Fréttablaðið - 10.02.2009, Side 8
8 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Ríkisstjórnin,
aðilar vinnumarkaðarins og full-
trúi sveitarfélaganna áttu sam-
ráðsfund í Ráðherrabústaðnum í
gærmorgun.
Fundurinn lofaði góðu, að mati
Gylfa Arnbjörnssonar, forseta
ASÍ. Ríkisstjórnin gerði grein
fyrir sinni verkefnaáætlun.
„Fundurinn bar keim af sam-
ráði. Það fellur vel að okkar kröf-
um að eiga samræður til að finna
leiðir út úr vandanum,“ segir
Gylfi. „Menn sammæltust um það
að eiga sem mest samskipti og
samræður. Það er ýmislegt sem
við höfum kallað eftir og viljum
fá að hafa áhrif á.“ - ghs
Forseti ASÍ:
Segir fundinn
hafa lofað góðu
VINNUMARKAÐUR Karlar úti á landi
eru með næstum helmingi hærri
heildarlaun en konurnar, eða 38
prósent, samkvæmt niðurstöðum
nýlegrar rannsóknar á kynbundn-
um launamun. Á höfuðborgar-
svæðinu er þessi munur rúm tíu
prósent.
„Þessi munur
er meiri en
nokkurn grun-
aði og vekur
ugg í brjósti,
þar sem þessi
mikli launa-
munur er meðal
þeirra starfs-
stétta sem krefj-
ast menntunar,“
segir Maríanna Traustadóttir,
jafnréttisfulltrúi ASÍ, meðal ann-
ars í Fréttabréfi ASÍ. „Þessar nið-
urstöður eru ekki hvetjandi fyrir
ungar menntaðar konur að leita
starfa og starfsframa á lands-
byggðinni.“
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður Afls starfsgreinafélags,
segir tölurnar „sláandi“ og skýr-
ingarnar séu „væntanlega marg-
þættar“. Líklegast þykir henni
að karlar á landsbyggðinni vinni
lengri vinnutíma en konurnar,
þeir fái frekar yfirborganir og séu
duglegri að sækja sér þær.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýna líka að leiðréttur kynbund-
inn launamunur er 19,5 prósent
á landinu. Þetta þýðir að karlar
eru að jafnaði með 19,5 prósent
hærri heildarlaun en konur þegar
tekið er tillit til vinnutíma, starfs,
menntunar, aldurs, atvinnugeira,
ábyrgðar og þess hvort fólk er
sjálfstætt starfandi eða launa-
fólk.
Á landsvísu er kynbundinn
launamunur 22,4 prósent í einka-
geiranum en í opinbera geiranum
mældist kynbundinn launamun-
ur aðeins meðal starfsmanna með
framhaldsskólamenntun og er þá
rúm 28 prósent. Maríanna Frið-
jónsdóttir, jafnréttisfulltrúi ASÍ,
segir í grein á vef ASÍ að ástandið
sé skárra í opinbera geiranum.
Halldór Grönvold, aðstoðar-
framkvæmdastjóri ASÍ, segir að
miðað við þessa könnun virðist
launaákvarðanir úti á landi mis-
muna konum frekar en körlum „en
hvaða skýringar eru á því höfum
við ekki farið ofan í enn þá. Það
hlýtur að vera úrlausnarefni í
framhaldinu“.
ghs@frettabladid.is
Karlar miklu
launahærri
Karlar á landsbyggðinni fá miklu hærri heildarlaun
en konurnar. Formaður Afls starfsgreinafélags segir
tölurnar „sláandi“. Vinnutíminn líklega skýringin.
HJÁLPARSTARF Árlegt söfnunar-
átak ABC barnahjálpar, Börn
hjálpa börnum er hafið í ellefta
sinn. Söfnunin stendur yfir til
28. febrúar og er unnin í sam-
vinnu við grunnskóla landsins.
Næstu vikur munu grunnskóla-
börn ganga með bauka í hús og
safna fyrir máltíðum fyrir ABC
börnin.
ABC barnahjálp sér nú um
13.000 fátækum börnum í
Asíu og Afríku fyrir menntun.
Undanfarna mánuði hefur gengi
krónunnar verið það óhagstætt
að ekki hefur reynst unnt að sjá
börnum í sumum skólunum fyrir
skólamáltíðum. Með söfnuninni
verður reynt að koma skóla-
máltíðum á ný í alla skóla ABC.
Reikingur söfnunarinnar er 15-
14-110000, kt. 690688-1589. - kg
Börn hjálpa börnum:
Safnað fyrir
skólamáltíðum
Pantaðu ráðgjöf á landsbanki.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000.
F J Á R M Á L H E I M I L I S I N S
STÖÐUMAT | HEIMILISBÓKHALD | RÁÐGJÖF
• Greiðslujöfnun
• Lengja lánstíma
• Skuldbreyta vanskilum
• Fresta afborgunum vegna
sölutregðu
• Fresta greiðslu afborgana
og vaxta
VIÐ FÖRUM MEÐ ÞÉR YFIR MÖGULEG ÚRRÆÐI
HJÖRDÍS ÞÓRA
SIGURÞÓRSDÓTTIR
DÓMSMÁL Karlmaður situr nú
í gæsluvarðhaldi og einangrun
vegna rannsóknar á heiftarlegri
líkamsárás í Mosfellsbæ. Tvær
tennur voru meðal annars brotnar
í fórnarlambinu með hnúajárni.
Maðurinn sem fyrir árásinni
varð kallaði lögreglu til. Hann
reyndist vera illa farinn í andliti,
báðar framtennur brotnar að hluta
og, með umtalsverðar bólgur víða.
Jafnframt voru áverkar á hnakka
hans og hann kvartaði undan
svima.
Maðurinn sagði tvo menn hafa
bankað upp á hjá sér. Er hann hafi
opnað hurðina hafi annar byrjað
að kýla hann með hnúajárni. Hafi
barsmíðarnar byrjað í anddyri
hússins og haldið áfram inn í eld-
hús og inn í stofu þar sem hann
hafi lagst í gólfið. Þá hafi verið
sparkað í hann þar sem hann lá.
Maðurinn kvaðst þekkja annan
árásarmanninn, þann sem nú situr
inni. Hinn árásarmanninn hafi
fórnarlambið ekki þekkt en gat
gefið nokkuð nákvæma lýsingu
á honum. Þá gat hann lýst bíln-
um sem mennirnir voru á og gaf
einnig upp númerið á honum.
Maðurinn, sem situr inni, var
í gær dæmdur í Hæstarétti til að
sæta gæsluvarðhaldi og einangrun
þar til á þriðjudag.
- jss
Árásarmaður í einangrun og gæsluvarðhaldi:
Braut framtennur
með hnúajárni
DÓMSMÁL Nokkrar ábendingar
hafa þegar borist sérstökum sak-
sóknara sem rannsaka á mál tengd
bankahruninu. Hann hefur tekið
formlega til starfa og tekur meðal
annars við ábendingum um grun-
samlegt athæfi á vefsíðu sinni.
„Við ætlum að sinna öllum þeim
ábendingum sem okkur berast,“
segir Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari. Hann kynnti
starfsemi embættisins fyrir fjöl-
miðlum á skrifstofu þess í gær.
Embættið mun einnig taka við
málum frá Fjármálaeftirlitinu og
skattrannsóknarstjóra, en ekki
er enn komið í ljós hvert umfang
verksins verður, segir Ólafur.
Hann segir starfsemina nú í
nokkurs konar undanfarafasa, en
svo muni starfsmenn demba sér í
einstök mál.
Þrír starfsmenn hafa verið ráðn-
ir, auk Ólafs. Einn kemur frá efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra
og tveir frá lögreglu höfuðborgar-
svæðisins. Þá hefur verið samið
við Sigurð Tómas Magnússon, áður
settan ríkissaksóknara í Baugs-
málinu, um að vera lögfræðilegur
ráðgjafi embættisins.
Ólafur hefur birt upplýsingar
um hlutabréfaeign og tengsl við
fjármálafyrirtæki á vefsíðu emb-
ættisins, serstakursaksoknari.is.
Ólafur segir að hans hlutabréfa-
eign hafi einskorðast við hluta-
bréf í Eimskipafélaginu, virði ein-
hverra tuga þúsunda króna, sem
hann hafi fengið í skírnargjöf. - bj
Sérstakur saksóknari sem rannsaka á mál tengd bankahruninu tekinn til starfa:
Ábendingar teknar að berast
SAKSÓKNARI Ólafur Þ. Hauksson (til
hægri) kynnti starfsemi embættis
sérstaks saksóknara ásamt öðrum
starfsmönnum embættisins í gær.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R
FISKVINNSLA Karlar á landsbyggðinni fá næstum helmingi hærri heildarlaun en
konurnar, samkvæmt nýlegri rannsókn á kynbundnum launamun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEISTU SVARIÐ?
1. Hver verður í forystu
ráðgjafahóps um breytingar á
stjórnarskránni, sem Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
hefur sett á fót?
2. Hvað heitir bandaríska kon-
an sem varð fyrst kvenna til að
ljúka sundi yfir Atlantshafið?
3. Hvers vegna voru tveir menn
hætt komnir í lest togarans
Ingunnar AK í Akraneshöfn á
sunnudag?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26