Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 44
31. janúar 2009 LAUGARDAGUR4
„Það er æðisgengið að ríða úti
í snjó og hestum þykir það ekki
síður mikil upplifun, enda velta
þeir sér lífsglaðir í snjónum eins
og smákrakkar þegar veðrið er
jafn vetrarlegt og núna,“ segir
Aðalheiður Kristín Jurado, starfs-
maður Hestamiðstöðvar Íshesta,
sem alla daga vikunnar býður upp
á spennandi dagsferðir fyrir ævin-
týraþyrst og hestelskandi fólk.
„Útreiðatúrar eru sívinsælir
og við fögnum alltaf komu gesta,
því hingað eru allir velkomnir að
kíkja inn í hesthúsin, klappa hest-
unum og fá nýlagaðan kaffisopa
þegar þeim dettur í hug, en slíkt
þykir börnum mikið ævintýri. Við
bjóðum alla daga upp á teymingu
í hestagerðinu fyrir lítil börn, en
átta ára geta þau farið í styttri
dagsferðir í fylgd með fullorðn-
um,“ segir Aðalheiður þar sem hún
klappar kátum klárum í rósemis
snjókomu yfir hafnfirskum hest-
húsum.
„Yfir vetrartímann er Fjöl-
skylduævintýri vinsælt, en þá er
farinn hálftíma reiðtúr á þægi-
legum reiðstígum í nágrenninu.
Einnig nýtur endalausra vinsælda
Hraunferðin, sem er tveggja tíma
ævintýraferð um hraunið hjá
Helgafelli og Búrfellsgjá, inn að
Kaldárseli og meðfram Hvaleyrar-
vatni, og hentar jafnt byrjendum
sem lengra komnum. Þá má nefna
Hesta og Bláa lónið, þar sem farið
er með rútu í Bláa lónið eftir reið-
túr um hraunið, og Víkingaferð
fyrir þá sem eru vanari og vilja
fara hratt yfir grund,“ segir Aðal-
heiður sem útvegar öllum gestum
útigalla, regnfatnað, stígvél og
reiðhjálma. „Fólk þarf því bara
að koma í hlýjum fötum undir og
hafa með sér sokka og vettlinga.
Best er að panta reiðtúr með eins
til tveggja daga fyrirvara, en líka
alltaf hægt að hringja samdægurs
og athuga hvort ekki sé laust. Við
viljum svo fá fólk til okkar tím-
anlega svo hægt sé að ríða af stað
á tilsettum tíma,“ segir Aðalheið-
ur og bætir við að Íshestar eigi
hesta við allra hæfi. „Oft erum
við með tvo leiðsögumenn í hverri
ferð sem skipta með sér hópnum
eftir hraða, því sumir vilja fara
á sprett meðan aðrir kjósa að
fara fetið. Stemningin er alltaf
yndisleg og hestafólkið himinlif-
andi eftir útivist og samfélag við
íslenska hestinn, sem er annálað-
ur á heimsvísu fyrir ljúfmennsku,
gott skap, mýkt og þægindi.“
Sjá frekari upplýsingar um dags-
ferðir Íshesta á www.ishestar.is
thordis@frettabladid.is
Hestar hrífast af snjóreið
Þegar vetrarsól signir landslýð mun lengur yfir daginn og landið klæðist sínu fegursta vetrarskarti er fátt
eins upplífgandi og að bregða hnakk og beisli á fríðan fák og ríða út í buskann með sínum nánustu.
Það er fallegt um að litast í Hestamiðstöð Íshesta og nágrenni og dásamlegur ævintýradagur í vændum fyrir fjölskyldufólk og
aðra sem ríða þaðan út. Hér er Aðalheiður Kristín Jurado við hestagerðið með nokkrum reiðskjótum sem, eins og mannfólkið,
elska að spretta úr spori og leika sér í snjó. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
VÍNLANDSLEIÐ 6 - S: 533 3109
TOPPSKÓR Á RUGLVERÐI
40-60% afsláttur af kvenstígvélum
OPIÐ MÁN.-FÖS. 11 - 18 · LAU. 11 - 16 · SUN. 12 - 16
Ponny Sympate
68465005 & 68165003
Litir: Blár, Svart
Style Grand
SPR2803TX
Litir: Rautt, Grænt, Blátt
Barnaskór
E-70452 52944
Litur: Marine blár
6.995 kr.-
Verð áður:
Verð nú:
3.995kr.-
10.995 kr.-
Verð áður:
40% afsláttur:
6.597kr.-
6.995 kr.-
Verð áður:
Verð nú:
3.995kr.-
Sérstakt tilboð
2.495kr.-
Ecco Snowdrop
E-78762 00809
7.995 kr.-
Verð áður:
Verð nú:
4.495kr.-
Cruiser stígvél
CRU508223
Litir: Svart, fjólublátt , beige
10.995 kr.-
Verð áður:
40% afsláttur:
6.597kr.-
Ecco Snowdrop
E-7877 25105
3 gerðir
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is