Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 69
LAUGARDAGUR 31. janúar 2009 37
Það er kalt úti og ofnarnir inni
eru skrúfaðir í botn. Húðin er
orðin föl, þurr og þreytuleg og
farin að bera þess merki að það
er hávetur og langt þangað til að
sólin fer almennilega að sjást á
ný. Hvað er til ráða til að hressa
aðeins upp á útlitið án þess að
freistast til að liggja á ljósabekk
eða nota óaðlaðandi brúnku-
krem? Margrét Ragna Jónas-
ardóttir, förðunarfræðingur hjá
Make up Store, segir einstaklega
mikilvægt fyrir alla að drekka
nægilegt vatn til þess að húðin
fái einnig raka innan frá. „Það
er líka frábært að taka inn flax-
seed-olíu til að viðhalda húð-
inni mjúkri og fallegri.“ Margrét
segir að allir verði að eiga gott
rakakrem til að bera á húðina
bæði nótt og dag. „Olíulaust krem
virkar vel fyrir feitari húð sem
getur líka fengið þurrkbletti. Það
er sniðugt að nota rakaúða eins
og Face Mist frá Make up Store
til að úða yfir eða undir krem og
farða. Hann er algjört möst fyrir
þá sem vinna mikið við tölvur.“
Að sögn Margrétar eru litir í
andlitsförðun hægt og rólega að
breytast núna frá mjög dökkum
litum um augun í bjartari liti yfir
sumarið. „Í millitíðinni fram að
vori er gaman að nota silfur á
augnlokin og þá er jafnvel hægt
að nota gráan augnblýant með til
að ramma inn augun. Svo má alls
ekki gleyma kinnunum, en yfir
vetrartímann er fallegt að nota
rauðtóna kinnaliti til að líta út
eins og Þyrnirós því að oft á köld-
ustu vetrarmánuðunum passar
sólarpúðrið ekki.“ - amb
Frískaðu upp
á útlitið í vetur
LJÓSARI TÓNAR Prufaðu að fara
milliveginn í litum fram á vor.
RAKI MIKILVÆGUR Drekktu vatn til að
næra húðina að innan.
Góð vika fyrir...
...væntanlegan forsætisráðherra. Hvílíkt snilldarbragð Samfylk-
ingar að nota Jóhönnu Sigurðardóttur sem ruðningstæki út úr
umkringdu Alþingi. Hún er eini þingmaðurinn sem „venjulegt fólk“
ber snefil af trausti til, enda trúir enginn upp á heilaga Jóhönnu að
hún sé með vafasamt fjárplógsplott í pokahorninu. Það blasir við
að hún er í þessu harki af hugsjón og hún er engin „útrásargrúpp-
ía“. Aukabónus er samkynshneigð Jóhönnu sem hefur vakið mikla
alþjóðlega athygli og gæti aukið ferðamannastrauminn til okkar for-
dómalausa lands.
...hagfræðing sem hafði rétt fyrir sér. Þjóðin vill fólk sem talar út um
réttan enda, enda komin með óþol gagnvart kjaftæði. Þess vegna er
Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, væntanleg-
ur viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.
Hann var einn fárra sem sögðu fyrir um hrun bankanna og þurfti í
kjölfarið að hlusta á úrtölur og þus frá Sigurði Einarssyni og Davíð
Oddssyni. Staðreyndir tala sínu máli. Ísland hefur lent langverst í
súpunni. Nú bíður uppvaskið. Gylfi virðist eiga svuntu.
Slæm vika fyrir...
...forseta. Fyrst það gekk ekki lengur að fljúga með ríku körlun-
um og klappa fyrir þeim í útlöndum ætlaði Ólafur Ragnar að koma
sterkur inn í Nýja Ísland með meitluðum tillögum fyrir nýja ríkis-
stjórn. Honum tókst þó ekki lengi að stela senunni – „drifinn áfram
af óstjórnlegri athyglissýki og sjálfumgleði“ eins og strigakjafturinn
Agnes Bragadóttir kallaði það – því Ingibjörg Sólrún hafði engan tíma
fyrir „málfund“.
...fráfarandi formann. Geir er búinn að pakka. Sjálfstæðisflokkur-
inn er á förum. Sautján ár að baki og þjóðin situr í rammri súpunni.
Geir finnst þetta þó alls engin súpa heldur „svona svipað og 2006“
eins og hann sagði á fundi Sjálfsstæðismanna við dynjandi lófatak.
Geir ætlar kannski að hringja persónulega í þessa fjórtán þúsund
sem eru nýorðnir atvinnulausir og sitja nú í súpunni með síhækk-
andi okurlánin sín og segja þeim að þeir séu í raun í sömu æðislegu
góðærismálunum og 2006?
- drg
GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA