Tíminn - 09.07.1983, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 9. JÚLf 1983
Enginn er fullkominn
— látið fötin hylja ágallana
■ Hjá mörgum okkar eru „lærapok-
arnir“ svokölluðu talsvert vandamál,
■ Eiga börn eiturlyfjasjúkra mæðra sér ekki upprcisnar von?
Eiturlyf jasjúkar
verðandi
mæður forðast
fóstureyðingar
— gera sér vonir um að fæðinglækni þær
■ Þær fregnir berast nú frá Dan-
mörku, að stöðugt færist í vöxt, að
eiturlyfjasjúkar verðandi mæður
leyni ástandi sínu í lengstu lög til að
komast hjá fóstureyðingu. Sífellt
fleiri börn þessara kvenna eru því
borin í heiminn.
Þetta á einkum við um konur á
aldrinum 24-25 ára, en á þann aldur
eru nú einmitt komnir stórir árgangar
af eiturlyfjaneytendum. Þessar kon-
ur gera scr vonir um, að bamsfæðing
geti hjálpað þeim til að losna úr víti
eiturlyfjanna. Ungar stúlkur aftur á
móti, sem ekki eiga eins ianga eitur-
lyfjanesylu að baki, eru fúsari til að
lata eyða fóstrum.
Að sögn yfirlæknis í Árósum eiga
þessar ólánsömu konur það sameig-
inlegt, að þær halda ástandi sínu
leyndu í lengstu lög í þeirri von að
ekki takist að tala um fyrir þeim og
þær látnar fara í meðferð. Þær vilja
gjarna losna úr því niðurlægjandi lífi,
sem þær nú lifa, oftast sem vændis-
konur, og finnst vonir til að þjóðfé-
lagið líti þær öðrum augum, ef þær
eru orðnar mæður. En það er tíma-
frekt verk að vera eiturlyfjaneytandi,
og bæði það og þessi leyndarárátta
kvennanna leiðir til þess, að þær
koma ckki til rcglubundins mæðra-
eftirlits. Þar að auki hafa'þær til-
hneigingu til að láta sig hverfa af
sjúkrahúsinu hið allra fyrsta eftir
fæðinguna, þannig að ekki gefst tæki-
færi til að ná til nýburanna, sem sýna
frá hvarfseinkenni, en þau geta staðið
dögum saman.
Börn eiturlyfjasjúkra mæðra fæð-
ast með þrisvar sinnum meira andr-
enalín í blóðinu en önnur börn.
Rannsóknir hafa leitt f ljós, að þegar
á fósturstigi þjáist þau af ótta og
streitu, sem afleiðingar af misnotkun
mæðra þcirra á eitrinu.
Yfiriæknirinn segir það mjög mik-
ið vafamál, að þessi börn nái sér
nokkurn tíma eftir þær raunir að
hefja lifið á þennan ha’ft. Hann segir,
að m.a. megi finna hjá nýburum með
fráhvarfseinkenni vöðvabólgur, rétt
eins og hjá stressuðu fullorðnu fólki.
Þegar þau koma á leikskólaaldur,
eru þau afbrigðilega óróleg og leita
mjög mikið eftir félagsskap. Þegar
þau hefja skólagöngu, þurfa þau
undantekningarlaust á aðstoð sál-
fræðings að halda. Rannsókn hefur
leitt í ljós, að 75% barna eiturlyfja-
sjúkra mæðra hafa ekki náð sama
þroska og jafnaldrar þeirra.
Pólsk rannsókn sem gerð var á
börnum þeim, sem fæddust í fanga-
búðum nasista, leiddi f ijós, að þau
voru öll biluð á geðsmunum. í fyrstu
var haldið, að þetta stafaði af nær-
ingarskorti, en síðar var komist að
þeirri niðurstöðu að ástæðan væri
ótti og öryggisleysi mæðranna á
mcðgöngutímanum. Það hefði leitt
til einhverra efnabreytinga hjá fóstr-
unum. Þykja líkur benda til að
svipað sé ástatt með böm eiturlyfja-
sjúklinga.
f Noregi og Svíþjóð ber skv.
iögum að eyða fóstrum eiturlyfja-
sjúkra mæðra, ef þær fást ekki tii að
gangast undir meðferð. f Danmörku
hins vegar ná lögin ekki svo langt, en
yfirlækninum finnst fyllsta ástæða til
að herða löggjöfina og bjarga þannig
bömunum frá ábyrgðarleysi mæðra
sinna.
Ein af 62 eiturlyfjasjúkum mæðr-
um í Árósum hcfur alið 6 böm. Eitt
þcirra dó við fæðingu. annað lest
vcgna légrar umhirðu. Hin fjögur
em öll á stofnunum.
■ Vítt
klæðilegt
pils og
blússa og
peysa utan-
yfir er góður
vinnuklæðn-
aður.
■ Marilyn fór í svartan samfesting til
þess að Ijósmyndarinn gæti náð góðri
mynd af hcnni, sem sýndi „lærapok-
ana“.
■ Samfest-
ingur í fall-
egum lit er
mjög klæði-
legur, þegar
hann er
víður yfir
mjaðmir og
læri.
■ Þessi smáröndótti kjóll er mjög
klæðilegur, úr bómuilarefni sem
dagkjóll. Belti og aðrir smáhlutir geta
líka puntað upp á hann.
þegar á að klæðast þröngum pilsum eða
síðbuxum. Hér sjáum við tillögur tísku-
sérfræðings, sem vill hjálpa til að klæða
þessa vankanta af okkur. Hún segir í
fyrsta lagi, að meðan þetta vandamál er
til staðar, þá eigi að forðast þröng föt,
sem falli að lærunum, svo sem þröngar
síðbuxur. Best sé að nota pils og blússu
í sama lit, en ekki klæðast tvískiptum
fatnaði hvorum í sínum lit. Alls ekki skal
vera í munstruðum pilsum
og einlitum
topp, - heldur öfugt.
Á meðfylgjandi myndum
sjáum við tillögur að fötum
fyrir þær læraþykku.
Leiðrétting
Það ur enn lúxus-tollur
á hvítkáli og gulrótum!
■ í sambandi við uppskrift að Blönduðu hrásalati,
sem birtist á bls. 16 í Tímanum 5. júli (Heimilistím-
anum) sögðum við frá því - með fögnuði - að nú væri
að konta til um 20% lækkun á grænmeti og
ávöxtum. Þessi frétt hefur því miður ekki verið
alveg cins gleðileg og við bjuggumst við, því að það
er mjög takmarkað hvað fólk hefur gott af þessum
tollalækkunum. Þær cru sem sagt ekki af þeim
algengustu grænmetistegundum, sem fóik helst
kaupir, svo sem hvítkáli og gulrótum o.fl.
Tollurinn af hvítkáli er um 70%(!) og gulrótum
50% (I), sem sagt lúxus-tollur. Lækkunin er helst
merkjanleg á niðursoðnum aspargus og þurrkuðum
ffkjum, og hvað viðvíkur nýjum ávöxtum, þá
fengum við þær upplýsingar hjá Verðlagsstofnun,
að þeir hefðu að undanförnu verið án tolla, og það
hefði ekkert breyst.