Fréttablaðið - 10.02.2009, Page 30
26 10. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. ómskoðun, 6. frá, 8. forsögn, 9.
pili, 11. fyrir hönd, 12. rusl, 14. veldis,
16. tveir eins, 17. margsinnis, 18. í
viðbót, 20. í röð, 21. murra.
LÓÐRÉTT
1. lengdareining, 3. sjúkdómur, 4.
skynja, 5. lík, 7. sviptur veruleikaskyni,
10. mánuður, 13. sjáðu, 15. málmur,
16. þvottur, 19. íþróttafélag.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ómun, 6. af, 8. spá, 9.
rim, 11. pr, 12. drasl, 14. ríkis, 16. tt,
17. oft, 18. auk, 20. aá, 21. urra.
LÓÐRÉTT: 1. yard, 3. ms, 4. upplifa,
5. nár, 7. firrtur, 10. maí, 13. sko, 15.
stál, 16. tau, 19. kr.
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Ég hlusta á Hercules and Love
Affair, Bonnie Prince Billy og
Antony and the Johnsons.“
Sara María Skúladóttir klæðskeri.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Fyrsta hugsunin sem upp kemur
er eiginlega sú að manni þykir
eiginlega vænna um þau en áður,“
segir séra Þórhallur Heimisson
sem hefur starfrækt hjónabands-
ráðgjöf um árabil eða allt frá því
hann kom frá námi árið 1996.
Verulega athygli vakti í gær
grein undir fyrirsögninni „Snjó-
bylur“ sem birtist í tímaritinu
Portfolio, og má nálgast hana á
portfolio.com, sem byggist að veru-
legu leyti á viðtali við forsetahjón-
in Ólaf Ragnar Grímsson og Dor-
rit Moussaieff. Í greininni takast
hjónin á og merkja má augljósan
pirring þeirra á milli. Má líklega
telja það einsdæmi á heimsvísu
að þjóðhöfðingjahjón takist opin-
berlega á með þessum hætti. Þór-
hallur, sem er helstur sérfræðing-
ur í hjónaböndum á Íslandi, segir,
með fyrirvörum, þó að samkvæmt
þessu sé ekki ástæða til að hafa
áhyggjur af því að hjónaband for-
setahjónanna sé að steyta á skeri.
Greinin hefst á því að blaðamað-
ur sækir þau hjón heim á Bessa-
staði. Meðan Ólafur Ragnar fer
með ræðu sem hann virðist hafa
farið með oftar en tölu verður á
komið, um Björk og Ólaf Elíasson,
þá leiðist Dorrit augljóslega. Og
grípur loks inn í, eftir að hafa leik-
ið sér við hund þeirra, Sám, sem
er blanda af íslenskum og þýskum
fjárhundi, og segist hafa varað
við efnahagshruninu fyrir margt
löngu. Ólafur Ragnar bendir henni
á að þetta megi ekki hafa eftir en
hún segir „víst“. „Þú getur ekki
sagt þetta,“ segir Ólafur og Dorrit
svarar: „En ég sagði það nú samt.“
Blaðamaðurinn Joshua Hammer
greinir frá því þegar hjónin karpa
um þetta og fær tveimur dögum
síðar símhringingu frá Dorrit þar
sem hún segir að hann geti vel,
kæri hann sig um, haft allt eftir
henni sem sagt var.
Víða er komið við í greininni
sem unnin var í desember á síðasta
ári. Hammer hittir Dorrit í Lond-
on og þar segir Dorrit að Ólafur
Ragnar sé barnalegur þegar við-
skipti séu annars vegar. Og þau
eigi fátt annað sameiginlegt
en að tala bæði ensku og hafa
gaman af því að fara á skíði.
Sjálf segist hún gjarnan vilja
hafa farið til að mótmæla en
sér hafi verið bannað það af
eiginmanni sínum. Og þetta
sé því svipað og að vera
giftur araba.
Þórhallur segir
þetta bera dám
af ástandinu,
eldri hjón í
hremmingum.
„Hann er að
leiðrétta hana
og hún hann eins og hjón gera: Æi,
Óli minn, reyndu nú að átta þig
á þessu. Svo endar þetta á því að
þau eru á einhverjum tónleikum
sem henni greinilega drepleiðist.
En hún blikkar blaðamanninn og
tekur í hönd Ólafs. Annars er þessi
grein ágæt úttekt á því hvers
konar blindu forsetinn hefur
verið sleginn sem við öll,“
segir Þórhallur. Og telur
enga ástæðu til að hafa
áhyggjur af hjónabandinu
miðað við þessa grein. Það
sé heiðarlegt og heilbrigt að
ræða um málin frekar en
að loka þau af.
jakob@frettabladid.is
ÞÓRHALLUR HEIMISSON: SÆTT OG KRÚTTLEGT HJÁ FORSETAHJÓNUM
Ástæðulausar áhyggjur af
hjónabandi Ólafs og Dorritar
ÓLAFUR OG DORRIT Sennilega er einsdæmi að þjóðhöfðingjahjón takist á á opinber-
um vettvangi sem nú er raunin.
SÉRA ÞÓRHALLUR HEIM-
ISSON Segir greinina ekki
kalla á áhyggjur af sam-
bandi þeirra hjóna enda
betra að tala út en loka
ágreining inni.
Ákveðið hefur verið að stofna íslenskan tónlistark-
lúbb í Þýskalandi sem nefnist Norðrið. Markmiðið er
að styðja við bakið á íslenskum tónlistarmönnum og
hljómsveitum sem eru að hasla sér völl í Þýskalandi.
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (Útón),
Höfuðborgarstofa, Iceland Express og Admirals Pal-
ast-leikhúsið, sem Helgi Björnsson rekur, standa að
verkefninu. „Hugmyndin er búin að vera að fæðast
í nokkurn tíma. Iceland Express komu til okkar og
spurðu hvernig samstarf við gætum búið til. Við
fórum þá að tala við tónleikahaldara í Þýskalandi
um hvernig svona hugmynd gæti virkað,“ segir Anna
Hildur Hildibrandsdóttir hjá Útón. „Þýskaland hefur
verið að eflast mjög sem markaður fyrir íslenska
tónlist. Margir íslenskir tónlistarmenn eru komnir
á mála hjá útgáfufyrirtækjum í Þýskalandi eða eru
með þýska umboðsmenn og bókunarskrifstofur. Það
er því rétti tíminn fyrir Útón að beina athygli sinni
þangað,“ segir hún. Hún segir aðstoð Helga Björns-
sonar við verkefnið skipta miklu máli. „Hann er
reynslubolti og er í tengslum við markaðinn í Þýska-
landi. Við höfum þróað þessa hugmynd með fimm
aðilum í Þýskalandi, fjórum Þjóðverjum og Helga,“
segir Anna Hildur. Helgi segir mikinn áhuga á
íslenskri menningu í Berlín, ekki síst í tónlistinni.
„Fjölmargir íslenskir listamenn starfa hér og borgin
er sífellt að verða vinsælli áfangastaður íslenskra
háskólanema í skiptinámi,“ segir hann.
Skipulögð verður tónleikaröð á tónlistarklúbbum
í nokkrum borgum í Þýskalandi. Fyrir utan Admir-
als Palast í Berlín er þegar búið að koma á samstarfi
við virta tónleikahaldara í Köln og Hamborg. Stefnt
er að því að ná sambærilegum samningum í þremur
borgum til viðbótar. Lay Low ríður á vaðið og opnar
Norðrið formlega með tónleikum í Þýskalandi í mars.
- fb
Norðrið stofnað í Þýskalandi
HELGI BJÖRNSSON Helgi, sem rekur Admirals Palast í Berlín,
hefur aðstoðað Útón við stofnun nýs tónlistarklúbbs í Þýska-
landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta er lygilegt, bara alveg frá-
bært,“ segir handritshöfundurinn
Marteinn Þórsson. Teiknimyndin
Niko-leiðin til stjarnanna, kom sá
og sigraði á finnsku kvikmynda-
verðlaununum, Jussi. Hún var
valin besta kvikmyndin, fyrsta
teiknimyndin í sextíu ára sögu
verðlaunanna. Marteinn skrif-
aði handritið að myndinni ásamt
Hannu Tuomainen og voru þeir
jafnframt hlutskarpastir í sínum
flokki, fengu verðlaun fyrir besta
handritið. Marteinn var viðstadd-
ur hátíðina og líkir henni við
Edduna. „Þetta er í raun finnski
Óskarinn.“
Marteinn þurfti þó ekki að
spreyta sig á hinu flókna finnska
tungumáli því myndin er öll unnin
fyrir enskan markað. Aðspurður
hvernig það hafi komið til að hann
skrifi fyrir finnska teiknimynd
segir Marteinn að hann hafi unnið
nokkur verkefni fyrir írska fram-
leiðslufyrirtækið Magma. Það sé
meðframleiðandi að myndinni og
hafi fengið hann til að koma að
handritsgerðinni.
Söguþráður myndarinnar er á þá
leið að hreindýradrengurinn Niko
er sannfærður um að eitt af jóla-
sveinahreindýrunum sé pabbi hans
og ákveður að leggja upp í ferðalag
til fjallsins þar sem jólasveinninn
býr, finna föður sinn og láta hann
kenna sér að fljúga.
Marteinn hefur verið búsettur á
Írlandi um nokkurt skeið og skrif-
að handrit að fjölmörgum teikni-
myndum, fyrir bæði Þýskalands-
markað og Danmörku. Hann hefur
næg járn í eldinum og er meðal
annars að skrifa handrit að ann-
arri teiknimynd sem mun að ein-
hverju leyti byggja á ævintýrinu
um dvergana sjö. - jma
Marteinn vann finnska Óskarinn
ÓTRÚLEGUR SIGUR Marteinn, til hægri,
og framleiðandi myndarinnar, Hannu
Tuomainen, halda á Jussi-styttunni.
Teiknimynd hefur ekki unnið verðlaunin
Besta myndin frá upphafi verðlauna-
hátíðarinnar.
LANGAR AÐ LÆRA AÐ FLJÚGA Hrein-
dýrið Niko leitar föður síns sem hann
heldur að dvelji hjá jólasveininum.
Símon Birgisson listfræðinemi
þykist hafa sýnt sig í að
hafa meira nef fyrir
vendingum í Seðla-
bankanum en gengur
og gerist. Og hrósar
happi því hann bauð
upp á veðmál á
Facebook-síðu
sinni – lagði undir
bjórkippu – að
Davíð Oddsson
myndi ekki fara
úr Seðlabankanum þrátt
fyrir tilmæli Jóhönnu
Sigurðardóttur þar um.
Leikarinn Rúnar Freyr
Gíslason stökk til og
veðjaði á móti en
Rúnar Freyr hefur
löngum verið
talinn mikill
stuðningsmað-
ur Davíðs og mikill vinur Gísla
Marteins Baldurssonar. Og
þá blandaði sér einnig
í leikinn Steinunn
Valdís Óskarsdóttir,
fyrrum borgarstjóri og
þingmaður, og taldi
Davíð á förum
en Símon vissi
lengra en nef
hans nær.
Páll Óskar Hjálmtýsson er
sjaldan fjarri góðu gamni þegar
Eurovision er annars vegar.
Næstkomandi laugardagskvöld
verður hann með tónleika á Nasa
ásamt kvennasveitinni Elektru. Og
þá verður hann gæinn í „græna
herberginu“ fyrir RÚV og fjallar um
forkeppnina sem sá sérfræðingur
sem hann er meðan
Euruvision-drottn-
ingarnar Eva María
Jónsdóttir og Ragn-
hildur Steinunn
verða á stóra
sviðinu. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun
Rýnt í ábyrgðir þjóða vegna
innstæðutrygginga.
Þáttatekjur teknar fyrir í orðskýringu.
Joseph E. Stiglitz fjallar um kreppuna.
Í Markaðnum á morgun
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Björg Thorarensen.
2 Jennifer Figge.
3 Vegna súrefnisskorts.