Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2009, Qupperneq 96

Fréttablaðið - 31.01.2009, Qupperneq 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er laugardagurinn 31. janúar, 31. dagur ársins. 10.11 13.41 17.13 10.09 13.26 16.44 Í Kastljósi síðastliðinn fimmtu-dag var spjallað við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fráfar- andi menntamálaráðherra. Þor- gerður er glæsileg kona og í þessu örstutta viðtali held ég að hún hafi sett a.m.k. tvö glæsileg Íslands- met, annað í blindri flokkshollustu og hitt í algerum skorti á raun- veruleikaskyni. HÚN byrjaði á því að telja stjórn- arkreppu standa í vegi fyrir þjóð- þrifamálum. Stjórnarkreppan var þeir tæpu þrír sólarhringar sem liðnir voru síðan Geir Haar- de baðst lausnar. Í Sjálfstæðis- flokknum þykir nefnilega eðlilegt að mynda ríkisstjórn á einum eftir- miðdegi – enda er það eina sem þá er rætt skipting bitlinga. Að taka þrjá sólarhringa í að mynda nýja ríkisstjórn var að hennar mati hættulegra landi og þjóð en áfram- haldandi seta trausti rúinnar ríkisstjórnar og æðstu stjórnenda íslensks fjármála- og viðskiptalífs – sem hagfræðiprófessorar virt- ustu háskóla veraldarinnar hafa ekki getað kallað annað en bjána. ENNFREMUR leyfði hún sér að segja að ný ríkisstjórn myndi setja flokkshagsmuni framar þjóð- arhagsmunum. Það er náttúru- lega bara fyndið að heyra slíkt af vörum Sjálfstæðismanns. Hvað með það hvernig stjórn Seðlabank- ans var gerð að dvalarheimili fyrir afdankaða pólitíkusa? Heldur Þor- gerður Katrín að þjóðin hafi ekki veitt því athygli í haust hvernig hörmungar lands og þjóðar jukust í réttu hlutfalli við geip Davíðs Oddssonar? Hvað með það hvernig syni hans og náfrænda var báðum þröngvað upp á dómskerfið í trássi við allt velsæmi? Voru það þjóðar- hagsmunir? ÞORGERÐUR Katrín klykkti út með lyginni sem Sjálfstæðismönn- um virðist núorðið vera uppálagt að hafa yfir í hvert sinn sem þeir komast í tæri við fjölmiðil: Eng- inn trúði því að hér gæti neitt farið úrskeiðis. Hið rétta er að byrjað var að hringja viðvörunarbjöllum heilu ári fyrir hrunið. Sjálfstæð- ismenn brugðust hins vegar við með því að skella við skollaeyrum og væna viðkomandi um annarleg- ar hvatir ef ekki landráð. ÉG minnist þess ekki að skynvillan sem Sjálfstæðismenn kalla pólitík hafi nokkurn tímann verið dregin eins skýrum dráttum. Þarna sást glöggt hvílíkt þjóðþrifaverk það var að koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum og hve brýnt það er að halda honum frá öllu sem varðar hag lands og þjóðar héðan í frá. Þorgerður og þjóðarhags- munirnir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.