Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 28
28 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusamast-
ur? Þegar haldið var upp á afmæl-
ið mitt.
Ef þú værir ekki tónlistarmaður
hvað myndirðu þá vera? Landslags-
málari. Það vék fyrir tónlistinni á
sínum tíma.
Hvað er það dýrasta sem þú hefur
nokkurn tímann keypt þér? Í októ-
ber keypti ég mér smurða brauð-
sneið í Kaupmannahöfn á 4.000 kr.
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við þig? Þetta er ekki
fyrir þig!
Ef þú byggir ekki í Reykjavík hvar
myndirðu vilja búa? NYC, Berlín,
London … ég er stórborgarbarn.
Uppáhaldslistamaður allra tíma og
af hverju? Lennon hitti á taugar í
fólki sem áður voru ósnertar.
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu? Speltpitsa og sjónvarpið.
Hvert er versta starf sem þú hefur
nokkurn tímann gegnt? Kántrí-
bassaleikari á krá í Þingholtsstræti
þar sem listamenn voru sviknir
um öll laun og beittir ofbeldi af
dyravörðum.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð-
inni? Efra-Breiðholt yfir Hellis-
heiði og út suðurströnd landsins.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag ertu að
hlusta mest á í dag? 70’s tilrauna-
rokkstefnur og gömlu Chess-blús-
plöturnar. Ég hlusta ekki á lög,
bara plötur í heild sinni.
Ef að þú ættir tímavél, hvert
myndurðu fara og af hverju?
Ég væri til í að svipast hér um á
landnámsöld og fá nokkra hluti á
hreint.
Er eitthvað sem heldur fyrri þér
vöku á nóttunni? Nei.
Ef þú gætir breytt einhverju í for-
tíð þinni, hvað myndi það vera?
Ég hefði verið til í að hafa lesið
skólabækurnar.
Hvenær fékkstu síðast hláturs-
kast? 24.janúar kl. 11.43.
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Ég vil halda öllum nautnum uppi
á borðunum, en hefði ég leyndar
nautnir þá færu þær varla í fjöl-
miðla.
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Gamla testamentið. Það er mun
bitastæðara og skemmtilegra en
þetta nýja.
Hvaða núlifandi manneskju lítur
þú mest upp til? Nelsons Mand-
ela.
En hvaða núlifandi manneskju
þolirðu ekki? Tony Blair.
Uppáhaldsorðið þitt? Kisi.
Hvaða eitt atriði myndi fullkomna
lífsgæði þín? Ég hef andstyggð á
fullkomnun.
Af hvaða einu lag verður þú að
taka „cover“ áður en þú deyrð?
Sultans of Swing.
Hvað verða þín frægu hinstu orð?
„Allt í góðu.“
Hvað er næst á dagskrá? Útgáfu-
tónleikar í tilefni af útgáfu plötu
minnar Ologies sem fara fram
í Bæjarbíói Hafnarfirði kl. 21 á
miðvikudaginn.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Guðmundur
Svövuson Pétursson
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
„Var þetta take?”
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐ-
IST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI:
1972 þegar Volkswagen bjalla
sló öll sölumet.
Ég er stórborgarbarn
Einn fremsti gítarsnillingur Íslendinga, Guðmundur Pétursson, gaf nýlega út sólóplötuna Ologies en út-
gáfutónleikar verða haldnir í næstu viku. Anna Margrét Björnsson tók Guðmund í þriðju gráðu yfirheyrslu.
GUÐMUNDUR PÉTURSSON GÍTARLEIKARI Versta starfið var að vera kántríbassaleikari á krá í Þingholtsstræti. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
■ Á uppleið
Strákar með sítt hár Hver hefur
efni á því að fara í klippingu í
kreppunni? Strákar með sítt hár eru
aftur flottir, tími stroknu viðskipta-
gauranna er alveg liðinn. Hæfilega sítt
hár er flott og listamannslegt, en það
er aftur á móti enginn að tala um að
hár niður á bak að hætti þungarokk-
ara eða að sítt tagl sé fallegt, það er
jafn lummulegt nú sem fyrr.
Skíði Loksins snjóar á suðvestur-
horninu og ekki eftir neinu að bíða
að finna til
skíðagræjurnar
og skella sér í
fjöllin. Ef skíði
eru ekki til á
heimilinu þá
er hægt að
leigja sér skíði
í Bláfjöllum og
halda af stað
í brekkurnar.
Flottur stíll í
brekkunum næst ekki nema með
æfingu og það er um að gera að drífa
sig á meðan færi gefst í fjöllin. Það er
alltaf eitthvað sígilt og flott við það.
Að setjast á skólabekk Margir
hafa misst vinnu eða sjá kreppuna
hreinlega sem tækifæri til að gera
eitthvað nýtt og spennandi. Hvernig
væri nú að kíkja á valmöguleikana?
Sól-
gleraugu
Sólin er loks komin upp á himininn
og skín skært á snjóinn svo maður
fær ofbirtu í augun. Nú er tíminn til
að draga fram rokkaragleraugun og
vera svalur á því.
■ Á niðurleið
Rauðvín Verðið hefur hækkað svo
svakalega á víni
að það er hægt
að afskrifa
ljúfar stundir
yfir rauðvíns-
drykkju í náinni
framtíð. Að
minnsta kosti
ef maður vill
forðast að fara
á hausinn.
Afskorin blóm Ótrúlegur munaður
þessa stundina og alls ekki hægt að
kaupa liljur og rósir vikulega eins og
í góðærinu. Nú er bara að vona að
jólastjarnan dugi fram á vor.
Facebook-skilnaðir Vandræða-
lega hallærislegt þegar fólk hellir úr
tillfinningaskálum fyrir allra augum á
netinu. Erum við í Bandaríkjunum?
Dýrar veislur Snittur og kampavín
eru alls ekki málið. Liðið á að mæta
með eigin flöskur og splæsa saman í
saltstangir og stjörnusnakk.
MÆLISTIKAN
Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar 2009
Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á
íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til
úthlutunar á síðari hluta árs 2009.
Verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit.
Þriggja manna dómnefnd metur verkin; Kolbrún Bergþórsdóttir formaður og Jón Óttar
Ragnarsson tilnefnd af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Ingibjörg Har-
aldsdóttir tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveð-
ur. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim
kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu
niður það ár. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en
nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2009.
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Signýjar Pálsdóttur, skrifstofustjóra
menningarmála, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2.hæð,
101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs s. 5901520 og 5901521.