Tíminn - 23.10.1983, Blaðsíða 2
SUNNUDAGUR 23. OKTOBER 1983
■ Það er fyllilega þess virOi, pegar a
annað borð er áð í Móscldalnum að eyða
einum degi í siglingu á Mósel -ég hugsa
að enginn sjái eftir slíku. Við fórum frá
Trier að morgni, áleiðis til Bernkastel,
með skipi frá KD félaginu, og sigldum á
nokkrum tímum sem leið lá til Bernka-
stel, með viðkomu á cinum fimm
stöðum. Þorpin sem liggja við Mósel á
þessari leið, cru vel flest víðkunn vín-
yrkjuþorp svo sem Schwcich, Mehring
og Trittenheim, að ekki sé talað um
áfangastaðinn sjálfan, Bernkastel. Auð-
vitað skilar manni ekki hratt yfir á svona
siglingu, en óneitanlega nýtur maður
landslags, útsýnis og þess háttar mun
betur, þegar ckki þarf að eyða svo og svo
miklum tíma í að finna út úr korti, eða
að einblína á vcginn sem ekiðcr unt. Við
völdum að fara í dagsferð, cn KD býður
einnig upp á lcngri fcrðir, tveggja daga
ferðir, frá Trier til Koblcnz, sem cr 20(1
■ Mikið er um smábáta á Mósel, enda smábátasport, bæði siglingar og mótorbátasigiingar mjög vinsælt.
A
faralds-
fæti
Umajðn Agnns Bragtadðttlr :
Dagssigling
á Móselánni
Róleg, en falleg og skemmtileg ferð
þó óneitanlega hafi ferðin til Bernkastel
verið meira spennandi, en til baka til
Trier. Ef eitthvað var, þá sá maður enn
betur frá skipinu hversu dalbúarnir nýta
hvern jarðarskika fyrir vínrækt sína,
heldur en sést af þjóðvegunum. Stund-
um er það lyginni líkast að sjá snarbratt-
ar hlíðarnar og vita að það eru menn á
tveimur jafnfljótum sem annast vínvið-
inn á allan hátt, gróðursetja, binda upp,
hlúa að og tína vínberin. Það hlýtur að
vera eitt allra erfiðasta starf sem hugsast
getur, að stunda vínyrkju við erfiðustu
skilyrðin í Móseldalnum. Á leiðinni
fórum við um tvo skipastiga þar sem
hæðarmismunur var 8 metrar í hvort
skipti, og var það næsta sérkennileg
reynsla, að lokast inni í vatnshólfi, sem
síðan fylltist af vatni, þannig að vatns-
borðið í hólfinu hækkaði um 8 metra, og
þegar upp var komið, var siglt út, en á
leiðinni niðureftir. til Bernkastel, þá var
að sjálfsögðu siglt inn í sömu hólf full,
ofan frá, og út úr þeim, 8 metrum neðar,
þegar þau höfðu verið tæmd. Litlir bátar
á Mósel safnast gjarnan saman við þessa
skipastiga, og bíða þess að stærri skipin
þurfi að nota skipastigana. því þetta er
kostnaðarsamt fyrirtæki, og mér skildist
að smábátarnir þyrftu að greiða eitthvað
minna fvrir þjónustu skipastigans, ef
þeir væru í samfloti með stærri skipunt.
Ekki þori ég þó að fullyrða þetta, því
það var þýskur ferðalangur um borð í
skipinu sem sagði mér þetta, en ekki
neinn af áhöfn skipsins.
Veitingar voru hinar ágætustu um
borð í skipinu. þannig að þegar líða tók
á daginn og aðeins fór að kula, þá var
ósköp notalegt að setjast undir þiljur í
einn veitingasalanna og fá sér snarl og
eðalvín, en hreint frábært Kabinet-Mó-
selvín var svo ódýrt um borð í skipinu
að hreinni undrun sætti. Eg held að mér
sé óhætt að mæla með því við þá sem
sækja Mósel heim, og hafa nægan tíma,
að taka sér far með bát eða skipi á
Mósel, því einhvern veginn er eins ög
maður fái næmari skilning á lífinu við
Mósel, við það að sigla á henni.
Rétt er að upplýsa að fargjaldið í
svona dagsferð er 37.40 ntörk, og i
veitingar yfir daginn má áætla svona 20
til 30 rriörk á mann.
kílómetra leiö, og hefur til þeirra fcrða
stærri skip, með svcfnklefum.
Við lögðum upp frá Trier kl. 9.15 að
morgni, og vorum komin til Bernkastel-
Kues, um kl. 13.30. Bernkastel heitir
Bcrnkastcl-Kues eftir að Kues samcin-
aðist Bernkastel og bæirnir tveir urðu að
einu bæjarfélagi, en nábýli þcirra cr ef
til vill sambærilegt við Reykjavík, Kópa-
vog, og kannski ættum viða að taka
Bernkastcl-Kucsbúa okkur til fyrir-
myndar á þessu sviði! Að loknu tvcggja
tíma stoppi í Bcrnkastel, þar sem færi
gafst á að skoða það markvcrðasta í
þessari fallegu smáborg, var siglt áleiðis
til baka, tilTrier.ogþóaðsama leið væri
farin, þá var eirtsogmaðurgæti alltafséð
það scm fyrir augu bar frá nýju og nýju
sjónarhorni, þannig að það var alls
ckkcrt lciöigjarnt að fara sömu leiðina.
■ Beðið eftir því i fyrri skipastiganum, að vatnshólfið tæmist, en við það
færðist skipið niður um 8 metra.
■ Hann er hálfdrungalegur kastalinn í Bernkastel, en tilkomumikill engu
að síður. Eins og sjá má nær vínviðurinn alveg að kastalaveggjum.
Tímamyndir Agnes
■ Brúarmannvirki eru víða tilkomumikil i Móseldalnum, og þá einkum þau,
þar sem hraðbrautir „Autobahn" liggja.
■ Á siglingu niður Mósel sjást margir hliðstæðir staðir við þennan.
Móselbúar leggja sig fram um að bjóða upp á falleg og róleg hótel við ána,
og auglýsa þá gjarnan að þeir bjóði upp á útsýni yfir Mósel. Algengt nafn á
hóteli við Mósel er Móselperlan, en ég satt að segja gleymdi að festa eitt
slíkt nafn á filmu.
IS*.