Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 34
2 Fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sigríður Björg Tómasdóttir
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Gunnar V.
Andrésson Ljósmyndir: Fréttablaðið
Auglýsingar: Benedikt Jónsson benediktj@365.is
Vera
Einarsdóttir
skrifar
Pantið fermingarmyndatökur tímanlega
L j ó s m y n d a s t o f a
B æ j a r h r a u n i 2 6
ljósmyndastofa í 25 ár
Sími 565 4207
www ljosmynd.is
BARNVÆNT
Ég lærði að prjóna í grunnskóla eins og flestir en gerði nú lítið af því að prjóna þar til að ég tók upp þráð-inn á fullorðinsaldri,“ segir Solveig
Thoroddsen listaskólanemi og móðir
tveggja barna. Dóttir hennar Sigrún,
fimm ára, er gjarnan í heimaprjónuðum
peysum en það var einmitt þegar Solveig
eignaðist sitt fyrra barn, Dag, sem í dag
er 12 ára, að hún hóf að prjóna. „Ég fór að
vera meira heima og það getur verið svo
tilvalið að nota tímann heima til þess að
prjóna, til dæmis þegar maður situr yfir
sjónvarpinu, þá er nú fyrirtak að vera
með prjóna í hönd. Svo er svo gaman að
sjá flík verða til, það hvetur mann áfram,“
segir Solveig sem var afar fegin við upp-
haf prjónatíðar sinnar að hafa laghenta
mömmu til að leita aðstoðar hjá og góðar
vinkonur. „Það er ekki flókið að prjóna
en ýmsar tæknilegar útfærslur flæktust
fyrir mér í byrjun.“
Solveig segir hægt að
hafa yndi af
mörgum þátt-
um prjóna-
skapar:
„Það er
slakandi
að prjóna,
sérstaklega
þegar maður
er að prjóna
eitthvað ein-
falt, þá er það næstum
því eins og að fara í jógatíma. Að telja út
og gera flóknari hluti krefst hins vegar
einbeitingar og reynir á heilann.“ Prjóna-
skapnum er ekki tóm slökun, honum geta
fylgt vökunætur ef því er að skipta. „Ef
það er eitthvað spennandi á prjónunum
þá á mér til að hlaupa kapp í kinn og
prjóna frameftir nóttu.“
Solveig segir fjölbreytnina skemmti-
legasta í prjóna-
skapnum. „Ég er
yfirleitt með
nokkra hluti í
gangi í einu,
kannski eina
grófa lopap-
eysu, eina
flóknari flík og
eina barnapeysu,
þær klárast svo fljótt
sem er skemmtilegt.“
Solveig mælir eindregið með því að
prjóna, í kreppu sem góðæri, og ekki síst
úr íslenska lopanum. „Hann er ódýr og
ullin er einstaklega hentugt efni, hún er
hlý og ekki dregur úr hitaeiginleikunum
þó að hún blotni,“ segir Solveig sem að
mælir með því fyrir þá sem vilja prófa
sig áfram í prjónaskap að byrja á ein-
hverju einföldu eins og trefli og vinda
sér svo í barnapeysu.
Mægður í heimaprjónuðum peysum. Ullin er í uppáhaldi enda bæði ódýr og einkar hlý á köldum vetrardögum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Eins og margur veit þá gefst það betur í barnauppeldi að styrkja jákvæða hegðun en að refsa fyrir neikvæða. Þetta vefst þó
fyrir mörgum enda er neikvæða hegðunin oft
fyrirferðarmeiri og fangar frekar athyglina en sú
jákvæða. Ég hef þó reynt að hafa þennan vísdóm
að leiðarljósi og á ljúfan og meðfærilegan dreng,
sem ég skrifa þó fyrst og fremst á hans eigin per-
sónuleika.
Þegar hann var pjakkur, sat í herberginu sínu
og lék sér í mestu makindum settist ég stundum
hjá honum, forvitnaðist um það hvað hann var að
gera og reyndi af veikum mætti að leika við hann
í pleymó. Þá hrósaði ég honum í hástert fyrir
jákvætt framtak af ýmsu tagi. Þannig taldi ég
mig, meðal annars, vera að veita jákvæðri hegð-
un hans athygli. Ég verð þó að játa það að oft á
tíðum hallaði ég hurðinni aftur og notaði tímann,
á meðan hann dundaði sér, til að þeytast í loftköst-
um um íbúðina, setja í vél, hengja upp, þurrka af,
búa um, rista mér brauð og jafnvel glugga í blað.
Ef hann lét á sér bæra áður en ég hafði lokið verk-
um mínum setti ég jafnvel teiknimynd í tækið til
að kaupa mér tíma og frið. Honum virðist sem
betur fer ekki hafa orðið alvarlega meint af þó
uppeldið hafi ekki alltaf verið í samræmi við
bestu sannfæringu.
Í dag er drengurinn nánast farinn að ganga
sjálfala og get ég með góðri samvisku sinnt heim-
ilisverkum á meðan hann sinnir sínu. En eftir því
sem hann eldist og þroskast eykst þörfin fyrir
að spjalla og segja frá til muna. Mér þykir fátt
skemmtilegra en að spjalla við hann um daginn og
veginn. Ég verð þó að viðurkenna það að stund-
um reikar hugurinn annað eftir margar nokk-
uð sundurlausar lýsingar á viðburðum dagsins,
leikritinu sem á að fara að setja á fjalirnar eða
uppátækjum skólafélaganna. Hefur það sérstak-
lega ágerst nú þegar hver stórfréttin rekur aðra
og hugsanirnar eru allar í graut. Þá eiga undir-
tektirnar það oft til að verða á þessa leið: „jamm,
jahá, en gaman.“ Ég ranka svo við mér þegar
gaurinn engist um af óánægju og pirringi yfir
því að ég hafi sagt „jáhá“ á kolvitlausum stað og
komið upp um það að ég hafi ekki verið að hlusta.
Þá upphefst eltingaleikur þar sem ég hleyp á
eftir honum og bið hann um að byrja upp á nýtt
en oftar en ekki er minn orðinn þver og fastur
fyrir og á það jafnvel til að kreista fram tár. Þá
þarf að dekstra hann með öllum tiltækum ráðum
og jafnvel hækka róminn ef óþolinmæðin lætur á
sér kræla. Um leið stend ég mig að því að vera að
veita neikvæðu hegðuninni, sem ég kallaði í raun
yfir mig, óskipta athygli.
JAMM OG JAHÁ
Slakandi, skapandi
og örvandi að prjóna
Solveig Thoroddsen er hefur verið iðin við að prjóna peysur á dóttur sína Sigrúnu. Solveig lærði að
prjóna í skóla en tók upp þráðinn á fullorðinsaldri. Hún mælir með prjónaskap í kreppu sem góðæri.
Bláfjöll Loksins er skíða-
snjór í Bláfjöllum og um að
gera að taka fjölskylduna með
á skíði um helgina. Skíða-
íþróttin er sannkallað
fjölskyldusport og fátt sem
jafnast á við að hreyfa sig í
heilnæmu útiloftinu. Í
Bláfjöllum stendur ókeypis
skíðakennsla börnum og
fullorðnum til boða. Börnin
verða að vera orðin fjögurra
ára til að taka þátt og þau
þurfa að vera í sjálfstæðari
kantinum ef þau eru svo lítil.
Skíðakennnslan fer fram í
byrjendabrekkunni við
Skálann og á sama stað er
hægt að leigja skíði ef
fjölskyldan býr ekki svo vel að eiga þau. Fyrir þá vönu er auðvitað ekki annað að gera en að velja sér
brekkur við hæfi og skella sér af stað. Verðið á dagskortum eru 2.000 fyrir fullorðna og 550 fyrir
börn. Svo er auðvitað hægt að taka gönguskíðin með og taka hringinn á brautum eða utan brauta,
alveg ókeypis. Eftir útiveruna er svo fátt betra en bolli af heitu kakói og kjarngóðar samlokur.
x