Fréttablaðið - 10.02.2009, Side 10

Fréttablaðið - 10.02.2009, Side 10
10 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR UTANRÍKISMÁL Norðurlönd ættu að taka ábyrgð á loftrýmiseftir- liti og loftrýmisgæslu yfir Íslandi. Þetta er meðal þess sem lagt er til í skýrslu sem unnin var fyrir nor- rænu ráðherranefndina og afhent var í Osló í gær. Það er Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varn- armálaráðherra Noregs, sem fór fyrir smíði skýrslunnar. Honum var falið það verkefni af norrænu utanríkisráðherrunum í júní á síð- asta ári að vinna óháða skýrslu um norræna samvinnu í utanríkis- og öryggismálum næstu tíu til fimmt- án árin. Það gerði hann í samstarfi við sérfræðinga frá öllum löndunum fimm. Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra tók við skýrslunni fyrir hönd norrænu ráðherranefndar- innar í gær, en Ísland gegnir nú formennskunni í henni. Við það tækifæri sagði Össur, að hann teldi hugmyndina um norræna loftrýmisgæslu á Íslandi athyglis- verða og hún yrði tekin til nánari umræðu hérlendis. Á kynningarfundinum í norska utanríkisráðuneytinu í Osló í gær sagði Stoltenberg um tillöguna að „það sem gerist á og í kringum Ísland er mikilvægt, ekki bara fyrir Ísland heldur okkur öll“. Í skýrslunni segir um þetta efni: „Í fyrsta áfanga gætu norrænu ríkin sent lið til herstöðvarinnar í Kefla- vík og tekið þátt í hinum reglulegu æfingum „Norðurvíkingur“ sem íslensk stjórnvöld skipuleggja. Í næsta áfanga gætu þau tekið yfir hluta af loftrýmisgæslunni sem NATO hefur skipulagt. Norræn samvinna um loftrýmisgæslu gæti þannig orðið fyrirmynd samstarfs milli aðildarríkja NATO og sam- starfslanda í verkefninu „Samstarf í þágu friðar“ (e. Partnership for Peace).“ Alls eru í skýrslunni kynntar þrettán tillögur að efldu samstarfi Norðurlandanna á sviði utanríkis- og öryggismála. Auk loftrýmisgæsl- unnar snúa þær að friðargæslu, öryggi á norðurslóðum (ekki síst hinni væntanlegu siglingaleið yfir Norður-Íshaf), vörnum gegn tölvu- árásum, samnýtingu sendiráða, nor- rænni samstöðuskyldu og fleiru. Almennt tóku ráðherrarnir fimm undir tillögur Stoltenbergs, sem verða útfærðar nánar og ræddar á næsta fundi ráðherranna, sem haldinn verður í Reykjavík í vor. audunn@frettabladid.is Norðurlöndin tryggi öryggi lofthelginnar Samkvæmt tillögum að efldu samstarfi Norðurlandanna á sviði utanríkis- og öryggismála, sem lagðar voru fram í gær, er mælt með að norrænu ríkin fjögur sem ráða yfir flugher axli ábyrgð á eftirliti og gæslu í íslensku lofthelginni. NORRÆNAR LOFTVARNIR Norskar orrustuþotur á Keflavíkurflugvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON THORVALD STOLTENBERG LÖGGÆSLA „Það ástand sem ríkti í Reykjavík þá daga sem svokölluð „búsáhaldabylting“ stóð yfir var grafalvarlegt.“ Svo segir í tilkynningu frá Landssambandi lögreglumanna vegna þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað varðandi innflutn- ing á bifreiðum frá lögreglunni í Danmörku. Landssamband lög- reglumanna segir það enn frem- ur miður að fjölmiðlar þessa lands skuli tortryggja aðgerðir ríkislögreglustjórans sem miðað hafi að því að útvega lögreglu- mönnum við störf viðeigandi hlífðarbúnað þá ströngu daga sem mótmælin áttu sér stað. Þær bifreiðir sem hafi átt að fá lán- aðar hingað til lands séu hluti af staðalbúnaði lögreglu í hvaða landi sem er. - jss Landssamband lögreglu: Óeirðabílarnir hluti af staðal- búnaði lögreglu FÓLK „Þetta kemur kannski ekki beint á óvart því keppnin er þess eðlis að allir ættu að eiga jafnan séns. En dómurunum virðist lít- ast vel á hugmyndirnar okkar og það er ánægjulegt,“ segir Arnar Lárusson, liðsstjóri íslensks liðs sem komið er áfram í aðra umferð í Fly Your Ideas-keppninni sem flugvélaframleiðandinn Airbus efndi til í október. Markmið keppn- innar er að hvetja til nýrra hug- mynda sem geta mótað framtíð flug- iðnaðarins og eflt vistvirkni hans. 2.350 nemendur skráðu sig til leiks í keppninni og af þeim komust 86 lið í aðra umferð. Auk íslenska liðsins komst einungis lið frá Dan- mörku áfram af Norðurlandaþjóð- unum. Hugmynd þeirra Arnars, Andrésar Gunnarssonar og Ásgeirs Bjarnasonar er að setja þunnar sólarorkusellur á flugvélar sem framleiða rafmagn fyrir farþega- rýmið. Þannig sé hægt að minnka kolefnisútblástur flugvélanna, auk þess sem í þessu felist mikill sparn- aður fyrir flugfélögin. Strákarnir stunda allir nám í verkfræði við Háskóla Íslands. Vinskapur þeirra nær raunar lengra aftur, því þeir voru allir saman í bekk í Mennta- skólanum í Reykjavík á sínum tíma. Arnar segir þægilegt að vinna með félögum sínum. „Við þekkjumst það vel að við sleppum við að þurfa að testa einhverja punkta hver á öðrum,“ segir Arnar og hlær. Vinningsliðið í keppninni hlýtur 30.000 evrur í verðlaun. - kg Íslenskt lið gerir það gott í alþjóðlegri flugiðnaðarkeppni: Komnir áfram í aðra umferð ÞAULKUNNUGIR Þeir Arnar Freyr Lárus- son, Andrés Gunnarsson og Ásgeir Bjarnason heimsóttu Icelandair um síð- ustu helgi þar sem þessi mynd var tekin. SRÍ LANKA, AP Kona grunuð um að vera úr röðum uppreisnarhreyf- ingar Tamílatígra drap í gær 20 stjórnarhermenn og átta óbreytta borgara í sjálfsvígssprengju- tilræði á eftirlitsstöð þar sem hermenn voru önnum kafnir við að stýra straumi flóttafólks frá átakasvæðinu á norðurhluta eyj- arinnar. Þar reynir fjölmennt lið stjórnarhersins nú að flæma síð- ustu sveitir uppreisnarhers Tam- ílatígra frá vígjum sínum. Þetta var fyrsta sjálfsmorðs- sprengjutilræðið í meira en mánuð á Srí Lanka. Það þykir vís- bending um að nú ætli skærulið- ar Tamílatígra í auknum mæli að beita hryðjuverkum í baráttu sinni, eftir því sem hallar undan fæti hjá þeim hernaðarlega. - aa Borgarastríðið á Srí Lanka: Mannskætt sjálfsvígstilræði ALÞINGI Endurskoðun á skipan bankaráða ríkisbankanna þriggja er eitt af því sem ný ríkisstjórn ætlar að taka til skoðunar. Jóhanna Sig- urðardóttir for- sætisráðherra upplýsti það í svari við fyrir- spurn Geirs H. Haarde, Sjálf- stæðisflokki, á Alþingi í gær. Geir kvaðst telja að vel hefði tekist til við skipan í ráðin og undraðist að nýja ríkisstjórnin ætlaði að „hreinsa út“ þar líkt og víða ann- ars staðar. Jóhanna mótmælti því að um hreinsanir væri að ræða; ríkis- stjórnin viðhefði aðeins eðlilega stjórnsýslu. - bþs Jóhanna Sigurðardóttir: Stokkað upp í bankaráðunum BRETLAND Jeremy Clarkson, umsjónarmaður BBC-bílaþátt- arins vinsæla, Top Gear, sem sýndur hefur verið á Skjáeinum, hefur beðist afsökunar á að kalla Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, „eineygðan, skosk- an fávita“ í viðtali. Clarkson lét ummælin falla í viðtali við ástr- alskan blaðamann, þar sem efna- hagskreppan var til umræðu. BBC hefur fallist á afsökunar- beiðni Clarkson og hyggst ekki aðhafast frekar í málinu. Talsmenn Downingstrætis 10 segja að Clarkson hafi rétt á að túlka efnahagskreppuna á sinn eigin hátt. - kg Clarkson um Gordon Brown: Eineygður, skoskur fáviti FINNLAND Alexander Stubb, utan- ríkisráðherra Finnlands, telur tillögur Thorvalds Stoltenberg um varnarsamstarf Norðurland- anna áhugaverðar en inn á milli séu vafalaust óraunhæfar tillög- ur því að þjóðirnar hafi viljað fá djarfar hugmyndir. Hann segir að finnsk stjórnvöld geti velt þessum tillögum fyrir sér fram í apríl þegar norrænu utanríkis- ráðherrarnir hittast aftur til að ræða þær. Stubb segir að tillögurnar gangi ekki út á varnarbanda- lag norrænna þjóða. „Þetta er ekki hægt að kalla varnarbanda- lag. Finnland verður áfram óháð land sem ekki tilheyrir neinu varnarbandalagi,“ segir hann í viðtali við Helsingin Sanomat. - ghs Utanríkisráðherra Finnlands: Áhugaverðar tillögur JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR MÚMÍUFUNDUR Í EGYPTALANDI Steinkista einnar af þrjátíu múmíum, sem fundust nýverið í 2.600 ára gam- alli gröf í Egyptalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.