Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 63

Fréttablaðið - 31.01.2009, Síða 63
Fjölskyldan 7 MATUR GAGN&GAMAN Refurinn og barnið. Yndisleg mynd franska leikstjórans Luc Jacquet, Refurinn og barnið, er sýnd um þessar mundir í Háskóla- bíói. Hún var opnunarmynd frönsku kvikmyndahátíðarinnar á dögunum og var vinsælasta mynd hátíðar- innar. Óhætt er að mæla með henni fyrir alla fjölskylduna en í myndinni segir frá sambandi stúlku og refs. Leikstjórinn hefur áður gert mynd um ferðalag keisaramörgæsa sem vakti heimsathygli. Kolaportið Það getur verið ævintýri líkast að bregða sér í Kolaportið með fjölskyldunni og skoða það sem fyrir augu ber þar. Kolaportið er opið um helgar frá 11 til 17. Oft má finna góð leikföng í Kolaportinu þegar fólk hefur tekið sig til og er að selja úr geymsl- unni. Það er umhverfisvænt að kaupa gamalt dót, en kannski ekki í það varið nema það sé vandað upphaflega eins og tréleikföng eða legó til að mynda. Leikföngin er einfaldlega hægt að þvo og þá verða þau eins og ný. Sextán börn Borgarleikhúsið gekkst fyrir opnum prufum fyrir hlutverk barnanna í leikritinu Söngvaseiður sem tekið verður til sýninga í vor. Mörg hundruð börn tóku þátt í prufunum og í síðustu viku lá loks fyrir hvaða sextán börn voru valin til að fara með hlutverk barnanna í Von Trapp fjölskyldunni. Leikritið var síðast sett upp af atvinnuleikhúsi hér á landi árið 1991, þar lék Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, þá nýútskrifuð leikkona, hlutverk elstu dótturinnar en Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona lék eina af yngri systrun- um. Aldrei að vita nema að framtíðarleikarar leynist á meðal þeirra sem taka þátt í sýningunni í vor. Útsölur Mikið vit er í því að kaupa barnaföt á útsölu, einkum vetrarföt, þau eru ekki tískusveifl- um háð og um að gera að skoða í búðirnar og gera góð kaup. Sniðugt er til dæmis að kaupa vetrargalla á útsölu, á helmings- afslætti eða meira. Vert er að hafa í huga að kaupa þau vel við vöxt svo þau endist næstu árin. Nú fer útsölum senn að ljúka og því um að gera að nota síðasta tækifærið til þess að gera góð kaup á lítil kríli. Góður er grauturinn gæska Grautar eru hollur og góður matur handa allri fjölskyldunni. Þegar vindurinn gnauðar úti þá eru svo gott að borða heitan graut og ekki er verra að hráefnið er ódýrt. Þeir geta verið frábær morgunmatur og er þar hafragrautur ugglaust vinsælastur enda mjög fljótlegur og góð máltíð. Uppskrift að hefðbundnum hafragraut er einn hluti haframjöl á móti tveimur hlutum af vatni. Síðan salt eftir smekk en ekki fara yfir strikið þar og á það skal bent að það er hæglega hægt að sleppa því að salta grautinn. Epli og rúsínur gera grautinn matarmeiri og jafnvel má bæta kanil út í hann. Hrísgrjónagrautur er eftirlæti allra barna, stórra og smárra. Það er lítið mál að útbúa slíkan graut, eina sem þarf eru hrísgrjón og mjólk, rúsínur út í. Þó grauturinn sé ekki flókinn þá verður að standa yfir pottum og hræra duglega, annars getur allt brunnið við með tilheyrandi svekkelsi og brunalykt. Hollari útgáfan af hrísgrjónagraut er búin til með því að skipta út hvítum hrísgrjónum fyrir hýðishrís- grjón, gjarnan má bæta döðlum og eplum út í hann og krydda með kanil.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.