Tíminn - 25.02.1983, Blaðsíða 1
Meginþættir nýrra kosningarlaga — sjá bls. 5
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Föstudagur 25. febrúar 1983
46. tölublað - 67. árgangur
Síðumúla15-Pósthólf 370Reykjavík-Ritstjórn86300-Auglýsingar18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306
Útgjöld vegna umferðarslysa nema geigvænlegum upphæðum:
HVERT ORKUMLASLYS KOSTAR
ANDVIRÐI 3JA EINBYUSHÚSA
■ Kostnaður þjóðarinnar að sjúkrahúskostnaður og lagisíðastaárs,eðajafnvirði3ja ferðarljósum. Meðalkostnaður hægt að draga verulega úr um, sem útreiknað
■IQrmn limfarAni.rlirrn Ó ríAnrtn cénfnnnmrícf I/Acfaðí 1^1 /4* ITlllll m.'Al.mnn n.'nUóllnU.'.rn Uimnnn nnnnwn nli.nn nn Unlwn nr hpeeil11 C'inAl FYoiríA Lr/l|.tnnAi'nn .villlinnn nnnmnAi nn.
■ Kostnaður þjóðarinnar vegna umferðarslysa á síðasta ári nam samtals 440,7 milljón- um króna, að því er fram kom hjá Davíð Gunnarssyni, for- stöðumanni Ríkisspítalanna á ráðstefnu uin umferðarmál í gær. Upphæð þessa kvað hann jafn- gilda rekstri allra stofnana Ríkis- spítalanna á Landspítalalóðinni. Kostnaður þessi skiptist þannig að sjúkrahúskostnaður og stofnanavist kostaði 131,25 millj. króna, tekjutap slasaðra og lát- inna 183,05 milljónir króna og tjón á munum 126,4 mUljónir króna. Kostnaður vegna hvers ör- kumlunarslyss sagði Davíð hafa verið 5,6 milljónir króna á verð- lagi síðasta árs, eða jafnvirði 3ja miðlungs einbýlishúsa. Hvert dauðaslys kosti á við eitt einbýl- ishús, eða 1,8 milljónir króna. Davíð nefndi fleiri sláandi sam- líkingar. Þannig sagði hann t.d. að göng undir Kringlumýrar- brautina í Reykjavík kosti álíka upphæð og tvö dauðaslys, og að fyrir kostnað vegna eins dauða- slyss mætti koma upp þrem um- ferðarljósum. Meðalkostnaður vegna annarra slysa en þeirra er leiða til dauða eða örkumla sagði hann um 300 þús. krónur, eða helming af kostnaði einna um- ferðarljósa, uppsettra, sem er 600 þús. kr. á verðlagi 1982. „Þetta eru ægilegar tölur, en það sem kannski er mest sláandi er að við umferðarbreytinguna j árið 1968 sá maður að það var hægt að draga verulega úr þessu", sagði Davíð. Kostnaðinn vegna umferðarbreytingarinnar kvað Davíð hafa jafngilt 39 mill- jónum króna í beinhörðum pen- ingum á verðlagi 1982. Hún hafi hins vegar sparað 66 milljónir króna. Sá sparnaður hafi falist í sparnaði á 14 dauðaslysum, 3 mjög alvarlegum umferðarslys- um og 80 öðrum umferðarslys- um, sem útreiknað jafngildi 66 milljóna sparnaði, sem fyrr segir. Á árinu 1982 urðu alls 7.662 umferðarslys, þar sem 24 létu, lífið en 720 slösuðust, þar af 349 alvarlega, sem er mun hærri tala en nokkru sinni undanfarin 8 ár a.m.k. - HEI
tsss; ssgæssess: ;&■
SÁÁ sendir út gjafabréf —
happdrættismiða:
RENNURí
BYGGINGU
SJIÍKRA-
STÖDVAR SÁÁ
■ Flcst heimili landsins fá
þessa dagana sendingu frá SÁÁ
með beiðni um að gjafabréf
verði samþykkt og send til baka
í þar til gerðu umslagi. Fjár-
söfnuninni er bernt til allra
karlmanna landsins á aldrinum
30 til 70 ára og félaga í SÁÁ.
Gjalddagar gjafabréfanna eru 5
talsins, sá fyrsti 5. júní n.k. en
seinasti 5. júní 1984. Bréfin eru
vaxtalaus og ekki verðtryggð.
Dregin verða út 50, 100.000.00
króna verðlaun til skilvísra greið-
enda, sem greiða 360 kr. hverju
sinni. Gjafabréfið er að fullu
frádráttarbært til skatts og jafn-
gildir um leið 5 happdrættismið-
um.
„Við efnum til þessarar miklu
fjársöfnunar vegna byggingar
sjúkrastöðvar SÁÁ við Grafar-
vog í Reykjavík. Sjúkrastöðin
verður tekin í notkun í október
n.k. Áætlað kostnaðarverð
hennar er 32 milljónir króna, en
framkvæmdir gátu hafist vegna
dyggilegs stuðnings kvenna í
happdrættinu 1982,“ sagði
Valdimar Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri söfnunarinnar í
samtali við Tímann í gær.
Að sögn Valdimars rekur
SÁÁ nú sjúkrastöð að Silunga-
polli við mjög ófullkomnar að-
stæður. Húsið segir hann bág-
borið, of lítið og óhentugt.
„Pótt allt sé gert til að taka á
móti öllum þeim sem óska að-
stoðar hefur biðlistinn aldrei ver-
ið lengri. Á honum eru um 100
rnanns," sagði Valdimar.
Um 5500 manns hafa komið til
meðferðar á sjúkrastöð SÁÁ frá
upphafi vegna áfengis- og vímu-
efnavandamála. „Mikill fjöldi
þeirra hefur náð bata. Ef hugsað
er til þess að hver einstaklingur
á sér að minnsta kosti 5-6 ná-
komna sem þjást, má leiða líkum
að hverja breytingu þessi starf-
semi hefur haft á líf og hamingju
þúsunda rnanna," segir í frétt
frá Frjálsu Framtaki hf, sem
hefur umsjón með söfnuninni.
Gjafabréfin munu einnig send
til fyrirtækja, stofnana og félaga-
samtaka um land allt. Munu
mörg fyrirtæki landsins þegar
hafa sýnt í verki skilning á
mikilvægi þess, að geta komið
starfsmönnum sínum í meðferð.
„Þar kemur ekki aðeins til al-
menn mannúð, heldur hrein
rekstrarleghagkvæmni. Þauhafa
metið stuðning við SÁÁ sem arð-
bæra fjárfestingu. Þar mætti
nefna Flugleiðir, sem frá upphafi
hafa lagt þessu máli mikið lið og
notið góðs af starfseminni,“ segir
í fréttinni.
í heild munu 5-6000 mann.s
víðsvegar um landið vinna við
söfnunina.
- Sjó
■ Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, skrifaði undir
fyrsta gjafabréfið frá SÁÁ. Við hlið hennar er Björgólfur
Guðmundsson, framkvæmdastjóri SÁÁ.
(Tímamynd Árni)
Allar kon-
ur njóti
fæðingar-
orlofs
■ Lagt hefur verið fram á
Alþingi frumvarp um að allar
konur eigi rétt á að njóta
þriggja mánaða fæðingarorlofs
án tillits til hvort þær starfa á
vinnumarkaði eða cru heima-
vinnandi.
Alcxander Stefánsson er
fyrsti flutningsmaður frum-
varpsins, en þegar lögin um
fæðingarorlof voru samþykkt
á sínum tíma sagði hann að í
þeim gætti hróplegs óréttlætis
í garð heimavinnandi kvenna.
Hann taldi að óeðlilegt væri að
upphæð fæðingarstyrks væri
ekki sú sama til allra fæðandi
kvenna án tillits til tekna eða
þátttöku á vinnumarkaði.
Frumvarp það sem nú hefur
verið lagt fram á að leiðrétta
það misrétti.
„O.Ó
Sjá nánar á bls. 18
Fór út
af vegi
og eydi-
lagðist
■ Mazda-bifreið gereyði-
lagðist þegar hún endastakkst
út af Reykjanesbrautinni, ná-
lægt Þúfubarði á Hvaleyrar-
holti í Hafnarfirði, á nítjánda
tímanum í fyrrakvöld.
Tvennt var í bifreiðinni, ung
kona og sonur hennar 10 ára
gamall. Voru þau bæði flutt á
slysadeild, en reyndust lítið
slösuð og fengu að fara heim
að skoðun lokinni.
Konan er grunuð um ölvun-
arakstur.
-Sjó
1