Tíminn - 03.02.1983, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983
a
RAFSTRAUMUR SF.
Háaloitisbraut 68. Box 653 Reykjavik, isiand.
Önnumst alla raflagnaþjónustu í nýtt og eldra
húsnæði. Leggjum Ejríkur s 54574
aherslu a vandaða Randver s. 41054
vinnu og goða þ,onustu. gtefán s 66389
Árs ábyrgð á efni. Löggiltir meistarar.
Kjarnaborun
Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ymisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotiö, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjárnaborun sf.
Símar 38203-33882
Ódýrar bókahillur
Fyrir heimili og skrifstofur
Stærð: 184x80x30
Fást í furu, eik og bæsaðar.
Verð kr. 1.990.— án hurða
Tré- og glerhurðir fáaniegar
Húsgögn og
. . Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi 86 900
Utboð
Tilboöóskast í steyptarhlífðarhellurfyrirRafmagnsveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík
gegn 300 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 15. febr. 1983 kl. 11
f.h.
INNKAÚPASTOFNUN REYKJAVÍXURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
fréttir
■ Ekki eru allir háir í loftinu sem iðka skíðaíþróttina á Húsavík, enda skíðasvæðin skammt undan. Um 5 mínútna gangur
er t.d. frá hóteldyrunum og að skíðalyftunum.
Tímamyndir Þröstur
Heilsuvikur á Húsavík:
„Hefur myndast gód
stemning íhópunum”
— segir Auður Gunnarsdóttir, hótelstjóri
á Húsavík
HÚSAVÍK: „Ert þú feitur, stressaður
eða þarfnast tilbreytingar?" er spurt á
bæklingi sem okkur barst nýlega í
hendur frá Hótelinu á Húsavík. Við
leituðum því nánari upplýsinga hjá
hótelstjóranum, Auði Guðmundsdótt-
ur, hvort þar sé að finna lækningu við
fyrrnefndum „velferðarþrautum".
„Við bjóðum nú fólki á ný upp á
svonefndar „Heilsuvikur á Húsavík",
en þeir sem komu á þessar vikur hjá
okkur fyrir áramótin voru mjög
ánægðir a.m.k. Þetta virðist því höfða
til fólks - ekki endilega að megra sig
- sumir vilja bara afslöppun, hvíld og
tilbreytingu, sagði Auður. Fyrsta heilsu-
vikan á þessu ári hefst næsta sunnu-
dag og síðan er meiningin að þær
haldi áfram frani undir vorið. „Það er
ýmislegt við að vera, “ svaraði Auður.
„Það cr leikfimi, gönguferðir með
fararstjórn, sund og gufuböð, nudd
tvisvar í vikunni fyrir hvern einstakan
og svo auðvitað skíðin - punkturinn
yfir iið - þegar nægur snjór er. Það er
því margt hægt að gera og hefur
myndast mjög góð stemn ing innan
þeirra hópa sem við höfum haft til
þessa", sagði Auður.
Þegar við fórum aö leita Auðar kom
■ „Fólk kemur ekki cndilega til að
megra sig - sumir vilja bara afslöppun,
hvíld og tilbreytingu“, segir Auður
Gunnarsdóttir hótclstjóri á Húsavík.
’ í ljós að hún var stödd í Reykjavík.
Hún hafði þurft að fara þangað á fund,
eins og margir stjórnendur utan af
landi þurfa gjarnan að gera. En getur
hún ekki dregið eitthvað af öllum
þessum fundum sem alltaf er verið að
halda þangað norður?
- Það er alltaf eitthvað um það
líka, og hefur mælst mjög vel fyrir.
Fólk getur þá farið á skíði í leiðinni og
gert þar með mcira úr þessu. Einnig
þykir mönnurn haldast betur utan um
hópinn á svona stöðum heldur en
þegar fundir eru haldnir í Reykjavík.
Þar ætla svo margir að nota tækifær-
ið til að gera eitthvað annað í leiðinni
og því töluvert los á mannskapnum.
Við eigum t.d. von á Verktakasam-
bandinu sem ætlar að halda hjá okkur
aðalfund sinn á hæstunni.
Auður kvað mánuðina desember og
janúar hafa verið daufa á hótelinu að
venju. En í febrúarséþetta allt að lifna
við. M.a. á hún von á tveim 20 manna
hópum á næstunni og svo fjölgar þeim
sem kaupa sér „helgarpakka" eða
„miðvikupakka" - sem eru enn ódýrari
- sem hægt er að kaupa bæði hjá
Flugleiðum og ferðaskrifstofunum.
HEI
Æfa Gullna hliðið
HÚSAVÍK: „Við erum að hefja
æfingar á Gullna hliðinu undir stjórn
Einars Þorbergssonar", sagði Hrefna
Jónsdóttir formaður Leikfélags Húsa-
víkur cr við spurðum við hvað þau
væru að fást núna. En fyrirhugaða
uppfærslu félagsins á „My fair lady"
varð félagið að hætta við þar sem ekki
fengust leyfi til þess, sem kunnugt er.
-Þið ráðist ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur frekar en venjulega?
Það er þetta margfræga þingeyska
sjálfsálit - við verðum að reyna að
halda því uppi sagði Hrefna og hló við.
Nú er þetta mannmörg sýning - er
alltaf nóg af leikurum?
Það sem háir okkur cinna mest er
að okkur vantar karlmenn á réttum
aldri, þ.e. svona frá 25 og upp í
sextugt. en við höfum hins vegar unga
og fullorðna menn. En alitaf leysist
þetta þó einhvernveginn - enda erum
við nú ekki alveg karlmannslausar. þó
það mætti vera meira af þeim.
Hrefna sagði stefnt að frumsýningu
upp úr miðjum mars, en þangað til
verða æfingar á hverjunt degi. „Já,
þetta er mikil vinna - að bæta
daglegum æfingum ofan á fullan vinnu-
dag-en þetta gerir fólk með ánægju."
- Og aðsóknin góð?
- Þaðeru alltafvel sóttarsýningarhjá
okkur - ef veður og ófærð fara ekki
illa með okkur eins og t.d. í fyrravetur.
Húsið er að vísu lítið - tekur tæplega
140 manns í sæti - en við höfum upp
undir 20 sýningar. Við erum líka hætt
að ferðast með leiksýningarnar eins og
áður var algengt. Það hefur þróast
upp í það að nú kemur fólk til okkar
langar leiðir - bæði úr okkar stóra
héraði og einnig jafnvel hópar frá
Akureyri, úr Eyjafirði, frá Kópaskeri
og jafnvel Raufarhöfn.
Fyrir áramótin kvað Hrefna leik-
félagið í fyrsta skipti hafa sett upp sína
fyrstu barnasýningu. „Við vissum því
ekki fyrirfram hvernig viðtökur við
fengjum. En þetta lukkaðist mjög vel
og var mjög gaman - og við fengum
miklar og góðar undirtekir úr salnum".
HEI