Tíminn - 27.02.1983, Blaðsíða 22
; W V
■i n
22
v>$
SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR1983.
nútlminn
Erlent slúdur
Jiinmy Pursey
■ Jimmy Pursey, áður forsprakki
einnur skemmtilegustu pönkhljóm-
sveitar Breta, Sham 69, gaf út sína
þriðju sóloplötu fyrir stuttu, Rc-
venge is not the Password. Sjálfur
kallar hann sig núna JamcsT. Pursey
og hér er ástæðan: „Ég er ekki bara
að breyja nafninu mínu, heldur er
þctta nokkurs konar endurmat á
skírnarnafninu. Égvil allsckki treysta
á það ímynd sem hefur fest við mij
og mun aldrei gera það framar."<Og
um plötuna segir hann; „Kannski
geri ég ekki fleiri plötur því þessi
nýja er svo sterk og sú næsta yrði að
jafnast á við hana. Á þessari plötu
kem ég örugglcga til dyranna eins og
ég er klæddur. ég er ekki lengur
byggður upp af 27 ólíkum persónu-
leikum eins og áður."
Purscy segist leggja mun mcira
upp úr textunum á þessari plötu en
tónlistinni og vill meina að hún sé
dapurleg (í upphaflcgri merkingu
þess orðs), geðveikisleg og lýsi þvf
hvernig lífið hafi farið með sig.
Pink Floyd
Nýjasta plata Pink Ployd, The
Final Cut, kemur út seint í mars,
Nokkur htga hennar. sem öll eru eftir
Roger Waters. voru tekin upp með
nýrri tækni sem hcitir Holophonics,
en sú nýjung framkallar hljóminn í
þrívídd. Rick Wright hel'ur ylirgefið
fyrirtækýð til þess að snúa sér að
eigin tónlist en hinir þrír hafa í
hyggju að koma saman live bandi og
spila opinberlega á þessu ári.
The Lords of
the New Church
The Lords of the New Chuch er
pönkhljómsveit, stofnuðscint á árinu
1981 af fjórum möhnum sem allir
eiga það sameiginlegt að hafa verið
áður í nafnkunnum hljómsveitum.
Peir eru Stiv Bator (Dead Boys).
Brian James (The Damned), Nieky
Turner (Barracudas) og Davc Trcg-
unna (Sham 69). Égætlaekki að hal'a
mörg orð um þá þarsem upptalningin
að ofan ætti að vera nógu hvetjandi
fyrr fólk til að tékka á þeim, en hér
er éin kjaftasaga sent ætti að ýta
undir forvitnina:
Þegar The Lords héldu tónleika
á sfðasta ári í Birmingham, Alabama
(USA) fengu þeir upp á móti sér
stóran hóp kristilegra ofstækismanna
scm varla gátu haldið aftur af sér og
stjórnað sinni gitðlegu réttlætis-
kennd. Trúárhópurinn dreifði á með-
al áhorfenda áhorfenda hljómsveit-
arinnar bæktingum þess efnis að
spillingin myndi ná tökum á þeim við
að horfa á ófögnuðinn. Hinir hcit-
trúuðu héidu því nefnilcga fram að
hljómsveitin væri haldin illum öndum
og sögðu meðal annars að hún væri
að auðvelda Anti-Kristi aðgang að
heiminum. Skömmuseinnavarráðist
að hljómsveitinni með sömu rökum í
sjónvarpsþætti sem cvangelistar séu
urn i Birmingham. Alabama.
En The Lords of the New Church
hafa líklcga verið alsælir meö þessar
viðtökijr því citt af markmiðum
þeirra er að „gefa rokk og róli aftur
þá skerpu og þann kraft sem það
hafói.” Og ef hugmyndafræöi þeirra
er einhver, þá er hún þessi: „Vertu
þú sjálfur. Nýja Kirkjan er allir,
rock'n roll hcíur tckið við af trúnni."
(Stiv Bator)
Bra
MEZZOFORTE SLÆR I
GEGN Á BRETLANDI
— plata þeirra „Garden party” f 86. sæti Topp 100 listans
■ Hljómsveitin Mezzoforte er að slá í
gegn á Bretlandi svo um munar en í
síðustu viku komst 12 tommu plata
þeirra „Garden Party" í 135 sæti á
National listanum breska eða landslist-
anum .yfir vinsælustu lögin en sá listi er
tekinn saman af Gallup stofnuninni og
spannar sölu í 250 verslunum. í Music og
Video Week (vikurtitinu sem birtirTopp
100 listann reglulega) er „Garden Party"
komið í 86. sæti í þessari viku eða upp
um 49 sæti og cr þetta besti árangur sem
íslensk hljómsveit hefur nokkru sinni
náð í Bretlandi.
Af þessu tilefni hóaði sveitin, ásamt
Steinari Berg og Jónatan Garðarssyni í
poppskríbcnta niður á Torfu að ræða
málin yfir kaffibolla og kökusneið.
Á þessum fundi kom fram að frá því í
vjanúarbyrjun, nánar tiltekið 10. jan. er
nýjasta plata þcirra koma út í Bretlandi
undir heitinu „Surprise surprise” hefur
hún selst í um 10 þús. eintökum og þær
tvær plötur sem gerðar voru upp úr
henni, 12 tommu tveggja laga plata með
lögunum „Garden Party" og „Funk
Suite No. 1" og 7 tommu plata með
þessum tvcimur lögum hafa báðar selst
í svipuðu magni þannig að alls nemur
salan á þessum plötum um 20 þús.
eintökum. Þcssi tvö lög hafa fengið
gífurlega góðar viðtökur á breskuin
diskótekum, útvarpsstöðvum og hjá
öðrum sem fylgjast með tónlist yfirleitt.
Jóhann Ásmundsson hélt síðan utan
til Bretlands í miðjum mánuðinum og
var í viku í því skyni að kynna plötuna í
útvarpsstöðvum, klúbbum og víðar,
kom meðal annars fram í útvarpsþætti
þcim scm scndur er út beint úr Lyscum
diskótekinu cn á þcssum 7 dögum sem
hann var ytra átti hann ekki færri en 3
stefnumót daglcga við blaðamenn og
útvarpsfólk og komst samt ekki yfir allt
saman.
Leika í Venue
Hljómsvcitin mun fara til Bretlands
. fimmtudaginn 3. mars til að lcika á
einum tónleikum ÍThe Venue í London,
en þessi hljómleikasalur er „Staðurinn"
cinsog sagt er. I The Venue hafa margar
hljómsveitir stigið sín fyrstu fræðarspor
•og þar troða gjarnan þekktar bandarísk-
ar hljómsveitir upp þegar þær eru á ferð
í Bretlandi. Tónlistarmenn, blaðamenn
og aðrir þckktir aðilar úr „bransanum"
eru fastagestir í The Venue, því þangað
er gjarnan leitað til að fylgjast með
. straumunum í tónlistarlífinu. Áætlað er
að meðlimir Mezzoforte komi heim
aftur þann 6. mars, en vel getur farið svo
að dvölin verði framlengd, þarsem tilboð
hafa borist frá sjónvarpi ogfleiri aðilum,
en ekki hafa ákvarðanir verið teknar
ennþá varðandi þau atriði.
Undanfarnar vikur hafa landsnienn
getað fylgst með vinsældum Mezzoforte
■ Hljómsveitin Mczzoforte.
á diskó listanum sem birtur er í tónlistar-
blaðinu Record Mirror. Þessa vikuna er
12 tommu platan títtnefnda komin í 11.
sætið og er enn á uppleið.
Vikuritið Black Echo. sem fjallarum
soultónlist, djassrokk, diskó og aðra
rytmíska tónlist hefur undanfarnarvikur
sýnt stöðu Mezzoforte í þeim verslunum
sem sérhæfa sig í þessháttar tónlist.
Þessa vikuna er 12 tomman í 5. sæti soul
listans og stóra platan er í 4. sæti yfir
soul plötur. Það vekur athygli að næstu
plötur fyrir ofan Mæzzoforte á þessum
lista eru sem hér segir.
1. Michael jackson - Thriller
2. Ýmsir (8 vinsæl diskólög) - Street-
sounds
3. Earth Wind & Fire - Powerlight
4. Mezzoforte - Surprise Surprise
Capitol Radio útvarpsstöðin hefur
leikið lög Mezzoforte mjög mikið á
undanförnum vikum og hefur hljóm-
sveitin verið á „playlist" hjá stöðinni, en
það þýðir að lög hljómsveitarinnar eru í
hópi þeirra 50 laga sem fá stöðuga spilun
dag hvern. Capitol Radio mun vera næst
stærsta útvarpsstöð Bretlands og er að-
eins BBC stærri. Smærri „regional" eða
svæðisstöðvar hafa einnig gefið hljóm-
sveitinni mikinn gaum, en það var hins-
vegar ekki fyrr en í síðustu viku að BBC
1 og 2 hófu að leika lög hljómsveitarinn-
ar að staðaldri. BBC er eina stöðin í
Bretlandi sem útvarpar yfir allt landið og
er því nánast lykillinn að frekari vinsæld-
um og betri árangri. Er þetta skref því
afar mikilvægt fyrir hljómsveitina.
Tónleikar á Borginni
Hljómsveitin Mezzoforte hélt síðan
tónleika á Hótel Borg s.l. fimmtudags-
kvöld. Þar hituðu'upp ný „fönk" sveit
Icelandic Seafunk Corparation fimir pilt-
ar sem léku bandarísktfjúsjon of mikilli
list, liggja svona mitt á milli Kobba
Magg og Mezzo.
Síðan tóku meistararnir við og þótt
maður hafi persónulega ekki pælt neitt
að ráði í þeirri tónlist sem Mezzo leika
var ekki hægt annað en að hrífast með
enda gleðin og fjörið í fyrirrúmi hjá
þeim. í prógramminu voru þau lög sem
slegið hafa í gegn í Bretlandi og miðað
við þá takta er framganga þeirra á þeim
markaði senniiega rétt að byrja nú.
Eitt atriði enn vil ég minnast á og það
var liðið sem sótti staðinn að þessu sinni.
Nær enginn af fastagestum þessara Borg-
artónleika í vetur var til staðar, liðið nú
mun éldra en gerist og gengur á þeim
vettvangi og greinilegt að Mezzo á sér
dyggan hóp stuðningsmanna hérlendis.
-FRI
iss! Haugur og Hazk...
■ Við gátum þess hér fyrir viku að
3. mars myndu Haugur og iss! spila á
veitingahúsinu Borg. Nú hefur
tvennt breyst við þá áætlun, tón-
leikarnir verða þann 10. og ný
hljómsveit hefur bæst við. Sú heitir
Hazk og er ein af þeim sem bendluðu
sig við ósiðlegheitin á Þorravöku MS
um daginn. Að sögn Hallvarðs Þórs-
sonar konserthaldara verður þetta
mikill konsert og þúsundasti hver
gestur fær eina með öllu og kók.
Hljómplötuútgáfan Gramm s/f hefur
ákveðið að fjármagna það lotterí að
hluta. Bra
Ásgeir með EGÓ
í Kaupmannahöfn
■ Hljómsveitin EGÓ er sem stendur
stödd í kóngsins Kaupmannahöfn en
þar eiga þeir félagar að leika á hátíð
íslendingafélagsins. Magnús trommu-
leikari mun hinsvegar ekki vera með í
förínni og skipar hans pláss Ásgeir
Bragason fyrrum trommuleikari
Purrks Pillnikk og plötusnúður með
meiru.
Magnús mun hafa skaddast á annari
hendinni er EGÓ var út í Eyjum
nýverið, með þeim afleiðingum að hún
bólgnaði mikið, og var hann því ófær
um að taka þátt í förinni, svo segja
allavega heimildir Nútímans.
Heimildir okkar segja ennfremur að
mjög brátt hafi borið að reddingin á
trommuleikaranum, Beggi hringdi
niður í Gramm daginn áður en sveitin
fór utan að reyna að hafa uppi á
einhverjum slíkum.
-FRI
Lesendabréf:
„Að pönkgengið sé þreytt er fáránlegt”
■ „Fáránlegasta sem ég hef séð var í
þessum fáránlega Nútíma síðasta sunnu-
dag. Að pönkgengið sé orðið svo þreytt
að hægt sé að setja samasem merki á
miili þeirra og hippanna er fáránlegt.
Pönkararnir eru nefnilega í góðri þróun
eins og Clash, Johanny Rotten, Jimmy
Pursey og Crass. Eftir nokkur ár sést að
pönkararnir eru það sama og Bítlarnir
og Rolling Stones voru í byrjun. Þá
sögðu ailskonar hálfvitar að Bítlarnir og
Rolling Stones væru svo lélegir og þreytt-
ir að það væri met. Stuttu síðar heyrðu
allir að Bítlarnir og Rolling Stones voru
miklu betri og frískari en hálfvitarnir.
Bragi Purrkur skilur heldur ekkert í að
pönkarar kvarta yfir peningaleysi og
þeir nenni ekki að vinna. Skilur maður-
inn ekki að pönkarar þurfa að velja um
2 handónfta ókosti. Annar er að vinna
skítadjobb og fá sk’ítapcninga í staðinh.
hinn er að vinna ekki skítadjobb og fá
engan pening. Pönkararnir velja seinni
kostinn og hafa fullan rétt á að kvarta þó
að fyrri kosturinn sé ennþá verri. Áður
en Bragi snýr sér næst með skömmum að
Sigga Pönk ætti hann að hafa hugfast að
fólk vildi ekki kaupa plötur með Purrkn-
um af því að það var þreytt á Purrknum
og Braga. Sömuleiðis ætti Bragi að vjta
að fólk hefur gaman af pönkinu hans
Sigga. Það þýðir enga afbrýðisemi. Svo
var það vitleysa hjá Luigi poppfréttarit-
ara að Mögulegt Overdósið hans séra
Bubba væri bara einu sinni. Ég sá það
a.m.k. tvisvar og ætla, að sjá það oftar,
Það er besta hljómsveit í heimi næst á
eftir Garg og geðveiki, Lítilsháttar frík,
Sjálfsfróun, Anti power, Heroin, Biafra
Resturant og LSD. Takið svo viðtal við
Sigga Pönk og kynnið þessar hljómsveit-
ir: Dead Kennedv’s, Crass, Clash, Tnfa
Riot, Flux of pink indians og svoleiðis."
Gunnar G.
Svar við lesendabréfi
■ Þakka þér fyrir bréfið Gunnar. Það
sem ég tala um Garg og geðveiki og
Lítilsháttar frík í þessari fáránlegu grein
minnist ég ekki cinu orði á enskar
hljómsveitir, enda var það ekki ætlun
mín að gagnrýna það sem ég hef ekki
séð. Þegar ég talaði um „pönk gengið“
átti ég ekki við eitthvað gengi á Trafalgar
Square, heldur gengið sem var þennan
laugardag í MH, íslenskt fólk sem kallar
sig pönkara, hvort sem það hefur rétt
fyrir sér eða ekki.
Purrkur Pillnikk er hættur og kemur
ekki til með að þreyta þig eða aðra
framar.
I þau tvö skipti sem ég hef séð Sigga
og hans gengi spila hafa þeir með engu
móti viljað drulla sér af sviðinu og það
hefur þurft að draga þá niður vegna þess
að fleiri hljómsveitir hafa þurft að kom-
ast að. I mínum augum er það ekki pönk
að hjakka í endalausum sólóum, vera
skítsama hvað meðspilarinn er að gera
vegna þess hvað niaður er upptekinn af
sjálfum sér og halda ekki takti. í
samræmi við allar þær ensku pönkhljóm-
sveitir sem þú nefnir, á pönk að vera
kraftmikil tónlist sem fær fólk til að
hreyfa sig, en ekki innhverft rugl.
Að lokum: mér er nákvæmlega sama
hvort fólk vinnur eða ekki, en hver hefur
meiri rétt til að kvarta, sá sem vinnur
fyrir skítakaupi eða sá sem vinnur ekki
fyrir neinu kaupi? Og hver í ósköpunum
er það sem setur pönkurunum þessa tvo
handónýtu úrslita-ókosti sem þú talar
um?
Bra