Tíminn - 25.02.1983, Side 20

Tíminn - 25.02.1983, Side 20
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag abriel V HÖGGDEYFAR H x■ Hamarshofða 1 QJv ð r 8 h I u 11 r sími 36510. .HÆKKUNIN GERÐI EKKI BETUR EN LEURÉTTA KIÖR SJÚMANNA’ en Ólafur Ragnar telur hana allt of háa, segir Steingrímur Hermannsson ■ Ólafur Ragnar Grímsson réðst harkalega á sjávarútvegs- ráðherra fyrir fiskverðsákvörðun um síðustu áramót og taldi hana brot á samkomulagi stjómar- flokkanna og að hún skyti stoð- uin undan árangri bráðabirgða- laganna. En í gagnrýninni felst ekkert annað en það að þing- flokksformaðurinn og þeir sem undir taka hafa ætlast til að sjómenn bæru mun meiri launa- skerðingu en menn í landi. teingrímur Hermannsson íáraði Ólafi Ragnari og hrakti ishermi hans, eins og sagt var frá í Tímanum í gær. En þar var nokkuð losaralega farið með gang mála og bað blaðið Stein- grím að rekja stuttlega hvernig staðið var að ákvörðuninni og hvaða áhrif hún hafði á tekjur sjómanna. Hann sagði: „Það var náttúrlega öllum ljóst að fyrir útgerðina mundi aldrei nægja 7,72% hækkun eins og varð á verðbótum 1. des. Það var þess vegna sem verðlagsráð sjá- varútvegsins ákvað eingöngu þá fiskverðshækkun í 1 mánuð, frá 1. des. til áramóta. Þessu var ríkisstjórninni að sjálfsögðu gerð grein fyrir. Ástæðan fyrir þessu er sú að ýmsir kostnaðarliðir útgerðar- innar, olía, veiðarfæri og fleira hafði hækkað langtum meira og ég vakti athygli á því að t.d. iðnaðurinn fékk hækkun á sinni framleiðslu talsvert framyfir 7.72% eitthvað nálægt 15-17%, sömuleiðis bændur á sínum rekstrarvörum það var eingöngu launaliður bóndans sem var skertur. Hins vegar var ekki talið fært að greina þannig í sundur í útgerðinni því að þá væri með lögum verið að taka framhjá skiptum, og það hefur þessi ríkisstjórn ekki viljað gera. Tekjur sjómanna höfðu skerst miklu meira á síðasta ári heldur en manna í landi vegna afla- brestsins. Þeirra tekjur eru háðar aflamagni. Á liðnum árum hefur fiskverð verið hækkað minna þegar afli hefur aukist. Menn hafa sagt að útgerðin og sjómenn fái auknar tekjur í auknum afla og vitanlega virkar þetta gagn- kvæmt þegar afli minnkar. Þessi mál voru athuguð í des- embers.l. og þá komst Þjóðhags- stofnun og þeir 3 menn frá aðilum að ríkisstjórninni sem til voru kvaddir, að þeirri niður- stöðu, að ef það ætti að koma útgerðinni á núll, þá þyrfti 28% fiskverðshækkuntilviðbótar. En slík hækkun hefði aukið tekjur sjómanna töluvert umfram það sem er í landi og þá var athugað hvað auka þyrfti þeirra tekjur svo að þær yrðu sambærilegar við tekjuaukningu í landi. Með samanburði á fiskverði og kaup- taxta var það talið allt að 10%. Hins vegar þegar tekið var einnig tillit til aflasamsetningar o.fl. taldi ðg að það mætti verða nokkuð meira og niðurstaðan varð 14% fiskverðshækkun. Samanburðartölur Þjóðhags- stofnunar á tekjum sjómanna sýna að með 14% hækkuninni hafa þær verið leiðréttar á þann veg að þær ná sama hlutfalli og var á milli tekna sjómanna og þeirra sem í landi unnu árið 1977. Ólafur Ragnar kvartaði yfir að fiskverðsákvörðunin hafi haft verðbólguhvetjandi áhrif sem næmi um 5-6%. Samkvæmt því var leiðrétting á kjörum sjó- manna of dýru verði keypt.“O.Ó. HHHHHHHHHHHHHHHHHBHHHHHHHHHHH Fundur íFramsóknar- félagi Vestur-Húnvetninga: Félagid standi ad framboði í nafni Fram- sóknarflokksins ■ Á fundi í Framsóknarfélagi Vestur-Húnvetninga í fyrra- kvöld - þar sem 58 félagsmenn voru mættir - var samþykkt með, verulegum meirihluta að félagið standi að framboði í nafni Fram- sóknarflokksins sem áður. En jafnframt var samþykkt með naumum meirihluta, að óska eft- ir því við kjördæmisstjórn flokksins í kjördæminu að þeim framsóknarmönnum sem vilja fara í sérframboð verði heimilað að nota listabókstaf flokksins, þ.e. bjóða fram BB-lista. Að sögn Brynjólfs Sveinbergs- sonar á Hvammstanga fóru mikl- ar umræður fram um framboðs- málin á fundinum, bæði framboð flokksins í komandi kosningum og hugsanlegt sérframboð, og voru sjónarmið manna mjög skipt. Hjá aðstandendum sér- framboðs hafi komið fram að þeir væru óánægðir framsóknar- menn sem vildu þó ekki slíta tengslin við Framsóknarflokk- inn, en standa að sérstöku fram- boði í þetta sinn. Á fundinum voru bornar fram tvær tillögur. Hin fyrri var svo- hljóðandi: „Almennur fundur í Framsóknarfélagi V-Húnvetn- inga samþykkir að tilnefna tvo menn á lista Framsóknarflokks- ins við næstu alþingiskosningar". Þessi tillaga var samþykkt með 44 samhljóða atkvæðum. Síðar á fundinum kom svo fram svohljóðandi tillaga frá BB-lista mönnum: „Almennur félagsfundur í Framsóknarfélagi V-Húnvetninga beinir því til og óskar eftir við kjördæmisstjórn flokksins í Norðurlandskjör- dæmi-vestra, að hún gefi leyfi sitt til að bókstafur flokksins, þ.e.a.s. BB verði notaður á lista framsóknarmanna sem boðinn verður fram sérstaklega utan við hið hefðbundna framboð flokks- ins í kjördæminu." Þessi síðari tillaga var samþykkt með 26 atkvæðum gegn 22. Brynjólfur sagði umræður á fundinum hafa verið mjög hrein- skilnislegar þannig að allir viti nú sjónarmið hverra annarra. Þess má geta, að Ingólfur Guðnason, alþingismaður frá Hvammstanga, þar sem fundur- inn var haldinn, var ekki á fundinum. - HEI. Ekki áform um kærur á hendur fleirum en Video-son í bráðina ■ „Um það hefur ekki verið talað sérstaklega. Enda ætla ég að það sem kemur út úr mála- rekstri gegn Video-son muni gilda um önnur fyrirtæki svipaðs eðlis,“ sagði Hörður Vilhjálms- son, fjármálastjóri útvarpsins, þegar hann var spurður hvort stofnunin hygðist kæra kapal- sjónvarpsstöðvar í kjölfar kær- unnar á hendur Video-son, sem ríkissaksóknari gaf út í fyrradag. Annars sagðist Hörður telja það hlutverk ríkissaksóknara að kæra í þessum tilfellum. Kvaðst hann ætla að það yrði gert þegar niðurstaða í þessu eina lægi fyrir. Þórður Björnsson, ríkissak- sóknari, sagði í samtali við Tím- ann í gær að Video-son kæran væri sú eina sem borist hefði inn á embættið. Hún kæmi upphaf- lega frá útvarpsstjóra seint á árinu 1981. Síðan hefði málið verið í rannsókn og athugun. Ekki taldi Þórður að embættið tæki fleiri slík mál til meðferðar nema að kærur bærust. - Sjó Vetrar- speglun í Hafnar- fjarðar- hrauni (Tímamynd Árni Sæberg) Blaðburöarbörn óskast Tímann vantar fólk t'ií blaðburðar í eftirtalin hverfi: Skaftahlíð Bólstaðarhlíð Laugarteigur Briinavegur Selvogsgrunnur •Mmiím sími:86300 dropar Sparsami Davíð! Því hefur margoft verið fram haldið af andstæðingum yfir- manns „Davíðsborgar“ að hann sé hin mesta eyðslukló,' sem sói sameiginlegum fjár- munum Reykvíkinga í veislu- höld handa sér og öðrum borg- arfulltrúum, o.þ.h. Dropar hafa það fyrir satt að þetta sé mikil einföldum af hálfu and- stæðinganna, því Davíð sé svo aðhaldssamur og sparsamur á sumum sviðum, að til hreinnar „fyrirmyndar“ sé. Ein saga sem styður þessa fullyrðingu er af sjúklingi sem þurfti að fara í aðgerð á Borgarspítalanum fyrr í þessum mánuði, og áður en aðgerðin var framkvæmd var að venju tappað af sjúkl- ingnum blóði, til hinna ýmsu rannsókna. Þegar þeirri af- töppun meinatæknanna var svo lokið og blóðið beinlínis draup úr löngutöng sjúklings- ins, þá gerðist hann svo frekur, þegar hann sá fararsnið á tækn- unum, að biðja þá nú blessaða um plástur. Svör meinatækn- anna voru á þessa leið. „Bless- uð góða, það er enginn plástur tU - hann Davíð er búinn að taka af okkur alla plástra.“ Gott veganesti það, áður en lagst er á skurðborðið! Flottir á því þar Fréttabréf Eimskipafélags íslands greinir frá því að í desember sl. kom eitt leigu- skipa félagsins til Reykjavíkur frá Portsmouth. Mcðal annars varnings með skipinu voru gámar með vindlingum frá Rolf Johansen & Co. Skömmu eftir að skipið sigldi frá Ports- mouth, hafði sölustjóri hjá Rolf Johansen samband við [IRMAKil Eimskip og sagði að aðskota- hlutur kynni að vera í tiltekn- um gám. Við hleðslu vindling- anna í N-Carolina, taldi einn. hleðslumannanna sig hafa týnt giftingarhríng sínum, gullhring með þrem demöntum. Var þess faríð á leit að starfsmenn Eimskip athuguðu það sérstak- lega við losun þessa gáms hvort hringurínn fyndist. Við losun fannst hringurinn reyndar, óskemmdur, innst inni í gámnum. Hringnum var þcgar skilað til Rolf Johansen, sem kom honum áleiðis til eiganda. Já, verkamennirnir í N-Caro- lina ganga með demants- skreytta hringa í vinnunni. Flottir á því þar! Krummi ... ...veltir því fyrir sér hvort verðbætur til verkamanna um mánaðamótin muni hrökkva fyrir eins og cinum gullhring?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.