Fréttablaðið - 10.02.2009, Qupperneq 12
12 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 113 Velta: 341 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
322 +1,43% 952 +2,68%
MESTA HÆKKUN
STRAUM.-BURÐA. 14,43%
BAKKAVÖR 1,49%
MESTA LÆKKUN
MAREL FOOD SYST. 2,64%
ÖSSUR 0,62%
FØROYA BANKI 0,43%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,89 +0,00% ... Atlantic
Airways 166,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 565,00 +0,00% ...
Bakkavör 2,04 +1,49% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 117,00 -0,43% ... Icelandair Group
13,40 +0,00% ... Marel Food Systems 59,00 -2,64% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 2,22 +14,43% ... Össur 96,70 -0,62%
Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands
dróst saman um sem nemur 65,2 millj-
arða í janúar, eða um 15,2 prósent. Um
áramót stóð gjaldeyrisforðinn í 429,4
milljörðum en var í lok janúar kominn
í 364,2 milljarða króna.
Þá kemur fram í tölum Seðlabank-
ans að á næstu 30 dögum séu tæplega
89,4 milljarðar króna af forðanum,
gjaldeyrislán, verðbréf og innstæður,
á gjalddaga. Séu þær greiðslur dregn-
ar frá gjaldeyrisforðanum um áramót
stendur hann í tæpum 275 milljörðum.
Upphæðin sem er á gjalddaga nemur
rétt tæpum fjórðungi gjaldeyrisforð-
ans.
Komið hefur fram gagnrýni frá hag-
fræðingum sem fjallað hafa um efna-
hagsmál á að gjaldeyrisforði Seðla-
bankans kunni að vera ofmetinn vegna
þess hve stór hluti hans hefur verið á
gjalddaga á hverjum tíma. Því nýtist
ekki nema hluti hans sem neyðarforði,
komi til þess að grípa þurfi til forð-
ans. Um áramót voru rúm 30 prósent á
gjalddaga á næstu 30 dögum.
Á vef Seðlabankans kemur fram að
erlend verðbréf, sem nema rúmum
helmingi af gjaldeyrisforðanum, hafi
lækkað um 28,6 milljarða króna í jan-
úar og seðlar og innstæður hafi lækk-
að um 37 milljarða. - óká
KULDALEGUR SEÐLABANKI Seðlabanki
Íslands hefur birt upplýsingar um
stöðu gjaldeyrisvaraforðans um síðustu
mánaðamót. Hann hefur heldur dregist
saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fjórðungur forðans nálgast gjalddaga
Danske Bank, umsvifamesta fjár-
málafyrirtæki Danaveldis, hefur
þurft að leita á náðir danska ríkis-
ins eftir fjármagni í kjölfar gríð-
arlegs samdráttar á síðasta ári. Þá
hefur verið gefið út að 350 starfs-
mönnum bankans verði sagt upp.
Hagnaður bankans nam einum
milljarði danskra króna á síðasta
ári. Það jafngildir tæpum tuttugu
milljörðum íslenskra, og er langt
undir væntingum. Í hittifyrra var
hagnaðurinn fimmtánfalt meiri
og því um verulegan samdrátt að
ræða.
Mestu munar um afskriftir lána
og niðurfærslu á viðskiptavild
National Irish Bank, sem er í eigu
Danske Bank.
Forsvarsmenn Danske Bank
hafa tilkynnt að þeir ætli að leita
í björgunarsjóð hins opinbera og
óski eftir 26 milljörðum danskra
króna til að mæta samdrættinum.
„Við erum að fara í gegnum
verstu þrengingar síðan í síðustu
stóru kreppu,“ segir Peter Strarup
bankastjóri í samtali við Jyllands-
Posten. - jab
STÚRINN BANKASTJÓRI Umsvifamesti
banki Danmerkur ætlar að sækja sér aur
í sjóði hins opinbera. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mikill samdráttur
hjá Danske Bank
Kreppa hefur numið land í Lett-
landi. Hagvöxtur þar dróst saman
um 10,5 prósent á milli ára á fjórða
ársfjórðungi í fyrra, samkvæmt
bráðabirgðatölum hagstofu lands-
ins, sem birtar voru í gær. Þetta
kemur til viðbótar 4,6 prósenta
samdrætti á þriðja fjórðungi í
fyrra.
Samkvæmt svokölluðum þumal-
fingursreglum er kreppa runnin
upp þegar hagkerfið dregst saman
tvo ársfjórðunga í röð.
Þetta er mesti samdráttur sem
mældist innan aðildarríkja Evr-
ópusambandsins á fjórðungnum.
Ekki batnar það þegar rýnt er í
verðbólguna, sem mældist 17,9
prósent þar í landi í maí í fyrra.
Hærri tölur sjást ekki innan aðild-
arríkja ESB, samkvæmt Associat-
ed Press-fréttastofunni. - jab
Kreppa í Lettlandi
Japanski bílaframleiðandinn
Nissan ætlar að grípa til viðamik-
illa aðgerða til að mæta snörpum
samdrætti.
Á meðal aðgerðanna er opinber
aðstoð frá Japan og víðar, launa-
lækkun á línuna og flutningur á
framleiðslu bíla út fyrir landstein-
ana. Þá verður tuttugu þúsund
starfsmönnum sagt upp störfum.
Uppsagnahrinan hefst við upp-
haf nýs rekstrarárs í marslok og
stendur fram á næsta ár. Þetta
jafngildir 8,5 prósentum af öllu
starfsfólki Nissan.
Búist er við að tap fyrirtækisins
á árinu nemi 265 milljörðum jena,
jafnvirði 327 milljarða króna.
Sala á nýjum bílum undir merkj-
um Nissan dróst saman um 18,6
prósent á milli ára í desember
í fyrra auk þess sem styrking
jensins hefur komið sér illa fyrir
útflutningsfyrirtæki á borð við
Nissan. - jab
Nissan boðar
harðar aðgerðir
Heildarviðskipti með hlutabréf
námu þremur milljörðum króna
í Kauphöllinni í janúar, eða 149
milljónum á dag að meðaltali. Á
sama tíma í fyrra var heildarvelt-
an rúmir 199 milljarðar króna.
Í lok janúar var markaðsvirði
skráðra fyrirtækja 207 milljarðar
króna. Úrvalsvísitalan (OMXI6)
stóð í 904,38 stigum í lok síð-
asta mánaðar og heildarvísitalan
(OMXIPI) stóð í 519,30.
Þetta kemur fram í janúaryfir-
liti Nasdaq OMX Iceland og Nas-
daq OMX Nordic sem gefið var út
í gær.
„Mest viðskipti voru með Marel
í síðastliðnum mánuði, eða rúmur
1,1 milljarður í 179 viðskipt-
um. Næst á eftir var Straumur-
Burðarás með rúmar 960 milljón-
ir í 779 viðskiptum og síðan námu
viðskipti með Össur rúmum 800
milljónum í 163 viðskiptum,“ segir
í yfirliti Kauphallarinnar. Við-
skipti með þrjú veltumestu félög-
in námu rétt um 89 prósentum af
heildarviðskiptum á Aðalmarkaði
NASDAQ OMX Iceland.
Þá kemur fram að Saga Capi-
tal hafi verið með mestu hlutdeild
kauphallaraðila á hlutabréfamark-
aði í janúar, eða 24,7 prósent. Næst
komu Nýi Kaupþing banki með
16,9 prósenta hlut, Nýi Glitnir
banki 16,7 prósent og Nýi Lands-
bankinn (NBI) með 15 prósent.
Heildarviðskipti með skuldabréf
í janúar voru hins vegar þau mestu
í einum mánuði frá bankahrun-
inu í október. „Viðskiptin námu
alls 195 milljörðum. Veltumestu
flokkarnir voru RIKB 10 1210 (30
milljarðar) og HFF 150224 (23
milljarðar). Markaðsvirði skráðra
bréfa nam 1.690 milljörðum í lok
janúarmánaðar.“
Með mesta hlutdeild kauphall-
araðila á skuldabréfamarkaði var
Nýi Glitnir með 22,1 prósents hlut.
Á eftir fylgdu Straumur-Burðarás,
MP Banki og Nýja Kaupþing.
Helst er það svo að frétta úr
samtölum norrænu kauphallar-
samstæðunnar NASDAQ OMX
Nordic að metvelta var með
finnskar afleiður. Í janúar voru í
finnsku kauphöllinni gerðir ríflega
2,9 milljónir samninga, en fyrra
met var tæplega 2,6 milljónir
samninga í apríl 2004.
Í norrænu samstæðunni nam
dagleg velta á hlutabréfamark-
aði að meðaltali 353,8 milljörðum
króna sem er nokkur samdráttur
því hún var 434,5 milljarðar miðað
við síðustu 12 mánuði. Heildar-
markaðsvirði fyrirtækja á NAS-
DAQ OMX Nordic var 61.361 millj-
arður íslenskra króna, samkvæmt
upplýsingum kauphallarsamstæð-
unnar, en var 76.756 milljarðar
króna í janúar í fyrra.
- óká
Skuldabréfin
ennþá í sókn
Viðskipti með skuldabréf í janúar voru þau mestu
í einum mánuði frá bankahruni. Heildarviðskipti
með hlutabréf námu þremur milljörðum króna.
NASDAQ OMX ICELAND VIÐ LAUGAVEG Í janúar voru mest viðskipti með hlutabréf
Marel Food Systems í Kauphöllinni, rúmur 1,1 milljarður króna í 179 viðskiptum.
Viðskipti með þrjú veltumestu félögin námu um 89 prósentum heildarviðskiptanna í
mánuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA