Fréttablaðið - 10.02.2009, Blaðsíða 4
4 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
17°
5°
4°
5°
2°
5°
6°
5°
1°
2°
22°
3°
11°
25°
-9°
5°
14°
0°
Á MORGUN
3-8 m/s
FIMMTUDAGUR
8-15 m/s suðvestan til,
annars mun hægari.
-5
-7
-6
-4
-6
-4
-6
-1
-6
-5
-13
5
2
2
3
4
8
3
5
5
5
5
-5 -6
-6
-5
-6
-1
-5
-5
2 0
HLÝNAR EFTIR
MIÐJA VIKUNA
Á fi mmtudaginn
nálgast landið lægð
úr suðvestri. Henni
fylgir vaxandi vindur
af suðaustri með
sæmilegum hlý-
indum. Síðdegis á
fi mmtudaginn verður
að líkindum kominn
tveggja til þriggja stiga
hiti sunnan og vestan
til með snjómuggu
eða slyddu. Síðan
ganga hlýindin yfi r
landið og á föstudag
verður víðast orðið
frostlaust á láglendi.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
GENGIÐ 09.02.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
179,5992
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
165,88 166,68
165,88 166,68
144,50 145,30
19,387 19,501
16,604 16,702
13,824 13,904
1,2189 1,2261
167,17 168,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Fyrir mistök birtist grein eftir fjóra
bæjarfulltrúa Á-lista á Álftanesi ekki á
Vísi fyrir helgi. Bæjarfulltrúarnir rituðu
grein í Fréttablaðið þar sem vísað var
í lengri grein á Vísi um deilur vegna
Miðskóga 8 á Álftanesi. Úr þessu
hefur verið bætt og má lesa greinina
á Vísi í dag. Beðist er velvirðingar á
þessu.
Mishermt var í frétt blaðsins í gær að
framkvæmdir væru hafnar í Vatns-
endahlíð í Kópavogi. Svo er ekki.
LEIÐRÉTTING
SKIPULAGSMÁL Stjórn Faxaflóahafna
ætla að efna til hugmyndasam-
keppni um skipulag gömlu hafn-
arinnar í Reykjavík. Allt verður
undir í samkeppninni og munu hug-
myndir nýtast við gerð aðalskipu-
lags Reykjavíkur, segir Júlíus Vífill
Ingvarsson, formaður stjórnar
Faxaflóahafna.
Samkeppnin verður tvískipt, ann-
ars vegar fyrir arkitekta og skipu-
lagsfræðinga, en hins vegar fyrir
almenning, segir Júlíus.
Kostnaður við keppnina verð-
ur 35 til 40 milljónir króna, þar af
munu tólf milljónir renna í verðlaun
fyrir sigurvegara keppninnar. Skila
á tillögum í ágúst næstkomandi og
standa vonir til þess að úrslitin
verði ljós í september.
„Þetta er einmitt rétti tíminn til
að undirbúa sig og finna nýjar hug-
myndir,“ segir Júlíus Vífill. Hann
segir heppilegt að fara af stað með
slíka samkeppni í niðursveiflu, enda
líklegt að nóg sé af verkefnalitlum
arkitektum sem vilji taka þátt.
Uppbygging í tónlistar- og ráð-
stefnuhúsreitnum verður væntan-
lega hægari en til stóð, segir Júlí-
us. Svæðið er innan þess svæðis
sem hugmyndasamkeppnin nær til
og fólki frjálst að setja fram hug-
myndir um reitinn.
Júlíus segir enga ákvörðun hafa
verið tekna um breytingar á skipu-
lagi reitsins, en líklega sé útilokað
að Landsbankinn muni byggja þar
höfuðstöðvar, eins og til stóð. - bj
Faxaflóahafnir kynna hugmyndasamkeppni um gömlu höfnina í Reykjavík:
Rétti tíminn fyrir samkeppni
BREYTINGAR Júlíus Vífill Ingvarsson
kynnti áformaða hugmyndasamkeppni
Faxaflóahafna, í samvinnu við Reykjavík-
urborg og Arkitektafélag Íslands, í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Styrkir fyrir heilsurækt
Samtök heilsuræktarstöðva og ASÍ,
hafa gert samning um að styrkja ein-
staklinga í atvinnuleit til heilsuræktar.
Samkvæmt honum styrkja félög
innan ASÍ atvinnulausa félagsmenn
um minnst 2.000 krónur á mánuði
og stöðvarnar veita viðskiptavinum
minnst helmingsafslátt af kortum.
ATVINNULEYSI
EFNAHAGSMÁL „Í ljósi þess sem
gerst hefur er ég gáttaður á því
að Davíð Oddsson hafi ekki vikið
úr starfi fyrir löngu,“ segir Cars-
ten Valgreen, ráðgjafi og fyrrver-
andi aðalhagfræðingur Danske
Bank. „Hann er greinilega ekki
að hugsa um hag þjóðarinnar.“
Valgreen segir sorglegt að á
tímum sem þessum hafi valda-
mesta fólk landsins misst sig í
skaðlegt pólitískt argaþras.
„Ég er almennt þeirrar skoðun-
ar að stjórnmálamenn eigi ekki
að reka seðlabanka, og á í raun
bæði við um Davíð og sitjandi
forsætisráðherra.“ Nauðsynlega
þurfi að ráða til skamms tíma
alls óháðan stjóra í Seðlabankann
erlendis frá. - sh
Carsten Valgreen:
Gáttaður á að
Davíð víki ekki
EFNAHAGSMÁL „Ástandið er gríðar-
lega erfitt og því er mjög skaðlegt
að forsætisráðherrann og seðla-
bankastjórarnir standi í átökum
sem þessum,“ segir dr. Daniel
Levin, alþjóðlegur ráðgjafi um
efnahagskrepp-
ur, sem verið
hefur íslenskum
stjórnvöldum til
ráðgjafar á síð-
ustu misserum.
Átökin sendi
skelfileg skila-
boð út fyrir
landsteinana
og hljóti að
hafa áhrif á samskipti Íslands
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og
væntanlegar samningaviðræður
við Breta og fleiri þjóðir.
„Það sem þarf að gerast er að
helstu stjórnmálaleiðtogar setjist
niður með seðlabankastjórninni
og finni lausn á vandanum.“ Hann
áréttar þó að auðvitað þurfi for-
ystu í Seðlabankanum sem ríkis-
stjórnin getur unnið með. - sh
Daniel Levin:
Mjög skaðlegt
EFNAHAGSMÁL Lars Christensen,
yfirmaður greiningardeildar
Danske Bank, segir það „neyðar-
legt“ af Davíð Oddssyni að neita
að víkja úr stóli seðlabankastjóra.
„Auðvitað á ríkisstjórn ekki
að skipta sér af málefnum Seðla-
bankans, en í ljósi þeirra mistaka
sem gerð hafa verið, hefði banka-
stjórnin þegar átt að vera búin að
segja af sér,“ segir Christensen
í samtali við fréttastofuna
Bloomberg.
Í sömu frétt segir Thom-
as Haugaard, hagfræðingur
Svenska Handelsbanken „mjög
skynsamlegt að hreinsa út úr
kerfinu“. - sh
Lars Christensen:
Neyðarlegt að
Davíð þráist við
EFNAHAGSMÁL Robert Wade, hag-
fræðiprófessor við London School
of Economics, segir bráðnauð-
synlegt að skipta um seðlabanka-
stjóra hið fyrsta til að senda þau
skilaboð til umheimsins að Íslandi
sé alvara með því að ætla að koma
sér aftur á réttan kjöl.
Í augum þeirra sem standi utan
landsteinanna sé Davíð Oddsson
sá einstaklingur sem langsamlega
mesta ábyrgð beri á ástandinu á
Íslandi í dag. Hann hafi hannað
kerfið sem nú hafi fallið og hafi
strax eftir hrunið „gerst sekur
um dómgreindarleysi sem væri
hlægilegt ef það væri ekki svo
alvarlegt“. - sh
Robert Wade:
Davíð ber
mesta ábyrgð
EFNAHAGSMÁL Forsætisráðuneyt-
inu hafa borist tæknilegar ábend-
ingar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um um frumvarp um breytingar á
yfirstjórn Seðlabankans, sem ligg-
ur nú fyrir viðskiptanefnd Alþing-
is. Ekki liggur fyrir hvers kyns
athugasemdirnar eru.
Í yfirlýsingu frá AGS kemur
fram að athugasemdirnar hafi
verið gerðar í kjölfar beiðni frá
ráðuneytinu. Slíkar athugasemdir
séu alsiða í samstarfi sjóðsins við
ríkisstjórnir. Birgir Ármannsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
spurðist fyrir um athugasemdirn-
ar á þingi í gær. Hann á von á að fá
frekari skýringar á athugasemd-
unum á fundi viðskiptanefndar í
dag.
Davíð Oddsson ákvað í fyrra-
dag að segja ekki af sér sem seðla-
bankastjóri, og nær öruggt er að
hann muni því sitja áfram ásamt
Eiríki Guðnasyni þar til lögin um
breytingarnar taka gildi.
Frumvarpið verður tekið til
umræðu í viðskiptanefnd í dag. Til
stóð að efnahags- og skattanefnd
fengi frumvarpið til umfjöllunar
en að kröfu Framsóknarflokksins
fór það í viðskiptanefndina.
Álfheiður Ingadóttir, formaður
viðskiptanefndar, segir að reynt
verði að vinna málið eins hratt og
vel og mögulegt er, en treystir sér
ekki til að segja til um hvenær það
gæti orðið að lögum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins standa vonir stjórnarliða
til þess að frumvarpið gæti verið
afgreitt sem lög frá Alþingi jafnvel
strax um miðja næstu viku.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sem ver ríkisstjórn Samfylkingar
og Vinstri grænna falli, segir stöð-
una sem upp er komin í samskipt-
um ríkisstjórnarinnar og Seðla-
bankans mjög óþægilega, ekki síst
vegna óvissunnar sem það skapar
um framtíð bankans. Hann vill
hins vegar ekki tjá sig frekar um
málið fyrr en hann hefur fundað
með fulltrúum AGS í dag.
stigur@frettabladid.is
AGS benti á brotalamir
í seðlabankafrumvarpi
Stjórnarliðar vona að hægt verði að afgreiða frumvarpið um yfirstjórn Seðla-
bankans um miðja næstu viku. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur
beðið Eirík Guðnason um að íhuga betur að segja af sér sem seðlabankastjóri.
DANIEL LEVIN
Ingimundur Friðriksson, sem fór að
tilmælum Jóhönnu Sigurðardóttur
um að segja sig úr stjórn Seðla-
bankans, telur Jóhönnu hafa vegið
að æru sinni með bréfi hennar til
hans. Þetta segir hann í svarbréfi til
hennar sem gert var opinbert í gær.
Segist hann hafa sinnt starfi sínu
af fagmennsku, ábyrgð og sam-
viskusemi og að „dylgjur um annað
[séu] í huga [hans] ósanngjarnar og
órökstuddar“.
Í svarbréfi Eiríks Guðnasonar, sem
ekki hefur sagt af sér, segir Eiríkur
meðal annars: „Í sannleika sagt væri
það mér mikill léttir að vera laus
frá umræddu embætti.“ Hins vegar
sé honum „mjög óljúft að biðjast
lausnar“ á þeirri forsendu sem gefin
er í bréfi Jóhönnu, það er að ekki
hafi verið staðið faglega að verki í
bankanum.
Hvorki Ingimundur né Eiríkur
segjast hafa áhuga á viðræðum við
stjórnvöld um starfslokagreiðslur.
Jóhanna hefur sent þeim Eiríki
og Ingimundi svarbréf. Þar segist
hún ekki hafa vegið að starfsheiðri
þeirra eða æru, og áréttar að ekki sé
efast um faglega hæfni þeirra eða
þekkingu á sviði peningamála. Hún
þakkar Ingimundi fyrir að verða við
beiðni sinni, en biður Eirík að hug-
leiða á ný hvort hann geti fallist á að
biðjast lausnar. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort Davíð Oddsson
fær sambærilegt svarbréf við harð-
orðu bréfi sínu frá því í fyrradag.
BIÐUR EIRÍK AÐ HUGSA SIG BETUR UM
INGIMUNDUR FRIÐRIKSSON EIRÍKUR GUÐNASON
Áskriftarverð hækkar
Áskriftarverð sportstöðva Stöðvar 2
hækkar um 500 krónur hinn 5. mars
næstkomandi. Verð Stöðvar 2 Sport
fer í 5.890 krónur og Stöðvar 2 Sport
2 í 5.790 krónur á mánuði.
SJÓNVARP