Tíminn - 25.02.1983, Side 5

Tíminn - 25.02.1983, Side 5
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983. 5 fréttir Kosninga- lagafrum- varp lagt f ram á Al- þingi í dag: MEGIHÞÆTTIR NYRRfl KOSNINGALAGA SKYRÐIR þ.á.m. helstu breytingar í kjördæmamálinu ■ í dag verður lagt fram á Alþingi frumvarp tii laga um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis, og þar á meðal er að sjálfsögðu tillögur í kjör- dxmamálinu, sem hvað mest hefur verið þingað um undanfarnar vikur og mán- uði. Tíminn hefur aflað sér upplýsinga um innihald frumvarpsins, og verður hér á síðunni reynt að gera grein fyrir því helsta sem fram kemur í þessu frumvarpi og viðamikilli greinagerð sem því fylgir. Fyrst er til að nefna þá grein sem verður 5. grein laganna, ef frumvarpið nær fram að ganga. Hún orðist svo, samkvæmt frumvarpinu: „Þingsæti eru 63 og skiptast milli kjördæma á þennan hátt: a) 40 þingsæti skiptast þannig milli kjör- dæma að 5 koma í hlut hvers. b) 22 þingsætum skal ráðstafa fyrir hverjar kosningar með því að skipta þeim á milli kjördæma. Við þá skiptingu er lögð til grundvallar tala kjósenda á kjörskrá í hverju kjör- dæmi í næstu alþingiskosningum á undan. Um skiptingu þingsætanna gilda þessar reglur: 1. í hverju kjördæmi skal deila tölu kjósenda á kjörskrá í næstu alþing- iskosningum á undan með tölunum 11,15,19,23o.s.frv., einsoft og þörf krefur. Útkomutölur eru skráðar fyr- ir hvert kjördæmi. 2. Ráðstafa skal einu þingsæti í senn. Fyrsta sætið hlýtur það kjör- dæmi sem hæsta útkomutölu hefur. Sú tala er síðan felld niður. Annað þingsætið kemur í hlut þess kjördæm- is sem nú hefur hæsta utkomutölu o.s.frv., uns öllum sætunum hefur veri ráðstafað. 3. Nú eru tvær eða fleiri útkomu- tölur jafnháar, þegar að þeim kemur samkvæmt 2. tölulið, og skal þá hluta um röð þeirra. c) Einu þingsæti er ráðstafað til kjör- dæmis samkvæmt ákvæðum 114. gr. 5. töluliðar, (innskot blm. en það er 63. þingsætið, sem hefur verið nefnt „Flakkarinn,‘ í allri undirbúnings- vinnu að frumvarpinu.) Að loknum kosningum til Alþingis auglýsir dómsmálaráðuneytið hvernig þingsæti samkvæmt a- og b-lið þessarar greinar skiptast milli kjördæma í næstu kosningum. Með þingsætatölu kjördæm- is er átt við samtölu þingsæta í kjördæm- inu samkvæmt a- og b-lið.“ Úthlutad samkvæmt meðaltalsaðferð í greinagerð með frumvarpinu segir að markmiðið sé að tryggja sem fyllst samræmi milli þingfylgis og atkvæða- styrks þingflokka, bæði hvað varðar heild arskiptingu atkvæða og innan hvers kjördæmis. Kjósendur eiga að geta haft meiri áhrif á röð frambjóðenda, sam- kvæmt frumvarpinu og auk þess er lagt til að kosningaaldur lækki úr 20 árum í ÍK í greinagerðinni segir jafnframt að lagt sé til að „regla stærstu brota" eða með öðrum orðum „meðaltalsaðferðin" sem hefur áður verið kynnt allrækilega í Tímanum, verði lögð til grundvallar við úthlutun þingsæta. Þá segir orðrétt: „Þingmenn verði 63 en kjördæmi hin sömu og nú eða 8 talsins... skal ráðstafa 40 þingsætum þannig að 5 komi í hlut hvers kjördæmis. í frumvarpi þessu er fjallað um ráðstöfun þeirra 23 sæta sem þá eru eftir. Eitt þessara sæta er óbundið kjördæmum en ætlunin er að hinum 22 sé skipt fyrir hverjar kosningar milli kjördæmanna til að jafna vægi at- kvæða... Reikniaðferðinni sem beitt er við frarnangremda skiptingu, svipar til þeirr- ar aðferðar sem notuð er við skiptingu uppbótarsæta milli þingflokka í gildandi kosningalögum. Tölu kjósenda í hverju kjördæmi er deilt með sérstökum deili- tölum og sætum síðan raðað á kjördæm- in eftir lækkandi útkomutölum.“ Segir í framhaldi þessarar málsgreinar að þar sem þingsætin 22 sem eftir eru til út- hlutunar, að 63. sætinu undanskildu séu ekki nógu mörg til þess að deilitölurnar 6, 7, 8, 9 o.s.frv. nái að jafna vægi atkvæða til fulls, og því þyki eðlilegt að þannig sé skipt að vægi atkvæða minnki með vaxandi stærð kjördæma og því sé náð með því að nota deilitölur sem taki stærri skref en þær fyrrgreindu, eða með tölunum 11,15,19, 23 o.s.frv. Reykjavík fengi 18 þingsæti og Reykjanes 11 Það má ætla að í fyrsta sinn sem kosið verður samkvæmt nýjum kosninga- lögum, ef frumvarp þetta verður að lögum, þá verði skipting þingsæta miðuð við tölu kjósenda í apríl 1983. Þar sem ekki er hægt að miða við þær tölur, einfaldlega þar sem þær liggja ekki fyrir enn, er í greinagerðinni miðað við tölu kjósenda í bæjar- og sveitarstjórnar- kosningunum sl. ár, þegar greint er frá því hvernig þingsæti myndu skiptast á milli kjördæma eftir næstu alþingiskosn- ingar: Reykjavík Reykjanes Vesturland Vestfirðir Norðurland véstra Norðurland eystra Austurland Suðurland 18 þingsæti 11 þingsæti 5 þingsæti 5 þingsæti 5 þingsæti 7 þingsæti 5 þingsæti 6 þingsæti Samtals 62 þingsæti Auk þess er einu þingsæti úthlutað til kjördæmis eftir kosningar. Úthlutun þingsæta í kjördæmum í greinagerðinni segir að samkvæmt þeirri úthlutunaraðferð sem hér sé lögð til grundvallar sé leitast við að ná meira samræmi milli atkvæðafylgis og þingstyrks, en jafnframt sé spornað við því með sérákvæðum að fá atkvæði dugi til þess að listi fái þingsæti. Til þess að lesendur átti sig á hvernig yrði úthlutað þingsætum í kjördæmum samkvæmt frumvarpi því sem hér er til umfjöllunar, verður nú greint frá einu dæmi úr greinagerð frumvarpsins, þar sem gengið er út frá því hvernig þingsæti í einu kjördæmi, 5 talsins, myndu skiptast, miðað við að 10 þúsund gild atkvæði hefðu verið í kosningunum. Sjá töflu 1. Listaheitin í eftirfarandi dæmi eru ímynduð, að sjálfsögðu: Úthlutunarröðin yrði nú þessi: 1. sætið til X-listans á þingsætahlut 2.150, 2. til Y-lista á þingsætahlut 1.350, 3. tií X-lista á þingsætahlut 1.150,4. til Z-list- ans á þingsætahlut 0.850 og það 5. til Ö-listans á þingsætahlut 0.650. Til þess að stuðla að jöfnuði milli flokka er vikið frá þessari reglu að því er varðar úthlutun síðasta þingsætis í fimm, sex og sjö manna kjördæmum og tveggja til fjögurra síðustu þingsætanna í fjöl- mennustu kjördæmunum," segir í greinagerðinni, er fjallað er um ofan- greint dæmi. Verða að hafa 5% gildra atkvæða Þar sem greint er frá sérákvæðum, varðandi lágmarksfylgi í greinagerðinni segir m.a.: „Við úthlutun jöfnunarsæta er það skilyrði sett að stjórnmálasamtök hafi hlotið 5% gildra atkvæða samanlagt af landinu öllu... sé það meira skulu þau eiga rétt á jöfnunarsætum hvort sem þau hafa einhvers staðar hlotið þingsæti í kjördæmi... eða ekki.“ Þar segir jafnframt: „Til þess að ákveða hve mörg jöfnunarsæti hver stjórnmálasamtök skuli hljóta, er beitt sömu aðferð og nú er í gildi um skiptingu uppbótarsæta, en hún er fólgin í því að deila með atkvæðatölu hverra stjórn- málasamtaka, með tölunum 1, 2, 3, 4, o.s.frv. fella niður hæstu útkomutölur, jafnmargar og nemur heildartölu þing- sæta sem framboðið hefur þegar hlotið, en úthluta síðan jöfnunarsætunum á hæstu útkomutölur." Lítum þá á hver þingsætatala kjör- dæma hefði orðið samkvæmt þessu frum- varpi, miðað við kosningaúrslitin 1979: Reykjavík 18 Reykjanes 11 Vesturland 5 Vestfirðir 5 Norðurland v. 5 Norðurland e. 7 Austurland 5 Suðurland 6 Og í framhaldi af því lítum við á hvernig atkvæði skiptast á lista í hverju kjördæmi, einnig samkvæmt úrslitum 1979, svo og þingsætahlutar listanna. Og að lokum skoðum við svo töflu 111, sem sýnir hvernig þingsætin hefðu endanlega skipst samkvæmt þessu frum- varpi, auk þess sem sýnt er hver at- kvæðafjöldi á bak við þingmann er og til samanburðar er innan sviga raunveruleg úrslit 1979. Sjá töflu III. Það vekur athygli að úthlutunjöfn- unarsæta, samkvæmt framangreindu, verður í þessum kosningum, því sem næst til þess að sama niðurstaða fæst, og ef öllum þingsætunum hefði verið úthlut- að á grundvelli úrslita í hvetju kjördæmi fyrir sig. -AB Tufla 1 Listi Atkvxði Þingsxtahlutur Tala þingsxta Xlisti 4300 2.15(1 2 Y listi 2700 1.350 1 Zlisti 1700 0.850 1 tí listi 1300 0.650 1 > Tafla 11 Aðrir A B D G samt. Samtals Revkjavík 8691 7252 21428 10888 638 48897 3.199 2.670 7.888 4.008 0.235 18.000 Reykjanes 6187 4430 10194 4679 92 25582 2.660 1.905 4.383 2.012 0.040 11.000 Vesturland 1165 2812 2320 1203 0 7500 0.777 1.875 1.547 0.802 0.000 5.000 Vestnrðir 1188 1645 1735 808 0 5376 1.105 1.530 1.614 0.751 0.000 5.000 Norðurlandv. 611 2506 1606 984 0 5707 0.535 2.196 1.407 0.862 0.000 5.000 Norðurlande. 1789 5896 2758 2141 857 13441 0.932 3.071 1.436 1.115 0.446 7.000 Austurland 414 2963 1369 2154 0 6900 0.300 2.147 0.992 1.561 0.000 5.000 Suðurland 1535 3357 2428 1544 1484 10384 0.890 1.946 1.408 0.895 0.860 6.000 - Tafla III A B D G Samtals RV. þingsxti 3(3) 2(2) 9(6) 4(4) 18(15) atkvxði 2897 3626 2381 2722 2717 (2897) (3636) • (3571) (2722) (3260) RN. þingsxti 3(2) 2(1) 4(3) 2(1) 11(7) atkvxði 2062 2215 2549 2340 2326 (3094) (4430) (3398) (4679) (3655) VL. þingsxti 1(1) 2(2) 2(2) 1(1) 6(6) atkvxði 1165 1406 1160 1203 1250 (1165) (1406) (1160) (1203) (1250) VF. þingsxti 1(2) 1(2) 2(2) 1(0) 5(6) atkvxði 1188 1645 868 808 1075 (583) (823) (868) (896) NV. þingsxti 1(0) 2(3) 1(2) 1(1) 5(6) atkvxði 611 1253 1606 984 1141 (835) (803) (984) (951) NE. þingsxti 1(1) 3(3) 2(2) 1(1) 7(7) atkvxði 1789 1965 1379 2141 1920 (1789) (1965) (1379) (2141) (1920) AL. þingsxti 2(2) 1(2) 2(2) 5(6) atkvxði 1482 1369 1077 1380 (1482) (685) (1077) (1150) SL. þingsxti 1(1) 2(2) 2(2) Kl) 6(7) atkvxði 1535 1679 1214 1544 1725 (1525) (1679) (1214) (1544) 1478) Samt.þingsxti 11(10) 16(17) 23(21) 13(11) 63(60) atkvxði 1962 1929 1906 1877 1964 (2158) (1815) (2088) (2218) (2063) -

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.