Fréttablaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 26
22 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
SENDU SMS ESL DVD Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU IGOR Á DVD, TÖLVULEIKIR,
AÐRAR DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA.
HANN ER MEÐ RISAVAXIÐ VANDAMÁL
MEÐÍSLENSKUTALI
9. HVERVINNUR!
LENDIR Í ELKO5. FEBRÚAR
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
EL
KO
Li
nd
um
–
Sk
óg
ar
lin
d 2
. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
14
9 k
r/s
ke
yt
ið.
„Læknarnir sögðu að það væru svona 5 prósenta líkur á að ég
gæti skokkað aftur. Ég er að gera gott betur en það núna,“ sagði
handboltakappinn Sigfús Sigurðsson sem hefur fengið sig góðan
af þrálátum hnémeiðslum og var í eldlínunni með Valsmönnum á
sunnudag er liðið komst í úrslit bikarkeppninnar.
Sigfús lagðist undir hnífinn í lok október og var hnéð
svo illa farið á Sigfúsi þá að læknar óttuðust að ferli hans
væri lokið. Var meira að segja talið ólíklegt að Sigfús
gæti hreinlega skokkað aftur eins og hann sagði sjálfur.
„Ég er bara helvíti góður en það vantar eðlilega
aðeins upp á líkamlega formið. Hnéð er bara í fínu
standi og kallinn er bara að verða eins og nýr. Nú þarf
bara að taka af sér 10-15 kíló og þá er ég flottur. Ég gef
mér einn og hálfan mánuð í það,“ sagði Sigfús sem
eðlilega er afar kátur með að hafa fengið bót meina
sinna.
„Ég tók smá egó-fíling á þetta og sleppti
bara sjúkraþjálfun og öllu og gerði
þetta bara sjálfur. Einhverjir segja
það kannski óskynsamlegt en það var það greinilega ekki fyrst þetta
er að virka svona vel,“ sagði Sigfús og hló við.
Sigfús hefur verið í vandræðum með hnén á sér í um fjög-
ur ár og því er það eðlilega mikill léttir að finna ekki lengur til
og geta beitt sér eins og hann vill.
„Þetta er í fyrsta skipti í næstum því fimm ár sem ég er
alveg verkjalaus í handbolta og það er náttúrlega bara
snilld,“ sagði Sigfús en maðurinn sem skar hann upp er
læknir handboltalandsliðsins, Brynjólfur Jónsson. Hann
hefur hjálpað mörgum íþróttamanninum í vanda og
ekki ósjaldan sem íslenskir íþróttamenn krefjast þess
að koma heim svo þeir geti látið Brynjólf skera sig.
„Það eru fáir sem slá honum við með hnífinn í hend-
inni,“ sagði Sigfús augljóslega ánægður með lækninn.
Sigfús er farinn að æfa af fullum krafti og er þess
utan að æfa aukalega til að komast fyrr í form. „Þegar
maður er líka kominn á þennan aldur þarf maður að
hætta hálftíma fyrr og fara hálftíma síðar. Eða mæta klukkutíma
fyrr og fara á sama tíma,“ sagði Sigfús kíminn.
SIGFÚS SIGURÐSSON: KOMINN Á FULLT EFTIR LANGÞRÁÐ OG ERFIÐ HNÉMEIÐSLI SEM ÓGNUÐU FERLI HANS
Flottur þegar ég hef tekið af mér 10-15 kíló
> Baldur yfirgefur Bryne
Mývetningurinn Baldur Sigurðsson hefur náð samkomulagi
við forráðamenn norska liðsins Bryne um að hann yfirgefi
herbúðir félagsins. Fótbolti.net greindi frá
þessu í gær. Fjárhagsstaða Bryne er afar
slæm og félagið hefur verið að leita allra
leiða til að draga úr kostnaði. Baldur þarf
ekki að óttast um að komast ekki að
hjá félagi hér heima kjósi hann svo því
KR, FH og Valur hafa öll áhuga á að
fá Baldur sem og hans gamla félag,
Keflavík.
Iceland Express-deild karla:
Grindavík-KR 91-80 (50-44)
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 20, Þor-
leifur Ólafsson 19, Nick Bradford 17, Helgi Jónas
Guðfinnsson 16, Páll Kristinsson 12, Guðlaugur
Eyjólfsson 3, Arnar Freyr Jónsson 2, Brenton
Birmingham 2
Stig KR: Jón Arnór Stefánsson 21, Jason Dour-
isseau 19, Jakob Örn Sigurðarson 15, Fannar
Ólafsson 6, Skarphéðinn Ingason 5, Pálmi
Sigurgeirsson 5, Darri Hilmarsson 4, Helgi Már
Magnússon 2
Tindastóll-ÍR 117-118
Stig Tindastóls: Ísak Einarsson 29, Darrell Flake
22, Friðrik Hreinsson 21, Svavar Birgisson 21,
Helgi Margeirsson 15, Helgi Viggósson 8, Óli
Reynisson 1.
Stig ÍR: Sveinbjörn Claessen 32, Eiríkur Önundar-
son 26, Hreggviður Magnússon 24, Ómar
Sævarsson 19, Steinar Arason 8, Ólafur Ingvason
4, Ólafur Þórisson 3, Bjarni Valgeirsson 2.
FSu-Keflavík 68-81
Stig FSu: Vésteinn Sveinsson 14, Sævar Sigur-
mundsson 14, Tyler Dunaway 12, Árni Ragnars-
son 12, Christopher Caird 8, Hilmar Guðjónsson
6, Alexander Stewart 2.
Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 29,
Gunnar Einarsson 16, Sigurður Þorsteinsson 10,
Sverrir Þór Sverrisson 7, Jón Nordal Hafsteinsson
6, Þröstur Jóhannsson 5, Axel Margeirsson 4,
Gunnar Stefánsson 3.
STAÐAN:
KR 17 16 1 1626-1250 32
Grindavík 17 15 2 1676-1372 30
Keflavík 17 11 6 1464-1300 22
Snæfell 17 11 6 1411-1237 22
Njarðvík 16 8 8 1294-1365 16
Stjarnan 17 8 9 1452-1447 16
ÍR 17 7 10 1414-1426 14
Breiðablik 17 7 10 1327-1477 14
Tindastóll 16 7 9 1306-1361 14
FSu 17 6 11 1382-1419 12
Þór Ak. 17 4 13 1369-1525 8
Skallagrímur 17 1 16 1055-1597 2
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Chelsea kom knatt-
spyrnuheiminum á óvart í gær
þegar félagið rak Brasilíumann-
inn Luiz Felipe Scolari úr starfi
knattspyrnustjóra eftir aðeins
sjö mánaða setu. Scolari hættir
strax.
Í yfirlýsingu frá Chelsea segir
að félagið hafi gripið til þessara
ráðstafana svo það geti áfram
keppt um bikarana sem það á
enn möguleika á að vinna. Chel-
sea segir Scolari hafa gert margt
jákvætt fyrir félagið og því sé
sorglegt að félagið þurfi að slíta
samstarfinu svo snemma. Úrslit
og frammistaða liðsins hafi aftur
á móti gert það að verkum að
ákveðið var að grípa til þessara
ráðstafana.
Hinn sextugi Scolari byrjaði
afar vel með Chelsea-liðið en
hefur gefið verulega eftir á síð-
ustu vikum. Alls stýrði Scolari
liðinu í 36 leikjum. 20 unnust, 5
töpuðust og 11 enduðu með jafn-
tefli.
Þónokkrir þjálfarar hafa þegar
verið orðaðir við starfið. Sky-
fréttastofan segist hafa heim-
ildir fyrir því að búið sé að hafa
samband við Guus Hiddink og
Avram Grant sem Chelsea rak
í lok síðasta tímabils. Jafnvel er
talið líklegt að báðir verði ráðnir.
Hiddink sem stjóri og Grant sem
yfirmaður knattspyrnumála.
Einnig hafa nöfn Gianfranco
Zola og Roberto Di Matteo verið
nefnd og þá ekki síst af stuðn-
ingsmönnum félagsins sem vilja
fá mann sem elskar félagið til að
stýra því. - hbg
Örvænting að grípa um sig í herbúðum Chelsea:
Grant eða Hiddink
næstir hjá Roman?
TÍMI TIL AÐ FARA Scolari var frekar
óvænt rekinn í gær. Ray Wilkins stýrir
liðinu þar til nýr stjóri verður ráðinn.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Portsmouth ákvað í gær
að reka knattspyrnustjórann
Tony Adams úr starfi.
Ákvörðunin kemur ekkert
sérstaklega á óvart enda hefur
hvorki gengið né rekið hjá félag-
inu síðan Adams tók við stöðunni
af Harry Redknapp. Liðið hefur
aðeins unnið tvo af þeim sextán
leikjum sem Adams hefur stýrt
liðinu í deildinni og þar af tapað
sjö af síðustu átta.
Tony Adams sagðist reyndar
vera hissa á þessari ákvörðun en
Portsmouth segir ákvörðunina
tekna vegna úrslita liðsins.
Unglingaþjálfarinn Paul Hart
mun stýra liðinu á meðan félagið
leitar að arftaka Adams.
Avram Grant, fyrrum stjóri
Chelsea, er talinn líklegastur til
að hreppa hnossið. Einnig hafa
nöfn Alans Curbishley og Graeme
Souness verið nefnd. - hbg
Breytingar hjá Portsmouth:
Adams rekinn
TONY ADAMS Gekk ekkert að stýra
Portsmouth. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Grindavík var fyrst
allra liða til að sigra KR í Ice-
land Express-deild karla í ár, 91-
80, í Grindavík í gær. Greinilegt
var frá fyrstu mínútu að Grind-
víkingar væru mættir til að selja
sig dýrt. Þeir börðust af krafti um
hvert frákast og alla lausa bolta á
sama tíma og KR-ingar virkuðu
undarlega rólegir.
Grindavík var með undirtökin
í leiknum nánast frá byrjun þótt
aldrei hafi munaði miklu á lið-
unum í fyrri hálfeik en Grinda-
vík var sex stigum yfir í leikhlé,
50-44. Jafnræði var með liðun-
um í þriðja leikhluta þar til Fan-
nar Ólafsson fékk sína fjórðu villu
seint í fjórðungnum og Grindvík-
ingar skoruðu sjö stig á innan við
mínútu og lögðu grunninn að þrett-
án stiga forystu að loknum þremur
leikhlutum.
KR náði að minnka muninn í
fjögur stig í fjórða leikhluta þegar
liðið skoraði ellefu stig í röð en nær
komust KR-ingar ekki og Grinda-
vík gerði út um leikinn þegar Þor-
leifur Ólafsson tróð boltanum í
körfuna þegar 40 sekúndur voru
til leiksloka.
Páll Axel Vilbergsson Grindvík-
ingur var kátur í leikslok. „Það
hefði verið nokkuð skemmtilegt
að vera bara með eitt tap á bak-
inu og þetta myndi snúast um inn-
byrðis viðureignir en við klúðruð-
um Stjörnuleiknum þannig að nú
verður KR að tapa öðrum leik, en
mótið er ekki búið og það er ennþá
líf í þessu. Það getur allt gerst,“
sagði Páll.
„Við vorum allt öðruvísi
stemmdir en við höfum verið í síð-
ustu leikjum. Menn voru ekki yfir-
spenntir þótt þetta væri stórleik-
ur í sjónvarpinu. Spennustigið var
rétt og við byrjuðum af krafti og
það gaf tóninn. Við börðumst um
alla lausa bolta án þess að hafa
eitthvað sérstaklega talað um það.
Þetta bara gerðist í dag,“ sagði Páll
en Grindvíkingar hirtu 44 fráköst
gegn 25 KR-inga. „Frá sálfræði-
legu sjónarmiði var þetta sterkur
sigur,“ sagði Páll Axel.
„Greddan hjá þeim var miklu
meiri. Þeir hafa beðið eftir þess-
um leik frá bikarleiknum á meðan
við vorum bara mættir í enn einn
deildarleikinn. Við náum aldrei
að gíra okkur upp fyrir þennan
leik eins og um úrslitaleik væri
að ræða. Það vantaði í dag,“ sagði
Benedikt Guðmundsson, þjálfari
KR, í leikslok sem grætur ekki að
sigurgangan hafi stöðvast.
„Þetta auðveldar mér að koma
mönnum í gang aftur. Út frá þjálf-
aralegu sjónarmiði er þetta eng-
inn heimsendir. Við höfum aldrei
tapað okkur í einhverri umræðu
um einhver met og að fara taplaus-
ir í gegnum tímabilið. Við bara
stefnum á þá titla sem eru í boði.
Ég veit ekki um neitt lið í neinni
deild í heiminum sem fer taplaust
í gegnum deildarkeppni.“ - gmi
Grindvíkingar voru miklu graðari
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, sagði að baráttuglaðir Grindvíkingar hefðu einfaldlega viljað sigur-
inn meira í gær þegar Grindavík varð fyrsta liðið til þess að leggja hið firnasterka lið KR að velli, 91-80.
BARÁTTA Það var ekkert gefið eftir í Röstinni í gær. Hér reynir Nick Bradford að skora
fram hjá Jason Dourisseau. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL