Fréttablaðið - 10.02.2009, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 10. febrúar 2009 19
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 10. febrúar 2009
➜ Tónleikar
Myrkir músíkdagar 6-13. febrúar. Nánari
upplýsingar á www.listir.is/myrkir
12.15 Emil Friðfinnsson og Þórarinn
Stefánsson í Hafnarborg, Strandgötu 34,
Hafnarfirði.
20.00 Hjörleifur
Valsson og Sigrún
Hjálmtýsdóttir í Lang-
holtskirkju við Sól-
heima.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Dr. Christopher C. Cooper flytur
fyrirlestur um réttindi barns sem vísað
er úr skóla á Lögfræðitorgi Háskólans á
Akureyri, Sólborg við Norðurslóð.
20.00 Dr. Vilhjálmur Árnason flytur
erindið: „Vettvangsrannsóknir og viðmið
siðfræðinnar“ í húsakynnum Reykjavík-
urAkademíunnar við Hringbraut 121 (JL-
húsið). Fyrirlesturinn er öllum opinn.
➜ Tónlist
20.00 Jónas Ingimundarson tekur á
móti gestum og spilar og spjallar um
tónlist í Salnum við Hamraborg í Kópa-
vogi. Sérstakur gestur hans er dr. Bjarki
Sveinbjörnsson. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
➜ Fræðsla
Útþrá í Hinu Húsinu við Pósthússtræti
milli kl. 16-19. Kynning fyrir ungt fólk á
aldrinum 16-25 ára á þeim fjölbreyttu
tækifærum sem eru í boði tengd námi,
leik og starfi erlendis.
➜ Sýningar
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur
yfir sýning Bjargeyjar Ólafsdóttir auk
þess sem Thoas Graics sýnir ljósmyndir
teknar úr lofti, í Skotinu. Ljósmyndasafn
Reykjavíkur við Tryggvagötu, opið virka
daga kl. 12-19 og um helgar kl. 13-17.
Við erum hinir / hinir eru við Stein-
grímur Eyfjörð hefur opnað sýningu í
Galleríi 100° í húsnæði Orkuveitunnar
að Bæjar hálsi 1, Reykjavík. Sýningin er
opin mán.-föst. kl. 8.30-16.
➜ Leiðsögn
12.05 Pétur Gunnarsson rithöfundur
fjallar um sýninguna Endurfundir í
hádegisleiðsögn á Þjóðminjasafni
Íslands við Suðurgötu. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
➜ Leiklist
20.00 Verkið Ást
Fedru eftir Söruh
Kane verður leiklesið
í Borgarleikhúsinu.
Leikstjóri er Hafliði
Arngrímsson.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Myrkir músíkdagar eru í fullum
gangi og eru hljómleikar á dag-
skránni í dag: fyrirferðarmest
er efnisskrá Camerata Jóns Leifs
sem verða með tónleika í Lang-
holtskirkju í kvöld en stjórnandi
þeirra er Hákon Leifsson. Þar
verða flutt verk eftir Ríkarð Örn
Pálsson, Egil Ólafsson og Gunn-
ar Þórðarson og eru þau öll frum-
flutt hér á landi. Einleikari í verki
Ríkarðs er Hjörleifur Pálsson en í
verki Gunnars fer Sigrún Hjálm-
týsdóttir með aðalhlutverk.
Verk Ríkarðs Arnar er fiðlu-
konsert sem hann kallar Dansa og
stemmur og er hann saminn fyrir
Hjörleif. Að sögn Ríkarðs „fellur
þessi tónlist ágætlega að þeirri
þörf fyrir millimúsík sem Ríkarð-
ur telur æ nauðsynlegri tengingu
milli akademískrar framúrstefnu
og markaðspopps – aðalpólanna í
íslensku tónlistarlífi“.
Strengjatríó Egils heitir Herra
Z og er í þremur köflum fyrir
fiðlu, víólu og selló. Það er tileink-
að Paul Klee og mynd sem hann
málaði sem ber nafnið Herra
Z en þar er umfjöllunarefnið
maður með Zetu skrifaða á enni
sitt. Paul Klee, sem var fiðluleik-
ari, velti fyrir sér hvort tónsmíðar
Schönbergs hefðu markað enda-
lok fagurlistanna. Agli var þessi
hugsun hugleikin við smíðar á
verkinu.
Tónleikunum lýkur síðan á
verkinu La prière eftir Gunnar
Þórðarson. Titill verksins er Bæn
á íslensku og er samið við frum-
samið ljóð eftir Albert Strickler.
Tilurð verksins var vegna sam-
vinnuverkefnisins Mosaík trílógía
en það var þverfaglegt samstarfs-
verkefni íslenskra og franskra
listamanna sem fór fram í Alsace
í Frakklandi. Listamennirnir fjór-
ir sem boðið var til verkefnisins
komu annars vegar frá Frakk-
landi, Gerard Brand höggmynda-
smiður og Albert Strickler ljóð-
skáld, og hins vegar frá Íslandi,
Gunnar Þórðarson tónskáld og
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran-
söngkona. Þema verkefnisins er
‚bænin‘ í víðum skilningi. Mynd-
listarmaðurinn Gerard Brand er
þekktur sem mósaík-listamaður
í Evrópu meðal annars fyrir að
hafa þróað nýja tegund mósaík-
listar, þrívíðar mósaíkhöggmynd-
ir. Hann gerði átta skúlptúra
af þessu tilefni og valdi hann
þemað, ‚bænina‘ til að vinna út
frá. Ljóðskáldið Albert Strickler
vann í nánu samstarfi við hina
listamennina átta ljóð innblás-
in af þemanu og jafn mörgum
skúlptúrum Gerards Brand. Ljóð
Alberts Strickler eru ekki ein-
göngu nátengd myndlistinni sem
hann leggur út af heldur eru þau
einnig inntakið fyrir tónlist Gunn-
ars Þórðarsonar. Verkið var frum-
flutt á sýningu mósaíkmyndanna
í fornri kirkju í Rosheim í Frakk-
landi síðastliðið sumar en það var
Sigrún sem söng einsönginn.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
kemur hátt á fimmta tug lista-
manna að flutningnum.
pbb@frettabladid.is
Verk eftir Ríkarð Örn, Egil og Gunnar
TÓNLIST Verk eftir Gunnar Þórðarson verður frumflutt í kvöld á Myrkum músík-
dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM