Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 59
heimili&hönnun ●
„Hugmyndin að baki verksins er að bjóða upp á
leik fyrir fjölskyldur og börn og alla gesti
safnsins, en safnið leggur mikla
áherslu á að opna safnið betur fyrir
fjölskyldum og börnum,“ útskýr-
ir myndlistarkonan Ilmur Stefáns-
dóttir, sem valdi sex verka myndlist-
armannsins Errós og lét prenta þau á
tau. Tauið lét hún svo sauma utan um
24 svampkubba sem eru 40 sinnum 40
sentimetrar að stærð.
„Ég er að framlengja verkin þannig
að krakkar geti leikið sér með þau og snert.
Úr kubbunum er hægt að búa til málverkin, sem
hanga á veggjunum í F-salnum, eða bara eitthvað
allt annað; sófa, kastala eða turna,“ segir
Ilmur.
Kubbarnir eru eign safnsins og að
sýningu lokinni verða þeir til reiðu
fyrir gesti, smáa sem stóra, til að leika
sér með. Sýningin opnar í dag klukkan
11 og verður listamaðurinn á staðnum
til að svara spurningum. Einnig verður
sérstakt tilboð í kaffiteríunni sem opnar
einnig í dag, á réttum fyrir krakkana.
Þess skal geti að um þessar mundir eru
tuttugu ár síðan Erró gaf Reykjavíkurborg mikið
safn verka sinna. -rat
Kubbaspil með verkum Errós
● Myndlistarkonan Ilmur Stefánsdóttir hefur hlutað niður nokkur stærri verka myndlistar-
mannsins Errós og útfært þau í stórt púsluspil. Sýningin opnar í dag.
Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona vildi miðla verkum Errós til áhorfenda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HÖNNUNARSAMKEPPNI MERKT
Merkt.is stendur fyrir samkeppni um hönnun á stutterma-
bol og hlýtur vinningshafi hönnun sína fullunna að launum.
„Við erum að stíla inn á krakkana, en við sjáum hversu mikil
gróska er í þessu hjá þeim sérstaklega,“ segir Guðmunda
Óskarsdóttir hjá Merkt. Áhugasamir geta sent inn tillögur
á netfangið keppni@merkt.is en á www.merkt.is eru frekari
upplýsingar Síðasti skiladagur er 15. febrúar.
● VERNER PANTON (13. febrúar 1926 - 5. september 1998)
er álitinn einn af áhrifamestu húsgagna- og innanhússhönnuðum
Danmerkur á 20. öldinni. Á ferli sínum hannaði hann nýstárlega
muni úr hinum ólíklegustu efnum, sérstaklega þó úr plasti og yfir-
leitt í mjög líflegum litum.
Eitt sköpunarverk Pantons er
Hjartastóllinn sem hann
hannaði árið 1958.
Stóllinn þótti ótrúlega
frumlegur enda virtist
keilulaga formið storka
þyngdaraflinu. Svo mikill
var áhuginn á stólnum að
lögreglan í New York varð
að fjarlægja hann úr sýning-
arglugga þar í borg vegna þess
að umferðarteppa myndaðist í
götunni. - sg
hönnun
LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 2009 7