Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 24
24 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR
F
ólk sækir mun meira í
andleg málefni á erfið-
um tímum,“ útskýrir
Magnús Skarphéðins-
son, formaður Sál-
arrannsóknarfélags
Reykjavíkur. „Ég hef séð þetta
gerast áður á krepputímum að
fleiri leita til Sálarrannsóknarfé-
laganna og annarra andlega félaga
en ella eða sækja miðilsfundi. Það
góða við þessa þróun er að fólk
heldur sig meira við andleg mál-
efni í kjölfarið. Fólki líður betur
þegar það fer að sinna andlegum
hliðum á sjálfum sér.“ Að sögn
Magnúsar bar flestum virtum
miðlum á vegum félagsins saman
um að kreppan væri yfirvofandi á
sínum tíma. „Þeir sáu þetta mikla
umbreytingaskeið fyrir. Sumum
þeirra bar saman um að kreppa
myndi skella á og sáu einnig fyrir
veikindi ráðherranna. Hins vegar
voru þeir sammála um að þetta
tímabil myndi ganga nokkuð hratt
yfir og verða styttra en fróð-
ir menn telja. Að ef Íslendingar
haldi vel á spöðunum muni draga
mjög úr atvinnuleysi, sérstaklega á
næsta ári, og að hér á Íslandi verði
evran tekin upp innan áratugar og
Ísland ganga hratt og örugglega
inn í Evrópusambandið. Einn spá-
miðillinn okkar sá sýn um að neglt
hefði verið fyrir Smáralindina en
ég vona nú að það rætist ekki. Ég
veit líka að þessi kreppa lá fyrir
í stjörnunum, Gunnlaugur Guð-
mundsson stjörnuspekingur var
til dæmis löngu búinn að sjá þetta
fyrir í sínum kortum.“
Fólk er haldið miklum kvíða
Magnús er ekki sérlega spennt-
ur fyrir stjórn Vinstri grænna
og Samfylkingar þó að bróðir
Magnúsar, Össur Skarphéðinsson,
verði líklega ráðherra. „Þar blas-
ir við aukin skattheimta. Ég er nú
langt frá því að vera sjálfstæðis-
maður en það hefði verið gott að
hafa sjálfstæðismenn með í þess-
um pakka. Þeir hafa oft meira
raunveruleikaskyn þegar kemur
að þessum málum. En nú reynir
á þetta nýja fólk, það er búið að
kvarta svo lengi.“
Magnús segist fá mörg símtöl á
dag frá fólki sem sýni starfi félags-
ins áhuga. „Fólk vill vita hvað við
erum að gera og hvað við erum að
starfa eða fá tíma hjá miðlum og
spámiðlum til að sjá fram í tímann
og að leita frétta af framliðnum
ástvinum. Það kvíðir framtíðinni
en svo er þetta oft líka einn af loka-
áfangastöðunum þegar fólk endur-
metur gildi sín. Þá fá þessi gildi
meira vægi. Dulræn mál máttu sín
lítils á meðan milljarðafurstarnir
réðu ríkjum hérna. Þegar sú stétt
bara hverfur alveg þá leitar fólk
annarra gilda.“ Það er jákvæð og
góð þróun að mati Magnúsar, sem
telur að þegar fólk sinnir and-
legu hliðinni sé það varanlegri
sigur en að hlaupa eftir veraldleg-
um gæðum. „Það er svo augljóst
að margt fólk er haldið kvíða og
að allmargir eru að endurskoða
heimsmynd sína. Fólki finnst það
hafa verið blekkt. Peningaguðinn
var guðinn sem brást.“ Nýir tímar
andlegrar vakningar ganga í hönd
að sögn Magnúsar. „Gildin verða
hjá mörgum í breyttri forgangs-
röð.“ En hvað með kirkjuna, telur
hann ekki að fleiri munu sækja
guðshús? „Æ, kirkjan er óttaleg-
ur miðaldaísjökull, greyið,“ svarar
hann. „Ég er ekki í vafa um það að
fólk sækir ýmislegt annað frekar
en andlega þekkingu til kirkjunn-
ar í dag. Það sækir meðal annars
friðinn og tónlistina og hugleiðsl-
una en það er lítið andlegt fóður
að hafa frá kirkjunni í dag. Þar er
yfirleitt jarmað um einhverja fjar-
læga helgisögn. Ég átti tal um þetta
við þjóðkirkjuprest um daginn og
hann var alveg sammála um það að
til þess að fólk færi að sækja oftar
kirkju væri líklega best að prest-
arnir þögnuðu endanlega, enda
hafa þeir ekkert lengur að segja né
mega neitt segja til að falla ekki í
ónáð hjá miðstýrðu biskupsveldinu
og skíthræddum safnaðarnefnd-
um. Best væri auðvitað að prestar
hefðu alvöru boðskap fyrir sóknar-
börn sín á sunnudögum eins og var
meðal annars hjá Haraldi Níelssyni
fyrir tæpum hundrað árum síðan.
Þá var svo mikil aðsókn í kirkjuna
að það voru gefnir út aðgöngumið-
ar til safnaðarmeðlima, svo mjög
var slegist um að heyra predikanir
Séra Haraldar, enda mikill spírit-
isti í predikunum sínum. “
Stór hluti þjóðarinnar
fer á miðilsfundi
Að sögn Magnúsar byrjaði áhugi
hans á andlegum málefnum þegar
hann var lítill drengur. „Foreldar
mínir voru spíritistar og það var
eðlileg hugsun á heimilinu að
það væru til aðrir heimar. Heim-
ur þar sem guð héldi sig, heimur
fyrir þá látnu, álfaheimar og ótal
aðrir . Ég hef aldrei verið skyggn
eða séð neitt dulrænt en hjá mér
óx mikil forvitni og áhugi um mál-
efnið. Þetta olli mér miklum heila-
brotum þegar ég var krakki. Eitt
sinn þegar ég var í landafræði-
tíma í Hlíðaskóla þá barst í tal
hversu mikill mannfjöldi væri á
Norðurlöndum. Ég spurði kennar-
ann þá hversu mikið væri af huldu-
fólki á Íslandi. Þá svaraði kennar-
inn að það væri ekkert huldufólk
á Íslandi og að þetta væru bara
sögur. Þá gerði ég mér grein fyrir
klemmunni sem málið var í. Ann-
ars vegar er fólkið sem sér þessa
hluti og hins vegar eru þeir sem
trúa engu og afskrifa þetta allt
sem vitleysu. Alla mína ævi hef
ég hitt fólk sem hefur reynslu af
öðrum heimum. Snemma upphófst
skipuleg söfnun frásagna sem ég
hef nú safnað áratugum saman.“
Þeir Íslendingar sem búa yfir
skyggnigáfu sjá stóra flóru af yfir-
skilvitlegum fyrirbærum að sögn
Magnúsar. „Sumir sjá fyrirbæri
aftur í tímann, aðrir fram í tím-
ann. Sumir sjá álfa, aðrir drauga
og sumir eitthvað allt annað.
Íslendingar sjá framliðna mjög oft
og þora að tala um það. Töluvert
stór hluti þjóðarinnar fer á miðils-
fundi en í gegnum sálarrannsókn-
arfélögin er hægt að komast í sam-
band við góða miðla.“ Þar að auki
er svo hið séríslenska huldufólks-
fyrirbæri sem Magnús segir hafa
mikla sérstöðu í heiminum. „Þessi
tengsl við álfa og huldufólk eru
hvergi til annars staðar nema hjá
frumbyggjum. Mín skoðun á þessu
máli mótast af sagnfræðinámi
mínu en ég held að þetta sé svona
hér á landi vegna þess að upplýs-
ingastefnan komst ekki til Íslands
fyrr en undir lok 19. aldar.
Um 1870 voru aðeins þrír eða
fjórir háskólamenntaðir menn á
landinu. Þegar upplýsingastefn-
an er mótuð í Evrópu var hún
mótuð gegn hjátrú, hindurvitnum,
bábilju, dellu og vitleysu. Hún var
reyndar mjög nauðsynleg stefna til
þess að rísa upp á móti framkomu
kirkju og valdamanna oft og tíðum.
En upplýsingastefnan hreinsaði
hins vegar út trú á líf eftir dauð-
ann og trú á náttúruvætti. En hér
á Íslandi barði upplýsingastefnan
þetta ekki niður svona snemma
vegna þess hve valdalítil hún var
hér á landi og kom seint. Í dag
trúa 54 prósent Íslendinga á álfa
og huldufólk á meðan að jafnaði 1-2
prósent erlendis trúa á slíka hluti.
Ég er viss um að ef það hefði verið
gerð skoðanakönnun árið 1500
hefðu þessar tölur verið svipað-
ar í öllum löndum.“ Magnús tekur
einnig fram að hátt í áttatiu pró-
sent Íslendinga trúi á líf eftir dauð-
ann á meðan sú tala er um fjörutiu
prósent hjá öðrum þjóðum. „Það er
einnig hægt að þakka þetta öflugu
starfi sálarrannsóknafélaganna
á fyrri hluta tuttugustu aldar, og
þá sérstaklega þeim frumkvöðlum
Einari Kvaran, Haraldi Níelssyni
og Séra Jóni Auðuns. “
Bók um kortlagningu
andaheima á leiðinni
Eftir áratuga rannsóknir á dul-
rænum efnum eru það ákveðnir
hlutir sem hafa komið Magnúsi
mest á óvart. „Það voru þessar
yfirþyrmandi vísbendingar og
líkur á tilvist annars heims þar
sem framliðnir eiga heimilisfesti.
Vísbendingar um staðinn sem allir
fara á, bæði dýrin og fólkið. Allar
þessar þúsundir þjáðra kvenna
og karla sem enda á sama staðn-
um. Það kom mér fallega á óvart,
af því að ég hef aldrei verið sér-
lega Biblíutrúaður, að það sem
Biblían kallar himnaríki virðist
vera til samkvæmt lýsingum á
miðilsfundum. Þetta Sumarland
sem hinir framliðnu lýsa í gegn-
um miðla. Að þeirra sögn er það
mjög fagur staður, þar eru engin
félagsleg eða pólitísk vandamál né
nokkrir sjúkdómar eða erfiðleikar.
Það eina slæma við þann stað er að
mínu mati er að þar er ekkert að
éta! Þar fær maður bara næringu í
gegnum andardráttinn eða af lykt-
inni af gróðrinum.“ Magnús segir
líka að margt bendi sterklega til
þess að fólk eigi sér fyrri jarðlíf.
„Ég sé enga sérstaka skynsemi í
fyrri lífum og af hverju fólk ætti
að koma aftur, en það er margt
sem bendir til þess. Það kom mér
einnig á óvart hversu veröld álfa
og huldufólks er umfangsmikil og
hversu geimverureynsla fólks er
merkileg og hvaða merkilegu hluti
geimverur hafa sagt við jarðar-
búa. Ótrúlegt er líka að heyra hvað
framliðnir hafa sagt við núlifandi
manneskjur. Við höfum verið með
skipulegar handanheimarannsókn-
ir hér hjá félaginu í vísindahóp og
fengið að spyrja hvernig lands-
lagið og siðmenningin er hinum
megin, um hvernig það er að deyja
og um hvernig þeir geta fylgst með
okkur sem og nátturulögmál sem
þar virðast ríkja. Okkur hefur
tekist að ná ótrúlega heildstæðri
mynd og við Sveinn Baldursson,
varaformaður félagsins, erum að
skrifa bók sem útskýrir þennan
heim nokkuð vel fyrir almenningi
og birtir niðurstöður úr þessum
rannsóknum okkar. Hún kemur
vonandi út í haust og heitir Leitin
að tilgangi heimsins.“
Magnús segist eiga sér stór-
an draum fyrir framtíðina. „Ég
á mér þann barnalega draum að
annars vegar verði þessir anda-
heimar kortlagðir nokkuð vel, sem
við erum að gera, og hins vegar
að fjölmargir miðlar eða trans-
miðlar verði á boðstólum fyrir þá
sem vilja tala við látna ástvini. Þá
gæti fólk komið og verið í sam-
bandi við framliðna hvenær sem
það óskaði þess. Ég á mér einnig
þann draum að sorg vegna miss-
is hverfi. Það eina sem er ekki
hægt að taka í burtu er eftirsjá og
vanlíðan út af aðskilnaði en það
yrði hægt að hafa samband yfir
í hinn heiminn hvenær sem er.
Þetta yrði mesta hljóðláta bylting
mannkynsins. Að vita hvert menn
eru að fara, hvaðan þeir komu og
hvað þeir eru að gera hér. Það eru
svo yfirgengilega miklir fordóm-
ar gagnvart þessum málaflokki.
Fólk segir oft að þetta sé ekki til,
að þetta sé geðveiki, eða að þetta
sé fjárplógunarstarfsemi. Þar er
málið statt og þar er það fast. Ég á
mér þá trú að þetta verði rannsak-
að með jákvæðu og opnu hugar-
fari. Ég held ekki að margir menn
myndu hegða sér illa ef þeir vissu
fyrir víst að örlög og gerðir þeirra
biðu þeirra á efsta degi. Eins og
Descartes og fleiri rituðu: þegar
trú er tekin út úr siðmenningunni
þá hrynur hún á endanum undan
sjálfri sér.“
Fólk leitar annarra gilda
Skráningum í Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur fer sífjölgandi, segir formaður þess, Magnús Skarphéðinsson. Anna Margrét
Björnsson ræddi við Magnús um kreppuna sem miðlar sáu fyrir, um kortlagningu á veröld hinna framliðnu og bjartari tíma
fram undan hjá þjóðinni.
MAGNÚS SKARPHÉÐINSSON Ekki sérlega hrifinn af vinstri stjórn þrátt fyrir að bróðir hans Össur taki þar líklega ráðherrasæti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Einn spámiðillinn okkar sá sýn
um að neglt hefði verið fyrir
Smáralindina en ég vona nú að
það rætist ekki.
1981-84 1990 2000
Ísland 60% 81% 78%
Finnland 60% 60% 55%
Svíþjóð 35% 38% 46%
Danmörk 32% 34% 38%
Noregur 51% 45% -
Bandaríkin 80% 78% 78%
Ítalía 59% 68% 73%
Bretland 56% 52% 60%
HLUTFALL FÓLKS Í NOKKRUM LÖNDUM
SEM TRÚIR Á LÍF EFTIR DAUÐANN
Samkvæmt hinni alþjóðlegu lífsgildakönnun
(tekið úr bók Erlendar Haraldssonar)