Tíminn - 07.09.1983, Qupperneq 11

Tíminn - 07.09.1983, Qupperneq 11
10 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983 MIDVIKUDAGUR 7. SF.PTEMBER 1983 11 íþróttir umsjón: Jón Ólafsson Enska knattspyrnan ■ Munchcstcr United vann góðan sigur á liði Arscnal er liðin léku á Higbury í gxrkveldi. Rauðliðarnir skoruðu 3 mörk gegn tveimur heimaliðsins. Liverpoll gerði jafntefli á heimavelli sínum gegn Southam- pton og West Ham heldur áfram sigurgöngu sinni því nú sigruðu þeir nýliða Leicester sem ekkert virðast geta. Þar urðu lokatölurnar 3-1. Annars urðu úrslit í 1. deildinni svona: Arsenal-Man.Utd. 2:3 Birmingham-Stoke 1:0 Coventry-Notts County 2:1 Ipswich-Everton 3:0 Luton-Norwich 2:2 QPR-Watford 1:1 West Ham-Leicester 3:1 Liverpool-Southampton 1:1 í kvöld leika svo Sunderland ogh Wolves, WBA og Tottenham og Nott. Forest og A. Villa. Fyrrnefnda liðið leikur á heimavelli. Urslit í 2. deildinni urðu sem hér segir. Porstmouth-Barnsley Brighton-Derby Sheff. Wedn-Cambridge Charlton-Carlisle Hudd.field-C. Palace Grimsby-Leeds Middlesboro-Niwcastle Swansea-Oldham 2:1 1:0 1:0 1:0 2:1 2:0 3:2 0:0 -Jól ■ Án Luther Blisset hefur liðinu hans Elton John (Eltann Jón!) gengið treglega að skora fleiri mörk, en andstæðingarnir. ■ Staðan í 1. deild ensku knattspyrnunnar. Staðan í 2. deild ensku knattspyrnunnar West Ham 12 Sheffield Wed .... ... 4 3 1 0 5-1 10 Ipswich 10 Shrewsbury ... 4 2 2 0 5-5 8 Man. Utd ....4 3 0 1 8-5 9 Charlton ... 3 2 1 0 3-0 7 Coventry ....4 2 2 0 7-5 8 Middlesborough . . ... 3 2 1 0 6-4 7 Liverpool ....4 2 2 0 4-2 8 Chelsea ... 2 2 0 0 7-1 6 Southamton .... . . . . 4 2 2 0 3-1 8 Man. City ... 3 2 0 1 6-4 6 Luton 10-5 7 Newcastle ... 4 2 0 2 64 6 Aston Villa .... .... 3 2 0 1 6-5 6 Portsmouth . . 3 2 0 1 4-„2 6 Notts Country . . . .... 4 2 0 2 7-5 6 Cardiff ... 4 2 0 2 5-5 6 Arsenal ....4 2 0 2 6-6 6 Cambridge ... 31112-1 4 Birmingham .... ... 4 2 0 2 4-6 6 Grimsby ... 31114-4 4 Norwich ... 4 1 2 1 6-4 5 Blackburn ... 31113-4 4 QPR ... 4 1 2 1 4-5 5 Oldham ... 31111-3 4 Everton ... 4 1 1 2 2-5 4 Derby ... 31113-7 4 Nott.Forr ... 3 1 0 2 2-3 3 Leeds ... 41125-6 4 W.B.A 5-7 3 Barnslcy ... 3 1 0 2 6-5 3 Stoke City ... 4 1 0 3 3-4 3 Brigthon ... 4 1 0 3 4-6 3 Watford ... 4 0 2 2 5-8 2 Huddersfield ... 2 0 2 0 2-2 2 Wolves ... 3 0 1 2 2-6 1 C. Palace ... 20111-3 1 Sunderland ... 3 0 1 2 2-6 1 Swansea ... 30121-3 1 Tottenham ... 3 0 1 2 2-6 1 Carlisle ... 4 0 1 3 0-4 1 Leicester ... 4 0 0 4 1-11 0 Fulhani ... 2 0 0 2 0-5 0 ■ Nú gengur allt eins og í Ijóði, æ nei sögu, hjá Alan Devonshire og kumpánum í West Ham. Tróna þeir nú efstir í 1. deildinni. Munar sjálfsagt mestu um að gamla brýnið Brooking er aftur kominn á ról. Þetta sem hér er fyrir ofan er þó hann Devonshire. U-21 árs landsleikurinn: H0LLAND MARÐIJAFN- TEFU GEGN ÍSLENDING- UM SEM LÉKU STÓRVEL íþróttir ■ Sigurður Grétarsson Breiðabliki skoraði mark Islands í leiknum gegn Hollandi í ■ Frábært íslenskt unglingalandslið gerði jafntefli 1-1 við það hollenska í hörkuspennandi leik í Venlo í Hollandi í gærkveldi. Hollensku atvinnumennirnir voru hvað eftir annað yfirspilaðir af eld- snöggum íslenskum strákunum og i seinni hálfleik var svo komið að áhorfendur voru farnir að klappa og hvetja íslenska liðið, til enn frekari dáða. Þetta var leikur sem að litla ísland hefði hæglega geta unnið 3-1. Strax á fyrstu mínútunum var Ijóst hverskonar leikur þetta yrði. Hollend- ingarnir spiluðu meir og létu boltann ganga sín á milli. íslendingarnir létu þá þó aldrei í friði og beittu eldsnöggum skyndisóknum, þannig að dúkku spil Hollendinganna endaði yfirleitt á mið- línunni. í öllum leiknum áttu þeir ekki nema eitt verulega hættulegt marktæki- færi. íslensku sóknirnar voru hinsvegar mun skæðari. Á 11. mínútu leiksins léku þeir Kristján Jónsson, Þrótti og Sigurjón Kristjánsson, Breiðabliki, snöggt og skemmtilega upp vinstri kantinn og með stórglæsilegri 30 metra sendingu sendi Kristján boltann í eyðu inn á vítateig þar sem Sigurður Grétarsson, Bliki, kom aðvífandi og afgreiddi sendinguna snyrtilega í hornið, óverjandi. Hollendingar jöfnuðu sjö mínútum síðar úr vafasömu víti sem Bene, Feyen- oord tók, Út hálfleikinn varsvojafnræði með Iiðunum en íslendingarnir þó áber- andi sterkari í einvígum. Á 21. mínútu var hreinu víti sleppt. í seinni hálfleik voru íslendingarnir hinsvegar sterkari og fór þá æ meira að bera á mistökum hjá atvinnustrákunum hollensku. Á 51. mínútu var Sigurjón felldur inni í vítateig eftir fallega send- ingu frá Kristjáni en óútreiknanlegur dómari dæmdi ekkert. Á 65. mínútu voru hollensku áhorfendurnir farnir að púa á sína menn en hvöttu íslendingana óspart. Upp úr því kom hvert tækifærið á fætur öðru. Aðalsteinn Aðalsteinsson átti tvö markskot framhjá og Sigurjón eitt úr þröngu færi. Bestu marktækifærin komu þó á 68. og 69. mínútu en þá missti Óli Þór Magnússon knöttinn of langt frá sér. Eina hættulega tækifæri Hollendinga kom á 78. mínútu, en með viðbrögðum á heimsmælikvarða varði Stefán Jó- hannsson glæsilega. Þeir Helgi Bentsson og Jósteinn Einarsson komu inn á sem varamenn í síðari hálfleik. Hver einasti leikmaður íslenska liðsins átti toppleik og synd væri að taka einhvern einstakan út úr. Stefán mark- vörður var afar öruggur í úthlaupum og skotin 3 varði hann léttilega. Þeir Krist- ján og Sigurjón eru báðir feikiskemmti- lega útsjónarsamir leikmenn. Kristján, að öðrum leikmönnum ólöstuðum. gærkvöldi. Markheppinn strákurinn. Tímamynd: Ari bestur. Frábær bakvörður og oft í fremstu víglínu. Enginn fór í gegnum Guðjón Þórðarson, hægri bakvörð. Sig- urður Jónsson var auðvitað góður og Ragnar Margcirsson átti marga góða spretti, eins og reyndar allir leikmenn liðsins. Svo virðist sem efnilegasta lands- lið íslendinga sé þegar fætt. Hollenska liðið olli vonbrigðum og þá sérstaklega Ajax og Feyenoord leik- mennirnir. Besturvarsennilega Cruyes, Utrecht. Dómarinn frá Luxemborg var einkennilegur. Magnús Ólafsson í Venlo: „Ánægðurmeð leikinn en ekki úrslrtin" - sagði Guðni Kjartanssor. Frá Magnúsi Ólafssyni í Venlo: Já ofangreind orð mælti þjálfari ung- lingalandsliðsins er hann loks komst að vegna fagnaðarláta í búningsklefa ís- lenska liðsins eftir leikinn. Fagnaðarlæt- in voru vegna þess að strákarnir voru himinlifandi með góða knattspyrnu og baráttu þá er einkenndi leik þeirra. Hins vegar voru þeir ekki jafn hressir með niðurstöður leiksins. En áfram með Guðna: „Ég er nú þeirrar skoðunar að við hefðum átt að vinna þennan leik. Bæði áttum við opin dauðafæri og auk þess sleppti furðulegur dómari tveim augljósum vítaspyrnum“. Þar hafið þið orð unglingalandsliðsþjálfarans. Og vissulega er árangurinn góður því sam- æfingin var ekki mikil fyrir leikinn og keppt var við þrautþjálfaða atvinnu- menn. r.------------------1 8atvinnumenn með gegn Hollendingum — Pétur Pétursson leikhæfur! i Guðni Kjartansson „Þeir komust aldrei í gegn“, sagði Kristján Jónsson, bakvörður í Þrótti en hann átti stórgóðan leik í sínum fyrsta U-21 árs leik. „Eg er vitanlega feykilega ánægður með þcnnan leik. Hollensku strákarnir voru e.t.v. eins góðir og búast mátti við en við vorum einfaldlega betri. Þeir komust aldrei upp að markinu“, sagði þessi ungi bakvurður. Magnús/-Jól. ■ „Pétur Pétursson er orðinn leik- hæfur þannig að hann hefur leikinn gegn Hollendingum“, sagði Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari í stuttu spjalli við Tíimann í gær en í kvöld leika landslið Hollands og íslands í Groning- en í knattspyrnu. Péttur meiddist sem kunnugt er í leik með liði sínu Ander- lecht um helgina og á tímabili var talið heldur ólílegt að hann yrði fær um að leika. En lukkudísirnar urðu okkur hliðhollar og við vonum bara að svo verði í leiknum í kvöld. „Það er ennþá gott hljóð í okkar mönnum og við gerum auðtvitað okkar besta til að standa okkur vel gegn þessu sterka hollenska liði“, sagði Jóhannes, en hann var að borða er hann var kallaður í símann þar ytra. Lið Islands hefur verið valið eins og það hefur leikinn og er það skipað cftirtöldum leikmönnum í eftirtöldum stöðum: I Pétur kvöld. Pétursson verður með Þorsteinn Bjarnason Kcflvíkingur mun standa í markinu, bakverðir eru Viðar Halldórsson og Ómar Rafnsson og er Viðar fyrirliði. Miðverði verða þeir Sævar Jónsson og Jóhannes „Búbbi“ Eðvaldsson, Sævar fremri. Ólafur Björnsson hefur því ekki leik- inn eins og var í MBL í gær. Leikið verður með 4 tengiliði, annað væri fáránlegt á útivelli gegn svo sterkri knattspyrnuþjóð. Kanttengiliðir eru þeir Pétur Ormslev og nafni hans Pétursson. Á miðjunni verða svo Ás- geir Sigurvinsson og Arnór Guðjohn- sen. ÞRUMUMIÐJA! Framherjarnir heita Atli Eðvaldsson og Lárus Guð- mundsson. Hvorki meira né minna en 8 atvinnu- menn eru í liðinu að þessu sinni og er ár og dagur síðan jafn sterku landsliði hefur verið stillt upp. Þó ber að varast alla bjartsýni en eitt er víst að strákarn- ir munu hvergi gefa eftir. _ Jó| Jóhannes Eðvaldsson ■ Jock Wallace, framkvæmdastjóri Motherwell. Búbbi í „Murder Hill“ IVTW.U. 11 UIUIIU IITVI5.5WU Vllll. “ JOI J ■ Margir hristu hausinn er þeir fréttu að Jóhannes Eðvaldsson ætti að leika með landsliðinu gegn Hollandi í kvöld. „Hann er ekki í neinni æfingu", heyrð- ' ist hjá mörgum. Enda eru ein 4 ár síðan Búbbi lék síðast með landslið- inu. En einn af „góðkunningjum" íþróttasíðunnar rakst á ágætis viðtal í enska blaðinu „SHOOT" við skoskan leikmann er heitir Andy Ritchie og framkvæmdastjóra Motherwell, Jock Wallace, en með því liði leikur Búbbi einmitt þessa dagana. Andy þessi var fitubelgur þó nokkur er Wallace keypti hann á 25 þús. pund. Var talað um kaup ársins í þessu tilfelli. Það er gaman að heyra Ritchie lýsa fyrstu æfingu sinni. Lauslega þýtt kemst hann svo að orði: „Nú skil ég af hverju lið þau sem Wallace hefur þjálfað geta keyrt af krafti í heilar 90 mínútur". Þetta sagði hann eftir að æfingin hafði farið fram á „Murder Hill“, eða Morð- hæðinni (sú hlýtur að vera strembin). Skv. þessu ættu Búbbi því að vera í hinu besta úthaldi! _jój Unglingalands- leikur í dag: ísland- England ■ Enska landsliðið U-16 ára spilar hér einn ieik gegn íslenskum jafnöldr- um sínum miðvikudaginn 7. septem- ber. Lið íslands er skipað eftirtöldum mönnum: Markverðir: Björgvin Pálsson Þrótti Sigurbergur Steinsson Víking Aðrir leikmenn: Eiríkur Björgvinsson Fram Bjarni J. Stefánsson Fram Jónas Björnsson Fram Elías Friðriksson Þór Ve. Theodór Jóhannsson Þrótti Sigurður Jónsson Í.A. Skúli Sverrisson Fylkir Kristján Gíslason F.H. Heimir Guðjónsson K.R. Arnljótur Davíðsson Fram Atli Einarsson Í.B.Í. Atli Helgason Þrótti Guðmundur Magnússon Í.B.Í. Jónas Guðjónsson Fram Leikur þessi er liður í Evrópukeppni landsliða U-16 ára og hefst hann kl. 18.00. Með íslandi í riðli eru Englend- ingar og Skotar. Ekki vann Antwerpen ■ Antwerpen, lið Péturs Pétursson- ar, tapaði um síðustu helgi leik sínum við Lokeren, liði því sem Arnór Guðjohnsen gerði eitt sinn garðinn frægan hjá. Leikslok urðu eitt núll fyrir Antwerpen. Lið það sem Arnór er nú í, Anderlecht, marði sigur gegn Korteijk, eitt núll. Ekki setti Arnórþó markið. Loks eru það úrslitin í leik Watercshei og Beringen en þar sigraði Waterschei með Lalla Gúmm innan- borðs, 3-1. Lalli skoraði ei en bombaði eitt sinn slána. _ Jól Bannað að leika með sólgleraugu í handknattleik! ■ Réttur handbolti heitir bæklingur sem Handknattleikssambandið hefur gefið út í samvinnu við Osta- og smjörsöluna og Mjólkurdagsnefnd. I henni eru kenndar allar einföldustu handboltarcglurnar. Fyrst eru kenndar reglurnar í minni-handbolta. Undirrit- aður fann ansi skemmtilegt á bls. 6 í bæklingnum. Fyrirsögnin er: Þegar þú leikur handbolta mátt þú ekki: Og svo koma atriði nokkur alveg drepfyndin. M.a. að ekki má keppa með Idukku (það hlýtur að vera átt við úr því ekki keppa menn með heila veggklukku á bakinu í handbolta.) Svo er sagt að ekki megi leika með sólgleraugu??!! Það er nefnilega það. Annars er bækl- ingurinn hinn vandaðasti og mjög gagn- legur án efa. -Jól. ísafjörður í 1. deildina í kvennasparki ■ Lið ísafjarðar í kvennaknattspyrnu hefur tryggt sér sæti í 1. deildinni að ári með sigri yfir Fylki í Hafnarfirði, 2-1. ÍBÍ og Fylkir urðu númer tvö í sínum riðlum í undankeppninni og léku um laust sæti í fyrstu deild. Sigurvegararnir í þessum riðlum, Þór, Akureyri og Höttur Egilsstöðum munu einnig leika í fyrstu deildinni að ári þar sem ákveðið hefur vcrið að fjölga liðunum úr 6 í 8. Neðsta lið 1. deildar í ár, Víðir Garði, er aftur á móti látið falla í 2. deild. Það hljómar eilítið undarlega að Víðir skuli ekki fá leik við ísafjörð um 8. sætið. Það aukast því töluvert ferðalögin í 1 .deild kvenna á næsta ári. Við bætast nú ferðalög til ísafjarðar, Egilsstaða og Akureyrar. -Jól. Sighvatur vann maraþonið ■ Sighvatur Dýri Guðmundsson varð sigurvegari á Meistaramóti íslands í maraþonhlaupi sem fór fram í Hafnar- firði s.l. sunnudag. 17 keppendur hófu hlaupi en 14 komust alla leið, sem telja verður gott hlutfall. Sighvatur varði titil sinn frá í fyrra eftir harða keppni við Steinar Friðgeirsson. Félagar þeir hlupu vel og eiga greinilega meiri framtíð fyrir sér sem götuhlauparar en brautarhlauparar. Tími Sighvats Dýra er þriðji besti árangur Islendings í ‘maraþonhlaupi. Sérstaka athygli vakti óvæntur árangur Braga Þ. Sigurðsson- ar sem varð fjórði. -Jól. Þessir leikir eru eftir í 2. deildinni: Völsungur-Einherji Reynir-Fram Njarðvík-KA Fylkir-FH KS-Víðir Fram-FH Sveitakeppni GSÍ á Akureyri Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri: ■ Flestir þekktustu kylfingar landsins munu mæta á Jaðarsvöll um helgina og fer þar fram Sveitakeppni Golfsambands íslands. Vitað er um 6 karlasveitir sem mæta til leiks en 4 keppa fyrir hverja sveit og telur árangur þriggja bestu. Sveitir þær sem þegar hafa tilkynnt þátttöku eru frá Golfklúbbi Suðurnesja, Keili, Nesklúbbnum, Golf- klúbbi Reykjavíkur, Golfklúbbi Akureyrar og Gólfklúbbi Húsavíkur. Þær eru þannig skipaðar: Golfklúbbur Suðumesja: Gylfi Kristinsson, Sigurður Sigurðsson, Magnús Jónsson og Hilmar Björgvinsson. Golfklúbb- urinn Keilir: Úlfar Jónsson, Sveinn Sigur- bergsson, Tryggvi Traustason og Hörður Arnarson. Nesklúbburinn: Jón Haukur Guð- laugsson, Magnús lngi Steíánsson, Gunn- laugur Jóhannsson, óvíst er um 4. mann. Golfklúbbur Reykjavíkur: RagnarÓlafsson, Sigurður Pétursson, Sigurður Hafsteinsson og ívar Hauksson. Golfklúbbur Akureyrar: Björgvin Þorsteinsson, Magnús Birgisson, Þórhallur Pálsson, Sverrir Þorvaldsson. Golfklúbbur Húsavíkur: Skúli Skúlason, Kristján Hjálmarsson, Kristján Guðjónsson og Axel Reynisson. Þá hefur heyrst að Golfklúbbur Vest- mannaeyja, Leynir á Akranesi, og Golf- klúbbur Borgarness muni senda sveitir til keppninnar en það hefur ekki fengist staðfest. Einnig verður keppt í kvennaflokki og í 3 manna sveitum. Árangur tveggja bestu telur. Vitað er-um sveitir frá Golfklúbbi Reykja- víkur, Golfklúbbnum Kcili og Golfklúbbi Akureyrar en ekki er vitað hvernig þær sveitir verða skipaðar nema í Akureyrar- sveitinni verða þær Jónína Pálsdóttir, Inga Magnúsdóttir, og Auður Aðalsteinsdóttir. Kcppnin hefst á laugardag og lýkur á sunnudagskvöld. Leiknar verða 36 holur í karlaflokki og 18 holur hvorn dag í kvenna- flokki. - • gk/-Jól. 5 með 12 rétta ■ I 2. leikviku komu fram 5 seðlar með 12 rétta leiki og var vinningur fyrir hverja röð kr. 47.055.00. 86 raðir reyndust með 11 rétta og var vinningur fyrir hvcrja kr. 1.172. Fyrirtvo 36 raða kerfisseðla, sem reyndust vcra með 12 rétta, var vinningurinn fyrir hvorn scðil kr. 54.087.00. Opna Volvomótið ■ N.k. sunnudag. þ. 11. septcmbcr verður í Grafarholti Opna Volvo-mótið í golfi. Kcppt verður í 4 flokkum, með og án forgjafar: Unglingar, öldungar, konur og karlar. Ræst verður út frá kl. 9.00. Þátttaka tílkynnist í símum 82815 og 84735 fyrir kl. 12.00 laugar- daginn þ. 10. þ.m. Bakhjarl þcssa móts er Veltir h.f., sem hefur umboð fyrir Volvo-bifreiðar á íslandi, og gefur það öll verðlaun til mótsins. Úrslit í Gralarholti: ■ S.l. laugardag var í Grafarholti þríþætt mót á vegum Júlíusar Guðjónssonar. Þátt- takendur voru 69 og urðu þessi úrslit: Tia Maria Kvennakeppni: 1. Aðalhciður Jörgensen 97-22=75 högg 2. Ásgerður Sverrisdóttir 88-9=79 högg 3. Sigurður Matthíasson 86-11=75 högg Wildberry-Kirsberry Öldungakeppni 1. Kári Elíásson 89-16=73 högg 2. Guðmundur Ófeigsson 90-15=75 högg 3. Sigurður Matthíasson 86-11 = högg Bcsta nettoskori öldunga náði Ólafur Þor- valdsson, sem keppti scm gestur, 70 högg. • Smirnoff mót: 1. Þórður Óskarsson 87-20= 67 högg 2. Páll Vígkonarson 87-20= 67 högg 3. Ólafur Gunnarsson 80-13=67 högg Keppt vars.l. sunnudag í undirbúningskeppni um Nýliðabikar fullorðinna og unglinga. Úr- slit urðu þessi: Nýliðabikar fullorðinna: 1. Bjarni Gíslason 94-28=66 högg 2. Magnús Þórðarson 96-28=68 högg 3. Haukur Otterstcdt 100-26=74 högg 4. Hannes Guðnason 95-21=74 högg Nýliðabikar unglinga: 1. Sigurður Sigurðsson 77-18= högg 2. Eiríkur Guðmundsson 79-17=62 högg 3. Jón Helgason 89-25=64 högg

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.