Tíminn - 27.02.1983, Side 27
SUNNUDAGUR 27. FEBRUAR 1983.
Si'lf'i
27
„Ég les allar kokkabækur
sem ég kemst í“
- Hver er þín óska ríkisstjórn?
„Það er sú stjórn sem þorir að koma
hreint fram, tala um hlutina umbúða-
laust og vinna markvisst að því að skapa
hér aftur gott þjóðfélag."
- Hverjum treystirðu best til þess?
„Þeim sem falla undir þessa skilgrein-
ingu, en það er margt sem verður að
koma í ljós í kosningabaráttunni sem er
framundan. Menn verða að fara að
koma til dyranna eins og þeir eru
klæddir. Sem sjálfstæðismaður vildi ég
gjarnan sjá Sjálfstæðisflokkinn í þeirri
stjórn, ég held að hann eigi fullt erindi
inn í hana, heill og óskiptur."
- Hver eru ykkar tómstundaáhuga-
mál?
„Ég hef mjög gaman af að lesa um
pólitík, aðallega alþjóðapólitík. Ég fer
líka svolítið í laxveiði, hef m.a. farið
undanfarin þrettán ár með Indriða G.
vestur í ísafjarðardjúp til að veiða lax og
sækja vestfirskan kraft. Mér finnst líka
mikil afþreying í því að lesa matar-
uppskriftir. í t.d. kvennablöðum og les
allar kokkabækur sem ég kemst í. Mér
finnst líka mjög gaman að kokka og geri
það um helgar ef tími vinnst til.
„Hann er frábær kokkur," segir Ás-
laug, „og eldar oftast handa mér kín-
verskan og ítalskan mat. En hann er hins
vegar ákaflega lítið fyrir það gefinn að
skúra gólf og ryksuga. Ég sé sem sagt um
það sem gera þarf innan dyra, en hann
sér um utanhússstörfin. Það álítur hann
jafna verkaskiptingu.“
- Ertu sammála hans skoðun?
„Ég álít eðlilegt að ég taki til hendinni
fyrst ég er heimavinnandi, í stað þess að
bíða eftir því að hann komi heim til að
gera húsverkin. En ef ég væri útivinnandi
yrði verkaskiptingin endurskoðuð."
„Nú, svo njótum við þess mjög að
vera með vinum okkar og ég hjóla líka
á sumrin, svona til að bæta heilsufarið,"
segir Jón Hákon. „Ég hef mikið yndi af
. því að fara í leikhús og á tónleika," segir
Áslaug, „og sækja listsýningar yfirleitt
en hef ekki gefið mér nógu mikinn tíma
til þess að undanförnu. Svo les ég mikið
alls kyns bækur, allt sem mér berst í
hendur. Ég hef hins vegar lítið gaman af
hannyrðum og sinni þeim lítið, en saum-
aði þó öskupoka fyrir börnin um
daginn,“ segir Áslaug sposk.
„Já, ráðherra og Tommi
og Jenni eru uppáhalds
sjónvarpsþættirnir“
- Horfir fyrrverandi sjónvarpsmaður-
inn ekki mikið á sjónvarp?
„Nei, ég horfi lítið á sjónvarp, maður
velur og hafnar. Þó horfi ég alltaf á
þættina „Já, ráðherra", sem sýndir eru
um þessar mundir. Þeir eru mjög
skemmtilegir, ég sé svo marga íslenska
ráðuneytisstjóra í þeim. Uppáhalds-
þættirnir mínir eru „Já, ráðherra" og
„Tommi og Jenni.“ En mér finnst eigin-
lega skemmtilegra að hlusta á góða plötu
eða lesa bók. Ég er líka mikil blaðaæta
og les mikið erlend tímarit og dagblöð
vegna þess að mér finnst erlendu fréttirn-
ar í íslensku blöðunum ekki nógu ítar-
legar. Auk þess skrifa ég að staðaldri í
The Financial Times í London um
íslensk efnahags- og stjórnmál. Ég hef
einnig skrifað í The Economist, The
Christian Science Monitor o.fl.“
- Eruði miklir ferðalangar?
„Við höfum ferðast talsvert", segir
Jón Hákon, „og farið allar götur austur
til Kína. En við eigum austantjaldslönd-
in eftir, mig langar til að sjá þau öll.
Síðan börnin fæddust höfum við alltaf
tekið þau með okkur, Áslaug Svava fór
ellefu mánaða gömul í sína fyrstu reisu,
en þá keyrðum við gegnum Evrópu.
Hún átti eins árs afmæli í Bonn fyrir
hádegi og í Brússel eftir hádegi - og fékk
tertu á báðum stöðum."
- Eruð þið hamingjusöm?
„Já, ég held að þegar á heildina er litið
séum við það,“ segir Jón Hákon, „ og
það er margt sem stuðlar að því. Við
erum bæði svo lánsöm að éiga foreldra á
lífi og við eigum góða vini og góð börn.
Það held ég að sé mikilvægast, miklu
meira virði en einhver veraldleg gæði."
„Ég tel okkur mjög hamingjusöm,"
segir Áslaug, við höfum líka þekkst svo
lengi og mótað smekk hvors annars. Við
höfum svipaðar skoðanir og áhugamál,
en það þýðir þó ekki að þetta sé eitthvert
lognmolluhjónaband. enda væri það
óeðlilegt."
- sbj
Vinnubíllinn frá MAZDA
með mörgu
möguleikana
E 1600 pallbíllinn frá MAZDA hefur
þegar sannað ágæti sitt við fjöl-
breyttar aðstæður í íslensku
atvinnulífi. Hann er frambyggður,
með 1 tonns burðarþoli, byggður á
sterkri grind og með tvöföldum
afturhjólum. Hann er óvenju
þægilegur í hleðslu og afhleðslu,
þar sem pallgólfið er alveg slétt og
án hjólskála og hleðsluhæðin er að-
eins 73 cm með skjólborðin felld
niður.
Örfáir bílar til afgreiðslu strax á sérstöku
afsláttarverði. Verð áður kr.UðöröOtJT
Verð nú kr. 169.000.
gengisskr. 16.2.'83
Góðir greiðsluskilmálar.
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Bilaleigan\f}
CAR RENTAL
ö 29090 SSSfrÍl3
REYXJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsimi: 82063
TIL FERMINGARGJAFA
Skrifborð, margar gerðir.
Bókahillur og skápar.
Steriohillur og skápar.
Stólar — Svefnbekkir — Kommóður
Húsgögn og
. f . Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi 86-900
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta raflögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja,
sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar._
samvirki =V
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44(5 66
GLUGGAR
0G HURÐIR
Vönduð vinna á hagstœðu verði.
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9. Hf.
S. 54595.