fram að
áfengi yrði haft um Itönd, en móðir
mín er stórtemplari, og þótt einhvcrjir
vilji koma höggi á mig er ástæðulaust
að blanda henni í málið. Það sýnir í
rauninni bara svart á hvítu hvað sá sem
svona gerir er á lágu plani.“
- Það mætti enginn heim til móður
þinnar?
„Nei. Sem betur fcr tökst að koma
í veg fyrir það. Enda hcfði fólk þá
einfaldlega verið vísa frá“, sagði
Valur.
- Sjó
■ - Það er hér allt á rúi og stúi og það
er líkast því að hér hafí hvirfílbylur farið
yfír eða órðið jarðskjálftar og tjónið er
alveg gífurlegt, sagði Vigfús Andrésson,
bóndi í Berjanesi undir Eyjafjöllum í
samtali við Tímann skömmu eftir að
símasamband komst á að nýju við bæina
sem verst urðu úti í óveðrinu sem
geisaði við suðurströndina.
Vigfús sagði að í Berjanesi hefðu þök
fokið af fjárhúshlöðu og fjóshlöðu,
járnbentir steinveggir hefðu lagst niður
undan veðurofsanum og bílar, traktorar
og annað lauslegt hefði fokið unt koll.
Rúður og hurðir hefðu brotnað, rafmagn
farið af og símasambandslaust hefði
verið. Hitinn í íbúðarhúsinu hefði farið
niður í fjórar gráður og þannig hefði fólk
orðið að þrauka í rúma tvo sólarhringa,
þangað til rafmagn komst á að nýju fyrir
tilstilli díselrafstöðvar um hádegisbilið í
gær. Sjá nánar frásögn Vigfúsar Andrés-
sonar á bls. 6
- ESE