Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 45

Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 45
LAUGARDAGUR 31. janúar 2009 5 Á sýningunni Endurfundir verða munir og myndir frá nokkrum fornleifarannsóknum. Sýningin Endurfundir verður opnuð í Þjóðminjasafni Íslands í dag klukkan 15. Sýningin kynnir fornleifarannsóknir sem Kristni- hátíðarsjóður styrkti og fram- kvæmdar voru á mörgum helstu sögustöðum þjóðarinnar á árun- um 2001-2005. Á sýningunni má sjá úrval þeirra gripa sem fundist hafa hing- að til við rannsóknirnar, en mörg- um þeirra er enn ólokið. Grunnhugmynd sýningar og sýningarrýmis byggir á endur- fundum við samevrópska menn- ingu á Íslandi með klaustrið, sem miðstöð kristinnar íhugunar og menningarstarfa, í brennipunkti. Auk gripanna sem fundust við rannsóknirnar verður hægt að skoða myndasýningar frá upp- greftrinum og þess utan er boðið upp á fræðsluspor fjölskyldunnar um sýninguna, hljóðleiðsögn og ýmislegt skemmtilegt fyrir yngstu gestina. Í tengslum við sýninguna er gefin út bók með greinum forn- leifafræðinganna um rannsóknir þeirra. Að auki hefur verið komið upp fræðsluvef með ýmsum text- um og leikjum, www.thjodminja- safn.is/endurfundir - sg Endurfundir á Þjóðminjasafninu Á sýningunni má sjá úrval gripa sem fundist hafa við fornleifarannsóknir. G ra fís ka v in nu st of an e hf . H H 08 -0 12 8 Hlíðarvegur 7 | 860 Hvolsvöl lur | s : +354 487 8050 | fax: +354 487 8058 | hotelhvolsvol lur@simnet. is | www.hotelhvolsvol lur . is 07. Febrúar 2009 Blind date Þorrablót einhleypra 25 ára og eldri. Matur, gisting, dinnertónlist og dansleikur og morgunverður. Verð: 10.900 kr. á mann 14. – 15. Febrúar 2009 Valentínusarhelgi Við bjóðum þér og þú býður makanum. Gisting 3. rétta hátíðarkvöldverður, dinnertónlist, dansleikur og morgunverður. Verð fyrir ykkur bæði: 12.900 kr. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.