Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 1

Tíminn - 31.01.1984, Blaðsíða 1
sina til lóðatíka ■ Fjárhundur frá Reykjakoti í Ölfusi á dauðadóm yfir höfði sér geti hann ekki hamið náttúru sína til lóðatíka í Hveragerði eftirleiðis. Að sögn Hrefnu Kjartansdótt- ur, bónda í Reykjakoti, stóðst hundurinn hennar ekki freisting- arnar s.l. föstudag og var þá gómaður og settur inn af lögregl- unni í Hveragerði. Samkvæmt gildandi reglum í Hveragerði verður fólk að greiða 800 króna lausnargjald fyrir hunda sem eru handsamaðir þar. Hrefna var hins vegar ekki sátt við að greiða þetta lausnargjald og var hundurinn því i gæsluvarð- haldi meðan málin voru rædd hjá lögreglu á Selfossi. Lyktir málsins urðu þær, að Hrefna fékk hund sinn leystan úr haldi á mánudagsmorgun, án greiðslu lausnargjalds, en með því að undirskrifa skjal um það, að ef hundurinn yrði á ný gómaður í Hveragerði væri hann réttdræp- ur. „Já hér eftir verð ég því að gæta hans mjög vel. cllegar að láta hann í burtu og reyna að fá mér annan sem kannski tollir betur hérna heimavið", sagði Hrefna í Reykjakoti, sem óttast að erfitt verði að halda hundi sínum frá lóðaríinu í Hvera- gerði. -HEI Siðumúla 15—PósthoK370Reykjavik-Ritstjórn86300-Auglýsingar 18300- Afgreidsla og askríft 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306 Hvað gerist ef starfsmönnum ÍSAL tekst að sprengja launaramma ríkisstjórnarinnar? „RHSSTJÓRMN Á ÞEGAR í STAÐ AÐ SEGIA AF SÉR" — segir Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra ■ „Ef sá rammi sem rfldsstjóm- in hefur sett í efnahagsmálum verður sprengdur og slíkt tilræði nær fram að ganga, þá er það mín skoðun að ríkisstjórnin eigi þegar í stað að segja af sér. Þá hefur henni mistekist ætlunar- verk sitt“, sagði Sverrir Her- mannsson, iðnaðarráðherra, í utandagskrárumræðu á þingi í gær er hann svaraði fyrirspumum sem fram komu vegna umrnæla Hveragerði: Fjárhundur á dauðadóm yfir höfði —geti hannekki hamið náttúru hans og annarra ráðherra um kjaradeiluna í Straumsvík. Var Sverrir þungorður vegna kröfugerðar starfsmannanna og sagði að starfsmenn hjá ÍSAL ættu heimtingu á að vita afstöðu sína í þessum efnum. „Ég mun standa gegn því með öllum ráðum að þeir brjótist þannig í gegn að það yrði fyrirmynd fyrir alla aðra“, sagði Sverrir. Benti hann á að starfsmenn ÍSAL hefðu að jafnaði 32-40 þúsund krónur í laun á mánuði, sem væri meira en helmingur þess sem Guðmundur J. Guðmundsson væri fær um að ná fram fyrir sitt fátæka fólk. Forkálfar ASÍ beittu þessum hálaunamönnum fyrir vagninn og Þjóðviljinn skýrði svo frá að þeir ættu að brjóta ísinn og takmarkið væri að koma ríkisstjórninni frá. Steingri'mur Hermannsson, forsætisráðherra, sagði við sama tilefni að ef fyritæki sem hefðu bolmagn til að greiða ha“rri laun færu út fyrir þann ramma scm settur hefði verið. vrði crfitt að standa gegn því að þeir sem hafa langtum lægri laun fái svipaðar hækkanir. „Það verðui eriiit að neita þeim lægst launuðu um hækkun ef þeir í Straumsvík fá 20-40% hækkanir, en þeir sem þar starfa eru með tckjuhæstu mönnum í þjóðfélaginu", sagði Steingrímur. Stcingrímur sagði cnnfremur: „Ef launaramminn verður sprcngdur skulum við ekki tala um 10% verðbólgu í lok ársins, heldur 20-40% eða jafnvel miklu meira.“ Sjá nánar bls. 5. Lögreglan í Kópavogi: Greip inn- brotsþjofinn glóðvolgan ■ Lögreglan í Kópavogi greip glöðvolgan innbrotsþjóf aðfaranótt laugardags þar sem hann var að athaína sig í versluninni Vörðufelli viö Þverbrekku i Kópavogi. Mað- urinn setti af stað þjófavarnar- kerfi án þess að vcröa þess vtir og lögreglan var það snör í snúningum að hún náði mann- inum á innbrotsstaðnum. Þjólurinn hafði á einhvern hátt komist yfir lykil að versl- uninni en láðist að kynna sér þjóíavarnarkcrfiö. Innándyra gekk hann inn í geisla senr setti af stað sjálfvirkan simsvara og hringdi símsvarinn á iögregl- una og tilkynnti að verið væri að brjótast inn í búðina! -GSH ■ Snjorinn setur sitt mark á samgöngur i hofuðborginni ökumönnum til mismikillar ánægju. Margir eru þeir þo sem vei kunna að meta snjöinn og bregða skiði undir betri fótinn. Skíðafelag Reykjavíkur efndi til kennslu á gönguskiðum á Miklatúni i gærkveldi, fýrir þá sem telja sig þurfa aðstoð til að ná fullnumun i greininni, og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Tímamynd: Arni Sæberg. Allt um Iþróttlr helgarinnar — Sjá bls. 11-15 FJOLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Þriðjudagur 31. janúar. 1984 26. tölublað - 68. árgangur VISA-ISLAND: DRÁTTARVEXTIR EKKIFYRR EN EFTIR HELGINA ■ „Það er í flestum tilfeilum búið að póstleggja útskriftir á reikningum fyrir fyrsta tímabilið og eindagi verður núna 2. febrú- ar eins og til stóð. Við munum hins vegar ekki byrja að reikna dráttarvexti fyrr en eftir helgi, það er að segja á mánudaginn sjötta, vegna þess að útskriftirn- ar eru örlítið seinna á ferðinni en æskilegt væri. Það stafar bara af því að við höfum verið að hanna nýtt tölvukerfi fyrir okkar þarfir,“ sagði Einar S. Einars- son, frainkvæmdastjóri VISA- ISLAND, í samtali við Tímann. Einar sagði, að það hefði ekki farið eins og margir spáðu að fólk myndi ekki kunna sér hóf við notkun greiðslukorta. Að- eins örfáar útskriftir hefðu gefið til kynna að korthafar gætu ekki staðið í skilum. „Það er greini- legt að menn hafa farið mjög skynsamlega í sakirnar - verið jafnvel gætnari en menn þorðu að vona,“ sagði Einar. -Sjú. ,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.