Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 40

Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 40
● heimili&hönnun „Þetta er gallerí í mótun og við bjartsýnar á að Íslendingar vilji hafa heimili sín enn fegurri, nú þegar dimmara er yfir þjóðarbú- skapnum,“ segir Rebekka Árnadótt- ir, framkvæmdastjóri Listsmiðju Art2b, sem í dag opnar 1000 fer- metra listmunasölu á Korputorgi. „Við bjóðum listmuni íslenskra listamanna í bland við kínverska, því fyrirtækið hefur 30 listmálara á sínum snærum í borginni Xiamen í Kína. Við opnuðum gallerí við Rauð- arárstíg í nóvember og viðtökurnar hafa verið frábærar og fólk áhuga- samt og hrifið,“ segir Rebekka sem ásamt Hallfríði Jóhannsdóttur hefur uppi háleitar hugsjónir fyrir lista- smiðjuna á komandi tímum. „Við ætlum að skapa hér lifandi gallerí þar sem þekktir jafnt sem óþekktir listamenn setja upp verk sín. Þá stefnum við á ríkulegt nám- skeiðahald og vinnusvæði fyrir listamenn,“ segir Rebekka. „Í kreppunni hefur fjölskyldan loks meiri tíma til að vera saman og tilvalið að heimsækja okkur til að skoða sköpun listamanna.“ Í tilefni opnunar fæst 20% af- sláttur af listmunum alla helgina. -þlg Hollensk hönnun verður í brennidepli á húsgagnahá- tíðinni Stockholm Furniture Fair sem haldin verður í Stokkhólmi 4. til 8. febrúar næstkomandi. Auk þess sem framsækin húsgagnahönn- un eftir sautján hollenska hönnuði verður til sýnis verður boðið upp á námskeið með Li Edelkoort sem er eins konar hönnunargreinir eða sérfræðingur í helstu straumum og stefn- um í hönnun. Hollenski húsgagnahönnuðurinn Ineke Hans verður heiðursgestur hátíðarinnar að þessu sinni, en hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Þetta er sjötta árið í röð sem þekktum alþjóðlegum hönnuði er boðið að vera heiðursgest- ur hátíðarinnar og skapa þar setustofu í anddyri hennar. Auk hollensku gestanna sýna fjöldamarg- ir norrænir hönnuðir en metaðsókn er þetta árið. Búist er við um 40.000 gestum á hátíðina sem er orðin einn stærsti og mikilvægasti vett- vangur norrænnar hönnunar. Nánari upplýs- ingar má finna á vefsíðunni http://furniture.stofair.se. - hs Íslensk og kínversk sköpun ● Stærsta gallerí landsins opnar í dag á Korputorgi. Þar má finna íslenska samtímalist í bland við kínversk olíumálverk, en aðalsmerki gallerísins er lifandi og frjósamt listalíf. Rebekka Árnadóttir og Hallfríður Jóhannsdóttir í salarkynnum stærsta listagallerís landsins. FRETTABLAÐIÐ/ANTON Gylltur og hátíðlegur englakór eftir leir- listakonuna Guðrúnu Kjartansdóttur. Í Listsmiðjunni Art2b má finna töfrandi ljósmyndir Lárusar Lárussonar, eins og þessa af norðurljósadýrð yfir Íslandi. MYND/LÁRUS LÁRUSSON Að ganga um Listsmiðju Art2b er eins og að rölta um ríkulegt listasafn og um að gera að gefa sér góðan tíma til að skoða það sem fyrir augu ber. FRETTA BLA Ð IÐ /A N TO N Húsgagnahátíð í Stokkhólmi ● Hollensk hönnun er í algleymingi á húsgagnahátíðinni Stockholm Furniture Fair. ● FISKUR Í STEINI Land og lifi- brauð fólks- ins sameinast í nýrri sýningu Lísu Karólínu Guðjónsdóttur í Á skörinni, sýningarrými í hús- næði Handverks og hönnunar við Aðalstræti 10. Þar eru tuttugu verk eftir listakonuna til sýnis. Um opnunartíma Á skörinni má síðan lesa á vefsíðu Handverks og hönnunar, www. handverkoghonnun.is. ● NICOLE DEXTRAS er kanadískur listamað- ur sem útskrifaðist frá Emily Carr listaháskólan- um árið 1986. Hún starfar í eigin stúdíói í Gran- ville Island í Van- couver. Hún leggur stund á mismunandi list, allt frá ljósmynd- un til bókaskreytinga. Hún hefur þó einn- ig gaman af svokallaðri skamm- vinnri list. Kjólarnir sem hér sjást eru dæmi um slíkt. Þá bjó Nicole til úr blómum, laufum, þyrnum og öðrum gróðri. Með tímanum snýr listin aftur til jarðarinnar þegar listaverkið byrjar að visna. list DUKA Kringlunni 4-12 Sími 533 1322 | duka@duka.is 31. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.