Tíminn - 31.03.1983, Side 6
FIMMTUDAGUR 31. MARS 1983
é
■ Hcr má sjá Margréli Þúrðardóttur mcð hálsmenið góða sem hún fékk frá
einum eldri ættingja sínum og hún getur sérstaklega um í viðtalinu.
■ Skrýðst fcrmingarkyrtlinum fyrir athöfnina
|3 % Tl HH
t'. u u\
■ Fermingarbörnin ásamt presti sínum.
„ÉG ÁLfT KRISTNA HtÚ SERSTAKLEGA
MIKILVÆGA FYRIR HVERN OG EINN”
— segir Margrét Þórdardóttir sem fermd var nú á pálmasunnudag
■ Nú um páskuna eru fermingar í
algleymingi og þau börn sem nú gangast
undir fermingu víða um land skipta
þúsundum. Okkur þótti því við hæfi að
ganga á fund ungrar stúlku sem fermd var
nú á pálmasunnudag og ræða lítillega við
hana um ferminguna og allt þaö sem
henni fylgir. Fyrir valinu varð Margrét
Þórðardóttir Selvogsgrunni 22, fædd 7/
11 1969.
Hvar fermdist þú Margrét?
„Ég var fermd í Laugarneskirkju af. sr.
Jóni Dalbú Hróbjartssyni."
Hvcrnig var undirbúningnum háttað?
„Við mættum einu sinni í viku niðri í
kirkju og presturinn hlýddi okkur yfir
það sem hann setti okkur fyrir. Hann
lagði höfuðáhersluna á trúarjátninguna
og þurftum við að kunna hana utan að.
Einnig lagði hann áherslu á að við kynnum
23.Davíðssálm og lærðum við hann líka
utan að. Að öðru leyti reyndum við að
meðtaka hinn kristilega boðskap eftir
föngum".
Hvað um gildi svona athafnar?
„Ég tel að kristin trú sé ákaflega mikil-
væg fyrir hvern og einn, enda búuni við
að hinni kristnu arfleifð frá fyrstu tíð í
þessu landi. Allt mitt fólk hefur gengist
undir það sama og ég í einlægri trú og af
góðum vilja og ég sá enga ástæðu til þess
að fara aðrar leiðir".
Finnst þér þú vera of ung til þess að
gangast undir athöfn af þessu txi?
„Það má e.t.v. segja að maður sé
aðeins of ungur. Ég hefði t.d. talið
eðlilegra að þetta ætti sér stað einhver-
tíma um 16 ára aldurinn, því ég álít að
þá sé minni hætta á að maður gleymi
mörgu af því sem maður hefur lagt á
minnið núna. Það má þó sjálfsagt deila
um þessi atriði. Þó álít ég að fyrirhöfnin
við undirbúningin sé full mikil fyrir
svona unga krakka. Það töluðu t.d.
margir krakkanna um að þetta væri
töluvert erfitt og mikil fyrirhöfn.
Hefur þú tekið þátt í einhverju kristi-
legu starfi áður?
„Já, þegar ég var yngri starfaði ég í
KFUK. Að sjálfsögðu bý ég að mörgu
því sem þar var gert. Þar var t.d. mikið
um bænalestur og söng og þar lærði ég
fyrst trúarjátninguna. Undirbúningurinn
undir ferminguna var því að mörgu leyti
léttari fyrir mig en annars hefði verið"
Hvað um gjafirnar?
„Jú, þetta hefur alltaf verið mikið,
atriði, einkum nú í seinni tíð. Ég held að
þær gjafir sem ég fékk séu nokkuð
dæmigerðar fyrir það sem gengur og
gerist nú í seinni tíð. Ég fékk t.d.
stereosamstæðu frá foreldrum mínum,
þá fékk ég ensk-íslenska orðabók, rit-
safn Jónasar Hallgrímssonar, tvo hringa,
tvær hálsfestar, svefnpoka og nokkuð
væna fjárupphæð. Ég held að fólk verði
bara ao gera sér grein fyrir aldarandan-
um eins og hann er þó auðvitað megi
finna að hlutunum eins og þeir eru.
Annars fékk ég eina gjöf sem mér fannst
mjög mikið til koma. Það var hálsfesti
sem ég fékk frá eldri konu sem er mér
nátengd, en það var fyrsti skartgripurinn
sem hún eignaðist og ég ber hér um
hálsinn eins og þú sérð. Þetta er gjöf sem
mér finnst mjög mikils virði, þó auðvitað
þyki mér vænt um allar hinar gjafirnar
líka“, sagði Margrét Þórðardóttir að
lokum.
ÞB
■ Til hamingju