Fréttablaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 16
„Við sinnum læknaritun í fjar- vinnslu fyrir fólk í heilbrigðis- geiranum og erum sérhæfð í því. Þetta er fyrsta íslenska fyrirtæk- ið sem hefur þessa sérþekkingu og vinnur á svona breiðum grunni,“ segir Rannveig Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Ritara. Hugmyndin kviknaði hjá Rann- veigu fyrir mörgum árum en fór í vinnslu árið 2005. „Þá fór ég á námskeið hjá Impru sem heitir Brautargengi. Ég hafði unnið í ein tíu ár sem læknaritari á Landspít- alanum og langaði að læra eitthvað viðskiptatengt. Mér þótti þessi hugmynd heillandi og taldi hana geta verið til góðs í heilbrigðis- geiranum. Rétti tíminn til að koma þessu á flot var hins vegar ekki fyrr en svolítið seinna,“ segir hún en unnið var að tilraunaverkefni árið 2007 og var fyrirtækið stofn- að formlega í janúar 2008. Unnið er inn í aðgangsstýrð kerfi fyrir bæði stofur, fyrirtæki og einkaaðila á heilbrigðissviði. „Þetta er í raun sambærilegt við starf læknaritara inni á stofu. Fjar- vinnsla þýðir að við erum eins og herbergi annars staðar í bænum og vinnum eftir öruggum tengileiðum inn í aðgangsstýrð kerfi,“ útskýrir Rannveig og viðurkennir að mikil hagræðing felist í þessu fyrir fyr- irtæki. „Markmiðið er að veita fag- fólki tíma til að sinna kjarnastarf- semi og nýta til þess sérfræðinga í ritun án þess að leggja í kostnað fyrir skrifstofurými, tæki og laun ásamt því að bjóða upp á jafna þjónustu allt árið. “ Ritara hóf starfsemina með Íslenskri myndgreiningu. „Við höfum auk þess að vinna með fyrirtækjum hjálpað fólki í kennslu og rannsóknum. Allir okkar starfs- menn eru löggiltir læknaritarar en við erum líka með ýmsa aðra menntun á bakinu sem er annað hvort heilbrigðistengd eða í tengsl- um við málvísindi.“ Samkvæmt Axel Sigurðssyni, hjartalækni hjá Hjartamiðstöðinni, hefur tekist mjög vel til í samvinnu þeirra og Ritara. Hann segir að í daglegu starfi Hjartamiðstöðvar- innar sé tölvutækni nýtt til hins ýtrasta sem er mikill tímasparnað- ur og jafnframt nauðsyn til að upp- lýsingar nýtist best í þjónustu við sjúklinga og nefnir að Ritara veiti einnig ráðgjöf auk þess að sinna sjúkraskrám. Fræðast má nánar um starfsemi Ritara á vefslóðinni www.ritara.is. hrefna@frettabladid.is Læknaritun í fjarvinnslu Hjá Ritara ehf. starfar fagfólk við ritun upplýsinga í fjarvinnslu og er aðaláhersla á samstarf við heil- brigðisstarfsfólk og fólk í rannsóknarvinnu. Með aðstoð Ritara fær fagfólk tíma til að sinna kjarnastarfi. Hjá Ritara starfa fjórir læknaritarar með margvíslega reynslu og kunnáttu. Hér sjást Ellen María Þórólfsdóttir, Þórunn Kristjóns- dóttir og Rannveig Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri. Á myndina vantar Unni Gísladóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MÁLSTOFA um að lifa með banvænan sjúkdóm verður hald- in á vegum Rannsóknastofnunar HÍ og LSH í hjúkrunarfræðum hinn 16. febrúar. Málstofan verður haldin í Eirbergi, Eiríksgötu 34, í stofu C-201 á 2. hæð, frá klukkan 12.10 til 12.50. Allir velkomnir. STA FGA NGA ÁHR IFAR ÍK L EIÐ TIL L ÍKAM SRÆ KTA R Stafgöngunámskeið hefjast 17. febrúar n.k. stafgönguþjálfi, 616 85 95. stafgönguþjálfi, 694 35 71. Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30. Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30. SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á: Næstu fyrirlestrar og námskeið 10. feb. Mataræði fyrr og nú - Næring í víðari skilningi Haraldur Magnússon osteópati 12. feb. Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennari 17. feb. Ævintýralíf Benedikta Jónsdóttir heilsuráðgjafi 19. feb. Goodheart hlátur- markþjálfun Kristján Helgason 24. feb. Erum við andleg og líkamleg eiturefna- úrgangs-ruslaskrímsli! Edda Björgvins leikkona 25. feb. Spa dekur Kolbrún Björnsdóttir grasalæknirwww.madurlifandi.is Alla föstudaga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.