Fréttablaðið - 10.02.2009, Page 20
16 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
ER EKKERT Á LEIÐINNI AÐ HÆTTA Óðinn Gunnarsson, sem var valinn
iðnaðarmaður ársins árið 2008, er mættur í vinnuna klukkan hálfsjö á
hverjum morgni og segir ekkert fararsnið á sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta kom flatt upp á mig en ég er afskaplega ánægður með
þetta,“ segir Óðinn Gunnarsson járnsmíðameistari. Hann
var valinn iðnaðarmaður ársins um helgina en þetta er í
fyrsta sinn sem það er gert. Óðinn rekur Járnsmiðju Óðins
í Kópavogi en hann hóf nám í járnsmíði árið 1965. Hann
stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki 1978 og síðan hefur honum ekki
fallið verk úr hendi.
„Ég hef aldrei gert neitt annað en að vinna í járn og allt-
af haft nóg að gera. Ég smíðaði og seldi til dæmis fuglahús
í garða og fleira til að byrja með,“ segir Óðinn.
Meðal verkefna Járnsmiðju Óðins eru handriðið í Smára-
lindinni og ljósakrónurnar bæði í Bústaðakirkju og Eski-
fjarðarkirkju. Verkefnin eru því af ýmsum toga og segir
Óðinn að eftirspurn eftir íslenskri smíði hafi frekar aukist
undanfarna mánuði. Hann þakkar gott gengi sitt góðum hópi
starfsmanna og segir andann góðan í vinnunni.
„Fyrirtækið er ekki stórt en skrambi gott enda úrvalslið
sem vinnur hjá mér. Við erum 10 núna en gegnum árin hafa
verið á bilinu 8-12 manns hjá mér. Þetta er fastur kjarni
góðra manna en einn byrjaði hjá mér þegar hann var 15 ára.
Ég geri kröfur sem strákarnir þekkja og þeir grínast gjarn-
an með það hvernig ég geri hlutina. En ég vil að allir geri
eins vel og þeir geta og þess vegna höfum við nóg að gera.
En þetta gengi ekki nema fyrir gott fólk.“
Fjölskylda Óðins tekur virkan þátt í rekstrinum en eigin-
konan sér um skrifstofuna og tvö barnanna vinna í smiðj-
unni. Honum hefur því gengið vel að sameina fjölskyldulíf-
ið og vinnuna. „Þetta hefur verið fjölskyldufyrirtæki í 15
ár. Konan mín rekur þetta af festu og einurð svo við erum
í góðum málum í dag og höfum ekki þurft að segja nein-
um upp. Sonur minn hefur unnið hérna síðan hann var 13
ára og er iðnvélafræðingur og meistari í stálsmíði. Dótt-
ir mín sem var í líffræði í háskólanum byrjaði hér hjá mér
líka. Hún er listasmiður og er núna í Tækniháskólanum í
hönnunardeild.“
Ekkert fararsnið er á Óðni þótt hann sé orðinn rúmlega
sextugur. Hann ætlar þó að leyfa sér að taka frí öðru hvoru
en venjulega er hann mættur alla morgna klukkan hálfsjö
og er síðasti maður út. „Nei, ég ætla ekkert að hætta. Ég hef
svo gríðarlega gaman af þessu enn þá.“ heida@frettabladid.is
IÐNAÐARMAÐUR ÁRSINS 2008
Aldrei gert annað
SHARON STONE LEIKKONA ER 51
ÁRS Í DAG
„Ég keyri bílinn með hnjánum.
Hvernig á ég annars að setja
á mig varalitinn og tala í sím-
ann?“
Stjarna Sharon Stone, leikkonu
og fyrrverandi fyrirsætu, skein
skærast á tíunda áratugnum
þegar hún lék í myndum eins og
Basic Instinct og Sliver. Hún þótti
sína djarfan leik en lítið hefur
farið fyrir henni síðan þá.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
vegna andláts og útfarar
Jennýjar Haraldsdóttur
frá Seyðisfirði, Holtagerði 30, Kópavogi.
Arndís B. Sigurgeirsdóttir Bára K. Kristinsdóttir
Svandís Haraldsdóttir
Sigrún Haraldsdóttir Ísleifur Guðleifsson
Pálína Haraldsdóttir Árni Jón Sigurðsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ásta Ágústsdóttir
Miðleiti 4,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi að morgni sunnu-
dagsins 8. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Eggert Óskar Þórhallsson
Hafdís Eggertsdóttir Sveinn Eyþórsson
Ólafur Eggertsson Heiða Vernharðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
Gunnlaugur Karlsson
fv. útgerðarmaður
Sólvallagötu 47, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn
5. febrúar sl. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 12. febrúar nk. og hefst kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Guðmunda Sumarliðadóttir
Jósebína Gunnlaugsdóttir Sigtryggur Maríusson
Gunnlaugur Gunnlaugsson Kristjana Sigurðardóttir
Hafdís Gunnlaugsdóttir Róbert Svavarsson
Karl Hólm Gunnlaugsson Sigurveig Þorsteinsdóttir
Sævar Gunnlaugsson Selma Kristjánsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Theódóra Kristjánsdóttir
Bakkavegi 13, Hnífsdal,
lést föstudaginn 6. febrúar á blóðlækningadeild
Landspítalans við Hringbraut.
Halldóra Elíasdóttir Guðmundur Kr. Thoroddsen
Sigríður Inga Elíasdóttir Svavar Geir Ævarsson
Finnbjörn Elíasson Gyða Björg Jónsdóttir
Guðmunda Elíasdóttir Friðrik Óttar Friðriksson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, vinur, afi
og langafi,
Benedikt Jónsson
frv. forstjóri Hraðfrystihúss Keflavíkur
h/f, áður til heimilis að Tjarnargötu 29,
Keflavík,
lést á Hlévangi, föstudaginn 6. febrúar. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Jón Benediktsson Bjarnhildur H. Lárusdóttir
Margrét Þóra Benediktsdóttir Hermann Ólafsson
Svanhildur Sigurgeirsdóttir
María Arnlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
frænku okkar,
Valborgar Pálínu
Jóhannsdóttur
frá Kirkjubóli, Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði.
Aðstandendur.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Margrét Þorvaldsdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 6. febrúar. Hún verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 13. febrúar
kl. 13.00.
Þorvaldur S. Hallgrímsson Svanhildur Leifsdóttir
Leifur Þorvaldsson Guðrún Ósk Gunnarsdóttir
Hallgrímur Smári Þorvaldsson María Jóna Guðnadóttir
Grétar Már Þorvaldsson Haddý Anna Hafsteinsdóttir
og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, afi og langafi,
Elías Magnússon
bifreiðastjóri, Stangarholti 2, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítala við Hringbraut
fimmtudaginn 5. febrúar. Útför hans verður gerð frá
Háteigskirkju fimmtudaginn 12. febrúar kl. 13.00.
Sigþóra Jónsdóttir
Guðný Elín Elíasdóttir
Elías Magnússon Ragnheiður Jónsdóttir
Einar Þór Magnússon Elín Haraldsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Lárus Eggertsson
kafari og björgunarfræðingur
Hlíðargerði 26, Reykjavík,
lést föstudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju, föstudaginn 20. febrúar kl. 13.00.
Einara Þyri Einarsdóttir
Eggert Lárusson Guðrún Sigurgeirsdóttir
Einar Þór Lárusson Hrönn Kristjánsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir
leikskólakennari, Sóltúni 12, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut sunnudaginn
8. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 17. febrúar kl. 13.00.
Guðrún Lára Kjartansdóttir Bjarni Sólbergsson
Kjartan Kjartansson Halla Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Tryggvi Gunnarsson
skipasmiður, Lindarsíðu 2, Akureyri,
andaðist föstudaginn 6. febrúar á Dvalarheimilinu Hlíð
Akureyri. Útför hans fer fram föstudaginn 13. febrúar
kl. 13.30 í Akureyrarkirkju.
Stella Sigurgeirsdóttir
Ingibjörg Tryggvadóttir Haraldur Valdimarsson
Ragnar Geir Tryggvason Erna Björk Guðmundsdóttir
Gunnar Tryggvason Harpa Ágústsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.