Fréttablaðið - 10.02.2009, Side 2
2 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Lilja, leikurðu enn við hvurn
þinn fingur?
„Á hverjum degi, öll kvöld og allan
sólarhringinn ef út í það er farið.“
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikkona fagn-
ar 30 ára leikafmæli um þessar mundir.
LÖGREGLUMÁL Bráðabirgðaniður -
staða krufningar hefur ekki
varpað ljósi á dánarorsök konu
á fertugsaldri sem fannst látin
í dúfnakofa í Kapelluhrauni á
fimmtudag.
Lögregla ræðir nú við vitni
sem gætu varpað ljósi á ferðir
konunnar. Meðal annars hefur
verið rætt við aðila sem tengd-
ust hinni látnu og sambýlismanni
hennar og fólk sem þekkir til í
Kapelluhrauni. Ljóst er að sam-
býlismaður konunnar var í för
með henni á svæðinu þar sem hún
fannst síðan látin. Konan fór inn
um glugga á einum kofanna. Þar
fannst hún nær klæðlaus þegar
eigendur dúfnanna fóru til að
huga að þeim síðdegis á fimmtu-
dag.
Sambýlismaður konunnar
hefur verið færður í gæsluvarð-
hald, en enginn annar verið hand-
tekinn vegna málsins. - jss, kg
Látna konan í dúfnakofanum:
Rætt við vitni
STJÓRNMÁL Sturla Jónsson, sem
var áberandi í mótmælum vöru-
bílstjóra síðastliðið sumar, er
genginn til liðs við Frjálslynda
flokkinn.
„Í raun kom mér það á óvart
hvað þessi litli flokkur hefur
margt fram að færa og virðist
standa upp úr þegar kemur að
málefnum atvinnulífsins,“ segir
Sturla, sem hugði á framboð til
Alþingis á eigin vegum fyrir
skömmu og hafði tryggt sér
listabókstafinn A til verksins.
Sturla segir of snemmt að
segja til um hvort hann hyggi á
þingframboð fyrir flokkinn. „En
ef mönnum líst á það að maður
komi með þeim af fullum krafti
í það þá stendur maður alveg
galopinn fyrir því,“ segir hann.
- sh
Galopinn fyrir þingframboði:
Sturla Jónsson
til Frjálslyndra
ÞÝSKALAND, AP Greint var frá
því í Berlín í gær að hinn 37 ára
gamli Karl-Theodor zu Gutten-
berg, framkvæmdastjóri Kristi-
lega sósíalsambandsins (CSU),
muni taka við embætti efna-
hagsmálaráðherra í þýsku sam-
bandsríkisstjórninni af Michael
Glos.
Glos sagði um helgina að
hann vildi hætta. Afsögn hans
var óvænt, nú í miðri efnahags-
kreppunni og þegar aðeins um
hálft ár er til kosninga í landinu.
CSU er systurflokkur Kristi-
lega demókrataflokksins (CDU) í
Bæjaralandi, eiginlega sjálfstæð
Bæjaralandsdeild kristilegra. - aa
Stjórnmál í Þýskalandi:
Nýr ráðherra
efnahagsmála
MENNTAMÁL Katrín Jakobsdóttir
hefur skipað nýja fulltrúa í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
í stað þeirra sem vikið var úr
stjórninni.
Haraldur
Guðni Eiðsson
verður for-
maður stjórn-
arinnar frá og
með 9. febrúar
næstkomandi
og Auður Lilja
Erlingsdóttir
verður varafor-
maður. Þau eru
bæði nýir full-
trúar mennta-
málaráðherra í stjórninni.
Auk þeirra taka Finnur Frið-
riksson, sem einnig er fulltrúi
menntamálaráðherra, og Eyja
Margrét Brynjarsdóttir, sem er
fulltrúi fjármálaráðherra, sæti í
stjórninni. - gb
Lánasjóður námsmanna:
Nýir fulltrúar
skipaðir í stjórn
DÓMSMÁL „Ég varaði eindregið við þessu því þetta
var algerlega fyrirséð, en það var bara ekki tekið
mark á mér. Ég lít svo á að Alþingi hafi sett niður
við samþykkt þessara laga sem í fólst augljóst
stjórnarskrárbrot,“ segir Atli Gíslason, lögmaður og
þingmaður Vinstri grænna.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær
segir að lög um fjármálafyrirtæki, sem breytt var í
nóvember á síðasta ári, gangi gegn ákvæðum stjórn-
arskrár og að réttindum sem stjórnarskránni sé
ætlað að tryggja verði ekki breytt eða þau felld úr
gildi með almennri lagasetningu.
Héraðsdómur hafnaði því í gær að fresta máli
sem höfðað var gegn Glitni meðan á greiðslustöðvun
bankans stendur. Lög um fjármálafyrirtæki
frá því í nóvember kveða á um að ekki sé
heimilt að höfða eða halda áfram máli á hendur
fjármálafyrirtækjum sem veitt hafi verið heimild
til greiðslustöðvunar.
Hróbjartur Jónatansson, lögmaður stefnanda,
Sigurðar P. Haukssonar, á hendur gamla Glitni
segir ekki hægt að gera aðför að bönkunum meðan
á greiðslustöðvun stendur. „En fái þessi dómur að
standa geta fyrirtæki og einstaklingar höfðað
mál gegn gömlu bönkunum og fengið fram dóm.
Stjórnarskráin og Mannréttindasáttmáli Samein-
uðu þjóðanna segja til um að hver og einn eigi rétt
á að leita til óhlutdrægra dómstóla innan hæfilegs
tíma, og að banna það með þeim hætti sem gert var
í nóvember er auðvitað alveg út í hött. Það segir sig
sjálft að fjöldi einstaklinga og fyrirtækja, innlendra
sem erlendra, mun vilja láta reyna á ýmislegt sem
varðar viðskipti við þessa gömlu banka,“ segir
Hróbjartur Jónatansson. - kg
Héraðsdómur segir breytt lög um fjármálafyrirtæki ganga gegn stjórnarskrá:
Segir Alþingi hafa sett niður
ATLI GÍSLASONHRÓBJARTUR JÓNATANSSON
TRÚARBRÖGÐ Dalaí Lama, leiðtogi
Tíbeta og handhafi friðarverðlauna
Nóbels kemur hingað til lands í
júníbyrjun. Félagsskapurinn Dalaí
Lama á Íslandi hefur frá 2005 unnið
að því að fá hann í heimsókn.
„Þetta er um tíu manna hópur
sem kemur úr ýmsum áttum,“ segir
Þórhalla Björnsdóttir. Hún hefur
orð fyrir hópnum sem er skipað-
ur læknum, sálfræðingi, félags-
ráðgjöfum og mannfræðingi. „Allt
saman fólk sem finnst ástæða til að
standa í þessu.“
Meðan Dalaí Lama dvelst hér á
landi mun hann halda fyrirlestur í
Laugardalshöllinni þar sem hann
fjallar um lífsgildi, viðhorf og leiðir
til lífshamingju ásamt því að svara
fyrirspurnum.
Þórhalla segir ekkert ákveðið um
hvort Dalaí Lama, sem hefur í hálfa
öld búið í útlegð á Indlandi, hitti hér
íslenska ráðamenn.
„Eins og ástandið hefur verið hér
í stjórnmálum þá hefur bara ekki
gefist ráðrúm til að ræða það.“
Þórhalla er félagsráðgjafi sem
hefur í nokkur ár verið með annan
fótinn á Indlandi, þar sem hún
býr rétt hjá Dalaí Lama í þorpinu
McLeod Ganj í tæplega 2.000 metra
hæð í Himalajafjöllunum í norð-
vesturhluta Indlands.
„Hann er nágranni minn og ég
hef þekkt hann í langan tíma,“
segir Þórhalla, sem hefur lengi haft
áhuga á að fá þennan merka boð-
bera friðar og kærleika í heimsókn
til Íslands. - gb
Dalai Lama kemur til Íslands í byrjun júní og flytur fyrirlestur í Laugardalshöllinni:
Kemur í boði nágranna síns
DALAÍ LAMA Leiðtogi Tíbeta var í heim-
sókn í Rómarborg í gær þar sem hann
var gerður að heiðursborgara.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
IÐNAÐUR Forsvarsmenn fyrirtækis-
ins Strokks eru í startholunum
með verksmiðju sem skapa mundi
150 bein störf í fyrsta áfanga og
fleiri ef hún verður stækkuð. Þá
mundi fjöldi manns fá störf á
hönnunar- og byggingartíma. Ef
semst um orkukaup er hægt að
hefja hönnun þegar í stað og opna
verksmiðjuna árið 2012.
Undanfarna 18 mánuði hefur
verið skoðað að koma verksmiðj-
unni upp í Þorlákshöfn. Nú hafa
könnunarviðræður farið fram við
Þeistareyki ehf. og er þá horft til
Húsavíkur.
„Okkur var vel tekið og við
skynjum að það sé aukinn skiln-
ingur á því að hægt sé að fara
fleiri leiðir en álframleiðslu. Við
bjóðum upp á orkufrekan iðnað
í hátækni sem skapar græna
afurð, ekki ósvipað því sem er við
Krossanes á Akureyri nú. Ísland
þarf á svona verkefni að halda
til að auka fjölbreytni og bæta í
útflutning,“ segir Eyþór Arnalds,
framkvæmdastjóri Strokks.
Hann segir bæði Þorlákshöfn
og Húsavík koma til greina. Báðir
staðirnir séu nálægt orkusvæðum
og hafnirnar séu nægilega stórar
fyrir starfsemina.
„Aðalatriðið er að þessi starf-
semi komi til Íslands. Við erum
í hörkusamkeppni um hana við
önnur lönd, því þetta er senni-
lega eftirsóttasti iðnaður í heimi,“
segir Eyþór.
Franz Árnason, stjórnarfor-
maður Þeistareykja, segir við-
ræður á byrjunarstigi. Rætt hafi
verið við fjóra aðila og framhald
verði á þeim viðræðum. Hann
segir horft til þess að sá aðili sem
samið verði við komi að fjármögn-
un frekari rannsóknarborholna.
„Það er minn skilningur að
Alcoa hafi ekki vilja eða getu til
þess.“ Franz segir að reynt verði
að flýta viðræðum, ekki síst í ljósi
þess hve langt verkefni Strokks
er komið.
Strokkur var í samstarfi við
fyrirtækið Becromal, sem nýver-
ið var keypt af þýska fjölþjóða-
fyrirtækinu Epcos. Eyþór segir
Epcos hafa haft 200 milljarða í
árstekjur í fyrra og því sé fengur
af samstarfinu.
Framleiðsla
á sólarkísil er
mun umhverfis-
vænni en á áli.
Engu að síður
þarf að fara
fram umhverf-
ismat á verk-
smiðjunni.
Eyþór segir að
ef samningar
náist geti hönnunarvinna hafist
strax.
kolbeinn@frettabladid.is
Sólarkísilverksmiðja
verði opnuð árið 2012
Fyrirtækið Strokkur gæti opnað sólarkísilverksmiðju árið 2012 sem myndi
skapa störf fyrir 150 manns. Forsvarsmenn horfa til Húsavíkur eða Þorláks-
hafnar og eru í viðræðum um orkuöflun. Reynt verður að flýta viðræðum.
HÚSAVÍK Strokkur hefur átt í viðræðum við Þeistareyki um orkukaup fyrir sólarkísil-
verksmiðju sem gæti skapað 150 störf. Náist samningar rís verksmiðjan á Húsavík.
Fyrirtækið hefur einnig átt í viðræðum við bæjarstjórn Þorlákshafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EYÞÓR ARNALDS
SJÁVARÚTVEGUR Fiskimjölsverk-
smiðjur HB Granda hafa tekið
á móti rúmlega 5.000 tonnum af
gulldeplu það sem af er febrú-
armánuði. Þetta kemur fram á
heimasíðu HB Granda.
Gulldeplan heldur sig mest á
100 til 200 metra dýpi á nóttunni
en á daginn syndir hún niður á
rúmlega 500 metra dýpi.
Á heimasíðu HB Granda kemur
fram að gulldeplan, sem kallast
laksesild á Norðurlandatungu-
málunum, sé erfiðari í vinnslu en
annar uppsjávarfiskur, og stafi
það aðallega af því hve smár fisk-
urinn sé og hve mikill vökvi ber-
ist með honum við löndun.
Gulldepla nær um það bil sjö
sentimetra stærð. - kg
Fiskimjölsverksmiðjur:
5.000 tonn af
gulldeplu
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS