Fréttablaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 66
I BLS. 6 + Bókaðu á www.icelandair.is
Flug til Boston gefur 3.500–11.200 Vildarpunkta.
TVEIR
FÍNIR DAGAR
Í BOSTON
1. dagur
Beacon Hill
Við byrjum daginn á því að rölta í
gegnum Boston Common og yfir á
Beacon Hill þar sem þau standa í
röðum við þröngar, steinlagðar, götur
glæsileg hús úr brúnsteini, áður fyrr
heimili brahmínanna, yfirstéttarinnar
sem réð lögum og lofum í borginni.
Beacon Hill hverfið afmarkast í suðri
af Beacon Street, í austri af Somer-
set Street, af Cambridge Street í
austri og af Storrow Drive meðfram
árbakkanum við Charles River
Esplanade í vestri. Þann hluta af
hverfinu sem er á sléttlendi á
landfyllingu vestur af Charles Street
kalla borgarbúar „the Flat of the Hill“
eða „Hæðarflötina“. Þinghús fylkisins,
Massachusetts State House, er
áberandi kennileiti efst á hæðinni og
þess vegna er nafnið „Beacon Hill“
oft notað í staðbundnum fjölmiðlum
sem samheiti fyrir fylkisstjórnina og
fylkisþingið.
Hverfið dregur nafn sitt af því að fyrr
á öldum var viti eða leiðarljós hafður
þar sem land reis hæst í Mið-Boston,
rétt fyrir aftan þar sem nú er þinghús
Massaschusetts. Suðurhlíð Beacon
Hill var „fína hliðin“ á hverfinu á 19. öld
en „svarta“ Beacon Hill var norðan
megin. Íbúar á báðum hliðum fylktu
liði saman í afstöðu sinni gegn
þrælahaldi. Hverfið var tekið á skrá
yfir sögulega staði (National Historic
Landmark) árið 1962.
Cheers!
Eftir skoðunarrölt um Becon Hill er
t.d. um tvennt að velja. Í fyrsta lagi
geta þeir, sem áttu góðar stundir með
persónum inni á kránni Cheers í
samnefndum sjónvarpsþáttum, að
sjálfsögðu gert sér það til skemmtun-
ar að líta inn á krána sem er við
Beacon Street 84, gegnt Almenn-
ingsgarðinum. En þarna er oft urmull
af ferðamönnum í sömu erinda-
gjörðum og getur tekið langan tíma að
fá einn kaldan og barinn er ekki – ég
endurtek – er ekki eins og barinn í
sjónvarpsþáttunum.
Ether Dome
(Eter-hvelfingin)
Á hinn bóginn geta þeir, sem vilja vera
eilítið frumlegir, brugðið sér stuttan
spöl í norður frá Beacon Hill og litið
inn í Eter-hvelfinguna í Massashusetts
General Hospital.
16. október árið 1846 gerðist þar sá
tímamótaatburður í sögu lækna-
vísindanna að Thomas W. G. Morton
svæfði Gilbert Abbott með eter á
meðan Dr. John Collins Warren skar
í burtu æxli af hálsinum á sjúkling-
num. Menn geta þráttað áfram um
hvort Morton var fyrstur manna til
þess að nota eter við svæfingu en
Eter-hvelfingin (Ether Dome) í
Massachusetts General Hospital
nýtur samt þess sögulega heiðurs
að vera sá staður í veröldinni þar
sem brotið var blað í sögu
skurðlækninga.
Chinatown
Eftir að hafa skoðað sig um á
Beacon Hill er kjörið að rölta aftur
yfir Boston Common og svipast um í
Kínahverfinu. Kínahverfið í Boston
hefur sinn sérstaka svip og andblæ.
Þarna eru fjölmargir kínverskir og
víetnamskir veitingastaðir auk þess
sem þar má kynnast matargerðarlist
ýmissa annarra Austur-Asíuþjóða.
Faneuil Hall
Faneuil (yfirleitt borið fram „fan-júl“)
Hall er ferningslaga bygging með
engisprettu fyrir „vindhana“ efst á
mæninum. Staðurinn og næsta
nágrenni hans eru nú kunnust fyrir
að vera „markaðstorgið“ í Boston.
Þarna er heilmikið fjör á sumrin,
trúðar og grínistar að skemmta, hinir
og þessir spilarar að músísera og
einhver ósköp á boðstólum af alls
konar mat og sætindum sem hægt
er að prófa. Á kvöldin er svæðið við
Faneuil Hall og í næsta nágrenni, þar
sem er urmull af krám og börum, eitt
vinsælasta kjörlendi þeirra sem gætu
hugsað sér hressingu í volgri
kvöldgolunni.
2. dagur
Freedom Trail
Í dag ætlum við að vera svolítið
sögulega þenkjandi og ganga aftur í
tímann, svo að segja, eftir svonefndri
„Frelsisslóð“. Atburðir í Boston
mörkuðu þáttaskil í byltingunni á
18. öld og má þar nefna fjöldamorðin
í Boston, Teboðið (Boston Tea Party)
og þolreið Pauls Revere. „The
Freedom Trail“, Frelsisslóðin, er
4 kílómetra löng rauð rák í gangstétt
á milli sögustaða í miðborginni og í
Charlestown, frá legstöðum byltingar-
manna og Old Ironsides, freigátunni
Constitution, til verslana á Quincy
Market, ríkisráðhúsanna (bæði hins
gamla og nýja) og Boston Common.
Tilvalið er að byrja gönguferð eftir
Frelsisslóðinni við gestamiðstöðina í
Boston National Historic Park þar
sem má fá leiðarvísa með upplýsing-
um um það helsta sem ber fyrir augu.
Einnig eru í boði gönguferðir með
leiðsögumanni.
USS Constitution Museum
Einn af áfangastöðum okkar á
Frelsisslóðinni, þegar við höfum
gengið yfir brúna á Charles River, er
USS Constitution safnið. Safnið er
við hliðina á „Old Ironsides“ (Gamla
járnbyrðingnum), einu af sex fyrstu
skipum bandaríska sjóhersins og
elsta herskipi sem enn er á floti í
veröldinni. Við kynnumst sögu USS
Constitution og daglegu lífi um borð
hér í eina tíð með því til dæmis að
reyna að hvílast í hengirúmi og draga
upp segl á meðan við reynum að
halda jafnvæginu á kaðli. –
www.ussconstitutionmuseum.org
Skoðunarsigling um
höfnina
Við göngum til baka niður í gamla
miðbæinn eftir Frelsisslóðinni og
leiðin liggur þá m.a. aftur hjá Faneuil
Hall og Quincy Market. Nú má ljúka
deginum með skoðunarsiglingu um
höfnina sem er tilvalin leið til þess að
fá tilfinningu fyrir sögu og sambýli
Bostonbúa og hafsins og um leið
kærkomið tækifæri til að láta
hressandi svala leika um skrokkinn á
heitum sumardegi. Ýmis fyrirtæki
bjóða skoðunarsiglingar um höfnina
og flestar þeirra leggja frá Long
Wharf eða Rowes Wharf , skammt
frá Quincy Market. Sum þessara
fyrirtækja bjóða hafnarsiglingu með
kvöldverði.
Flug og gisting
í 2 nætur
frá 64.900 kr.
á mann í tvíbýli á Courtyard by
Marriot Boston Tremont Hotel ***
Innifalið: Flug báðar leiðir,
flugvallarskattar og gisting.
Reykjavík – Boston
frá 29.720 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er allt að 10 sinnum í viku til
Boston og þar af morgunbrottfarir
3 daga vikunnar.
Vildarklúbbur