Tíminn - 25.02.1983, Síða 3

Tíminn - 25.02.1983, Síða 3
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983. 3 fréttir 9. fulltrúaráðsfundur Landssamtaka Klúbbanna Öruggur Akstur: „LAGDIR VERDI150 KM. AF BUNDNU SUT- LAGI Á HVERJU ÁRI” — sagði Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra m.a. í ávarpi ■ Níundi fulltrúaráðsfundur lands- samtaka klúbbanna Öruggur akstur stendur nú yfir í Samvinnutryggingahús- inu, en honum lýkur í kvöld. Baldvin Ottóson formaður LKL ÖA setti fund- inn eftir hádegi í gær og eftir kosningar fundarstjóra (Stefán Jasonarson) og rit- ara (Guðmundur Höskuldsson) lýsti Baldvin yfir kjöri fyrsta heiðursfélaga LKL ÖA en það er Baldvin Þ. Kristjáns- son. Baldvin Þ. Kristjánsson sagði að þetta hefði komið honum á óvart en honum þætti vænt um þennan virðingarvott og þakkaði hann hjartanlega fyrir. Að þessu loknu ávarpaði Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra fundinn. Hann sagði að fyrst og fremst þyrfti að vinna að því að koma í veg fyrir slys og þá með almennri vakningu og skilningi á því að maður er með hættu- legt tæki í höndunum, þar sem bíll er, ef ekki er fylgt fyllstu aðgætni. Mál hans var síðan að meginhluta til um vegamál landsins. „Það er ætlun okkar að ekki verði lagðir undir 150 km. af bundnu slitlagi á hverju ári í framtíðinni" sagði Stein- grímur m.a. í ávarpi sinu. Hann sagði ennfremur að stórátak hefði verið gert er langtímaáætlun í vegagerð var samþykkt af Alþingi 1981 en hún nær til 12 ára tímabils 10 tonna burðarþunga, að vegum verð lyft upp þar sem snjóþyngsli eru, að bundið slitlag verði lagt á vegi þar sem umferð er 100 bílar á dag eða meiri og að umferðaröryggis sé allstaðar gætt. Hann sagði það mikilvægt að framlög ríkisins til vegagerðar væru nú ákveðin í ár 2,2% af þjóðartekjum og yrðu komin upp í 2,4% árið 1985 en þau voru 2,1% í fyrra og næstu 10 ár á undan 1,8% þarna væri því um verulega aukn- ingu að ræða. Bundið slitlag á stofnbrautum landsins (aðalvegæðum) næmi nú 650 km. og hefðu 60% þess verið lagt á síðustu 3 ■ Óskar Ólafsson,yfirlögregluþjónn, flytur erindi sitt á fundinuni í gær. (Tíniamynd:Jón Þór) árum. Samkvæmt langtímaáætluninni eiga þetta að vera orðnir 1140 km. árið 1986, 1750 km. árið 1990 og 2520 km. árið 1994. Heildartjón af umferðinni 440 millj. kr. Á eftir samgönguráðherra flutti Davíð Á. Gunnarsson framkvæmdastjóri er- indi undir heitinu „Hvað kosta umferð- arslysin?“ en hann hefur á undanförnum árum tekið slíkt saman. Hann sagði í máli sínu að tollur umferðarslysa í heiminum væri hár, þannig létust í þeim árlega 250 þúsund manns, 2,5 milljónir slösuðust alvarlega og í dag væru í heiminum um 30 milljónir manna sem væru fatlaðir vegna þeirra. En hvað kostuðu umferðarslysin okk- ur íslendinga á síðasta ári. Samkvæmt útreikningum Davíðs voru það hvorki meira né minna en 440 millj. kr. Útreikn- ingarnir hér að baki eru nokkuð flóknir en tekið er saman, tekjutap vegna dauðaslysa, tekjutap vegna annarra slysa með meiðslum, kostnaður vegna vistar á sjúkrahúsum og munatjón og þá fæst ofangreind tala. Þá kom einnig fram í máli hans að umferðarslys eru sjöunda algengasta dánarorsökin hérlendis og yrðu börn og unglingar einkum hart úti í því sambandi- nægir sem dæmi að nefna að 14,3% dánarorsaka drengja á aldrinum 1-14 ára voru umferðarslys. Á eftir Davíð fluttu síðan erindi þeir Óskar Ólafsson yfirlögregluþjónn og Ómar Ragnarsson fréttamaður. -FRI „AÐFÖR AÐ ATVINNU- REKSTRI FÉLAGSMANNA” segir stjórn Landvara, landsfélags vörubifreiðaeigenda á flutningaleiðum um „krónufrumvarpid” ■ „Stjórnin mótmælir harðlega fyrir- huguðum skatti og bendir á hve gífurlegt gjald hér er um að ræða,“ segir í ályktun sem stjórn Landvara, landsfélags vöru- bifreiðaeigenda á flutningaleiðum, gerði í tilefni af frumvarpi um breytingar á lögum um Ijáröflun tii vegagerðar, sem nú liggur fyrir Alþingi, og fclur í sér að Kvikmynda- hátið í Regnboganum: „Verk Emile Zola á hvíta tjaldinu” ■ Um helgina mun hefjast í Regnbog- anum kvikmyndahátíð, tengd sýningu á verkum Emile Zola á Kjarvalsstöðum og verður hátíðin þessa helgi og þá næstu. Fjölmargar af skáldsögum Emile Zola, hafa orðið yrkisefni stórmynda. Þann 26ta og 27da febrúar, svo og 5ta og 6ta mars verða sýndar í Regnboganum (sal C) fimm sígildar stórmyndir sem gerðar eru eftir skáldsögum Zola af fimm mönnum úr hópi bestu kvik- myndagerðarmanna Frakka. Dagskrá fyrri helgarinnar er eftirfar- andi: - LA BETE HUMAINE eftir Jean Renoir (1938) með Jean Gabin og Sim- one Simon verður sýnd kl. 23 á laugar- daginn og kl. 21 á sunnudaginn. - THERESE RAQUIN eftir Marcel Carné (1953) með Simone Signoret og Raf Vallone verður sýnd kl. 19 á laugardaginn og kl. 21 á sunnudaginn. lögð verði ein króna á hvert kíló sem nýjar hifreiðir vega. „Bifreiðir félagsmanna eru að meðal- tali um 11 tonn“, segir í ályktuninni, „og nemur skatturinn því 11.000 krónum á hverja bifreið. Bifreiðarnar eru þegar ofskattaðar og í því sambandi má nefna þungaskatt samkvæmt ökumæli sem er núna 2,97 krónur á hvern ekinn kíló- metra fyrir algengustu flutningabíla. Skattur þessi hefur frá desember 1978 hækkað úr gömlum krónum 15,60 eða um 1.804 prósent á sama tíma og vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkáð úr 240 stigum í 1482 stig eða um 518 prósent." Stjórn Landvara bendir einnig á að slíkir skattar og gjöld á vöruflytjendur auki mjög flutningskostnað og hækki vöruverð í dreifbýli. „Frumvarpið er hrein aðför að atvinnurekstri félags- manna og er því skorað á alþingismenn að samþykkja það ckki,“ segir í ályktun- inni. -Sjó Hvað kostar frumvarp Hjörleifs? ■ Fyrirspurn hefur verið lögð frant á Alþingi til iðnaðarráöherru um kostnað við útgáfu á frumvarpi til laga uni leiðréttingu orkuverðs til Islenska álfélagsins. Það er Árni Gunnarsson sent leggurfyrirspurnina ftarn. Sjálft frumvarpið scm hér um ræðir er stutt og luggott en með því fylgir greinargerð og fylgiskjöl og cr þetta allt bundið í mikla bók sem telur 360 blaðsíður. Þingmenn hafa ekki séð annað eins plagg í frumvarpsformi. Er ritverkið meira að segja miklum mun meira að vöxtum en fjárlaga- frumvarp sent þó er mikið þingskjal. O.Ó. Mulli- gan kemur ekki ■ Eins og fram hefur komið i fréttum hefur Jassvakning gert ráð- stafanir til að fá hingað til lands bandaríska jasssnillinginn Gerry Mulligan til tónleikahalds. Fyrir nokkrum dögum var skýrt frá því að Mulligan væri væntanlcgur í mars en nú er Ijóst að ekki getur orðið af því að því er Vernharður Linnet for- maður Jassvakningar tjáði Tímanum í gær. Mulligan hefði gert samkontulag við umboðsmann í Evrópu um hljómleikaferðalag urn álfuna og átti ísland að verða einn viðkomustaður- inn en af einhverjum ástæðum hcfur Mulligan hætt við fcrðalagið. Hins vegar hefur hann fallist á að koma til íslands í næstu Evrópufcrð. Ekki cr vitað hvenær hún verður en vera má að það verði á hausti komanda. JGK Ályktun Verkamannasambands íslands: Mótmæla Ihlutun stjórnvalda í kjarasamningana ■ Simone Signoret í Therese Raquin - GERVAISE eftir Rqné Clément (1955) með Maria Schell og Francois Périer verður sýnd kl. 21 á laugardaginn og kl. 15 á sunnudaginn. - POT BOUILLE eftir Julien Duvivi- er (1957) með Gérard Philippe og Dani- ele Darrieux verður sýnd á laugardaginn kl. 17 og á sunnudaginn kl. 19. - GERMINAL eftir Yves Allégret (1962) með Jean Sorel og Claude Brass- eur verður sýnd kl. 15á laugardaginn og kl*. 23 á sunnudaginn. Allar myndirnar eru sýndar með ensk- um skýringatextum. ■ „Þrátt fyrir verulega erfiðleika í efnahagslífi þjóðarinnar, vegna minnk- andi afla og sölutregðu á sjávarafurðum nú um skeið, mótmælir sambandsstjórn Verkamannasambandsins harðlega nýrri íhlutun stjórnvalda í gerða kjarasamn- inga“, segir í upphafi ályktunar fundar samhandsstjórnarinnar. Jafnframt telur sambandsstjórnin að sú mikla verðbólga sem nú geysar í þjóðfélaginu ógni atvinnuöryggi allrar alþýðu í landinu. Það séu því augljósir hagsmunir alls verkafólks að þjóðinni takist að færa verðbólguna niður, með sameiginlegu átaki. ítrekaðar voru fyrri yfirlýsingar verka- lýðshreyfingarinnar um að hún telji sig reiðubúna til samninga um nýjan vísi- tölugrundvöll og allar þær breytingar á verðbótakerfinu, sem líklegar séu til að gera hvorutveggja í senn, að tryggja kaupmátt launa og draga úr verðbólgu. Þá mótmælti sambandsstjórnin harð- lega framkvæmd á greiðslu svonefndra láglaunabóta. Þá er í ályktuninni krafist að stjórn- völd dragi úr óþörfum innflutningi og að innflutningsóreiðan verði í heild sinni tekin til gagngerðrar endurskoðunar. Hinn geigvænlegi viðskiptahalli við út- lönd stafi ekki einvörðungu af minnk- andi framleiðslu og aukinni birgða- söfnun, heldur ekki síður af óheftum stjórnlausum innflutningi. Að lokum krefst sambandsstjórnin þess af stjórnvöldum að þau sinni þeirri frumskyldu sinni að tryggja fulla atvinnu í landinu án þess að lífsafkoma þeirra sem búa við kröppust kjörin verið skert. Lýsir Verkamannasambandið sig m.a. reiðubúið til samningaviðræðna um nýjar leiðir á greiðslu verðbóta cr tryggði fullan kaupmátt lægri launa og minnir í því sambandi á margumrædda krónutölu við verðbótagreiðslurnar. - HEI ■ Guðmundur J. Guðmundsson í ræðustól á fundi sambandsstjórnar Verkamannasambandsins. (Tímamynd Árni)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.