Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er laugardagurinn
31. janúar, 31. dagur ársins.
10.11 13.41 17.13
10.09 13.26 16.44
Í Kastljósi síðastliðinn fimmtu-dag var spjallað við Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur, fráfar-
andi menntamálaráðherra. Þor-
gerður er glæsileg kona og í þessu
örstutta viðtali held ég að hún hafi
sett a.m.k. tvö glæsileg Íslands-
met, annað í blindri flokkshollustu
og hitt í algerum skorti á raun-
veruleikaskyni.
HÚN byrjaði á því að telja stjórn-
arkreppu standa í vegi fyrir þjóð-
þrifamálum. Stjórnarkreppan
var þeir tæpu þrír sólarhringar
sem liðnir voru síðan Geir Haar-
de baðst lausnar. Í Sjálfstæðis-
flokknum þykir nefnilega eðlilegt
að mynda ríkisstjórn á einum eftir-
miðdegi – enda er það eina sem þá
er rætt skipting bitlinga. Að taka
þrjá sólarhringa í að mynda nýja
ríkisstjórn var að hennar mati
hættulegra landi og þjóð en áfram-
haldandi seta trausti rúinnar
ríkisstjórnar og æðstu stjórnenda
íslensks fjármála- og viðskiptalífs
– sem hagfræðiprófessorar virt-
ustu háskóla veraldarinnar hafa
ekki getað kallað annað en bjána.
ENNFREMUR leyfði hún sér
að segja að ný ríkisstjórn myndi
setja flokkshagsmuni framar þjóð-
arhagsmunum. Það er náttúru-
lega bara fyndið að heyra slíkt af
vörum Sjálfstæðismanns. Hvað
með það hvernig stjórn Seðlabank-
ans var gerð að dvalarheimili fyrir
afdankaða pólitíkusa? Heldur Þor-
gerður Katrín að þjóðin hafi ekki
veitt því athygli í haust hvernig
hörmungar lands og þjóðar jukust
í réttu hlutfalli við geip Davíðs
Oddssonar? Hvað með það hvernig
syni hans og náfrænda var báðum
þröngvað upp á dómskerfið í trássi
við allt velsæmi? Voru það þjóðar-
hagsmunir?
ÞORGERÐUR Katrín klykkti út
með lyginni sem Sjálfstæðismönn-
um virðist núorðið vera uppálagt
að hafa yfir í hvert sinn sem þeir
komast í tæri við fjölmiðil: Eng-
inn trúði því að hér gæti neitt farið
úrskeiðis. Hið rétta er að byrjað
var að hringja viðvörunarbjöllum
heilu ári fyrir hrunið. Sjálfstæð-
ismenn brugðust hins vegar við
með því að skella við skollaeyrum
og væna viðkomandi um annarleg-
ar hvatir ef ekki landráð.
ÉG minnist þess ekki að skynvillan
sem Sjálfstæðismenn kalla pólitík
hafi nokkurn tímann verið dregin
eins skýrum dráttum. Þarna sást
glöggt hvílíkt þjóðþrifaverk það
var að koma Sjálfstæðisflokknum
frá völdum og hve brýnt það er að
halda honum frá öllu sem varðar
hag lands og þjóðar héðan í frá.
Þorgerður og
þjóðarhags-
munirnir