Fréttablaðið - 10.02.2009, Page 6
6 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Einnota bleiur á Íslandi eru allar innfluttar. Vegna hruns íslensku krónunnar hefur
bleiuverð hækkað mikið síðustu mánuðina. Bónus og Krónan eru þó með bleiur sem kosta
u.þ.b. helmingi minna en „vinsæl“ merki. Erik Eriksson læknir hefur pælt í bleiumark-
aðinum. „Ég á sjálfur fjögurra mánaða son og við hjónin höfum gert óformlega gæða- og
verðkönnun,“ skrifar hann. „Við höfum komist að því að Euroshopper-bleiurnar sem fást
í Bónus eru að meðaltali 50% ódýrari en sambærilegar bleiur (Pampers, Friskies, Hugg-
ies o.s.frv.), 15 kr./stk. á móti 30-35 kr./stk. Jafnframt eru þær rakadrægari.
Þetta er einnig reynsla annarra foreldra sem við þekkjum. Orðið á götunni er
að bleiuútbrot komi síður með þessum bleium. Sel það þó ekki dýrara en ég
keypti. Tel VIP-bleiurnar í Krónunni ekki með í þessari úttekt þar sem gæði
þeirra eru mjög léleg.“
Vinnufélagi minn mælir aftur á móti með VIP-
bleiunum og því legg ég til að fólk athugi
málið sjálft. Það munar um minna, börn
nota um 5.000 bleiur fyrstu æviár sín svo
ef maður sparar 15 kr. með hverri eru það
samtals 75.000 kr. Ekki amaleg innborgun
á sparnaðarreikning barnsins það!
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Neytendur: Um gæði bleia
Sparið með ódýrari bleium
ALÞINGI Jón Magnússon alþingis-
maður hefur sagt sig úr þing-
flokki Frjálslynda flokksins.
Hann er um leið genginn úr
flokknum.
Hann upp-
lýsti um þessa
ákvörðun við
upphaf þing-
fundar í gær
og jafnframt
að hann ætli
að starfa utan
þingflokka.
Jón varð
þingflokks-
formaður Frjálslynda flokksins
í haust.
Kristinn H. Gunnarsson var
varaformaður og tekur við
skyldum formanns þar til annað
verður ákveðið.
- bþs
Jón Magnússon þingmaður:
Hættur í Frjáls-
lynda flokknum
SEÐLABANKINN Davíð Oddsson, for-
maður bankastjórnar Seðlabank-
ans, var í London á fundum með
fulltrúum helstu viðskiptabanka
Seðlabankans
erlendis þegar
Jóhanna Sig-
urðardóttir for-
sætisráðherra
sendi honum
bréf og óskaði
eftir afsögn
hans.
Þetta kemur
fram í svari
Seðlabankans við fyrirspurn
Fréttablaðsins. Þar segir að í
ferðinni, sem stóð frá 31. jan-
úar til 5. febrúar, hafi Davíð átt
fjölmarga fundi með fulltrúum
bankanna. Um árlega fundi sé að
ræða, sem ákveðnir hafi verið
með löngum fyrirvara. - bj
Seðlabankastjóri í London:
Hitti fulltrúa
viðskiptabanka
DAVÍÐ ODDSSON
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
Bifreiðaeigendur athugið!
Tímareimaskipti.
Bremsuviðgerðir.
Kúpplingsviðgerðir.
Smurþjónusta.
Tímapantanir í síma
5355826
JÓN MAGNÚSSON
ALÞINGI Jaridí jaridí jarí, voru
orðin (ef orð má kalla) sem Siv
Friðleifsdóttir, þingflokksformað-
ur Framsóknarflokksins, valdi til
að lýsa ræðu Steingríms J. Sigfús-
sonar, sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra, í umræðum um hval-
veiðar á Alþingi í gær.
Eftir að Jón Gunnarsson, Sjálf-
stæðisflokki, hafði rakið aðdrag-
anda síðari tíma hvalveiða Íslend-
inga og hvatt ráðherra til að hrófla
ekki við fárra daga gamalli reglu-
gerð Einars K. Guðfinnssonar um
atvinnuhvalveiðar fór Steingrímur
yfir sín sjónarmið.
Gagnrýndi hann Einar fyrir
ákvörðunina enda styddist hún
ekki við góða stjórnsýsluhætti.
Kvaðst Steingrímur vera að viða að
sér sjónarmiðum úr ýmsum áttum
og gaf til kynna að von gæti verið á
efnislegri afstöðu undir vikulok.
Þingmenn fjögurra flokka lýstu
sig hlynnta hvalveiðum.
Einar K. tók vitaskuld undir með
Jóni flokksbróður sínum og sagði
ákvörðunina frá í lok síðasta mán-
aðar fullkomlega eðlilega.
Framsóknarmennirnir Siv Frið-
leifsdóttir og Magnús Stefánsson
sögðu sinn flokk vilja sjálfbæra
nýtingu á auðlindunum og raun-
ar benti Magnús Steingrími á að
teldi hann vafa leika á lagagildi
reglugerðar Einars, þar sem rík-
isstjórnin var þá starfsstjórn, gæti
hann einfaldlega gefið hana út á
ný, óbreytta.
Kristinn H. Gunnarsson, Frjáls-
lynda flokknum, sagði reglugerð-
ina í samræmi við vilja meirihluta
Alþingis og að ráðherra væri að
reyna að eyðileggja málið. Flokks-
bróðir hans, Grétar Mar Jónsson,
sagði hvalveiðar geta skilað upp
undir fimm milljarða árstekj-
um og allt að 300 störfum. Hann
vildi reyndar líka veiða hnúfubak.
Grétar kvaðst svo þeirrar skoðun-
ar að bjóða ætti hvalveiðiheimildir
upp. Sigurður Pétursson, Samfylk-
ingunni, var sammála Grétari þar
og hvatti Steingrím til að heimila í
það minnsta hrefnuveiðar.
Ekki voru allir jafn hrifnir.
Núverandi og fyrrverandi
umhverfisráðherrar fundu málinu
allt til foráttu. Kolbrún Halldórs-
dóttir sagðist þeirrar skoðunar að
eitthvað allt annað en hagsmuna-
mat hefði búið að baki ákvörðun
Einars og upplýsti að hún hefði
heyrt af fólki sem afpantaði 800
þúsund króna ferð til Íslands í síð-
ustu viku vegna reglugerðarinnar.
Lengra gekk Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir sem sagði að líklega hefði
tilgangur Einars verið sá einn að
koma nýrri ríkisstjórn í bobba með
pólitískum klókindum.
bjorn@frettabladid.is
Hvattur til að halda
hvalveiðikúrsi Einars
Sjávarútvegsráðherra vonast til að geta tekið afstöðu til nýlegrar hvalveiðireglu-
gerðar fljótlega. Þingmenn fjögurra flokka hvetja hann til að hrófla ekki við
ákvörðun forvera hans. Siv Friðleifsdóttir kallaði ræðu ráðherra jaridí jaridí jarí.
JÓN GUNNARSSON Vill að hvalveiðar verði stundaðar af myndarskap á Íslandsmiðum
enda liggi til þess allar forsendur, hvort heldur er þinglegar, efnahagslegar eða fiski-
fræðilegar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ALÞINGI Skattar verða ekki hækk-
aðir í tíð núverandi ríkisstjórnar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra fullyrti það í svari við
fyrirspurn Sigurðar Kára Kristj-
ánssonar, Sjálfstæðisflokki, á
Alþingi í gær.
„En að fara að halda því fram
hér að það eigi að fara að hækka
hér skatta núna, kannski á næstu
mánuðum eða svo, á fólkið í land-
inu, það er bara fjarstæða,“ sagði
Jóhanna. Bætti hún því við að
vera kynni að í aðgerðaáætlun til
næstu fjögurra ára kynni að koma
til skattahækkana en þær myndu
þá beinast að þeim sem hærri
hefðu tekjurnar. - bþs
Jóhanna Sigurðardóttir:
Ætlar ekki að
hækka skatta
ÍSRAEL, AP Bilið milli þeirra Tzipi
Livni og Benjamins Netanyahu
hefur minnkað síðustu dagana
fyrir þingkosningar í Ísrael, sem
haldnar verða í dag. Skoðana-
kannanir hafa lengi bent til þess
að harðlínumaðurinn Netanyahu
færi með sigur af hólmi, en Livni
hefur verið að sækja í sig veðrið á
síðustu metrunum.
Livni er utanríkisráðherra og
tók í haust við formennsku í Kad-
ima-flokknum af Ehud Olmert
forsætisráðherra, sem sagði af
sér vegna spillngarmála. Netany-
ahu var forsætisráðherra í nokkur
ár á síðasta áratug og hefur ekki
sýnt mikinn áhuga á að semja við
Palestínumenn um frið.
Hvorugum flokknum er þó spáð
meira en 30 þingsætum á 120
manna þingi, þannig að sigur-
vegarinn þarf að leita til annarra
flokka um myndun samsteypu-
stjórnar.
Þar sem hægri flokkum hefur
almennt vegnað vel í skoðanakönn-
unum undanfarið virðist sem Net-
anyahu muni eiga mun auðveld-
ara með stjórnarmyndun en Livni,
jafnvel þótt flokkur hennar fengi
fleiri atkvæði en Likud.
Allt stefnir í að þjóðernisflokk-
urinn Yisrael Beiteinu verði þriðji
stærsti flokkurinn. Leiðtogi hans
er Avigdor Lieberman, sem meðal
annars hefur barist fyrir því að
Palestínumenn, búsettir í Ísrael,
verði að lýsa yfir hollustu sinni
við ríkið, að öðrum kosti missi þeir
ríkisborgararétt. - gb
Mikil spenna fyrir þingkosningarnar sem haldnar verða í Ísrael í dag :
Sigurlíkur Netanyahus góðar
KOSNINGASTEMNING Kosningavegg-
spjald Netanyahus blasir víða við þessa
dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJÖRKASSINN
Ert þú búin(n) að lesa bréf
Davíðs Oddssonar til Jóhönnu
Sigurðardóttur?
Já 48,2%
Nei 51,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú farið í leikhús í vetur?
Segðu skoðun þína á Vísir.is