Tíminn - 04.12.1983, Blaðsíða 18

Tíminn - 04.12.1983, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 ■ Á Sprengisandi. ■ Tjaldað í Jökuldal í Tungnafells jökli. FYRSfTUR Fyrir skömmu kom út bókin „Áfram skröltir hann þó“, sem f jallar um líf sævintýri Páls Arasonar, f jallabílstjóra í byggð og óbyggð. Það er bókaútgáfan Örn og Örlygur, sem gefur bókina út, en Þorsteinn Matthíasson skráði. Páll Arason var meðal f rumher janna í fjalla og öræfaf erðum og var ferða og athafnaþráin honum í blóð borin, svo og orka og kjarkur til að takast á við hið óþekkta. Hann gerðist snemma bifreiðarstjóri og áður en langt um leið var hann kominn til f jalla og farinn að fara þar áður ókunnar slóðir á bifreiðum. Má nefna að hann ók t.d. fyrstur manna yfir Sprengisand, en frá þeirri för segir einmitt í þeim kafla sem hér birtist: ■ Ég fór fyrstur manna suður um Sprengisand á bíl sumarið 1948. Þá var þessi sami ferðahópur með mér. Á því sumri varð ég fyrir því óhappi að merja á mér tá þegar ég var að skipta um dekk á leið yfir Holtavörðuheiði. Þetta var fjandi sárt en ég harkaði þó af mér og grét ekki. Þetta ár var tekin upp bensínskömmtun og áttu engir að fá umtalsvert bensín aðrir en leigubílasjtórar og þeir sem óku vörubíl- um í sambandi við atvinnurekstur. Ég hafði ekki stöðvarleyfi og var því neitað um bensín umfram það sem einkabílar fengu. Ég var búinn að fara til lögreglu- stjóra og upp í ráðuneyti en fékk alls staðar nei. Þá frétti ég að Pálmi Hannesson hefði með höndum úthlutun á bensínleyfum handa þeim sem óku jarðfræðingunum. Ég hafði þá. ferðast mikið með Sigurð Þórar- insson og þó sérstaklega Guðmund Kjart- ansson sem var með mér í flestum Heklu- ferðum. Ég fer því til Pálma og geri honum grein fyrir máli mínu. Hjá honum fæ ég ávísun á bensínskömmtunarseðla eftir þörfum, þurfti ég aðeins að sýna hana og fékk þá skömmtunarseðla hjá lögreglu- stjóra eða sýslumanni hvar á landinu sem ég var staddur. í Sprengisandsfeðinni sem ég hef áður minnst á var þátttakandi frú Ragnheiður Brynjólfsdóttir kona Helga Tómassonar yfirlæknis á Kleppsspítalanum. Þau hjón voru áhugasöm um trjárækt og land- græðslu. Frúin hafði því meðferðis nokkur grenitré sem hún gróðursetti suður í Tómasarhaga. Éandið þar liggur hátt yfir sjó (800 m) og þessi tré döfnuðu ekki. Úr Tómarsarhaga fórum við inn í Jökuldal og höfðum þar viðdvöl hálfan annan dag. Þaðan var ekið að Eyvindarkofaveri. Það er á Sprengisandi hér um bil í hásuður frá Arnarfelli hinu mikla. Við áttum í erfið- leikum að komast yfir Þúfuverskvíslina vegna sandbleytu. Ég hafði frétt að Ferðafélag Akureyrar væri að undirbúa ferð suður um Sprengi- sand. Þessi leið hafði ekki verið farin í fimmtán ár og ég hafði því hug á að vera fyrr á ferð og tjalda ekki en halda áfram suður um nóttina. Veðrið var hálf hryss- ingslegt, norðan kuldastrekkingur. Þegar við komum suður undir Kjalvötn, sem eru innan við Búðarháls er þar smákvísl varla meira en í ökkla að því er séð verður. Ég ek út í en festi þá bílinn í sandbleytu. Halldór Ólafsson, bílstjórinn minn sem ég hef áður nefnt, kallar til mín og segir: „Palli, þú ert alltaf að festa þig, ég held þú kunnir ekki að keyra. Ætli ég verði ekki að draga þig upp.“ Hann fer svo út í rétt fyrir ofan mig en festir þá sinn bíl líka. Það tók okkur eina tvo tíma að ná upp bílunum. Eftir það héldum við áfram og ók ég á undan. Á Búðarhálsi verður einhverjum farþeganna litið aftur og segist hvergi sjá til Halldórs sem átti þó að vera skammt á eftir. Ég fer út úr bílnum og svipast um en sé hvergi bóla á honum. Ég sný þá við og ek til baka. Lengra norður á hálsinum hefur Halldór stansað og allt fólkið er komið út úr bílnum. Annar hjólbarðinn að framan er sprunginn en eitthvað fleira sýnist mér muni vera að, því einn farþeginn liggur nær meðvitundarlaus á þúfu skammt þar frá bílnum. Þegar Halldór festi bílinn í kvíslinni hafði púströrið bognað upp, og vegna þess að vindurinn var meiri en hraðinn og þar að auki á eftir, kom útblásturinn frávélinni inn í bílinn og fólkið fékk snert af gaseitr- un. Halldór dottaði við stýrið en svo heppilega vildi til að bíllinn lenti á gríðar- stórum steini og hjólbarðinn rifnaði, við áreksturinn vaknaði fólkið. Ari Kárason, ljósmyndari, einn af farþegunum, var nokkurn tíma að jafna sig. Eftir skamma stund höfðum við skipt um hjólbarðann og gátum haldið áfram og vorum komnir suður að Tungnaá snemma um morguninn. A BÍL SUB Bíllinn sem koma átti að sunnan var ennþá ekki í sjónmáli, enda við nokkuð á undan áætlun. Veður var hið fegursta og allir í besta skapi. Þarna var tekinn tappi úr flösku og menn gáfu sig gleðinni á vald um stund. Klukkan fjögur um daginn kom svo bíllinn og þá var fólkið ferjað yfir Tungrraá og ég fékk tvöhundruð lítra af bensíni. í fjallaferðum um vegleysur og brattlendi eru bílarnir þurftarfrekir. Meðan verið var að ferja mitt fólk yfir ána kom ferðafélagshópurinn frá Akur- eyri, varð þar fagnaðarfundur með mönnum. Þegar við settum stærri ferjubát- inn á flot reyndist hann rifinn niður í kjöl og hriplekur. Litli báturinn sem geymdur var sunnan við ána var því notaður en í honum var aðeins hægt að flytja tvo til þrjá farþega í einu og eitthvað dálítið af farangri, en við höfðum mikið meðferðis bæði matvæli og viðlegubúnað. Ég hef sagt frá því að bílinn sem ég ók sjálfur kallaði ég Pálínu. Sú nafngift var þannig til komin, að einu sinni sem oftar var ég með Farfugla í ferð inni á Kaldadal. Með í þeirri ferð voru tvær systur. Þær hétu Pálína og Ólína. Pálína var í bílnum sem ég ók en Ólína í hinum. Okkur kom saman um að skíra bílana í höfuð systranna og þau nöfn héldust þótt þær yfirgæfu farar- tækin. Það er rétt ég láti þess getið hvernig mér tókst að eignast þessa bíla. Á stríðsárunum vann ég mikið og komst þá yfir vörubíl og fólksbíl, því allan afrakstur vinnunnar, annan en þann sem fór í brýnustu lífsþarfir, notaði ég til að eignast ökutæki. Þegar stríðinu Iauk var ég það fjáður, að ég gat keypt Pálínu og greitt kaupverðið út í hönd. Hún kostaði fimmtán þúsund krónur og fylgdu nokkrir varahlutir. Ólínu eignað- ist ég svo þannig, að við Magnús á Grund, hann varð síðar lögregluvarðstjóri, ætluð- um að vera saman um ferðalög. Hann átti nóga peninga og keypti bílinn af Júlíusi Sigurðssyni, sem lengi ók hjá Dala-Brandi. Bíllinn kostaði þrjátíu þúsund krónur. Við fórum svo reynsluferðalag austur í Næfurholt um jólin 1947. Þá er mjög hart frost 24° C þar austur frá, svo Magnúsi leist ekki á að taka þátt í ferðalögum af þessu tagi. Hann var þá svo vingjarnlegur að selja mér bílinn með ágætum greiðslu- skilmálum. Ég borgaði sexþúsund krónur út og eftirstöðvarnar eftir því hvernig fjárhagurinn stóð á hverjum tíma. Stund- um þúsund krónur á mánuði, stundum ekki nema fimmhundruð ef tómahljóð var 1 pyngjunni. Þessi liðlegheit Magnúsar gerðu mér fært að ráðast í kaupin. Eg var oft í peningahraki, einkum á vorin þegar greiða átti tryggingargjöldin og búa bílana undir sumaraksturinn. Faðir minn var ekki alltof hrifinn af að skrifa upp á víxla fyrir mig, og fyrst hann var svo tregur var ekki eðlilegt að aðrir væru til þess fúsari. Þó sagði hann stundum: „Palli, það er kannski hægt að fá Kaf li úr nýúl- kominni bók um lífsævin- týri Páls Arasonar, fjallabflstjóra í byggð og óbyggð víxil í Útvegsbankanum hjá honum Ás- geiri, við erum gamlir skólabræður.“ Þetta peningaleysi olli því að bílarnir litu ekki ætíð vel út. Voru kannski ekki ósvipaðir illa framgengnum búpeningi þeg- ar þeir lögðu upp í fjallaferðirnar á sumrin. Veturinn 1950, er ég beðinn að fara með fólk vestur í Dalasýslu. Þar á að jarða húsfreyjuna frá Skörðum í Miðdölum, Hugborgu Magnúsdóttur, en hún andaðist að Sauðhúsum hjá dóttur sinni Herdísi Guðmundsdóttur. Börn hinnar látnu, þau sem búsett voru í Reykjavík, ætluðu ásamt fleiri vinum og venslafólki að vera við jarðarförina og þess vegna var ég fenginn til að fara. Ég fór héðan frá Reykjavík árla dags og hafði góða ferð vestur. Vegna þess hve margt aðkomufólk var að Sauðhúsum var mér búinn náttstaður á Saurum, sem er næsti bær utar í Laxárdalnúm. Daginn eftir er jarðað á Kvennabrekku, en þá skellur á blindhríð. Ég fann til með syrgjendunum sem stóðu yfir gröfinni í þvílíku foraðs veðri. Að lokinni athöfn í kirkjugarði var boðið til myndarlegrar erfisdrykkju á prestssetrinu að Kvennabrekku. Þangað höfðu aðstandendur hinnar látnu flutt veisluföng. Hríðinni slotaði ekki og ég var lengi kvölds að flytja fólkið heim. Um nóttina svaf ég í bílnum á veginum niður- undan Sauðafelli en þangað fór ég með síðustu gestina. Næsta dag var bjartara yfir en færð hafði spillst og var Brattabrekka talin lítt fær. Júlíus Sigurðsson sem ók áætlunarbílnum fyrir Guðbrand Jörunds- son, var þennan dag fyrir vestan á suðurle- ið. Það talaðist svo til milli okkar að við hefðum samflot suður og var fenginn tíu hjóla trukkur til að troða fyrir okkur brautina. Við lögðum upp frá Breiðabólsst- að í Sökkólfsdal klukkan ellefu um morg- uninn og vorum sex tíma að komast yfir fjallið að Dalsmynni. Eftir að þangað kom gekk ferðin vel til Reykjavíkur. Þannig hafði verið samið um ferðina að ég skyldi hafa kr. 200 á dag og auk þess tvær krónur fyrir hvern ekinn kílómetra. J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.