Tíminn - 27.02.1983, Page 2
SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983.
Ný hlið á hinum vinsælu bókum Charles Dickens:
EINKENNAST BÆKUR DICKENS
AF KVENFYRIRLITNIN GU?
■ I kringum raunverulega þroskaða konu heföi skáldsagnaheimur Dickens hljóðnað.
Dickens and Women.
Höfundur‘: Michael Slater.
Útgefandi: Dent.
■ „Faðir minn skildi ekki konur“,
staðhæfði dóttir Dickens, Katey. Hvað
Dickens viðvíkur áleit hann víst að
konur skildu hann ekki, sérstaklega ekki
konan hans. Þegar hjónabandið
splundraðist og Dickens, þá 46 ára
gamall, tók saman við hina átján ára
gömlu leikkonu Ellen Ternan, birtist í
New York Tribune bréf, undirritað með
nafni hans, sem upplýsti almenning um
það að hann hefði búið í óhamingjusömu
hjónabandi með frú Dickens um margra
ára skeið, að hún væri haidin „geðrænum
kvillum" sem gerðu hana óhæfa í eigin-
konuhlutverkið og að hún hefði alltaf
vanrækt börn þeirra skammarlega. f>essi
drengilega játning, sem bresku blöðin
kepptust við að endurprenta, varð til
þess að sverta vesalings Catherine Dick-
ens í augum ævisöguritara Dickens og
það er ánægjulegt að Slater skuli endur-
reisa hana.
Hann bendir á það að allar heimildir
beri þess vott að hún hafi vcrið um-
hyggjusöm móðir og kjarkur hennar og
léttlyndi hafi lengi átt ástir Dickens. í
Tribune-bréfinu lagar hann á hinn bóg-
inn fortíðina aðsínum eigin hagsmunum
eins og hann var vanur að gera. Raun-
verulegur glæpur Catherine var sá að
eftir að hafa alið Dickens tíu börn í 22ja
ára sambúð hafði hún glatað fegurð sinni
og hreinleika. Svo sem algengt var á
Viktoríutímanum áleit Dickens kynlífið
dónalegt, jafnframt því sem hann hungr-
aði í það, og skyldur eiginkonu hans sem
löglegs rúmfélaga niðurlægðu hana
óbætanlega í augum hans. Hann útilok-
aði hana frá helguni reitum andans, segir
Slater, í þeim mæli að hún hafði minni
áhrif á list hans en næstum hvaða kona
önnur sem hann þekkti.
Kvenímynd hans var ckki eiginkona
heldur systurleg mær sem hann gæti haft
skírlíft og bróðurlegt samband við.
Eina stúlkan sem hæfði þessu mynstri
hans var Mary, systir eiginkonunnar,
sem bjó hjá þeim fyrstu hjónabandsmán-
uðina og dó úr hjartaslagi í örmum
Dickens, sautján ára gömul. Dauðinn
tryggði henni eilífan hreinleika og
blindri ást Dickens andlega dýrð. Hann
hlakkaði til þess að sameinast Mary
aftur á himnum og pantaði næstu gröf
við hliðina á hcnni í kirkjugarðinum til
að auðvelda sameiningu þeirra. Hann
dreymdi hana oft, og einu sinni kom hún
til Itans í dulrænni sýn í Genúa klædd
eins og Maríumynd eftir Raphael og
ráðlagði honum að taka kaþólska trú -
áreiðanleg vísbending skyldi maður
ætla, komin beint að handan-semhann
af einhverjum óskiljanlegum ástæðum
hirti þó ekki um þegar hann vaknaði.
Lífvana kvenpersónur
Minningin um Mary blés lífi í heila
bunu af deyfðarlegum söguhetjum í
skáldsögum hans, þ.á m. Ruth Pinch
og Kate Nickleby. Jafnframt birtist
önnur möguleg Mary í líki fallegrar
unglingsstúlku, píanóleikara sem hét
Christiana Weller - „ungrar andlegrar
veru sem ég óttast að örlögin hafi dæmt
til að deyja unga“, skrifaði Dickens
vongóður. Christiana hafnaði þó bæði
félagsskap englanna og því að gerast
systir Dickens. Þess í stað giftist hún
gömlum vini hans sem Thompson hét -
setti þannig dapurlega ofan í augum
Dickens sem sagði að giftingin hefði
alveg spillt henni. Sæti Mary á heimili
Dickens var síðan skipað af annarri
systur Catherine, „litla uppáhaldinu"
hans Dickens sem var fimmtán árum
yngri en hann og dvaldi áfram hjá
honum þótt upp úr hjónabandinu slitn-
aði. Þetta olli svo miklu umtali að hann
virðist hafa talið hana á að útvega
læknisfræðilegt vottorð um meydóminn
til að sanna að hún væri enn ósnortin og
einungis í systurlegu sambandi við
Dickens.
Söguhetjur Dickens sýna, eins og sá
er skóp þær, hálf óviðkunnanlega
ánægju af því að ná sér í systur á meðal
þess kvenfólks sem fyrir hendi er. Davíð
Copperfield krefst þess að fá að gera
aumingja örvæntingarfullu Agnesi að
andlegri systur sinni, og hinn bráðþroska
Oliver Twist þrýstir sér að barmi Rose
Maylie um leið og hann kallar hana
elsku systur st'na þó að hann viti ósköp
vel að hún er frænka hans. I augum
Dickens hefur systkinalegt samband
þann kost að það sameinar sakleysi og
spennuna við gagnstæða kynið. Það
felur einnig í sér meðul til þess að ná
valdi yfir hinni útvöldu konu og svipta
hana andlegu sjálfstæði sínu og ást-
ríðum. Þetta var Dickens mikilvægt því
að, eins og Virginia Woolf benti réttilega
á, hann var bókstaflega fullur með
hinum hefðbundnu karlmannalegu
dyggðum, árásargirni og stjórnsemi. í
tómstundum sínum naut hann þess að
hræða ungar stúlkur - hrinda þeim undir
fossa eða draga þær út í sjó til að
rennbleyta klæði þeirra - og þessir leikir
hans sýna hversu erfitt hann átti með að
greina kynlífið frá karlmannlegri
drottnun.
í skáldsögunni fer kvennakúgunin
þannig fram að kvenpersónurnar eru
gerðar að englum, leikföngum og kettl-
íngum eða að öðrum kosti að heimskum
fuglahræðum eins og frú Nickleby sem
Dickens skóp í mynd móður sinnar.
Kvenhetjunum er ætlað að vera barns-
lega saklausar og skjálfa af ótta þegar
karlmaður nálgast. Skynsemi er ekki
krafist: Það er talið Esther Summerson
til tekna að hana skortir „skjótan
skilning". Allt hugrekki, jafnvel hið
smávægilegasta, hefur illt í för með sér
- eins og þegar uppreisn Caddy Jellyby
gegn fáránlegri móður sinni leiðir til þess
að barn hennar fæðist heyrnarlaust.
Ahugi kvenna á listum og menningu er
óhjákvæmilega hlægilegur líkt og sér-
hver löngun þeirra til frama, sem í besta
falli getur leitt til þess að þær vanrækja
heimilisstörfin, eins og sýnt er fram á í
skáldsögunum.
Skáldverkin endurspegla
raunverulega fordóma
Dickens
Þau sjónarmið sem birtast í skáldverk-
um Dickens endurspegla raunverulega
fordóma hans. Eins og Viktoríu drottn-
ingu fannst honum hugmyndin um það
að konur færu á þing „brjálæðisleg,
siðlaus og heimskuleg“. Þegar hann var
sérlega niðurdreginn gat hann jafnvel
fengið óstöðvandi hlátursköst væri hon-
um sagt frá fundi um kvenréttindi.
Andúð hans á hæfileikaríkum konum
getur hugsanlega hafa stafað af systkina
samkeppni. Fanny systir hans hafði tón-
listargáfur og var send í Konunglega
tónlistarskólann í þeirri von að hæfileik-
ar hennar gætu bjargað fjárhag fjölskyld-
unnar. Hann minnist þess að einhverju
sinni er hann fór til að sjá hana taka á
móti silfurverðlaunum hafi sett að hon-
um óstjórnlegan grát, þar sem hann sat
á meðal áhorfenda, vegna þess hversu
ójafnt hlutskipti þeirra var. Jafn kapps-
fullur karlmaður og Dickens var ekki
líklegur til að fyrirgefa slíkan árangur og
Slater getur sér þess til að hann hafi
hefnt sín á Fanny, meðvitað eða ekki
með því að umbreyta henni í Fanny
Dorrit og Konunglega tónlistarskólan-
um í hrörlegt leikhúsið þar sem Fanny
slær í gegn með því að sýna á sér
fótleggina.
Slater er ögrandi og fullur efasemda í
samanburði sínum á þeim konum sem
Dickens þekkti og sögupersónum hans.
Hann dregur þá viðteknu skoðun í efa
að hin kaldhæðna íssölustúlka Estella og
Rosa Bud í „Edwin Drood“, birti á-
kveðna þætti í fari Ellen Ternan, séða
með augum roskins manns sem girntist
hana. Slater bendir á að áhugi Dickens
á Ellen hafi hugsanlega verið andlegs
eðlis - tilbrigði við stefið um hina hreinu
systur. í Tribune-bréfinu hélt Dickens
því vissulega fram að Ellen væri eins
saklaus „og mínar eigin elskulegu
dætur“. Samt sem áður virðist samband-
ið þó ekki hafa orðið eins föðurlegt er á
leið ef marka má Katey sem segir að
Dickens hafi eignast son með Ellen.
Þegar að bókmenntafræðilegu hliðinni
kemur lofar Slater konur eins og Louisa
Gradgrind og lesbíuna ungfrú Wade,
sem næstum sleppa undan sterku taki
Dickens sem höfundar. En séú þær
persónur bornar saman við t.d. Jane
Eyre er ófullkomleiki þeirra augljós.
(Dickens greindi spyrjanda nokkrum
frá því að honum þætti lítið til „Jane
Eyre“ koma og hefði ekki lesið hana).
Slater kemst þó að þeirri niðurstöðu að
ekkert af þessu skipti miklu máli. Dick-
ens sé „mesti skáldsagnahöfundur á
enska tungu“ þrátt fyrir það að kvenper-
sónur hans séu að mestu leyti skopstæl-
ingar. Vanmáttur hans á sviði kvenlýsinga
hafi verið frumforsenda þess árangurs
sem hann náði. Víður, hjáróma og saklaus
vettvangur listar hans hefði ekki þolað
innrás raunverulegrar og þroskaðrar
konu. í kringum slíka konu hefði skáld-
sagnaheimur Dickens hljóðnað.
Sú mynd sem dregin er upp af per-
sónuleika Dickens í þessari bók hefði
áreiðanlega reitt hann til reiði og hann
hefði vel getað fundið eitthvað særandi
til að segja um Slater í New York
Tribune. En hvað sem því líður er erfitt
að hugsa sér fræðilegri og hæfari um-
fjöllum um þetta efni.
Hleðslugler
utanhúss sem innan
fertL Jí
Jupiter
24x24x8 cm.
Oríon
24x24x8 cm.
Malta
19 x 19x8 cm.
Wolke
19x 19x8 cm.
og 24 x 24 x 8 cm.
Sýningarbás hjá Byggingaþjónustunni
Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
GLERVERKSMIDJAN
Samvei*k hf.
Sími 99-5888 — 850 HellU