Fréttablaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 2
2 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Margrét, er þetta ekki eins og
best verður á kosið?
„Nei, ég myndi helst kjósa að kjósa
síðar.“
Margrét Sverrisdóttir, varaformaður
Íslandshreyfingarinnar, vill ekki að gengið
verði til kosninga í apríl og segir það
munu koma nýjum framboðum illa.
Er mataræðið
óreglulegt?
LGG+ er fyrirbyggjandi vörn!
Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar
máltíðir – allt þetta dregur úr innri
styrk, veldur þróttleysi, kemur
meltingunni úr lagi og stuðlar að
vanlíðan. Regluleg neysla LGG+
vinnur gegn þessum áhrifum og
flýtir fyrir því að jafnvægi náist
á ný. Dagleg neysla þess
tryggir fulla virkni.
H
V
Í T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
LÖGGÆSLUMÁL Fjórar hverfisstöðv-
ar lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu verða stórefldar á næst-
unni. Fyrirhugað er að starfandi
verði fimm lögreglustöðvar sem
hver um sig verði sjálfstæð ein-
ing. Þangað verði almenna lög-
gæslan færð að mestu leyti og gerð
þaðan út.
Stefán Eiríksson lögreglu-
stjóri staðfesti í gær að kynning á
umtalsverðum skipulagsbreyting-
um innan lögreglunnar væri nú í
gangi, en kvaðst ekki vilja tjá sig
frekar um þær þar sem þær hefðu
enn ekki verið kynntar öllum
deildum.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Fréttablaðið hefur aflað sér
verða hverfisstöðvarnar, auk aðal-
stöðvarinnar við Hverfisgötu, í
Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfells-
bæ og vesturbæ Reykjavíkur.
„Þetta eru skipulagsbreytingar
sem miða fyrst og fremst að því að
ljúka því verkefni sem við erum
í, það er að setja á laggirnar nýtt
embætti lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu,“ sagði lögreglustjóri
aðspurður um tilgang þeirra breyt-
inga sem hann væri nú að kynna.
„Fyrir breytingum eru bæði fagleg
og fjárhagsleg rök,“ segir Stefán.
Í skipulagsbreytingunum er
gert ráð fyrir að því lögreglu-
stöðinni í Breiðholti verði lokað.
Almenn löggæsla á svæðinu fær-
ist yfir til Kópavogs.
„Það er mikið áhyggjuefni eigi
að færa lögreglustöðina úr Breið-
holtinu,“ segir Þorsteinn Hjartar-
son, framkvæmdastjóri þjónustu-
miðstöðvar Breiðholts.
„Það stóð til að kynna breyt-
ingarnar fyrir borgaryfirvöldum
í síðustu viku en þá var svo mikið
í gangi að við náðum ekki að fara
yfir þetta. Síðan verða breyting-
arnar kynntar sveitarfélögun-
um. En það er mikill misskilning-
ur haldi menn að lögreglan sé að
draga sig frá sveitarfélögunum,“
segir Stefán. Að sögn lögreglu-
stjóra er stefnt að því að á hverri
þjónustumiðstöð verði aðstaða
fyrir hverfislögreglumann sem
vinni með skóla- og félagsmála-
yfirvöldum. jss@frettabladid.is
Nær öll löggæsla
færð út í hverfin
Nær öll almenn löggæsla á höfuðborgarsvæðinu verður færð út í hverfisstöðv-
ar á svæðinu, samkvæmt umfangsmiklum skipulagsbreytingum lögreglunnar.
Framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Breiðholts hefur áhyggjur af stöðunni.
LÖGREGLUSTÖÐIN Í KÓPAVOGI Lögreglustöðin í Kópavogi verður ein af fimm hverfis-
stöðvum sem munu starfa sem sjálfstæðar einingar á höfuðborgarsvæðinu.
„Mér finnst afleitt að flytja hverfalögregluna úr Breiðholti,“ segir Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn. „Þar og í Árbæ þjónar hún
40 þúsund íbúum og hefur náð afburðaárangri. Þarna er horfið mörg ár
aftur í tímann.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, segir ekki búið að kynna
tillögur lögreglustjóra að skipulagsbreytingum á löggæslu fyrir sveitarstjórn-
um. Það verði gert og þá fái þær tækifæri til að tjá sig um sjónarmið sín.
„Ef þessar breytingar fela á endanum í sér eflingu á hverfislöggæslu á höf-
uðborgarsvæðinu eru þær jákvæðar. En endanlega afstöðu til þeirra er ekki
hægt að setja fram fyrr en þær liggja fyrir með skýrum hætti.“
Afleitt að loka stöðinni í Breiðholti
PALESTÍNA, AP Hamas-hreyfingin á Gasaströnd vill
semja um langtíma vopnahlé við Ísrael gegn því að
landamæri svæðisins verði opnuð.
„Við viljum vera partur af alþjóðasamfélaginu,“
sagði Ghazi Hamad, leiðtogi Hamas, við fréttamann
AP-fréttastofunnar á landamærum Egyptalands,
þar sem hann var að taka á móti aðstoð frá araba-
ríkjum. „Ég held að Hamas hafi engan áhuga á að
æ oftar skapist neyðarástand á Gasa eða að ögra
umheiminum.“
Sameinuðu þjóðirnar hafa sett á laggirnar neyðar-
söfnun fyrir íbúa Gasastrandar, þar sem eyðilegg-
ing er gríðarleg eftir þriggja vikna stanslausar
árásir Ísraelshers frá 27. desember síðastliðnum til
18. janúar.
Ban Ki Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, segir brýnt að veita íbúunum neyðarhjálp.
Stefnt er að því að safna 613 milljónum Bandaríkja-
dala, sem á að duga Sameinuðu þjóðunum og öðrum
hjálparstofnunum til hjálparstarfs á Gasa næstu sex
til níu mánuðina.
Egypsk stjórnvöld tilkynntu á föstudag að þau
stefndu að því að stefna fulltrúum ríkja heims
saman á ráðstefnu í Kaíró í byrjun mars þar sem
endurreisn á Gasa og fjármögnun hennar verður
rædd.
Hið 20 daga innrásarstríð Ísraela kostaði 1.300
manns lífið auk þess sem meira en fimm þúsund
manns særðust. Meira en 20 þúsund íbúðarhús voru
eyðilögð eða illa skemmd. - gb/aa
Sameinuðu þjóðirnar safna fyrir íbúa Gasasvæðisins:
Hamas vill semja við Ísrael
BÍÐA AÐSTOÐAR Palestínumenn í Khan Younis biðu þess í gær
bak við girðingu að fá matvælaaðstoð frá Sameinuðu þjóðun-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNING „Þetta er gallerí í mótun
og við bjartsýnar á að Íslendingar
vilji hafa heimili sín enn fegurri,
nú þegar dimmara er yfir þjóðar-
búskapnum,“ segir Rebekka Árna-
dóttir, framkvæmdastjóri List-
smiðju Art2b, sem ásamt Hallfríði
Jóhannsdóttur opnar 1.000 fer-
metra listmunasölu á Korputorgi
í dag.
„Við ætlum að skapa hér lifandi
gallerí þar sem þekktir jafnt sem
óþekktir listamenn setja upp verk
sín. Þá stefnum við á ríkulegt nám-
skeiðahald og vinnusvæði fyrir
listamenn,“ segir Rebekka.
- þlg / sjá Heimili og hönnun
Listsmiðja Art2b á Korputorgi:
Stærsta gallerí
landsins opnað
LIST Íslenskir og kínverskir listmunir eru
áberandi í galleríinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UMFERÐ „Við reynum að vera aðeins
mildari í kreppunni og margir eru
þakklátir fyrir það,“ segir Kolbrún
Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Kol-
brún segir bílastæðaverði borg-
arinnar hafa gefið út færri sekt-
ir undanfarna mánuði en áður
var. Það orsakist að hluta af því
að færri bílar leggi í stöðumæla-
stæði en áður og því sé meira um
laus stæði, en auk þess séu verð-
irnir hvattir til að sýna aukna þol-
inmæði þegar tíminn á mælum eða
íbúakort séu útrunnin og þegar
lagðar eru fram kvartanir vegna
sekta.
Að sögn Kolbrúnar hefur þó ekk-
ert breyst af hálfu bílastæðavarð-
anna þegar kemur að stöðvunar-
brotum, til að mynda þegar lagt
er of nálægt gangbrautum, fyrir
framan brunahana og slíkt. Slík
mál séu tekin jafn föstum tökum
og áður.
Fyrir nokkrum árum var tekin
upp sú nýbreytni hjá Bílastæða-
sjóði að gefa út viðvaranir í stað
sekta. Kolbrún segir áminning-
armiðana hafa gefist vel. „Við
notum áminningar aðallega þegar
um er að ræða ný hverfi og íbú-
arnir kannski ekki alveg búnir að
átta sig á hvar má leggja og hvar
ekki. Við beitum þessum viðvörun-
um oftast í tvo daga áður en við
byrjum að sekta. Þetta hefur virk-
að vel, en auðvitað eru alltaf ein-
hverjir sem láta sér ekki segjast,“
segir Kolbrún Jónatansdóttir. - kg
Framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs segir sektum hafa fækkað að undanförnu:
Bílastæðaverðirnir mildari
STÖÐVUNARBROT Bílastæðaverðir sýna
útrunnum stöðumælum meiri þolin-
mæði en áður, að sögn Bílastæðasjóðs.
MÓTMÆLI Sautjándi mótmæla-
fundur Radda fólksins verður á
Austurvelli klukkan 15 í dag.
Sem fyrr er Breiðfylking gegn
ástandinu, yfirskrift fundarins.
Með samstilltu átaki fjöldans og
einbeittum markmiðum hefur
okkur tekist að ná glæsilegum
áfangasigri, segir í tilkynningu.
Ein óvinsælasta stjórn Íslands-
sögunnar sé fallin, boðað hafi
verið til kosninga og búið sé að
víkja stjórn Fjármálaeftirlitsins
frá störfum. Afsagnar stjórnar
Seðlabankans er þó enn krafist.
Þá boða Raddir fólksins til Bús-
áhaldabúgís á NASA í kvöld. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 23 og
rennur þúsund króna aðgangs-
eyrir óskiptur til Radda fólksins.
- ovd
Mótmælt á Austurvelli:
Sigurhátíð
mótmælenda
VINNUMARKAÐUR Rúmlega fjórð-
ungi starfsmanna á öryggissviði
Keflavíkurflugvallar ohf. hefur
verið boðið 50 prósenta starfs-
hlutfall og tekur það gildi eftir
allt að þrjá mánuði. Níutíu starfs-
menn starfa á öryggissviðinu og
gætir mikillar óánægju meðal
þeirra með það hvernig staðið er
að málum.
Þórarinn Eyfjörð, fram-
kvæmdastjóri Starfsmannafélags
í almannaþágu, SFR, segir að
fundir hafi verið haldnir með
starfsmönnum og stjórnendum
fyrir nokkru og þá verið einhugur
um að lækka starfshlutfall allra
starfsmanna eða um sextán pró-
sent þannig að allur hópurinn
tæki á sig skerðinguna. Stjórnend-
ur hafi til að byrja með tekið því
vel en hætt við þegar um tuttugu
til þrjátíu manna hópur um 400
starfsmanna mótmælti. -ghs
Keflavíkurflugvöllur:
Starfsmenn
óánægðir með
minni vinnu
LÖGREGLAN Enginn hefur kært
lögregluna til ríkissaksóknara
í tengslum við mótmæli síðustu
vikna, en nokkrir mótmælendur
höfðu kvartað í fjölmiðlum undan
meintu óþarfa ofbeldi hennar.
Stefán Eiríksson, lögreglu-
stjóri á höfuðborgarsvæðinu,
segir lögregluna heldur ekki hafa
fundið nein atvik, í yfirferð sinni,
sem gefi tilefni til þess að koma
ábendingum til ríkissaksóknara.
Lögreglustjóri tekur þó fram
að ekki sé búið að fara yfir öll
atvik sem kunni að orka tví-
mælis. - kóþ
Mótmæli síðustu vikna:
Enginn kært
lögregluna
VIÐSKIPTI Baugur Group hefur
ákveðið að loka skrifstofu sinni á
Túngötu og hefur öllum fimmtán
starfsmönnum fyrirtækisins hér á
landi verið sagt upp störfum. Jafn-
framt hyggst Baugur fækka starfs-
mönnum í Bretlandi úr 29 í 16.
„Þetta er lokahnykkurinn í því
endurskipulagningarferli sem
hófst síðastliðið sumar og miðar
að því að færa starfsemi okkar til
Bretlands,“ segir Gunnar Sigurðs-
son, forstjóri Baugs. Aðgerðirnar
má rekja til þess að aðstæður
okkar eru auðvitað gjörbreyttar og
með þessu næst fram hagræðing í
rekstri meðan við siglum í gegnum
þetta þunga skeið.“ - kg
Baugur Group:
Segja upp fólki
og loka á Íslandi
SPURNING DAGSINS