Tíminn - 22.12.1982, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982
11
bækur
Sögur úr byggðum Suðurlands
■ Suðurlandsútgáfan Selfossi hefur sent
frá sér bókina Sögur úr byggðum Suðurlands,
fjórtán frásöguþættir, eftir Jón R. Hjálmars-
son. A bókarkápu segir: Þessi nýja bók Jóns
R. Hjálmarssonar er sú fimmta í röð
hliðstæðra bóka, þar sem hann skráir
áhugaverða sagnaþætti eftir viðtölum við
fólk á ýmsum stöðum. Það sem einkennir
þessar bækur sérstaklega er fjölbreytileiki
efnisins og rík frásagnargleði sögumanna.
Sögur úr byggðum Suðurlands eru þar engin
undantekning, nema ef síður væri. Jón R.
Hjálmarsson er fundvís á fólk sem vel kann
að segja frá og sögumenn hans segja aðeins
frá því, sem raunverulega er í frásögu
færandi. Þetta á þó alveg sérstaklega við um
þessa nýju bók, því að hún er ekki aðeins
stórfróðleg, heldur jafnframt bráðskemmti-
leg.
Bókin er 220 bls. að stærð, prentuð í
Prentsmiðju Suðurlands.
„Jólasveinninn á KorvafjalIi“
■ IÐUNN hefur gefið út bókina JÓLA-
SVEINNINN. Undirtitill: Sagan af jóla-
sveininum og búálfum hans á Korvafjalli.
Höfundar eru MAURI KUNNAS og
TARJA KUNNAS, en Vilborg Dagbjarts-
dóttir þýddi. - Saga þessi er finnsk að
uppruna og fjallar um jólasveininn sem býr
á Korvafjalli nyrst í Finnlandi. Hér segir líka
frá búálfunum hans og við fáum að fylgjast
með þeim á njósnaferðum þeirra út um víða
veröld, sjáum fjailháa bréfabunkana hlaðast
upp í pósthúsinu á Korvafjalli þegar jólin
fara að nálgast", segir í kynningu á kápubaki.
„Við kynnumst margvíslegum jólaundirbún-
ingnum og loks þegar stóri dagurinn rennur
upp, sjálfur aðfangadagur jóla og jólasveinn-
inn og búálfarnir aka með hreindýrum sínum
til allra heimsins barna og færa þeim
jólagjafnirnar." - JÓLASVEINNINN er
tæpar 50 blaðsíður í stóru broti. Asetning
annaðist setningu, en bókin er prentuð í
Finnlandi.
Hratt flýgur stund
- ljóöabók eftir Guörúnu P.
Helgadóttur
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur gefið út Hratt
flýgur stund, Ijóðabók eftir Guðrúnu P.
Helgadóttur, fyrrv. skólastjóra Kvennaskól-
ans í Reykjavík. I formála segir höfundur
m.a.: „Sumarið 1976 fórum við hjónin í
ferðalag til Þýskalands, yfir Alpafjöll og til
Ítalíu, en til þessara landa hafði ég aldrei
komið. Við höfðum ágætan farastjóra, Árna
G. Stefánsson fil mag. sem fræddi okkur um
héruðin, sem við ókum um, og sögu þeirra.
| Áður en ég vissi af hafði ég tekið upp blað
\ og blýant og hripað upp ferðasögu í eins
konar ljóðformi."
Bókin skiptist í kaflana Ferð um Þýska-
landi og Ítalíu sumarið 1976, Grikklandsferð
sumarið 1978, Á páskum á Mallorca 1979,
Mínirnánustu, í Lundi ogKlitterbyn sumarið
1982 og Hugdettur.
Lvfjafræðingatal
I tilefni 50 ára afmælis Lyfjafræðingafélags
íslands 5. des. s.l. hefur félagið nú gefið út
Lyfjafræðingatal. Unnið hefur verið að
bókinni nokkur undanfarin ár, en ritnefnd
hennar skipuðu þau: Axel Sigurðsson,
Aslaug Hafliðadóttur og Ingibjörg Böðvars-
dóttir. Þetta er vönduð bók og er ómissandi
fyrir alla lyfjafræðinga og þá sem áhuga hafa
á ættfræði.
í bókinni eru taldir þeir íslenskir og
erlendir lyfjafræðingar og aðstoðarlyfja-
fræðingar, sem starfað hafa hér á landi frá
1760-1982. Bókinni er skipt í fjóra kafla:
Lyfjafræðingar á íslandi
Erlendir lyfjafræðingar
á Islandi
Prófár lyfjafræðinga
Lyfjabúðir á íslandi
Aftast í bókinni er nafnaskrá. Bókin er
378 blaðsíður og er prentuð í Prentsmiðju
Hafnarfjarðar hf. Bókin fæst í helstu bóka-
búðunum og á skrifstofu Lyfjafræðingafélags
Islands.
Dagurinn þegar Óli borðaði
sósuna með skeiðinni.
■ Bókaútgáfan Frjálst orð hefur gefið út
bókina Dagurinn þegar Óli borðaði sósuna
með skeiðinni eftir Ásgeir Þórhallsson. I
bókinni eru 5 smásögur, allar sagðar í fyrstu
persónu.
Á bókakápu segir höfundur m.a.: Ég
nenni ekki lengur að hlusta á bókmennta-
fræðinga og kerlingabækur. Ég vil bara gera
þetta eftir mínu höfði. Það er ekki hverpig
maður skrifar, heldur hvað. Þessi bók er ekki
skrifuð til að vera snilldarverk, einungis til
að vekja ánægju.
Dagurinn þegar Óli borðaði sósuna með
skeiðinni er 74 bls., prentuð í Steindórs-
prenti.
Dynskógar
■ Út er komið í fyrsta sinn ritið Dynskógar
- rit Vestur-Skaftfellinga. Ritinu er ætlað að
flytja þætti og greinar um vestur-skaftfellska
sögu og menningu, og verður, eins og segir
í formála, „reynt að forða frá gleymsku
mörgu því, sem drifið hefur á daga héraðsins
og íbúa þess". í fyrsta hefti Dynskóga ritar
Jón Thor Haraldsson um Vík í Mýrdal,
myndun þorpsins og þróun, Sveinbjörg
Jónsdóttir ritar greinina Eftir Kötlu, séra
Björn Magnússon ritar greinina Smávegis um
Prestbakkakirkju og aðdraganda að smíði
hennar. Eyjólfur Eyjólfsson ritar um jarðar-
fararsiði í Meðallandi á ofanverðri 19 öld og
öndverðri hinni 20. og Sigþór Sigurðsson
ritar um Dyrhólahöfn. Ennfremur eru í
ritinu annálar úr öllum hreppum sýslunnar
frá árinu 1980 og enn fleira efni er í því. Það
er innbundið og ríkulega prýtt gömlum og
nýjum myndum, meðal attnars eru í því
nokkrar litmyndir.
í ritnefnd Dynskóga eru Björgvin Saló-
monsson skólastjóri, Helgi Magnússon bóka-
vörður og séra Sigurjón Einarsson. Útgef-
andi er Vestur-Skaftafellssýsla. Dynskógum
er ætlað að koma út á tveggja ára fresti en
næsta hefti verður þó gefið úl þegar á næstii
ári. í tilefni 200 ára afmælis Skaftáfeída.
Dynskógar fást á almennum markaöi í
nokkrum bókaverslunum, en einnig má fá
ritið i áskrift hjá Björgvin Salómonssyni,
Skeiðarvogi 29 fsími 81827) og hjá Sögufé-
laginu, Garðastræti I3b fsími 14620),
Reykjavík.
Tvær nýjar bækur frá
Bókaútgáfunni Björk
■ Bókaútgáfan Björk hefur sent frá sér 2
barnabækur í safninu: Skemmlilegu smá-
barnabækurnar, sem liafa verið sígildar
barnabækur í áratugi og átt miklum vinsæld-
um að fagna. Bækur þessar eru:
1. Dísa litla. endursögð úr dönsku af Stefáni
Júlíussyni, rithöfundi og kemur nú út í fyrsta
sinn. Hún er 13. bókin í safninu. Dísa litla
er prentuð í 4 litum, bráðskemmtileg og
mjög vel til hcnnar vandað. Bókin er unnin
í Prentsmiðjunni Odda h/f.
2. Kata er 10. bókin í þessum tlokki í þýðingu
Vilbergs Júlíussonar skólastjóra. Hún hefur
koniið út áður, en verið ófáanleg í mörg ár.
Hún er einnig prentuð í litum í Prentverki
Akraness h/'f.
Aörar bækur í þessum bókaflokki heita:
Bangsi litli, Benni og Bára, Bláa kannan,
Græni hatturinn, Láki, Leikföngin hans
Bangsa litla, Skoppa, Stuhbur, Stúfur,
Svarta kisa og Tralli.
Valur og lcikhúsiö
Arnartak hcfur sent frá sér bókina „Valur
Gíslason - og leikhúsið" eftir Jóhannes
Helga. Það er tuttugasta verkið sem Jóhann-
es sendir frá sér.
Valur Gíslason hefur framaröðrum núlifandi
mönnum varpað ljóma á íslenskt leikhús og
um leið sett svip á samtíð okkar. Hann
rekur i bókinni æviferil sinn hógværum
orðum, áttræður að aldri - og fimm
þjóðkunnir leikhúsmenn fjalla í samvinnu
við Jóhannes Helga vítt og breitt um
listamanninn og manninn - í heimi leikhúss-
ins og utan hans. Það eru þau Helga
Bachmann, Helgi Skúlason, Klemenz
Jónsson, Gunnar Eyjólfsson og Sveinn
Einarsson. Bókin hefur að auki að geyma
einstætt myndefni scm sýnir persónusköpun
Vals, svo til öll gervi hans og hlutverk á sviði
og í sjónvarpi á meira en hálfrar aldar
leikferli, á þriðja hundrað talsins. Valur
hefur alla tíð gert gerfi sín sjálfur af miklum
hagleik og er myndefnið því, auk (eiksögu-
og upprifjunargildisins, mcrkileg heimild í
nútíð og framtíð.
Bókin er 232 blaðsíður í stóru broti. Hún
er unni í Odda h.f. Matthías Ólafsson gerði
kápumynd.
OÐSOGUR
SKjFlíSAR
SIGFUSSONAR
Út eru komin 4 bindi nýrrar útgáfu af hinu mikla og
merka safni Sigfúsar Sigfússonar: íslenskor þjódsögur og
sagnir. Flestar sögurnar skráði Sigfús eftir lólki á Austur-
landi kringum síðustu aldamót. Ymsar þeirra hafa ekki
birst áður, en flestar hinna eru hér í eldri gerð og upphaf-
legri en í fyrri útgáfu.
Oskar Halldórsson dósent býr þjóðsögurnar til prentun-
ar og skrifar formála.
Hér er komið stærsta safn íslenskra þjóðsagna sem
skráð hefur verið. Þessi fjögur bindi eru kringum 1600
blaðsíður.
Fyrri útgáfa þessara þjóðsagna er löngu uppseld.
ÞJÓÐSAGA
ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 13510