Tíminn - 13.01.1984, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1984
fréttir
Fjármálaráð
herra
kærður fyrir
að halda
hund í
Reykjavík:
„ÉG BÝ EKNILÖG-
REGLURÍKl ÍSLANDS"
— segir Albert Guðmundsson, fjarmálaráðherra, sem treystir því að sjálfstæðismeirihlutinn
í borgarstjórn gæti hagsmuna hans, en íhugar ellegar búferlaflutninga af landi brott.
■ Nú hcfur það gerst, að Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra, hefur verið
kærður fyrir að halda hund í Reykjavík.
Kærandinn er Rafn Jónsson, fréttamaður
útvarps. Alhert upplýsti Tímann í gær að
hundur hans, Lucy, sem er gömul tík, færi
aldrei út af lóð hans, og raunar mjög sjaldan
út. A'bert sagðist ekki skilja hvatir þær sem
lægju að baki svona kæru, því hann vissi
ekki til þess að umræddur fréttamaður
hefði nokkru sinni séð hund hans, hvað þá
að hann hefði oröið fyrir ónæði af völdum
hans. Hér byggju því augljóslega aðrar
hvatir að baki.
„Þessi maöur, Rafn Jónsson, hefur ckki
komið nálægt mínu heimili, og því síður
tíkinni minni, þannig að hann hefur ekki
yfir neinu að kvarta," sagði Albert Guð-
mundsson, fjármálaráöhcrra, er Tíminn
ræddi við hann í gær um kæru þá sem
komin er fram á hann fyrir hundahald.
Albert sagðist engan veginn geta gert sér
grein fyrir því hvað byggi að baki svona
kæru, og sagðist hann reyndar ekki vera
einn um slíkt skilningsleysi.
„Það er hart í mínum augum, ef íslend-
ingar geta ekki fengið að búa við sömu
réttindi, hvar sem er á landinu,“ sagði
Albert, „og það er nú Sjálfstæðisflokkurinn
sem stendur vörð um frelsi einstaklingsins
til orða og athafna. Þessi flokkur hefur
meirihluta í borgarstjórn og hann hlýtur að
sjálfsögðu að gæta minna hagsmuna. Að
minnsta kosti reikna ég með að flokkur
hinna frjálsu líti á það sem sjálfsagðan hlut
að gæta hagsmuna einstaklingsins."
Hver verður afstaða þín, ef þér verður
gert að greiða sekt?
„Ég mun ckki greiða hana. Slíkt kemur
ekki til greina. Frckar flyt ég í burtu. Ég hef
nú vcrið með það í huga að flytja af landi
brott, alveg síðan ég kom til baka, og hvort
það verður einu árinu fyrr eða seinna sem
ég fer skiptir ekki máli. Ég bý ekki í
lögregluríki íslands."
- Kom þessi kæra þér gjörsamlega í opna
skjöldu?
,Já, það verð ég að segja. Hér var
skilningur, þegar ég var í borgarstjóm og
þessi mál vom rædd. Þá var talað um það
að lögregluvaldi yrði ekki beitt, heldur að
þau dýr sem væru í eigu borgarbúa, fengju
að renna sitt æviskeið, en menn fengju hins
vegar ekki að endumýja, ef svo má að orði
komast. Það er ákveðin mannvonska í því
að taka gæludýr frá mönnum, að ég tali nú
ekki um frá bömum, sem ég er sannfærður
um að íslendingar almennt geta ekki liðið.“
Svo má náttúrlega benda á það, að ýmsir
aðilar hafa fengið leyfi til þess að hafa hund,
frá því þessi reglugerð um hundahald tók
gildi hér í Reykjavík. Ég fékk leyfi til þess
að hafa varðhund í Tollvömgeymslunni,
Securitas hefur leyfi fyrir varðhundum,
blindir mega hafa hunda, lögreglan er með
hunda, sendiráðsmenn geta komið með sín
dýr erlendis frá og fleira. Það er því ekkert
hundabann í gildi, það er aðeins bannað
fyrir Rcykvíkinga að halda hunda. Þetta
nær náttúrlega ekki nokkurri átt. Annað
hvort er bann fyrir alla, og þá ástæður að
baki bannsins þannig að allir skilji, eða þá
að það er ekki bann".
Albert sagði: „Borgaryfirvöld geta með
því að meina mér að halda hund, meinað
mér búsetu hér í Reykjavík. Ef mér verða
sett skilyrði um að annað hvort láti ég aflífa
hundinn eða fiytja úr borginni, þá flyt ég
tvímælalaust. Hundurinn er í fjölskyldunni,
og þeir geta ekki skipað mér að drepa einn
af fjölskyldumeðlimunum.“
-AB
■ Lucy fékk í fyrsta sinn að stíga upp í sófann hjá Albcrt í gær í tilefni myndatökunnar.
Tímamynd: Róbert
Eyjólfur Friðgeirsson stjórnarformaður
Laugalax um skýrslu Hollustuverndar
TÖLUR MIÐAST VIÐ HÁMARKS Á-
LAG OG ENGAN HREINSIBÚNAÐ
■ f Tímanum í gær cr gert grein fyrir
skýrslu Hollustuverndar ríkisins um
hugsanlega mengun samfara laxeldisstöð
við Apavatn. Formaður stjórnar Lauga-
lax h/f, Eyjólfur Friðgeirsson fiski-
fræðingur kom að máli við blaðið í gær
og óskaði eftir að blaðið birti eftirfarandi
athugasemd vegna fréttarinnar í gær.
Skýrsla HoIIustuverndar ríkisins er
sérfræðiskýrsla, nokkuð ítarleg, en mjög
varfærin. Tölur um hugsanlega mengun
frá stöðinni eru að mestu lcyti byggðar á
ítarlegum útreikningum á efnainnihaldi
vatns frá stöðinni miðað við fyrirhugað-
an rekstur. Allar þær tölur eru hafðar í
hærra lagi, en auk þess cru tölur
Hollustuverndar ríkisins miðaðar við
þann mánuð, sem mest álag er á stöðinni
og engan hreinsibúnað eða eyðingu á
rennslisleiðinni frá stöðinni að Apa-
vatni. Allar þær tölur m.a. viðmiðun við
skólp frá mönnum, sem slegið var upp í
Tímagreininni, eru því vísvitandi
alóhagstæðustu tölur við verstu skilyrði
og enga hreinsun. Einaf sér gefa þær því
alranga mynd af raunverulegri mengun-
arhættu. Allt mat á virkni hreinsibúnað-
ar og eyðingu mengandi efna er aftur á
móti mjög varfærið í skýrslunni. Sam-
hengislausar tilvitnanir í skýrsluna í
blaðagrein geta því gefið mjög villandi
mynd af raunverulegum niðurstöðum.
Varfærnislegir útreikningar, sem birtir
eru í skýrslunni. sýna að miðað við enga
virkni hreinsibúnaðarins á uppleyst efni
í frárennslisvatninu, nema köfnunarefn-
is- og fosfórsambönd, sambærileg t.d.
við túnáburð, innan við einu tonni á ári,
sem er lítið miðað við hugsanlega skolun
túnáburðar í vatn við áburð á vorin í
vætutíð.
Rannsóknir, sem fyrirhugaðar eru á
Apavatni og við höfum fallist á að láta
framkvæma miðast við að kanna hvaða
áhrif þessi áburðarefni gætu haft á
vatnið. Sé núna um mcngunarálag á
vatninu að ræða, má gera ráð fyrir, að
Náttúruverndarráð og Hollustuvernd
ríkisins kanni hvaða orsakir eru fyrir
þeirri mengun.
Það er ekki rétt, eins og sagt er í
greinarfyrirsögn í Tímanum, að stöðin
sé við Apavatn. Vatn frá stöðinni mun
renna yfir 5 km leið um skurði og læki
áður en það kemur í Apavatn. Það er
því langsótt þegar því er haldið fram í
umfjöllun um stöðina, að það áburðar-
magn, sem gæti komið frá stöðinni, ef
hreinsibúnaðurinn virkaði illa, skili sér
allt í vatnið. Að okkar mati mun það
nýtast og eyðast á hinni löngu leið niður
í Apavatn.
Umræður um þetta mál hafa vafalaust
verið hollar og þarfar og sjálfsagt að
huga vel að mengunarmálum við Apa-
vatn og víðar. Von okkar aðstandenda
Laugarlax hf. er að þeir aðilar, sem
valda eða gætu valdið mengun á um-
hverfi sínu, hafi sama andvara á sér á því
sviði og taki þau mál jafn föstum tökum
og við höfum gert.
Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur,
stjórnarformaður Laugalax.
■ Rafn Jónsson Jréttamaður útvarps,
„Þetta er fyrst og fremst spurning um
prinsip." Tímamynd Róbert
■ „Ég kæri af tveimur ástæðum. 1
fyrsta lagi þeirri að Albert Guðmunds-
son er einn af mönnunum sem setja lög
í landinu - hann á að vera öðrum
borgunum fyrirmynd. í öðru lagi vegna
þess að hann lýsir því yfir í útvarpi að
hann brjóti landslög," sagði Rafn Jóns-
son fréttamaður útvarps er Tíminn
spurði hann í gær hverjar hefðu verið
forsendur þess að hann kærði í fyrradag
Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra
fyrir að halda hund í Reykjavík.
Rafn sagði jafnframt: „Þetta er fyrst
og fremst spurning um prinsip. Ef lög
eru í landinu, þá á að halda þau. Ef
mönnum finnst þau óréttlát, þá á að
reyna að breyta þeim, en það á ekki að
brjóta þau.“
- Er Albert Guðmundsson þá eini
maðurinn sem þú þekkir, sem er lög-
brjótur?
„Nei, hann er hins vegar eini maður-
inn sem er alþingismaður sem hefur lýst
því yfir í útvarpinu að hann eigi hund í
Reykjavík."
Rafn sagðist geta fullvissað alla um að
engar annarlegar hvatir lægju að baki
þessari kæru. Hann sagði í því sambandi:
„Ef það hefði komið maður í útvarpið
og hann hefði lýst því yfir að hann héfði
svikið 150 þúsund krónur undan skatti,
vegna þess að honum þætti skattálög-
gjöfin óréttlát, hefði sá maður verið
látinn í friði?
- Er það heilagt hlutverk þitt að
halda uppi lögum og reglum í landinu?
„Nei, það er alls ekki heilagt hlutverk
mitt. Ég er almennur borgari sem hlusta
á útvarpið heima hjá mér, og þetta eru
mín viðbrögð. Ég hef borgaraleg rétt-
indi, álít þetta borgaralega skyldu mína
að vekja athygli á lögbroti sem þessu.“
Rafn sagði jafnframt: „Það er spum-
ing hvort þessi kæra á hendur Alberti
Guðmundssyni verði ekki til þess að
reglunum verið breitt enda brýn þörf.
- AB
„Borgaraleg skylda
mín að vekja athygli
á lögbroti þessu“
— segir Raf n Jónsson, fréttamaður
sem kærði f jarmálaráðherra