Fréttablaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 10
10 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR
VINNUMARKAÐUR Mestu skiptir
að halda rútínu, vakna á morgn-
ana, hreyfa sig, hitta fólk, nýta sér
námskeið og tómstundastarf fyrir
atvinnulausa
og stunda upp-
byggjandi starf-
semi. Á höfuð-
borgarsvæðinu
er víða verið að
undirbúa nám-
skeiðahald og
tómstundastarf
fyrir atvinnu-
lausa en einna
lengst er það
komið hjá VR
þar sem búið er að semja um nám-
skeiðahald og tómstundastarf fyrir
atvinnulausa. Gönguhópur hittist
reglulega og leiklistin er komin í
gang.
Jóhanna Elísabet Vilhelmsdótt-
ir, verkefnastjóri hjá VR, heldur
utan um verkefni fyrir atvinnu-
lausa á vegum VR og segir að búið
sé að semja við þó nokkra aðila.
„Við lítum þannig á að félagsmenn
okkar geti búið sér til sitt eigið
prógramm að morgni og nýtt sér
þá þjónustu sem við bjóðum frítt,“
segir hún og bendir á að atvinnu-
lausir geti líka sótt fundi á vegum
VR og hitt um leið fólk sem er í
starfi.
VR býður upp á námskeið fyrir
atvinnulausa og maka þeirra og
þá sem hafa þurft að skera niður
vinnutíma og lækka í launum í
Opna háskólanum sem er á vegum
Háskólans í Reykjavík. Í Nýttu
kraftinn, sem er á vegum Maríu
Bjarkar Óskarsdóttur og Sigríðar
Snævarr, er dagskipun, sem fyrst
og fremst miðar við háskólamennt-
aða einstaklinga, hver dagur tek-
inn sem vinnudagur væri og not-
aður til að víkka hugann og nýta
tækifærin.
Í Hlutverkasetrinu á Laugavegi,
sem rekið er af iðjuþjálfa, eru einn-
ig ýmiss konar námskeið í gangi,
leiklist, gönguferðir, myndlist,
súpulist, hreyfing og tómstundir
svo eitthvað sé nefnt. Elín Ebba
Ásmundsdóttir iðjuþjálfi vonast til
þess að atvinnulausir verði virkir,
finni styrkleika sína og kenni jafn-
vel námskeið þannig að hægt verði
að byggja upp starfið enn betur.
Elín Ebba hefur reynslu af
því að byggja upp fólk með geð-
ræna erfiðleika fyrir þátttöku í
samfélaginu og atvinnulífinu og
er nú komin í forvarnastarfið, að
koma í veg fyrir að atvinnulaus-
ir sökkvi sér í sjálfsvorkunn og
þunglyndi og verði óvirkir í sam-
félaginu. Hún segir að öllu skipti
að atvinnulausir haldist virkir.
Fyrstu vikurnar fyllist fólk gjarn-
an krafti og helli sér í verkefni sem
lengi hafa setið á hakanum en svo
kvarti menn gjarnan undan því
að koma ekki miklu í verk. Smám
saman fari þeir að velta fyrir sér
hvað sé að þeim og spyrja: „Af
hverju ég?“ Mikilvægt sé að vinir
og ættingjar láti atvinnulaust fólk
ekki afskiptalaust. ghs@frettabladid.is
Atvinnulausir
þurfa að vera
virkir áfram
Atvinnulausir þurfa að halda rútínu og vera virkir
í gegnum námskeið og tómstundastarf. VR býður
þegar upp á slíka starfsemi og má búast við að fólk
fjölmenni í gönguhópa og á ýmis námskeið.
JÓHANNA ELÍSABET
VILHELMSDÓTTIR
VINNUMIÐLUNIN Á ENGJATEIG Rúmlega þrettán þúsund manns voru í gær skráðir
atvinnulausir. Ríflega átta þúsund karlar og tæplega fimm þúsund konur.
Það er eins gott að vanda valið þegar
keyptir eru rándýrir innfluttir ávextir.
Ég ráðfærði mig við Netið og Bene-
diktu í Maður lifandi og spurði hvern-
ig ætti að velja ávexti. Þetta er
auðvitað allt spurning um
að finna hæfilega þrosk-
aða ávexti, ekki gler-
harða óþroskaða og
ekki lina, blettótta
og ofþroskaða. Það
þarf því að kreista
aðeins, skoða lit og
lykta, en auðvitað
án þess að skemma
fyrir öðrum. Lífrænir
ávextir smakkast yfir-
leitt betur en eru því
miður allmikið dýrari. Hér eru nokkur
dæmi, frekari upplýsingar eru til dæmis
á thefruitpages.com.
■ Melónur – Því gulari sem melónan
er því betra. Græn er óþrosk-
uð. Ýta skal með þumlum á
enda melónununnar og ef
hún lætur aðeins undan
er það merki um góða
melónu.
■ Vatnsmelónur
– Því dökkgrænni
og stærri því betri.
Klappaðu vatnsmel-
ónu létt með flötum
lófa, djúpur þykk-
ur tónn þýðir góð
melóna.
■ Avókadó – Ávöxturinn dökknar við
þroska. Glerhart grænt avakadó er ekki
nothæft en avakadó sem lætur aðeins
undan þegar ýtt er á er gott. Óþroskaðir
ávextir þroskast þó að sjálfsögðu á eld-
húsborðinu heima hjá þér.
■ Appelsínur – Því þéttari börkur því
betri og þungar appelsínur miðað við
stærð eru betri.
■ Ananas – Því gulari því betri. Ef stilk-
arnir losna auðveldlega af þegar maður
tekur í þá er ávöxturinn líklega góður.
■ Jarðarber – Þessi stóru ílöngu sem
stundum fást eru bragðlítil og seig.
Minni ber eru betri.
■ Mangó – Leitið að hnöttóttum frekar
en þunnum og flötum. Mangóið þarf að
gefa aðeins eftir sé á það þrýst.
Neytendur: Hvernig á að velja ávexti?
Kreista, þefa og skoða lit ávaxtanna
ÁRI NAUTSINS FAGNAÐ Á þriðjudaginn
fagnaði þessi maður nýju ári nautsins
í Peking, og skrýddist höfuðbúnaði í
nautslíki í tilefni dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
MELÓNA Gefur hún
eftir á endunum?
frá: Mossberg, Remington, Marlin, CZ, Sako, Tikka, Weatherby og Fabarm.
Verð frá:
Húsgagnahöllinni Bíldshöfða – sími 585 7239
Lindum Skógarlind 2 – sími 585 7260
· Samningar
· Skuldbreytingalán
· Frysting á greiðslum
· Greiðslujöfnun
· Lenging lánstíma
· Greiðslufrestur vegna sölutregðu
Upplýsingar er að finna á vef
Íbúðalánasjóðs, www.ils.is.
www.ils.is Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Sími: 569 6900, 800 6969, fyrirspurnir@ils.is