Fréttablaðið - 31.01.2009, Qupperneq 80
31. janúar 2009 LAUGARDAGUR40
OKKUR
LANGAR Í
…
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
> CALVIN KLEIN
SJOKKERAR
Enn og aftur tókst bandaríska hönn-
uðinum að hrella Bandaríkjamenn
með nýrri auglýsingaherferð í tíma-
ritum þar sem kornungar fyrirsætur
sjást naktar í ástarleikjum við unga
menn. Ljósmyndirnar eru eftir Steven
Meisel og hafa verið bannaðar – í
bili.
Það var rétt eins og fatahönnuðir hefðu farið í tímavél aftur
til ársins 1929 fyrir vorlínurnar 2009. Á boðstólum voru bæði
glitrandi kjólar í anda bókar Scott Fitsgerald um Great Gatsby
og svo sáust einnig fátæklegri „kreppukjólar“ úr strigaefnum og í
jarðlitum. Hver segir að heimskreppan bugi tískuandann? - amb
FATAHÖNNUÐIR SÆKJA
INNBLÁSTUR TIL ÞRIÐJA ÁRATUGARINS
Kreppuárin
GLAMÚR ÞRIÐJA
ÁRATUGAR
Stórglæsilegur silfur-
litaður „flapper“ kjóll
frá Alberta Ferretti fyrir
vor/sumar 2008.
SETTLEGT
Dökkblá dragt
með hnésíðu
pilsi frá Marc
Jacobs.
DAUFIR
TÓNAR
Kvenlegar
buxur,
skyrta og
jakki frá
Burberry
Prorsum.
SVEITAFÍLINGUR
Köflótt skyrta
og uppreimaðar
espadrillur frá
Marc Jacobs.
KREPPULITIR
Dökkgrænt,
brúnt og
blátt hjá
Burberry
Prorsum.
KYNÞOKKA-
FULLT
Gullfallegt
silkidress
sem minnir
á nátt-
klæðnað
frá Alberta
Ferretti.
9. HVE
R
VINNU
R!
Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum
– Skógarlind 2. M
eð því að taka þátt ertu kom
inn í SM
S klúbb. 149 kr/skeytið.
MEÐAN AÐRIR FYLGDU SKIPUNUM...
FYLGDI HANN SAMVISKU SINNI
FRUMSÝND 30. JANÚAR
SENDU SMS ESL VBV Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR,
TÖLVULEIKIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA
WWW.SENA.IS/VALKYRIE
Face Mist frá Make
Up store. Frábær
nærandi andlitsúði
til að setja yfir
farða og undir og
gefa frísklegt útlit.
Skvísubrillur frá Christian
Dior. Glærir rammar eru
klæðilegir og aðalmálið
næsta vor. Fást hjá Gler-
augnasmiðjunni.
Nærandi varakrem frá
Biotherm. Varaþurrkur
er ekki smart og þessi
bjargar málunum
og banar hrukkum í
leiðinni.
Frá því í byrjun janúar hef ég ekkert heyrt nema tal um „detox“ hitt og
„detox“ þetta enda afarvinsælt að hreinsa líkamann eftir ofgnótt desem-
bermánaðar í mat og drykkju með föstum. Einhver fann upp á því að
líkaminn væri eins og hús sem þyrfti að þrífa og hreinsa reglulega með
því að svelta hann og pína í hann allskyns grænmetissöfum eða söltum.
Nú er ég alveg hætt að verða ginnkeypt fyrir svona vitleysu enda er
augljóst að okkur var gefin lifur til þess einmitt að hreinsa okkur að
innan, svo lengi sem við erum ekki algjörlega sturluð í ofneyslu á gervi-
efnum og vímugjöfum. Ýmsir trúarhópar gera þetta eflaust til þess að
ná tengingu við andann á einhvern hátt en ég trúi því ekki að hver ein-
asta húsmóðir í Vesturbænum sé í alvörunni á
rauðrófuföstunni til þess að stunda kunda-
lini. Nei, þær gera þetta til þess að grenn-
ast og að sjálfsögðu grennast þær eftir
viku í víti þar sem þær pissa bleiku.
Nú eru líka aðrir sem halda virki-
lega að það sé sniðugt að skreppa til
Póllands og láta spúla sig að innan í þar
til gerðum stólum og hreinsa þarmana af
allskyns jukki. Það má vel vera að það séu
einhver stórkostleg vísindi á bak við þetta en per-
sónulega finnst mér þetta bara hljóma eins og hrein sturlun. Er ekki
mun skynsamlegra að borða bara hollan mat allt árið um kring í stað-
inn fyrir að vera alltaf að hoppa úr einum öfgunum í aðrar? Það eru
einnig fleiri ný matar-æði að dúkka upp. Steinaldarkúrinn er að gera
allt vitlaust í Bretlandi en þar á maður bara að borða annan hvorn dag.
(Reyndar held ég að ég hafi oft prufað hann óviljandi á stresstímum
með tilheyrandi svimaköstum og blóðsykursfalli). Bilun? Nei steinaldar-
kúrinn er hreint ekki það sturlaðasta því að ég var að frétta af hópi sem
kalla sig „Breatharian“. Ekki „vegetarian“ eða „vegan“ eða „pescatari-
an“ eða „fruitarian“, nei, þetta fólk lifir bara á loftinu. Höfuðpaur þessa
fríða andlega hóps af fólki hefur víst ekki nærst á öðru en vatni, kaffi
og tei síðan árið 1991. En nei, þetta er víst ekki anorexia heldur nálægð
við guð. Eflaust má nálgast guð í gegnum mataræðið en fyrir mér er það
fólgið í að njóta ljúffengs kvöldverðar og góðrar rauðvínsflösku.
Undarlegir matarhættir