Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 94

Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 94
 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT: 2. afkvæmi, 6. bókstafur, 8. fjór, 9. upphrópun, 11. á fæti, 12. ósa, 14. útlit, 16. pípa, 17. stilla, 18. fálm, 20. 950, 21. auma. LÓÐRÉTT: 1. kofi, 3. frá, 4. tréspíritus, 5. augnhár, 7. ákafur, 10. viljugur, 13. belja, 15. hefðarkona, 16. iðka, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. lamb, 6. ká, 8. fer, 9. úff, 11. tá, 12. rjúka, 14. ásýnd, 16. æð, 17. róa, 18. fum, 20. lm, 21. arma. LÓÐRÉTT: 1. skúr, 3. af, 4. metanól, 5. brá, 7. áfjáður, 10. fús, 13. kýr, 15. dama, 16. æfa, 19. mm. „Ég veit ekkert hvað kemur út úr þessu, ég er alla vega að láta lög- fræðing fara yfir málið. Meira veit ég ekki,“ segir sjónvarps- stjarnan Pétur Jóhann Sigfús- son. Hann skoðar nú réttarstöðu sína gagnvart leikstjóranum Ólafi Jóhannessyni sem áformar að gera sjónvarpsseríu upp úr kvik- myndinni Stóra planinu. Pétur Jóhann stendur í þeirri meiningu að hann hafi einungis samþykkt að leika í kvikmyndinni, aldrei hafi verið rætt við hann um að gera ætti sjónvarpsseríu. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá hyggst Ólafur gera sjónvarpsþætti byggða á tökum úr kvikmyndinni Stóra planinu enda ku hann eiga nægt efni. Ólafur hefur þegar samið um sýning- arrétinn við RÚV en ekki liggur fyrir hvenær þeir fari á dagskrá að sögn Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra RÚV. Hann segist hafa gert ráð fyrir því að öll rétt- indi væru á hreinu og þetta mál væri alfarið í höndum rétthafa myndarinnar. Pétur Jóhann er með samning við 365 miðla og þegar sjónvarps- þættirnir rata á skjái landsmanna er það brot á þeim samningi. Pétur Jóhann væri þá sá sem myndi lenda í mesta klandrinu gagnvart sínum vinnuveitend- um. „Þetta væri svona svipað og ef Eiður Smári væri ekki í hópn- um hjá Barcelona og myndi bara segjast ætla að spila einn leik með Real Madrid í staðinn,“ er samlík- ingin sem kemur fyrst upp í huga Péturs. Leikarinn hefur leitað sér lög- fræðiaðstoðar enda hafði hann enga hugmynd, að eigin sögn, um að til stæði að gera sjónvarpsþátt úr bíómyndaefninu. „Ég ákvað bara að kanna möguleikana, sjá hvar minn réttur væri,“ segir Pétur. Hann var á launum hjá 365 á meðan hann lék í myndinni og mætti miklum velvilja þegar hann bar kvikmyndaleikinn undir stjórnendur fyrirtækisins. Annað hljóð kom í strokkinn þegar Pétur sagði þeim af hugs- anlegum áætlunum Ólafs. „Ég skrifaði undir samning við Ólaf, sem var upp á fimm síður. Á honum var ensk klausa sem gefur honum víðtæk réttindi til að nota efnið á hvern þann hátt sem hann vill,“ útskýrir Pétur. Leikarinn viðurkennir að honum þyki það undarlegt að Ólafur skuli fyrst hafa samið við RÚV og svo rætt við hann. Ingvar E. Sigurðsson lék undirheimaforingjann Magn- ús í kvikmyndinni. Hann segir fréttirnar af sjónvarpsþáttagerð- inni hafa komið sér á óvart. „Ég stóð síðan í flutningum og fann ekki samninginn sem ég skrif- aði undir í tengslum við mynd- ina. Auðvitað hefði verið betra ef Ólafur hefði rætt við mann áður en hann samdi við RÚV en mér skilst að samkvæmt þessum samningi þá eigi hann allan rétt- inn og við fáum ekkert aukreitis fyrir þetta,“ segir Ingvar. Ólafur Jóhannesson vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði eftir viðbrögðum hans. freyrgigja@frettabladid.is ÓLAFUR JÓHANNESSON: GERIR SJÓNVARPSÞÆTTI UPP ÚR STÓRA PLANINU Pétur Jóhann íhugar máls- sókn vegna sjónvarpsþátta ÓSÆTTI UM STÓRA PLANIÐ Leikstjórinn Ólafur Jóhannesson, til vinstri, og leikarinn Pétur Jóhann Sigfússon eru ósáttir þessa dagana. Pétur Jóhann er að skoða réttar- stöðu sína gagnvart sjónvarpsþáttaröð sem Ólafur hyggst gera upp úr Stóra planinu. Þrátt fyrir að færeyski söngvarinn Jógvan Hansen hafi enn ekki stigið á svið í söngva- keppni Sjónvarpsins eru rússneskir Euro- vision-nirðir þegar búnir að þefa strákinn uppi og vilja ólmir fá hann til Moskvu. Ef marka má heimasíðu sem umræddir aðilar hafa sett upp eru þeir miklir aðdáendur fær- eyska folans, eins og hann var jafnan nefndur í tengslum við X-Factor keppnina. „Ég veit ekkert um þetta, þú verður bara að spyrja Hallgrím Óskarsson, höfund lagsins,“ segir Jógvan þegar Fréttablaðið hafði upp á honum. Hann hafði þá ekki einu sinni séð vef- síðuna en fannst mikið til hennar koma þegar blaðamaður upplýsti hann um slóðina. „Þetta er flott, gaman að sjá mynd af sjálfum sér undir rússneskum stöfum.“ Hallgrímur segir í samtali við Fréttablaðið að Rússarnir hafi frétt af Jógvan í gegn- um Eurovision-síðuna esctoday.com. Þeir hafi fundið lög með Jógvan og hrifist af söng piltsins. „Þeir settu sig síðan í samband við mig, báðu um myndir og meira að segja ævi- ágrip og vildu fá öll smáatriði,“ útskýrir Hall- grímur sem fannst þetta bara nokkuð skondið, ekki síst í ljósi þess að ekki er einu sinni vitað hvort þeir komast upp úr forkeppninni. Jógvan á leik í kvöld en þar hittir hann ein- mitt fyrir forna keppinauta sína úr X-Factor, Hara-systurnar sem skipa stúlknasveitina Elektra. Þær syngja lag Örlygs Smára, Got No Love, en X-Factor samkundan verður síðan fullkomnuð þegar fyrrum kynnir sjónvarps- þáttarins, Halla Vilhjálmsdóttir, flytur lag Trausta Bjarnasonar, Roses. - fgg Rússneskir Eurovisionnördar dýrka Jógvan DÝRKA JÓGVAN Rússnesku Eurovision-nördarnir eru heillaðir af færeyska folanum og vilja ólmir fá hann til Moskvu. „Auðvitað vil ég bjóða krafta mína fram fyrir flokk sem ætlar sér að endurnýja flokkakerfið á Íslandi og gangast fyrir siðbót í stjórn- málum,“ segir Þráinn Bertelsson rithöfundur. Þráinn stefnir á að taka efsta sæti á lista Framsóknarflokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæm- anna í komandi alþingiskosning- um. Hann segir siðbót í stjórnmál- um hafa verið baráttumál sitt. „Ég er 64 ára gamall og ef ég fer inn á þing þá er það til að koma málum þar fram („with a little help from my friends“) ekki að sitja þegjandi og bíða eftir stöðuhækkun í flokkn- um. Þess vegna sækist ég eftir að leiða lista. Það væri líka ólíkt mér að vilja vera í eftirrreiðinni. Ég er kominn yfir hestasveinaaldurinn,“ segir Þráinn sem lengi hefur verið kenndur við Framsóknarflokk- inn. Hann sagði sig hins vegar úr honum „...þegar Davíð og Halldór skráðu okkur í stríð við Írak...“ en er nú að munstra sig aftur um borð. „Já, römm er sú taug ...! Mér finnst hafa verið lögð drög að glæsilegu endurreisnarstarfi í þessum sögu- fræga flokki og vil gjarna leggja mitt af mörkum til að byggja hér upp öflugan miðflokk með stuðingi dreifbýlis og bændasamtaka. Og ég vil vera með frá byrjun. Sósíal- isminn er hruninn. Frjálshyggjan hrunin. Miðjan stendur eftir, skyn- semdin og hófsemin.“ - jbg Þráinn Bertelsson í framboð fyrir Framsóknarflokkinn ÞRÁINN Í KOSNINGASTELLINGUM Er kominn yfir hestasveinaaldurinn og stefnir á efsta stæti í Reykjavík. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 8 1 Íslendingar 2 Já 3 Að Ómar R. Valdimarsson væri aðalrasisti bloggheima FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N 54 Gaukur Úlfarsson Aldur: 36 ára. Fjölskylduhagir: Í sambúð með Dagbjört Ylfu Geirsdóttur, dóttir þeirra er Hekla Gauksdóttir. Starf: Dagskrárgerðarmaður Foreldrar: Úlfar Þormóðsson og Steinunn S. Jónsdóttir. Stjörnumerki: Meyja. Gaukur Úlfarsson fékk meiðyrðadómi Héraðsdóms Reykjavíkur hnekkt fyrir Hæstarétti. Ómar R. Valdimarsson hafði höfðað málið á hendur honum. Halla Vilhjálmsdóttir syngur í Eurovision í kvöld. Hún flaug hingað til lands með breskum danshöfundi sem hefur undanfarna viku unnið hörðum höndum að því að semja dans- por og leggja á ráðin um framkomu Höllu í kvöld. Áhuginn á Spaugstofunni hefur gengið í endurnýjun lífdaga sam- kvæmt áhorfstölum sem birtast á vef Capacent og hefur tekið við af söngvakeppni Sjónvarpsins sem vinsælasta sjónvarpsefni landsins. Í annan stað vekur nokkra athygli að áhorfið á Ísland í dag hefur rokið upp síðan Sigrún Ósk Kristjáns- dóttir var ráðin inn og breytt var um áherslur. Málsmetandi menn úr bloggheimum töldu að verið væri að „séðogheyrt“-væða þennan dagskrárlið á tímum þegar þjóðin stæði á tímamótum. Stjórnendur Stöðvar 2 virðast hafa veðjað á réttan hest því í mikilvægasta aldurshópnum, 12-49 ára, er Ísland í dag með meira áhorf en sjálft Kastljósið. Hvort þetta sanni að illt umtal sé betra en ekkert skal hins vegar ósagt látið. Menn bíða aftur á móti spenntir eftir að sjá hvort þetta áhorf komi til með endast. „The show must go on“ segir frasinn og Bubbi Morthens þekkir hann. Kóngurinn er að drepast úr hálsbólgu og í kvefi eins og margir landsmenn aðrir en flaug engu að síður til Færeyja í gær. Uppselt er á tvenna tónleika Bubba í Norræna húsinu í Þórshöfn. Svo virðist sem Bubbi eigi marga aðdáendur í Færeyjum og stendur til að taka tónleikana upp og sjón- varpa en Bubbi ætlar að nota tækifærið og þakka Færeyingum stuðning og hlýhug í hremm- ingum þeim sem Íslendingar þekkja allt of vel. - fgg, jbg FRÉTTIR AF FÓLKI VERSLUNIN FLYTUR LAGERHREINSUN 31.JAN. - 7.FEB. KOMIÐ OG GERIÐ GÓÐ KAUP Laugavegi 51 • s: 552 2201

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.