Tíminn - 25.02.1983, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983.
Hestur í óskilum
Rauöblesóttur hestur um 4ra vetra meö hvítan
hóf á hægri afturfæti, ómarkaöur, bandvanur, er
í óskilum í Innri-Akraneshreppi.
Veröur seldur að Kirkjubóli laugardaginn 19.
mars kl. 14 hafi enginn gefið sig fram.
Uppíýsingar í síma 93-2171.
Hreppstjórinn
Aðalfundur
Aöalfundur Gigtarfélags íslands árið 1983, veröur
haldinn í Hreyfilshúsinu v/Grensásveg laugar-
daginn 5. mars n.k. kl. 14. Dagskrá: Venjuleg
aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Félagsfundur
löja félag verksmiöjufólks heldur almennan fé-
lagsfund í Domus Medica mánudaginn 28. febr.
n.k. kl. 17.
Dagskrá: Öryggi, aöbúnaöur og hollustuhættir á
vinnustööum. Hilmar Jónasson erindreki ASÍ
mætir á fundinn. Félagsmenn eru hvattir til að
mæta stundvíslega.
Stjórnin.
Listasafn Islands
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu glugga og útihurða úr áli í
nýbyggingu Listasafns íslands við Fríkirkjuveg í Reykjavik.
Stærsti gluggaflötur er að stærð 8,40x15,70 m2, en heildarflötur
glugga og hurða um 212 m2.
Verkinu skal að fullu lokiö 20. október 1983.
Útboðsgögn verða afhent í skrifstofu vorri gegn 1.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjud. 12. apríl 1983, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
t
Sambýlismaöur minn, bróðir og mágur
Jón $. Björgvin Eiríksson
Höfðatúnl,
Fáskrúðsfirði
lést 23. þ.m. í Landakotsspítala.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Valgerður Vagnsdóttir
Sigmundur Eiríksson Vilborg Ákadóttir
Stefán Eiríksson Lena Berg
SiggeirEiríksson
Sigurbjörn Eiríksson
Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu
Ástbjargar Oddleifsdóttur,
Haukholtum, Hrunamannahreppi.
Guð blessi ykkur öll.
Þorsteinn Loftsson,
OddleifurÞorsteinsson, Elin Kristmundsdóttir,
Loftur Þorsteinsson, Hanna Lára Bjarnadóttir
og barnabörn
Hradfrystihús Keflavíkur h.f.:
Kemst ekki í gang á
ný án fyrirgreiðslu
— á meðan sigla togararnir með aflann
KEFLAVIK: Hraðfrystihús Keflavík-
ur h.f. kemst ekki í gang aftur nema að
einhver fyrirgreiðsla fáist til þess frá
opinberum aðilum. að sögn Gunnars
Sveinssonar, kaupfélagsstjóra í Kefla-
vík. Vinnsla hefur legið niðri í húsinu
frá áramótum og tveir togarar fyrir-
tækisins hafa siglt með aflann.
En Gunnar var spurður hvort ein-
hver breyting á þessu ástandi væri í
vændum. Hann kvað Hraðfrystihús
Keflavikur hafa verið meðal þeirra
þriggja húsa er sóttu um aðstoð til
Framkvæmdastofnunar á sínum tíma.
Hin tvö hafi nú fengið úrlausn en
umsóknin úr Keflavík hafi ekki verið
afgreidd.
„Maður veit því ekki hvernig málin
standa í þessu í dag" sagði Gunnar.
Breytingartillaga Steingríms (með
bráðabirgðalögunum) hafi verið felld
sem kunnugt er, þannig að ekkert hafi
fengist frá Framkvæmdastofnun til til
að koma hlutunum í gang mcð. Gunn-
ar sagði Hraðfrystihúsið ekki hafa
fylgst með tímanum, þ.e. ekki verið
endurnýjað í takt við tímann. Þurfi
því að endurnýja vinnslurásina og
vélvæða húsið betur til þess að grund-
völlur geti verið fyrir að reka það.
- HEI
Keflavík:
Um 160
fengu
greiddar
bætur
síðasta
föstudag
KEFLAVÍK: „Það er mjög aumt á-
standið hérna - mjög aurnt," sagði
Sigurbjörn Björnsson á skrifstofu
Verkalýðsfélagsins í Keflavík er við
leituðum frétta af atvinnuleysinu í
Keflavík nú fyrripart vikunnar. Hann
kvað það hafa verið um 160 manns er
fengu greiddar út atvinnuleysisbætur
s.l. föstudag. En eitthvað hafi þetta þó
lækkað síðan þannig að líklega hafi um
130 manns verið á atvinnuleysisskrá í
þessari viku, eða eitthvað nálægt því.
Sigurbjörn hafði ekki fengið allra nýj-
ustu tölur þar að lútandi.
„Það hefur ekki liðið ein einasta
vika nú í hálft annað ár sent ekki hefur
verið eitthvað af fólki á atvinnuleysis-
skrá", sagði Sigurbjörn. í vetur kvað
hann hlutfallið milli karla og kvenna
hafa verið nokkuð svipað. En stærsti
hlutinn af þeim konum sem nú séu.á
atvinnuleysisskrá séu fyrrverandi
starfsmenn Hraðfrystihúss Keflavíkur.
Gifurlegar
rafmagnshækk-
anir milli
1981 og 1982:
„Hljóta
að valda
alvarlegri
byggða-
röskun”
— segir hrepps-
nefnd Tjörnes-
hrepps
TJÖRNES: "Þær gífurlcgu verðhækk-
anir á rafmagni sem orðið hafa á milli
áranna 1981 og 1982 hljóta fyrr eða
síðar að valda alvarlegri röskun á
byggð landsins ef ekki verður að gert"
segir m.a. í samþykkt hreppsnefndar
Tjörneshrepps frá 18. febrúar s.l. Á
fundi sínum samþykkti hreppsnefndin
að beina þeim tilmælum til stjórnvalda
að nú þegar verði undinn bráður bugur
að leiðréttingu þess misvægis sem gætir
í orkuverði til landsmanna til hitunar
húsnæðis og almennra nota.
„Hreppsnefndin ítrekar þessi tilmæli
sín og bendir á það misvægi sem ríkir
í þessum málum", scgir í lok sam-
þykktarinnar. _ ^jjrj
Þórdís og Sigríður í hlutverkum sínum.
U.M.F. Stafholtstungna:
„Hvad er í
blýhólknum”
að
Varmalandi
■ Hér lætur fók ekki deigan síga.
Það rífur sig upp í fárviðri og stórfióð-
um og æfir leikrit af kappi. Já, og
ekkert minna en hið þekkta verk
Svövu Jakobsdóttur, Hvað er í blý-
hóknum. 15 leikendur og 20 aðstoðar-
menn hyggjast færa þetta verk á syið
til frumsýningar laugardaginn 26.
febrúar kl. 21.00 í félagsheimilinu að
Varmalandi í Borgarfirði undir stjórn
hins ágæta leikstjóra, Sigurbjargar
Árnadóttur sem einnig hefur séð um
gerð leikmyndar. Það eru félagar úr
Leikdeild U.M.F. Stafholtstungna sem
færa þetta verk á svið. Aðalhlutverk
eru í höndum Inger Traustadóttur og
Birgis Haukssonar. í næstu viku eru
þrjár sýningar fyrirhugaðar, 1. 3. og 5.
mars kl. 21.00 öll kvöldin. Þetta er
fjórða verkefni leikdeildarinnar á 7
árum fyrir utan smærri verk. Leik-
deildin var stofnuð 3. febrúar 1977.
Og mitt í þessu bregður fólk á leik •
og heldur þorrablót með heimafengnu
efni og kemur fólk um langan veg til
sinnar heimabyggðar til að gleðjast
með okkur. Þetta gerir fólk ekki nema
með heilbrigða sál í hraustum líkama,
því heldur hefur okkur þótt vera
stórviðrasamt hér í vetur og eru bænd-
ur uggandi um sinn hag ef ekki vorar
sæmilega á klakabunka á túni og engi
þar sem sópast hafa burt girðingar á
stórum svæðum og aur og grjót orðið
eftir á ræktuðum löndum.
En þrátt fyrir allt horfir fólk fram á
veginn með bjartsýni um betri tíð,
þjóðlíf og batnandi - þing. Já, pólitíkin
er farin að læðast hjá garði og þing-
menn koma til okkar af varfærni eins
og þeir séu að reyna við styggan hest,
með beislið fyrir aftan bak og brauðið
í hendinni eins og segir í sögu Péturs
Gunnarssonar.
Vinnubrögð Alþingis eru vægast
sagt mjög gagnrýnd hér um slóðir og
eru þar allir sammála, alvöruleysi og
málþóf. Þras um menn en ekki mál-
efni. Tími til kominn að linni.
- Leopold