Tíminn - 03.02.1983, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983
umsjón: B.St. og K.L.
vid góðu
slönguna”
— sagdi Michelle litla
vid Ijósmyndarann
■ Ljósmyndaranum var um
og ó, þegar hann myndaði
Webster-ijölskylduna í Shef-
field, South Yorkshire í Eng-
landi með gæludýrin sín. En
gæludýrin eru tvær heljarstór-
ar slöngur, sem þeim þykir
ósköp vænt um. Litla Michellc
Webster, sem er tveggja ára,
vildi endilega fá Ijósmyndar-
ann tii að klappa góðu slöng-
unni, - en hann var ekki
tilleiðanlegur til þess.
Martin Webster er einn af
fáum innflytjendum í Bret-
landi, sem flytja inn dýr. Hann
flytur inn snáka og slöngur.
Stundum tekur hann innflutn-
ingsvöru sína með sér heim, og
sér um dýrin þar þangað til þau
komast á áfangastað. Yolanda
kona hans sagði að í fyrstu
hefði sér verið meinilla við
dýrin, og ekki getað hugsað sér
að koma nálægt þeim, en þetta
hefði vanist smátt og smátt;
„og sumar slöngur þykir mér
blátt áfram vænt um, eins og
þessar tvær myndarlegu
slöngur, sem sjást hér á mynd-
inni. Þær voru orðin hálfgerð
gæludýr á heimilinu“, sagði
Yolanda.
■ Webster-„fjölskyldan með gæludýrin sín!
■ F.V. Guðrún Tryggvadóttir,
Brynhildur Þorgeirsdóttir og
Elín Magnúsdóttir.
Tímamynd GE
að koma á í galleríunum. Þau
eru of lítil til að leyfa svona
alhliða starfsemi. Hérna eru
mörg málverkin unnin á
staðnum, hópur nemenda úr
Myndlista-og handíðaskólanum
leigði sér vinnustofur hér í vetur
og fengu allt aðra og betri
aðstöðu en hjá skólanum og geta
þar af leiðandi hugsað og unnið
miklu frjálsara en annars. Svo
eru hér ljóðalestrar, tónleikar og
uppákomur sem galleríin hefðu
aldrei getað hýst.
Hvers konar tónlist er það
sem hér er flutt?
„Öll hugsanleg tónlist. Rokk,
jass, pönk, klassísk tónlist, og
óperutónlist. Síðan verða frjáls-
ar uppákomur og gestir eru
hvattir til að leggja sitt af
mörkum, troða upp með tónlist
eða eitthvað annað sem þeim
liggur á hjarta og vilja koma á
framfæri.
Svo eru ljóðalestrar og uppá-
komur af ýmsu tagi?
Já,-og Ijóðskáldin sem hér
vinna eru að gefa út blao sem
lítur dagsins jjós um helgina.
Raunar hafa myndlistar-
mennirnir gert það i sama, þeir
hafa gefii' út blað sem þeir kalla
Brunninn og það þjónar líka
sem katalók fyrir myndlistarsýn-
inguna.
Hvemig hefur aðsóknin verið?
Hún hefur verið alveg frábær.
Fólk hefur sýnt þessu mikinn
áhuga og það er eins og það
skynji kraftinn á bak við þessa
hátíð. Hérna höfum við séð fólk
á öllum aldri, þ.á.m. fólk sem
yfirleitt sést aldrei á sýningum
ungra listamanna eða listamanna
sem ekki hafa áunnið sér viður-
kenningu þjóðfélagsins og eru
að þróa sig áfram í list sinni.“
„Gullströndin andar," heldur
áfram til föstudagskvöldsins 11.
febrúar og er myndlistarsýningin
opin daglega kl. 16.00-22.00, en
fimmtudags- föstudags- og laug-
ardagskvöld eru tónleikar, upp-
lestrar og uppákomur frá kl.
20.00-23.00. Góða skemmtun.
JGK
■ Ghanamenn á heimleið frá Nigeríu
Milljónum manna vísað
fyrirvaralrtid ur landi
Slæm endalok olíuævintyrisins í Nígeríu
■ÞAÐ kom engan veginn á
óvart, þegar Alhafi Ali Baba,
innanríkisráðherra Nigeríu, birti
þá tilkynningu 17. janúar síðast-
liðinn, að allir útlendingar, sem
hefðu komið til landsins ólög-
lega, yrðu að vera búnir að
yfirgefa það fyrir 1. febrúar. Að
öðrum kosti yrði brottflutning-
unum fylgt eftir með harðri
hendi.
Þetta kom ekki á óvart sökum
þess, að undanfarna mánuði
hefur verið rekinn mikill áróður
gegn þessum útlendingum í
fjölmiðlum í Nigeríu.
Því var ekki aðeins haldið
fram, að þeir ættu sök á atvinnu-
leysinu, sem hefur aukizt hrað-
fluga í Nigeríu síðan olíugróðinn
dróst saman.
Þeim hefur einnig verið kennt
um trúarbragðaóeirðir, sem hafa
orðið verulegar í ýmsum stór-
borgum landsins, eins og t.d.
Kano, Kaduna og Malduguri.
Óeirðir þessar hafa oft haft
mannfall í för með sér.
Þá hafa fjölmiðlar talið, að
umræddir útlendingar ættu mest-
an þátt í auknum glæpum í
landinu. Þeir stunduðu rán og
þjófnaði í stórum stíl. Til viðbót-
ar þessu fullyrti Daily Times,
stærsta dagblað í Nigeríu, ný-
lega, að 80% kvenna, sem væri
í þessum hópi útlendinga, stund-
uðu vændi og væru þannig að
eyðileggja siðferðið í landinu.
ÞESSI áróður gegn útlending-
um hefur fallið í góðan jarðveg
meðal almennings síðan atvinnu-
leysið hefur farið hraðvaxandi,
en það hefur í mörgum tilfellum
bitnað meira á landsmönnum en
útlendingum.
Meðan Nigería græddi á olí-
unni, var atvinna sívaxandi í
landinu. Fjöldi útlendinga
streymdi til Nigeríu frá ná-
grannalöndunum, einkum
Ghana, Niger, Chad, Kameroon
og Benin.
Þær reglur hafa gilt í Nigeríu,
að öllum væri leyfilegt að koma
til landsins frá nálægum löndum
og stunda þar vinnu í þrjá
mánuði, án atvinnuleyfis. Flestir
þeirra, sem þannig komu til
Nigeríu, vanræktu að sækja um
atvinnuleyfi þegar þremur mán-
uðunum lauk.
Gizkað er á, að þegar brott-
rekstrartilkynningin var gefin út
■ Ali Baba, innanríkisráð-
herra Nigeríu
það myndi leiða til mestu hörm-
unga.
Ali Baba gerði því nokkra
tilslökun rétt fyrir mánaðamótin.
Samkvæmt henni uröu allirófag-
lærðir menn og fjölskyldur þéirra
að hafa farið úr landi fyrir
mánaðamótin.
Faglærðir menn og fjölskyldur
þeirra máttu hins vegar dvelja í
landinu til 28. febrúar.
Þá næði brottvísunin ekki til
þeirra, sem búnir væru að dvelja
í Nigeríu í 20 ár, þótt þeir hefðu
ekki aflað sér atvinnuréttinda.
Sumir fréttaskýrendur telja,
að þessar hörkulegu aðgerðir
Nigeríustjórnar reki að ein-
hverju leyti rætur til þess, að
forsetakosningar fara þar fram í
ágústmánuði næstkomandi.
Shagari forseti sækir um endur-
hafa fylgzt með hinum stórfelldu
fólksflutningum frá Nigeríu
vegna brottvísunarinnar, eiga
yfirleitt ekki nógu sterk orð til að
lýsa vandræðum þess fólks, sem
hefur orðið að yfirgefa dvalar-
staði sína nær fyrirvaralaust og
láta eftir mest af eignum sínum
ef einhverjar hafa verið.
Farartæki til að fullnægja þess-
um miklu flutningum eru mjög
af skornum skammti og margir
verða því að fara fótgangandi.
Börn og gamalmenni reyna að
fylgjast með.
Verst cr hlutskipti þeirra, sem
þurfa að komast heim til
Ghana. Þeir, sem ekki komast
sjóleiðina, verða að ferðast um
tvö lönd, Benin og Togo. Þeir
hafa fengið leyfi til að þræða
ákveðnar leiðir og má nú víða
/ghana'S'
} \í
I
^Accra
ATLANTIC OCEAN
OMiles 300
Nigería og nágrannaríkin
C.A.R.
EQUAT. k.—___________V
QUINÉA— J L_,
17. janúar, hafi verið í Nigeríu
rúmlega tvær milljónir útlend-
inga, sem þannig var ástatt um.
Þar af voru um ein milljón frá
Ghana og 500 þús. manns frá
Niger. Sumar heimildir telja, að
tala þessa fólks sé enn hærri.
Þótt menn væru famir að
búast við brottvísun þá og þegar,
reiknuðu fæstir með, að henni
yrði fylgt fram jafn fyrirvaralítið
á hálfum mánuði. Ljóst var, að
kjör, en er talinn standa höllum
fæti.
Það er því ekki ólíklegt, að
hann hafi talið sér nauðsynlegt
að gera einhverjar róttækar að-
gerðir til að reyna að treysta álit
sitt.
Brottvísun útlendinga er sögð
mælast vel fyrir meðal almenn-
ings í Nigeríu.
ERLENDIR fréttamenn, sem
sjá óslitna röð göngumanna, svo
mörgum mílum skiptir.
Fæstir komast sjóleiðina, þó
að stjórn Ghana hafi lofað að
senda skip til þessara flutninga,
en lítið hefur orðið úr því.
Lítið betra tekur við, þegar
komið er til Ghana. Þar er fyrir
mikið atvinnuleysi og efnahags-
vandræði óvíða meiri í Afríku.
Það kemur svo til viðbótar, að
ríkisstjórnin tortryggir marga
þeirra, sem eru að koma heim.
Ástæðan er sú, að grunnt er á
því góða milli ríkisstjórnanna í
GhanaogNigeríu. StjórnGhana
er sögð óttast, að Nigeríustjórn
hafi komið því svo fyrir, að
meðal þeirra heimkomnu sé að
finna flugumenn Nigeríustjórn-
ar, sem ætlað sé að koma
núverandi stjórn Ghana frá
völdum.
Þórarinn
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar