Tíminn - 25.02.1983, Blaðsíða 11
11
Umsjón: Samúel örn Erlingsson
Sigfús Ægir og
Víðir sigruðu
■ Sigfús Ægir TBR og Víðir Rraga-
son í A sigruðu í tvíliðaleik á tvíliða og •
tvfnndarinóti KR um síðustu helgi. Þá
sigruðu Guðmundur Adolfsson og
Þórdís Edwald TBR í tvqnndarleik.
Þessi úrslit þóttu nokkuð óvsent, þar
eð Sigfús Ægir og Víðir sigruðu
Brodda Kristjánsson og Guðmund
Adolfsson, íslandsmeistarana í grein-
inni, í úrslitaleik, 15-11,8-15 og 15-11,
og Guðmundur og Þórdís sigruðu Is-
landsmeistarana Brodda Kristjánsson
og Kristínu Magnúsdóttur 3-15, 15-0
og 18-15.
í tvíliðaleik kvenna sigruðu Kristín
Magnúsdóttir og Kristín Berglind,
Hönnu Láru Pálsdóttur og Lovísu
Sigurðardóttur 18-15 og 15-2.
Salnikov með heimsmet
■ Vladimir Salnikov frá Sovétríkj un-
um setti á laugardag í síðustu viku
heimsmet í 400 metra skriðsundi á
sundmóti í Moskvu. Tími Salnikovs
var 3 mínútur, 48,82 sekúndur, og var
þetta 1,25 sekúndum betri tími en áður
gildandi heimsmet, sem Salnikov átti
sjálfur og setti í fyrra.
Þór áfram
■ Þór frá Vestmannaeyjum tryggði
sér t fyrradag sæti í 8 liða úrslitum í
bikarkeppninni í handknattleik, er lið-
ið sigraði Hauka í Eyjum 19-18. Þórs-
arar voru yfir 13-8 í hálfleik, en
Haukar náðu að jafna. Þórsarar
skoruðu sigurmarkið einni mínútu fyr-
ir leikslok, en Haukar náðu ekki að
jafna. Gylfi Birgisson skoraði mest
Þórsara, 6 mörk, en Hörður Sigmars-
son skoraði mest Hauka 7 mörk.
Á
Braut blað
■ Tékkneska stúlkan Kveta Jeriova
braut blað í sögu skíðagöngu kvenna á
dögunum, þegar hún sigraði tvöfalt í
göngukeppni í heimsbikarkeppninni á
Kavgololeikunum í Leningrad í Sovét-
ríkjunum. Jeriova sigraði bxði í 20 km
og 5 km göngu, og er fyrsta stúlkan
sem það gerir á þessum leikum, sem
ekki er sovésk. Jeriova sigraði í 20 km
göngu á einni klst 2,28 mínútum.
Næstar henni voru tvær norskar
stúlkur, Britt Petersen og Anne Jaren.
í 5 kílómetra göngunni tók Jeriova
strax forystuna, og sigraði 24 sekúnd-
um á undan Pettcrson, sem varð í öðru
sæti. Staðan í heimsbikarkeppninni í
skíðagöngu kvenna er nú þessi:
Stig
Britt Petersen, Noregi 105
Blanka Paulu, Tékkóslóvakíu 99
Anne Jaren, Norcgi 88
Kveta Jeriova, Tékkóslóvakíu 75
Marja-Lísa Hatvatlainen, Finnl. 64
Marit Myrmael, Noregi 45
Lyubov Lyadova, Sovétríkjunum 43
Nina Skeime, Noregi 42
Annet Bo, Noregi 34
Ganga karla
Staðan í göngu karla er þessi: stig
Bill Koch, Bandar. 82
Yuri Burlakov, Sovétr. 56
Paal Gunnar Mikkelsplass, Nor. 49
Jan Lindvall, Noregi 39
Tomas Vassberg, Svíþjóð 38
Alexander Zavialov, sovétr. 38
Nikolay Zamiatov, Sovétr. 36
Thor Haakon Holte, Noregi 36
Alexander Batyuk, Sovétr. 35
Vladimir Nikitin, Sovétr. 30
Mikhail Devyatiarov, Sovétr. 30
Skíðastökk
Finninn Matti Nykaanen er enn
efstur í heimsbikarkeppninni í stökki,
átti góða kcppnishelgi í Osló um
síðustu helgi. Staðan cr þessi í stökk-
inu:
Stig
Matti Nykaanen, Finnl. 207
Horst Bulau, Kanada 177
Olav Hansson, Noregi 135
Armin Kogler, Austurr. 122
Per Bergerud, Noregi 102
VID LEIKUM GEGN SPANVERJUM í DAG
Páll Ólafsson skorar hér gegn Frökkum í haust. Páll og félagar hans í landsliðinu
einn krapnur dans.
s í/Ngþfcwaa'"*?-
stiginn krappur dans.
Hilmar Björnsson þjálfari:
___________________
munu leika gegn Spánverjum í dag, og er víst að þar verður
NU ER BARA BEÐIÐ
77
Liðin
77
S „Það er allt rólegt hér, nú er bara
verið að bíða eftir morgundeginum,“
sagði Hilmar Björnsson landsliðsþjálf-
ari í stuttu spjalli í gærkvöld. „Æfingar
hafa gengið ágætlega, við höfum æft
hcr, og erum komnir inn á gott
hótel.“
Landsliðið æfði að sögn Hilmars
tvisvar í fyrradag, og einu sinni í
gærmorgun. Síðan var frí seinnipartimy
í gær, og hvíldi liðið sig þá fyrir átökin.
Eins og áður hefur komið fram var
Hilmar í Danmörku á dögunum og
fylgdist þar með spánska liðinu í
leikjum gegn Dönum.
y
Hilmar Björnsson
- Hilmar hver er aðall þessa spánska
liðs?
„Þetta er geysilega jafnt lið með
góða vörn. Spánverjar hafa einnig yfir
að ráða góðum skyttum, og horna-
mönnum. Markvarsla er góð, og liðið
er í samræmi við þá röðun að vera efsta
liðið í riðlinum.“
- Engir veikir punktar?
„Það verður að koma í ljós á
morgun“
i- Þið eruð komnir inn á hótel í Brcda,
var ykkur boðin léleg aðstaða þcgar
jþið komuð?
: Við áttum að fara inn í sumarhús,
sem eru ákaflega mikið út úr hér, en
þetta er í góðu lagi nú, við eum komnir
inn á gott hótel.“
Hilmar sagði að andinn í liðinu væri
góður, og liðið myndi fara árdegis í
dag og skoða höllina, sem leikið yrði í.
Veður í Hollandi er þokkalegt á okkar
mælikvarða og hitinn um 0 gráður á
Celsíus að kvöldlagi.
Hilmar sagðist ekki mundu gefa út
liðsskipanina í leiknum gegn Spánverj-
um fyrr en í dag.
■ Landsliðshópurinn okkar er skipaður
mönnum:
Markverðir
Brynjar Kvarnn, Sljörmmni
Einar Þorvarðarson, Val
Kristján Sigmundsson, Víkingi
Aðrir leikmenn:
Alfreð Gíslason, KR
Bjarni Guðmundsson, Nettclstedt
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Hans Guðmundsson, FH
Jóhannes Stefánsson, KR
Kristjún Aruson, FH
Ólufur Jónsson, Vikingi
Páll Ólafsson, Þrótti
Sigurður Sveinsson, Nettelstedt
Steindór Gunnarsson, Val
Þorbergur Aðalsteinsson, Vikingi
Þorbjöm Jensson, Val
Þorgils Óttar Mathiesen FH
Þjálfari: Hihnur Bjömsson
Liðsstjórí: Gunnsteinn Skúlason.
þessum leik-
30 landsl.
29 landsl.
85 landsl.
49 landsl.
124 landsl.
32 landsl.
13 landsl.
11 landsl.
42 landsl.
78 landsl.
43 landsl.
49 landsl.
106 landsl.
85 landsl.
67 landsl.
31 landsl.
s
MAGNUS FER TIL
H0LLANDS í DAG
■ Tíminn verður að sjálfsögðu með fréttaritara í
Hollandi vegan B-keppninnar, Magnús Ólafsson fréttarit-
ari Tímans í Vestur-Þýskalandi, mun fara til Hollands í
dag, og mun fylgjast með leikjum íslenska liðsins.
Lesendur Tímans vcrða ekki sviknir af því að hafa
Magnús á staðnum pistlar hans frá viestur-þýsku knatt-
spyrnunni eru þeim að góðu kunnir.
■ Magnús
■ Ekki tókst í gær að ná í nema nafnalista yfir spánska
liðið, allar upplýsingar vantar, aðallega þó um landsleikja-
fjölda. En hér eru nöfn Spánverjanna og númer.
Markverðir:
1. Cobo
12. Rico
Aðrir leikmenn:
2. Cabanas
3. Melo
4. Calahui/.
5. De La Puente
6. Alonso
7. Reino
8. Uria
9. Milian
10. Ruiz
11. Serrano (meiddur)
13. Lopez
14. Roman
15. Ruig
Þjálfari liðsins er Emilio Alonso. Serrano nr. 11 er
meiddur og leikur líklegast ekkert í B-kcppninni.
og íslendingar sjá landsleikinn beint á skjánum
■ í dag leika íslendingar gegn Spán-
verjum í B-heimsmeistarakeppninni
í Hollandi. Leiknum verður sjónvarp-
að beint til Islands og mun þvi líklega
verða fátt um manninn frá því um 6
leytið í dag, og þar til leik verður lokið.
Leikurinn við Hollendinga verður í
bænum Breda í Hollandi, og síðan eru
fram undan leikir við Svisslendinga á
sunnudag, og Belgíumenn á mánudag.
En lítum nánar á riðlaskiptinguna í
keppninni:
A-riðill:
Ungverjaland,
Svíþjóð,
ísrael,
Búlgaría.
B-riðUI:
V-Þýskaland,
Tékkóslóvakía,
Holland,
Frakkland.
C-riðill:
Spánn,
Sviss,
ísland,
Belgía.
Tvö efstu lið í hverjum riðli komast
áfram í keppni um sex efstu sætin. Þar
leika allir við alla, að undanskiidu því
að leikir liða sem voru saman í riðli
gilda. Þannig leikur hvert lið fjóra leiki
í úrslitariðlinum.
Tvö neðstu lið úr hverjum riðlanna
þriggja lenda saman í keppni um 7-12
sæti. Liðin sem lenda í 11 og 12 sæti
falla niður í C flokk.
Þessi eru líklegust
Líklegustu lið til að komast áfram í
keppninni eru, svo vísað sé til styrk-
leikaröðunar sem notuð var til niður-
röðunar í keppninni, Ungverjaland,
Svíþjóð, Vestur-Þýskaland, Tékkó-
slóvakía, Spánn og Sviss. Ekki er þó
landinn ánægður með þessa niður-
röðun, og er stefnan hjá okkar
mönnum að verða í öðru sæti í C-riðli,
það er að vinna Sviss. Ekki er gott um
að segja hvernig hlutirnir ganga, til
þess er sveiflan of bundin við íslenska
liðið. En á góðum degi má telja sigur
gegn Sviss ekki óraunhæfan, svo vísað
sé til árangurs íslendinga gegn Dönum
á dögunum, og reyndar einnig í leikj-
unum gegn Norðmönnum. Þjálfarar
beggja, Norðmanna og Dana létu hafa
eftir sér að íslendingar væru með
skemmtilegra lið, og Leif Mikkelsen
spáir íslendingum velgengni í B keppn-
inni.
En lítum á hvaða leiki Islendingar
fengu og hvenær eftir því hvar þeir
lenda í riðlinum. Ef svo ólíklega vildi
til að íslendingar sigruðu í riðlinum
mundu þeir leika gegn líklega Svíum,
2. mars, Ungverjum 3. mars, V-Þjóð-
verjum 5. mars, og Tékkum 6. mars.
Ef við lendum í 2. sæti í riðlinum,
leikum við gegn Vestur-Þjóðverjum 2.
mars, Tékkum 3. mars, Ungverjum 5.
mars og Svíum 6. mars.
Ef við lendum í 3. sæti í riðlinum eru
við komnir í keppnina um 7.-12.sæti.
Þá mundum við leika fyrst gegn líklega
ísrael 2. mars, Búlgörum 3. mars,
Frökkum 5. mars og Hollendingum 6.
mars.
Ef við lendum í fjórða sæti í riðlinum
leikum við gegn Frökkum 2. mars,
Hollendingum 3. mars, Búlgörum 5.
og ísrael 6. mars.
Þetta miðast við að Búlgarir verð.i í
þriðja sæti í A-riðli, og Frakkar í 3.
sæti í B-riðli. En allt getur gerst í
handbolta, og við bíðum bara og
sjáum og hvetjum landann fyrir framan
sjónvarpið í kvöld.
Portúgal sigradi V-Þýskaland í landsleik í
knattspyrnu:
BESTI ARANGUR GEGN
V-ÞJÓDVERJUM SfÐAN 1938
■ Portúgalir náðu besta árangri í
knattspyrnu gegn Vestur-Þjóðverjum
frá því árið 1938 í fyrrakvöld, er þeir
sigruðu þá í landsleik í Þýskalandi.
Nýtt léttleikandi portúgalskt lið áttí
sigurinn skilinn, lið sem leikur undir
stjórn brasilísks þjálfara og leikur
léttan „brasilíufótbolta“. Jupp Der-
well hafði valið margt nýrra leikmanna
fyrir lcikinn, og útskýrði hann tapið
sem „misheppnaða tilraunastarfsemi.“
Fyrri hálfleikur leiksins var leiðin-
legur, og reyndar sá seinni líka. Þulur-
inn í vestur-þýska sjónvarpinu lýsti
leiknum sem „leiðinlegasta leik sem
hann hefði séð“. Þjóðverjar áttu eitt
færi, sem Rummenigge lagði upp, en
unntt ekki úr því. Portúgalir skoruðu
síðan fallegt mark í síðari hálfleik,
léku skemmtilega í gegn um þýsku
vörnina og endaði það með þrumu-
skoti Ditos á 150 km. hraða af eins
metra færi, sem Tony Schumacher átti
ekki möguleika á að verja.
Leiknum var lýst sem hneyksli og
meiriháttar smán í þýsku blöðunum í
gær, og áttu þýskir ekki til orð til að
lýsa ósköpunum.
- MÖ/SÖE
HAUKAR K0MNIR í
ÚRVALSDEILDINA!
Sigruðu ÍS 68-66 í gær
■ Haukar úr Hafnariirði tryggðu sér í
gærkvöld sæti í úrvalsdcildinni í körfu-
knattleik, er þeir sigruðu ÍS 68 - 66 ■
íþróttahúsi Kennaraháskólans. Hauk-
arnir sem hafa leikið vel í vetur, og eru
eitt efnilegasta lið sem lengi hefur komið
fram, eiga sætið í úrvalsdeildinni svo
sannarlega skilið. En ekki var sigurinn
fyrirhafnarlaus í gærkvöld, né öruggur.
Leikurinn var í járnum allan tímann, og
liðin skiptust á um að leiða, þegar ekki
var jafnt. Lokasekúndurnar voru æsi-
spennandi, Haukar höfðu 5 stiga
forskot, þegar 2 mínútur voru eftir, en
þá fór þeirra sterki miðherji DeCarsta
Webster útaf með 5 villur. Útlit var fyrir
að keppnisreynt lið Stúdenta mundi
knýja fram sigur, og þeir náðu að jafna
66-66.
Þegar fáeinar sekúndur voru til leiks-
loka reyndi Hálfdán Markússon besti
maður liðsins í gærkvöld að brjótast í
gegn, en brotið var á honum, og hann
fékk dæmd tvö vítaskot. Hálfdán lét
ekki slá sig út af laginu, hélt því áfram
sem hann hafði einsett sér að gera,
skoraði úr báðum, og aðeins 2 sekúndur
eftir. Sigurinn var í höfn.
„Eg er alveg ofboðslega montinn af
strákunum,“ sagði Einar Bollason þjálf-
ari Hauka eftir leikinn. „Stúdentar eru
með keppnisreynt lið, og það vegur
þungt á svona stundum eins og voru
þarna síðast. En strákarnir stóðu sig
ótrúlcga vel.“
Hálfdán var bestur Ilaukanna í
gærkvöld, og Ólafur Rafnsson og
Webster líka mjög góðir. Pálmar var í
stífri gæslu allan leikinn, og gat lítið beitt
sér. Hálfdán skoraði mest, 21 stig,
Ólafur skoraði 17 og þeir Pálmar og
Webster 10 hvor. Guðmundur Jóhanns-
son sem vel er þekktur sem miðvörður í
knattspyrnuliði ísfirðinga var bestur
Stúdenta, skoraði 20 stig. Þá var Pat
Bock sterkur, skoraði 28 stig.
Staðan í fvrstu deildinni í körfubolta
er nú þessi:
Haukar 14 12 2 1284-1016 24
ÍS 14 10 4 1226-1003 20
Þór A. 11 7 4 912-860 14
UMFG 13 2 11 966-1181 4
UMFS 10 0 10 695-1022 0
■ DeCarsta Webster og félagar
í Haukum eru komnir í úrvals-
deild, eiga aðeins tvo leiki eftir,
annan við Borgarnes, og hinn
við Þór, báða heima, og hafa
fjögurra stiga forskot.
■ Leif Mikkelsen
■ Leif Mikkelsen landsliðsþjálfari
Dana í handknattleik spáir íslending-
um 2. sætinu í C-riðli í B-keppninni í
Hollandi. Þetta kom fram í vestur-
þýsku íþróttablaði fyrir skömmu, en
MIKKELSEN SPAlR
OKKUR 2. SÆTI
í C riðlinum í Hollandi
þar var fjallað um hvaða lið væru
líklegust til þess að komast í 6 liða
úrslit í keppninni.
í blaðinu var Svisslendingum spáð 2.
sæti í riðlinum, en jafnframt var vitnað
í Leif Mikkelsen, sem sagði að íslend-
ingar yrðu örugglega í öðru sætinu, og
Svisslendingar mundu keppa um 7-12
sætið.
Ekki verður því neitað, að Mikkel-
sen veit nokkuð um hvað hann er að
tala, hann hefur nú á undanförnum
vikum kynnst íslenska liðinu vel, kom
með danska landsliðinu hingað til
lands rétt fyrir áramótin, þar sem
íslendingar sigruðu í öðrum leiknum
af tveimur og í janúar er íslendingar
léku við Dani í Danmörku og liðin
unnu sitt hvorn leikinn... En allt getur
gerst í handknattleik... - MÖ/SÖE
ÞJÚDVERJARÆTIASÉR SIGUR
■ Vestur-Þjóðverjar ætla sér ekkert
annað en sigur í B-keppninni í Hol-
landi sem hefst í dag. Þjóðverjar, sem
urðu heimsmeistarar árið 1978, hafa
síðan þá verið á niðurleið í handknatt-
leik. Á gullárunum þegar þeir urðu
heimsmeistarar, töpuðu þeir ekki 30
leikjum í röð og voru þá undir stjórn'
þjálfarans Vlados Stenzel. Síðan hall-
aði undan færi, og liðið tapaði slatta af
leikjum. Stenzel var að lokum látinn
fara, og átti það að hreinsa andrúms-
loftið og færa liðinu nýja sigra.
Simon Schobel, sem fékk það hlut-
verk að þjálfa liðið hefur ekki gert
neinar rósir enn. Liðið féll niður í
B-flokk og enginn heimsmeistarabrag-
ur hefur verið sjáanlegur. Nú síðast í
janúar komu Sovétmenn í heimsókn
og sigruðu Þjóðverja í öllum sínum
leikjum, sem voru þrír.
í febrúar komu Pólverjar í heimsókn
og sigruðu einnig í öllum þremur
leikjunum, og þar var ekki um að ræða
að gefa neitt eftir eins og Pólverjar
urðu að gera bæði gegn Dönum og
Svíum, hvar þeir sigruðu í fyrri
leiknum, en töpuðu í þeim síðari.
Þrátt fyrir þetta, eru öll íþróttablöð
í Þýskalandi á því að Þjóðverjar sigri í
B-keppninni og því fylgir sú spá, að
Ungverjar verði í öðru sæti, og Svíar
og Spánverjar bítist um þriðja sætið.
Mörg þýsk íþróttablöð spá Sviss-
lendingum öðru sætinu í C-riðli. En
íslendingar eru einnig teknir með í
reikninginn og sums staðar er því
slegið fram, að líklega leiki Vestur-
Þjóðverjar fyrsta leikinn í úrslita-
keppninni gegn íslendingum.
- MÓ/SÖE
HJAOKKUR NAGÆDMIGEGN
Við hjá Ramma h.f. í Njarðvík notum eingöngu úrvals við frá Norður-Kirjalalandi
(Karelia) í Finnlandi. Á svo norðlægum slóðum vaxa trén hægt. Árhringir trjánna liggja því
þétt — viðurinn verður betri en annars hefði orðið raunin. í sögunarmillu Nurmeksen Saha
er viðurinn flokkaður eftir gæðum og útliti. Við kaupum af þeim eingöngu I. flokk.
Og við notum ekkert annað timbur. Kröfur okkar eru því mun meiri en þær sem gerðar
eru samkvæmt íslenskum staðli IST 41. Þar ná ákvæðin aðeins til þeirra flata sem eru
sýnilegir. Hjá okkur ná gæðin í gegn.
'NURMES*
NUR*MES
NURMES
I. FLOKKUR
2. FLOKKUR
3. FLOKKUR
Hll u «i
luiðaverksmiðja
—rfiii ifBL iiTiniriirnwtiTiipnrn
NJARÐVÍK Sími 92-1601 Pósthólf14 Söluumboð í Reykjavík: IÐNVERK H.F. Nóatúni 17, sími 25930 og 25945
BBI