Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 26

Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 26
26 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR Byltingin er hafin en ekki afstaðin Trommur og kjuðar. Pottar og pönnur. Simbalar og gong. Rusla- fötur og kökuform. Við stóðum framan við Alþingishúsið og börð- um á þetta allt saman. „VANHÆF RÍKISSTJÓRN! — BANG! BANG! BANG!“ Við börðum okkur saman, slógum taktinn og slógum frá okkur. Búsáhaldabyltingin tókst vonum framar. Stjórnin féll á sjö- unda degi. Aldrei áður hefur annað eins sést á Íslandi. Loksins fór lang- þreyttur landinn út á götu, kveikti elda og lét í sér heyra. Þingheim rak í roga stans, þjóðin var mætt í Alþingisgarðinn, og ríkisstjórn- in sat sem lömuð undir hrópum hennar. Látum ekki vonsvikna ráðherra, málgagn þeirra og fréttastofur gamla Íslands, ljúga að okkur ástæðum stjórnarslita. Hér varð bylting og ekkert annað, líkt og aðeins erlendir miðlar hafa greint frá. „Skríll inn“ sigr- aði „fína fólkið“. Stjórnin féll fyrir reiðiöldu samfélags á heljarþröm. Staða hennar var orðin slík að hún lyppaðist niður fyrir eggjakasti og pottaglamri. Ég legg til að skjald- armerki hins nýja lýðveldis verði pottur og sleif. Við vorum búin að taka umræð- una. Búin að skrifa greinarnar. Búin að blogga okkur í hel og fylla Fésbókina. Við vorum komin hand- an við orð og ræður. Og slógum bara taktinn. Og allir vissu hvað átt var við. Allir skildu – að lokum meira að segja hin „taktlausa ríkis- stjórn“, eins og Guðmundur Andri kallaði hana á Austurvelli síðasta laugardag. Hún er fallin. En ekki er allt búið enn. Ekki má gefast upp þótt þessi sigur sé í höfn. Við viljum breytingar. Við viljum nýtt Ísland. Við viljum kveðja það gamla. Gamla fúla flokksveldið. Við viljum nýtt upphaf. Ráðist á veikan mann Maraþontrommudansinn við þing- húsið var magnaður á köflum. Fólk komst í hálfgerðan trans og stemn- ingin varð um tíma hundheiðin og skemmtileg. Einhver hafði orð á því að tekist hefði með eldi og afr- ískum takti að magna seið sem særði fram Íslands helgustu vætti. Landvættirnar voru komnar í lið með mótmælendum og því fór sem fór. Og þjóðin trommaði með allan tímann, þótt heima sæti. Fólkið í landinu. Sem vildi fá landið sitt aftur. En það var reynt að þagga niður í liðinu. Allt reynt til að slökkva eldinn. Þið eruð að ráðast á veikan mann. Haldið þið að eitthvað betra taki við? Þið eruð að trufla okkur í miðju verki. Verkefnin fram undan eru brýn. Vernda þarf heimilin í landinu. Kosningar tefja fyrir upp- byggingarstarfinu. Og hvað voruð ÞIÐ að gera sem ekki mátti trufla ykkur við? Jú, þið þurftuð að lægja öldurnar í flokknum, berja saman ríkisstjórn- ina, undirbúa landsfund, ákveða ykkur í sambandi við Evrópumál- in og kjósa nýjan formann. Gef oss a breik. Þvert á móti þurfti að vernda heimilin í landinu fyrir ykkur. Þið voruð að trufla okkur í miðju verki. Og á hverjum degi réð- ust þið á þann veika mann, sem íslenskt samfélag er, með því að sitja áfram. Þið gátuð ekki ráðið við vandann því þið sjálf voruð vandinn. Þið bjugguð hann til. Ríkisstjórnin sem sat aðgerðarlaus og horfði á bankana vaxa og bank- ana hrynja. Ríkisstjórnin sem sat áfram í rústunum og var hvorki til- búin að fórna biskup né peði af ótta við að Flokkurinn myndi klofna á meðan þjóðin klauf sig í herðar niður af örvæntingu yfir aðgerð- arleysinu. Ríkisstjórnin sem sat og horfði á landræningjana flytja þjóðarauðinn úr landi, á kviðfeitum einkaþotum, og leggja inn á reikn- inga á eyjum sem finnast ekki á korti því þær eru ekki eyjar heldur sjóræningjaskip. Því hér var framið bankarán með öfugum formerkjum. Bank- arnir rændu þjóðina. Og munur- inn á Bankaráninu og Tyrkjarán- inu er sá að hið síðarnefnda sendi nokkra tugi Íslendinga í ánauð en hið fyrrnefnda sendir alla þjóðina í ánauð. Við viljum nýtt upphaf. Nýtt Ísland. Nýtt lýðveldi. Segja bless við það gamla. Gamla Ísland Á frægum hitafundi Samfylking- arfélagsins í Reykjavík, sem hald- inn var í Þjóðleikhúskjallaran- um, steig Helgi Hjörvar í pontu og sagði kröfuna um afsagnir ráð- herra Samfylkingar fáránlega. „Það er fáránlegt að okkar fólk segi af sér á meðan Sjallarnir gera það ekki.“ Sem sagt: Á meðan hinir eru bíræfnir verðum við það líka. Þarna var gamla Íslandi rétt lýst. Flokkurinn fyrst og landið svo. Það er þessi hugsun sem þarf á haf út. Bæ, bæ, gamla Ísland! Og viku síðar, þegar Geir Haarde hafði stigið til hliðar, gat hann ekki einu sinni þá sagt það hreint út í sjónvarpsviðtölunum að hann hefði verið tilbúinn að fórna Davíð til að forða stjórnarkreppu. Forgangs- röðunin var skýr. Fyrst Davíð, svo flokkurinn, loks Ísland. Bæ bæ, gamla Ísland! Undraverður árangur Í trommubyltingunni tóku sér margir kjuða í hönd, sleifar og þvottabursta. Miðaldra karlar eins og ég, framsæknar ömmur og bankasviknir afar, glænýir atvinnuleysingjar jafnt sem fyrr- verandi lögreglumenn. En þeir sem slógu taktinn hvað harðast voru kaffihúsakrakkarnir í 101. Klöpp- um fyrir þeim. (Hvar var verka- lýðshreyfingin? Hvar var Lúðra- sveit verkalýðsins?). Og hvað tókst trommuleikurunum ungu á einni viku sem heilu þjóðargjaldþroti tókst ekki á fjórum mánuðum? Þeir felldu ríkisstjórnina. Það eru ótrúleg tíðindi. Látum þennan undraverða árang- ur hvetja okkur til dáða. Því allt í einu er allt hægt á Íslandi. Okkar er aflið og okkar er valdið. Höld- um áfram að tala, blogga og halda fundi. Lýðræðisbyltingin er hafin. Þjóðfélag þöggunar og sjálfsrit- skoðunar er dautt. Davíðs tíminn er liðinn. Málfrelsið hefur leyst við- skiptafrelsið af hólmi. Annar hver Íslendingur er skyndilega orðinn afbragðs stjórnmálaskýrandi, ef ekki ráðherraefni. Nú er af sem áður var þegar allir þögðu í ótta sinnar stöðu. Þegar háskólasamfé- lagið var hræðslusamfélag og gáf- aðir menn drógu mann út undir húsvegg trekk í trekk, pírðu augun og hvísluðu að manni sannleikan- um. „En ÉG get bara ekki sagt þetta, þú skilur …“ Nú geta allir talað. Okinu er létt. Verum því stolt af okkur. Og umfram allt: Höldum áfram. Sofnum ekki á verðinum. Notum þetta einstaka tækifæri til að skapa nýtt og betra Ísland. Við getum ekki beðið Því við erum löngu fallin á tíma og nú þarf að taka til hendinni. Við getum ekki beðið eftir því að kjósa nýja stjórn til að taka við af þeirri sem nú er tekin við. Við getum ekki beðið eftir því að kjósa stjórnlagaþing til að breyta stjórnarskránni. Við getum ekki beðið eftir því að hreinsa út í flokk- unum og fá Raddir fólksins inn á þing. (En við þurfum ekki bara nýtt fólk á þing heldur alveg nýja og endurhugsaða stofnun sem heit- ir Alþingi.) Við getum ekki beðið eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn haldi sinn auma landsfund. (Sem að þessu sinni verður haldinn undir kjörorðinu „Við settum Ísland á hausinn“). Við getum ekki beðið eftir því að ráðherrar Samfylking- ar þori að mæta á almenna fundi í flokknum sínum. Við getum ekki beðið eftir því að Jóhanna Sigurð- ardóttir læri á niðurskurðarhníf. Við getum ekki beðið eftir því að Steingrímu Joð fari í þetta MBA- nám sem hann þyrfti svo nauðsyn- lega að fara í. Við getum ekki beðið eftir því að Sigmundur Davíð fái símann hjá öllum í S-hópnum. Við getum ekki beðið eftir því að Davíð nái að sópa síðustu krónunum út úr bergmálandi tómum Seðlabanka inn á biðlaunareikning sinn. Út með hann strax. Við getum ekki beðið eftir því að Jónas FME Jóns- son nái að klára allt rauðvínið sem Kaupþing gaf honum áður en hann hættir 1. mars. Út með hann strax. Við getum ekki beðið eftir því að fá að frysta allar eigur Icesave-snill- inganna upp í þessa stærstu skuld í heimi. Við getum ekki beðið eftir því að skuldir Baugs verði skuldir okkar, 3 milljónir á mannsbarn. Við getum ekki beðið eftir því að Jón Ásgeir kaupi alla fjölmiðla lands- ins og breyti þeim í Skjá einn. Við getum ekki beðið eftir því að Mogg- inn hætti að angra okkur á morgn- ana og fari frekar að borga þessa 5 milljarða sem hann skuldar okkur, 16.000 kr. á mannsbarn. Við getum ekki beðið eftir því að Pálmi Har- aldsson nái að trappa sig niður úr því að eiga allar ferðaskrifstofur á Norðurlöndum í það að eiga „bara“ allar ferðaskrifstofur á Íslandi. Við getum ekki beðið eftir því að Sig- urður Einarsson leggi niður þró- unaraðstoð sína við Jómfrúareyj- ar. Við getum ekki beðið eftir því að Ólafur Ólafsson og Finnur Ing- ólfsson skili okkur bankanum sem þeir rændu af okkur. Við getum ekki beðið eftir því að Sigurjón Þ. Árnason nái að hreinsa burt öll fingraförin sín úr Landsbankan- um. Við getum ekki beðið eftir því að Bjöggi Thor græði enn þá meira á rýrnun krónanna í veskjunum okkar. Við getum ekki beðið eftir því að Árni Matt og Árni Johnsen hefji sína ógnarspennandi próf- kjörsbaráttu. Við getum ekki beðið eftir því að Gummi Steingríms nái að troða sér í gamla götótta jakkann hans afa síns. Við getum ekki beðið eftir því að málverk- ið af Bjarna Benediktssyni verði hengt upp við hliðina á málverk- inu af Bjarna Benediktssyni. Og við getum alls ekki beðið eftir því að Hannes Hólmsteinn klári nýju bókina sína, „Hvernig getur Ísland orðið fátækasta land í heimi?“ Því nú verður ekkert eins og það áður var. Bæ, bæ, gamla Ísland! Gera upp fortíðina Við þurfum nýja stjórn. Nýja hugs- un. Nýtt lýðveldi. Nýtt Ísland. Við þurfum að taka í skott- ið á fortíðinni og gera hana upp í einum grænum. Við sjáum það nú að sumir bissnessmanna okkar voru lítið annað en glæpamenn og fráfarandi ríkisstjórn sú lögga sem brást. Og enginn treystir rannsókn- arnefnd sem skipuð var af henni til að rannsaka, meðal annars, mis- tök hennar. Þess vegna þarf nýtt fólk. Hraust fólk og hraðar hend- ur. Yfirheyrslurnar eiga að hefjast á morgun. Og við eigum að kalla til erlenda sérfræðinga. Hér kom á dögunum Willem Buiter og sagði okkur sannleikann um okkur sjálf, svo allir skildu. Hann ku vera boðinn og búinn að hjálpa. „Just call me, and I’ll jump on a plane.“ Af hverju er ekki búið að tala við hann? Af hverju í ósköp- unum er enn ekki hlustað á fólk- ið sem varaði við á sínum tíma og nú hefur sannast að hafði rétt fyrir sér? Þorvaldur Gylfason. Vil- hjálmur Bjarnason. Af hverju eru þeir ekki kallaðir til ráðgjafar við stjórn landsins? Aldrei aftur eins flokks land Síðan þarf að huga að framtíðinni. Við VERÐUM að nota tækifærið til að breyta grundvallarþáttum í stjórnskipun okkar. Og læra af reynslunni. Við megum aldrei aftur gera Ísland að „eins flokks landi“ eins og The Times í London lýsti 20 ára ríki Sjálfstæðisflokksins í vikunni. Við megum aldrei aftur fá yfir okkur „valdstjórn“ sem tekur hagsmuni sína og Flokks- ins fram yfir þjóðarhag og stund- ar óvinastríð í stað hefðbundinna stjórnarstarfa. Því sá sem stjórnar með stríði á alltaf á hættu að kalla hrun yfir þjóð sína og enda sjálfur í dimmum bönker. Við þurfum nýja kosningalög- gjöf. Landið eitt kjördæmi. Kjós- endur geti valið fólk á listann sem það kýs, sem þar með úthýsir hinum hræðilegu prófkjörum. Við þurfum að afnema ráðherraræðið og gera stjórnsýsluna gegnsærri. Við þurfum að endurreisa niður- drabbað og ónýtt Alþingi og endur- hugsa starfshætti þess frá grunni. Burt með skrípamyndina af einum manni í ræðustól að tala við tóman sal. Burt með aðstoðarmenn áhrifa- lausra og burt með öll furðulegu fríin. Og svo þarf að aðskilja lög- gjafar- og framkvæmdavald. Það er svo margt sem þarf að gera. En það þarf að gera það NÚNA. Núna er tækifærið. Við megum ekki klúðra því. Þess vegna þurfum við nýtt lýð- veldi. Nýtt Ísland. Látum kröfuna hljóma um landið allt: Bæ, bæ, gamla Ísland! Titill greinarinnar vísar í heiti sýningarinnar Bæ, bæ, Ísland sem Hannes Sigurðsson, forstöðu- maður Listasafnsins á Akureyri, skipulagði í apríl 2008 og fylgdi úr hlaði með formála sem var aðeins nokkrum mánuðum á undan sam- tíma sínum. Bæ, bæ, gamla Ísland! Hér varð bylting og ekkert annað, skrifar Hallgrímur Helgason rithöfundur. „Látum þennan undraverða árangur hvetja okkur til dáða. Því allt í einu er allt hægt á Íslandi.“ Ekkert verður gert eins og áður. Núna er tækifærið og við megum ekki klúðra því. NÝTT SKJALDARMERKI „Og hvað tókst trommuleikurunum ungu á einni viku sem heilu þjóðargjaldþroti tókst ekki á fjórum mán- uðum?“ spyr Hallgrímur. „Þeir felldu ríkisstjórnina. Það eru ótrúleg tíðindi.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.