Tíminn - 24.02.1983, Qupperneq 4
FIMMTUDAGUR 24.FEBRUAR 1983.
TIL FERMINGARGJAFA
Skrifborð, margar gerðir.
Bókahillur og skápar.
Steriohillur og skápar.
Stólar — Svefnbekkir — Kommóður
Húsgögn °5^Suður,andsbraut 18
mnrettmgar símí 86 900
Eigum fyrirliggjandi
CAV 12 volta startari:
Bedford M. Ferguson
Perkins Zetor
L. Rover D. Ursus ofl.
CAV 24 volta startari:
Perkings
Scania
JCB o.fl.
Lucas 12 volta startari:
M. Ferguson
Ford Tractor ofl.
CAV 24 volta alternator:
35 amper einangruð jörð
65 amper einangruð jörð
Butec 24 volta alternator:
55 ampers einangruð jörð
Einnig startarar og alternatorar fyrir allar
gerðir af japönskum og enskum bifreiðum.
Þyrill s.f.
Hverfisgötu 84
101 Reykjavík
Sími29080
Kjarnaborun
Tökum Ur steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJOÐLÁTt OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjarnaborunsf.
Símar 38203-33882
+
Alúöarþakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför
Aðalsteins Jónssonar
frá Vaðbrekku
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki Sjúkrahússins á Egilsstöðum.
Ingibjörg Jónsdóttir
Guðrún Aðalsteinsdóttir JónJónsson
Jóhanna Aðalsteinsdóttir Helgi Bjarnason
Guðlaug Ingibjörg
Aðalsteinsdóttir
Jón Hnefill Aðalsteinsson
Stefán Aðalsteinsson
Sigrún Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Hákon Aðalsteinsson
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Birgir Þór Ásgeirsson
Kristján Jóhann Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ari Bergþórsson
Svava Jakobsdóttir
Ellen Sætre
Sigríður Sigurðardóttir
SirrýLaufdal
Sigurlína Davíðsdóttir
Ragnheiður Ragnarsdóttir
Dagný Kristjánsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Bjargar Björnsdóttur
Brunnavöllum
F.h. aðstandenda
Helga Björnsdóttir
Ráðstefna um umferdarmál:
Hvað kosta
umferðarslysin
þjóðfélagið?
■ Á annað hundrað manns munu
sitja ráðstefnu um umferð og skipulag
gatnakerfis, sem haldin verður í
Reykjavík n.k. fimmtudag og föstu-
dag. Tilgangur ráðstcfnunnar er m.a.
að ræða hvernig draga megi úr umferð-
arslysum með lagfæringum á núver-
andi gatnakerfi og með breytingum á
skipulagi svo umferðin verði hættu-
minni. M.a. verða kynntarnýjarleiðir,
sem reyndar hafa verið erlendis og
farið í skoðunarferð um ný hverfi í
Reykjavík.
Á ráðstefnunni verða flutt 14 fram-
söguerindi og málefnið rætt frá ýmsum
sjónarhornum. Meðal þess sem rætt
verður e'r skipulag landnotkunar og
umferðakerfis í þéttbýli, hvað um-
ferðaslysin kosti þjóðfélagið, aðferðir
til að draga úr hraða í íbúðahverfum,
hálka og snjór og hjólrciðastígar. Þátt-
takendur ráðstefnunnar eru einkum
fólk sem skipar umferðarnefndir og
skipulagsnefndir sveitarfélaga og,
tæknimenn sveitarfélaganna.
Að ráðstefnu þessari standa Sam-
band íslenskra sveitarfélaga í samráði
við Umferðarráð, Skipulag ríkisins,
Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins,
Rannsóknarstofnun byggingariðnað-
arins og þær stofnanir Reykjavíkur-
borgar sem fara með umferðarmál.
-HEI
MFA býður
launþegum í söngkór
■ Hugmynd um stofnun söngkórs -
þar sem gert cr ráð fyrir að kórfélagar
verði einkum félagsmenn stéttarfélag-
anna í Reykjavík og nágrenni - verður
kynnt á fundi í Listasafni ASÍ að
Grensásvegi 16 í Reykjavík mánudags-
kvöldið 28. febrúar n.k.
Á vegum MFA og Nemendasam-
bands Félagsmálaskóla alþýðu hefur
um nokkurt skeið verið rætt um stofn-
un blandaðs kórs, þar sem félags-
mönnum stéttarfélaganna gefistkostur
á að æfa og læra söng.
Tónskóli Sigursveins Kristinssonar
hefur sýnt þessu sérstakan áhuga og
leggur því lið í formi kórstjórnar,
kennslu og fleira. En ekki er krafist
neinnar ákveðinnar lágmarkskunnáttu
í söng eða tónlist þegar starfið hefst,
þannig að allir sem áhuga hafa og
ástæður til, geta verið með.
Ráðgert er að reglulegar æfingar
verði á mánudagskvöldum í Listasafni
ASÍ og er þess vænst að sem flestir
félagsmenn stéttarfélaganna og makar
þeirra komi á fundinn næstkomandi
mánudagskvöld, en hann hefst kl.
20.30 (hálf níu).
-HEI
■ Leikarar, leikstjóri og aðrir þeir sem vinna að sýningu leikhóps Mána á Deleríum
Búbonis í Mánagarði. Leikstjórinn Ingunn Jensdóttir er í miðið í fremstu röð, en
leikhópurinn segir að koma hennar í héraðið hafi veri mikils virði fyrir leiklistarstarfið,
þar sem nú þurfi ekki lengur að leita til Reykjavíkur eftir leikstjóra.
Leikhópur Umf. Mána í Nesjum:
„Deleríum búbonis”
í Mánagarði
Hornafjörður: Nýstofnaður leikhópur
Ungmennafélagsins Mána í Nesjum
frumsýnir „Deleríum Búbonis" eftir
Jónas og Jón Múla Árnasyni í Mána-
garði í kvöld, fimmtudagskvöld kl.
21.00. Leikstjóri er ingunn Jensdóttir.
Undirleik annast Sigurjón Bjarnason
og Einar Sigurjónsson. Lcikendur eru
níu, þau: Hreinn Eiríksson, Eiríkur
Sigurðsson, Arnbjörg Sveinsdóttir.
Ragnheiður Halldórsdóttir, Halldór
Tjörvi Einarsson. Ásmundur Gísla-
son, Þorleifur Hjaltason, Jón Valdi-
marsson og Guðlaug Guðmundsdóttir.
Ungmennafélagið Máni í Nesjum í
Hornafirði varð 75 ára á s.l. ári. Á
fyrstu árum félagsins voru leiksýningar
árviss viðburður. Mun áhugi á leiklist
alltaf hafa verið mikill í sveitinni og
sjaldan liðið svo ár fram yfir 1960 að
ekki væri efnt til leiksýningar. Undan-
farin 20 ár hafa leiksýningar hins vegar
einkum verið á vegum Leikfélags
Homafjarðar, en ungmennafélögin í
sveitunum látið minna til sín taka. A
þessu afmælisári Mána er því gerð
tilraun til að endurvekja áhuga á
leikstarfsemi í Nesjum og leikhópur
Mána stofnaður í því skyni. Deleríum
Búbonis er fyrsta verkefni Ieikhópsins.
Næstu sýningar leikhóps Mána
verða síðan á laugardaginn kl. 15,00
og n.k. sunnudagskvöld, þriðjudags-
kvöld og fimmtudagskvöld kl. 21.00
öll kvöldin.
-HEI
Minni vinna í Gardinum bitnar mest á Keflvikingum
Gerðahreppur: „Minnkuð atvinna hér
hjá okkur í Garðinum bitnar kannski
meira á Keflvíkingum heldur en
okkur. Þegar öll hús hérna eru í gangi
þá vinnur hér mikill fjöldi fólks úr
Keflavík, en þegar eitthvað minnkar
fækkar þeim. Ég veit t.d. til þess að í
einni fiskverkuninni hérna hafa unnið
20-30 manns úr Keflavík, en þeir
munu nú ekki vera orðnir nema um 6
talsins", sagði Jón Hjálmarsson, form.
Verkalýðs- og sjómannafélags Gerða-
hrepps er við leituðum hjá honum
frétta af atvinnuástandinu í Garðinum,
m.a. vegna þess að engin frysting er nú
í gangi í ísstöðinni.
Jón kvaðst ekki vita nákvæmlega
hve margir væru á atvinnuleysisskrá
núna - líklega 6-10 manns - en
ástandið hafi verið að lagast þar sem
fiskiríið hjá bátunum virðist nú heldur
vera að glæðast. Auk nokkuð margra
báta sagðihanneinn af togurunum úr
Garðinum landa heima - hjá Garð-
skaga h.f.
-HEI