Tíminn - 04.12.1983, Side 2
, , SUNNUDAGUR 4, DESEMBE« 1983
dagskrá allan jólamánuðilmi^
A
faralds- .
fæti
■ Sxlkerum til upplýsingar, þá leit
matseðill jólapakkakvöldsins svona út í
fynra.
■ Þeir eru eflaust einhverjir sem fyrir
þessi jól, sem og önnur bregða sér í
verslunarleiðangur til Lundúna, Glas-
gow eða Amsterdam, allt eftir áhuga,
efnum og ástæðuni. Eitthvað verða þeir
scnnilega færri sem fara í slíkar innkauf.a
reisur þctta árið, enda ekki svo lítið
talað um skert kjör. Að jafnaöi þurfa
margir dreifbýlisbúar að leita til þéttbýl
isins fyrír hátíðarnar, til þess að birgja
sig upp af varningi ýmis konar, jafnt
jólagjöfum sem rekstrarvörum hcimii-
anna. Þeir verða því á innlendum faralds
fæti, og í tilefni þess að jól in nálgast
nú, þessir ferðalangar fara að streyma til
borgarínnar, aðrír sem í borginni búa
vilja gera sér dagamun í svartasta
skammdcginu, ræddi ég stuttlega við
Emil Guðmundsson hótelstjóra á Hótef
Loftleiðum um það hclsta sem verður á
döflnni hjá Hótel Loftleiðum í jólamán-
uðinum:
„Við verðum með sérstaka dagskrá
allan desembermánuð, og hefst hún með
því að aðventukvöld verður haldið nú á
Jólapakkalwðld
■ Öll kvöldin sem dagskrá verður, vcrður jafnframt tískusýning, og verður Víkingaskipið skreytt vörum frá hinum ýmsu verslunum í borginni, en að jafnaði er
Víkingaskipið drekkhlaðið gómsætum réttum, eins ogsvo fjölmörgum er kunnugt um.
Emil Guðmundsson, hótel
stjóri á Hótel Loftleiðum
Ummjón Agnet Bragadóttlr
„Erum með
sunnudagskvöldið, þar sem barnakór
syngur, tískusýning verður, Einar Örn
Einarsson tenórsöngvari syngur, auk
þess sem Ijúffengur kvöldverður verður
framreiddur. Það er að vísu ekki rétt hjá
mér að dagskráin hefjist með þessu, því
nú 1. desember byrjuðum við með
Julebord, sem er framreitt í hverju
hádegi, en það er kalda borðið okkar, að
viðbættum dönskum jólaréttum, og Jul-
ebord verður á boðstólum hjá okkur
fram á Þoríáksmessu. Með jólaborðinu
danska verður einnig hægt að fá jóla -
glögg.scm einnig er danskur siður, og
Blómasalurínn verður skreyttur á dansk-
an hátt þennan tíma, með kringlum og
hjörtum.
9. og 10. desember verðum við með
Norska daga, þar sem kynntir verða
norskir réttir, og hinn þekkti vísnasöngv-
ari Finn Kalvik skemmtir. Lúsíukvölder
svo á dagskrá hjá okkur 11. desember,
og Lúsíurnar koma til okkar frá Söng-
skólanum í Reykjavík, ásamt St. Lúsíu.
Víkingaskipið verður skreytt af gjafa
verslunum úr Reykjavík öll kvöldin, og
á Lúsíukvöldinu er það verslunin Kúníg-
únd sem sér um skreytingu skipsins. Þá
verða einnig happdrættisvinningar öll
kvöldin.
Loks vil ég nefna jólapakkakvöld sem
verða hjá okkur 17. og lS.desember, en
þau hefjast með því að barnakór Kárs-
nesskóla syngur og siðan verður tísku
sýning á vegum Módelsamtakanna.
Þessi kvöld hafa verið einstaklega vinsæl
hjá okkur undanfarin þrjú ár, enda
skapast alveg sérstök jólastemmning á
þeim, þegar aðeins logar á kertum og
sungnir eru jólasálmarnir."
- Sem sagt, heilmikið um að vera hjá
ykkur í jólamánuðinum Emil, en hvað
segir þú mér - má einhver vera að því að
koma og skemmta sér svona rétt fyrir
jólin?
■ Lúsíunum fylgir jafnan hátíðarbragur.
■ Lítil stúlka tendrar Ijósin á kertum aðventukransins á aðventukvöldi.
„Já, það er einmitt mikið um það að
starfsfélagar, og jafnvel heilu fyrirtækin
fari saman út eitt kvöld fyrir jólin og við
höfum tekið upp þann háttinn gagnvart
þeim, að bjóða 10 manna hópum eða
þaðan af stærri upp á 10% afslátt þennan
mánuð. Nú, svo er hótelið talsvert mikið
nýtt af fólki utan af landi, sern kemur í
verslunarieiðangur fyrir jólin. Við vilj-
um koma til móts við þetta fólk, og
höfum reynt að stilla gistivcrði í hóf. Við
bjóðum upp á sérstakt gistiverð í des-
ember, sem er 550 krónur fyrir herberg-
ið, burtséð frá því hversu margir eru í
herberginu, þ.e. þeir geta verið einn,
tveir eða þrír, en gistiverðið er það
sarna."
Emil segir mér að reynsla hans undan-
farin þrjú ár sé sú að þessi jóladagskrá
hótelsins hafi mælst mjög vel fyrir. Fólk
hafi sérstaklega talað um jólapakka-
kvöldin sem hátíðleg kvöld fyrir aila
fjölskylduna og sömu sögu væri að segja
um aðventukvöldið og Lúsíukvöldið -
þessi kvöld væru búin að vinna sér fastan
sess í starfi hótclsins, og því væru þau á
dagskrá hjá hótelinu ár eftir ár.
Emil sagði mér einnig að matseðlarnir
á öllum þessum kvöldum myndu gilda
sem happdrættismiðar einnig, þannig að
allir gestirnir ættu möguleika á vinningi
það kvöld sem þeir væru gestir hótelsins,
cn þeir væru jafnframt þátttakendur í
stóra vinningnum sem dreginn væri út
síðasta kvöldið, en það væri flugfar fyrir
tvo til Kaupmannahafnar og aftur til
baka.
Það er því ljóst, að þeir sem á annað
borð hafa til þess tíma og ráð að gera sér
hátíðlegan dagamun í þessum svarta
skammdegismánuði, hafa til þess næg
tækifæri.